Morgunblaðið - 10.08.1978, Qupperneq 1
36 SÍÐUR
170. tbl. 65. árg. FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 1978 Prcntsmiðja Morgunblaðsins.
.. '*■ - ■*, >x ' ,
P§trt kftiit*- tandbúnsdar-
Öar Wöa;
v * •._, tnorgutT'JWP^pi
hieysJwSöfiS
jytó'v V'" Bnúntngsvét*3»**t j
ö alr. Síár-n ána r - 0 rri
W-' ga^TÉÍirnábgi^fn sýrtfnguna á bls': f
í?'' *'''Í ' 'í.. . ■* • V- '-. . • ' • '
Öháðum iðjuhöldi
falin myndun ríkis-
stjórnar í Portúgal
Soares brást vid hinn versti
Lissahon 9. ájf. Reutor — AP.
EANES forsoti Portúgals til-
kynnti í kvöld að hann hefði
ákveðið að fara þess á leit við
Alfredo Nobre da Costa, rösklega
fimmtugan verkfræðing og iðju-
höld. óháðan í stjórnmálum. að
hann myndaði ríkisstjórn er
fengi stuðning á þingi. Akvörðun
Eanes mæltist vel fyrir hjá
miðdemókrötum og sagði do
Amaral formaður CDS að þeir
myndu vcita da Costa það lið sem
hann þyrfti til að þetta tækist
enda aðkallandi að koma saman
starfhæfri stjórn og losna um
sinn að minnsta kosti við kosn-
ingar. Cunhal formaður kommún-
ista tók í sama streng og do
Amaral. Aftur á móti brást Mario
Soares fyrrv. forsætisráðherra.
sem Eanes vék frá fyrir tveimur
vikum. hinn versti við. Gustaði af
honum er hann kom af fundi
Eanes í kvöld þar sem honum var
sagt frá þessu. Sagði Soares að
ákvörðun Eanes forseta bryti í
bága við stjórnarskrána en
studdi það ekki rökum.
Da Costa er í sumarleyfi í
Algarve í Suður-Portúgal en mun
að líkindum koma til Lissabon á
morgun að ræða við Eanes og
hefja fyrstu athuganir sínar á
stjórnarmyndun. Hann var iðnað-
ar- og tæknimálaráðherra í fyrstu
ríkisstjórnum sem myndaðar voru
í Portúgal eftir byltinguna 25.
apríl 1974.
Begin:
„Mikilvægar upplýsing-
ar fluttar milli aðila”
Alexandria, Tel Aviv, Jerúsalem, Washington 9. ág. Reuter, AP.
BEGIN forsætisráðherra ísracls sagði í kvöld að „mikilvægar
upplýsingar** hefðu verið bornar á milli aðila í för Cyrus Vance,
utanríkisráðherra Bandarikjanna. Begin var spurður að því hvort
hann vænti þess að Carter myndi koma með fastmótaðar tillögur á
fundinn í Camp David er miðuðu að því að beina viðræðunum um frið í
Miðausturlöndum í ákveðinn farveg. Begin kvaðst ekki gera ráð fyrir
því. en í fréttum frá Washington hafði verið sagt að Begin og Sadat
hefðu fallizt á að koma og ræða yfirlýsingu sem Bandaríkjamenn
hefðu samið um málið.
Fréttamenn hafa fyrir satt að
hljóðið í Begin hafi í kvöld verið
allt annað og betra en að
undanförnu og virtist hann
bjartsýnn og hinn glaðasti í
lund. Hann sagðist vænta þess
að hlutverk Bandaríkjastjórnar í
þessu efni yrði að leiða aðilana
saman til beinna samningavið-
Kína og Líbýa
taka upp stjórn-
málasamband
Peking, 9. ág. — Reuter.
KÍNA og Líbýa undirrituðu í
dag í Peking samning þar sem
ákveðið er að taka sem fyrst
upp stjórnmálasamband milli
ríkjanna tveggja. Hefur þessari
gjörð verið fagnað af hálfu
fulltrúa þeirra Arabaþjóða sem
fyrir hafa slík stjórnmála-
tengsl við Kína. Diplómatiskar
heimildir segja að þetta sé
frekari áretting um áhuga Kína
á Miðausturlandamálinu öllu
og merki um það einnig að
stjórnin í Tripoli reyni að halda
jafnvægi í samskiptum sínum
við Moskvu. Það voru utanríkis-
ráðherrar landanna beggja sem
samkomulagið undirrituðu.
ræðna. Hann neitaði að segja
neitt um fréttir ísraelskra blaða
að hann hefði með leynd leyft að
hafin yrði búseta Gyðinga á
herteknum svæðum en áður
hafði fulltrúi Likudflokksins
neitað þeim.
En fögnuður og eftirvænting
virðist ekki aðeins vera í ísrael
vegna þessa væntanlega fundar
sem menn vona að brjóti upp
þrátefli í samskiptum þjóðanna
síðustu mánuði. I Egyptalandi
var og ríkjandi betri hugur en
um langa hríð að sögn frétta-
manna og þar var sagt að Sadat
hefði ákveðið að taka boðinu
eftir að hafa fengið fréttir um
nýja þróun í friðarumleitunum
Miðausturlanda.
Sadat hefur verið gagnrýndur
í Sýrlandi, Kuwait og Jórdaníu
fyrir að ætla að fara til fundar-
ins og kom hörkulegust gagn-
rýnin frá stjórnarblöðum í
Sýrlandi.
Fréttaskýrendur víðs vegar
telja að með þessu fundarboði
tefli Carter Bandaríkjaforseti
verulega djarft, ekki sízt með
það í huga að ekkert sérstakt sé
um vitað sem bendi til þess að
árangur geti náðzt á þessum
fundi. Á hitt beri að líta að með
þessu sýni Carter áræðni sem
leiðtogarnir tveir, sem sækja
hann heim, kunni væntanlega,
að meta og leggi sig frám um að
sýna samstarfsvilja.
Lík páfa
flutt til
Rómar
BÆNDIIR komu utan af ökrum
og verkamenn í vinnufötum
gcrðu krossmark og krupu
meðfram leiðinni sem líkvagn-
inn með jarðneskum leifum Páls
páfa fór í dag frá Castelgandoifo
til Rómaborga:. Kistan mun
hvíla á viðhafnarbörum í Péturs-
kirkju fram á íaugardag. Marg-
ir sýndu merki geðshræringar
og sorgar þegar likfylgdin ók
hjá og grétu margir beizklega.
Sjá bis.t 21
Eþíópíustjóm
sækir fram
London 9. ájí- — Reuter
EÞÍÓPÍUSTJÓRN skýrði frá því í
dag að hersveitir hefðu náð á sitt
vald bænum Agordat í Erítreu úr
höndum aðskilnaðarsinna og
skæruliða úr ELF-fylkingunni.
Var frá þessu sagt í útvarpi í
höfuðborginni í dag.
Innrásin í Tékkóslóvakíu 1968:
Johnson hét að Banda-
ríkin hefðust ekki að
Köln 9. ág. AP
LEONID Brezhnev sagði
leiðtogum Tékkóslóvakíu í
ágúst 1968, eftir að þeir
höfðu verið fluttir
nauðugir til Moskvu, að
Johnson, þáverandi for-
seti Bandaríkjanna, hefði
fullvissað Sovétleiðtogana
um að Bandaríkin myndu
ekki grípa til íhlutunar til
að stöðva innrás Varsjár-
bandalagsríkjanna í
Tékkóslóvakíu undir for-
ystu Sovétríkjanna. Þessa
fullyrðingu setur Zdenek
Mlynar, fyrrverandi ritari
tékkneska kommúnista-
flokksins og einn af
höfundum umbótaáætlun-
arinnar í Tékkóslóvakíu á
Dubcektímanum, fram í
bók sinni „Næturfrost"
sem er að koma út í
Þýzkalandi um þessar
mundir, nánar tiltekið á
þeim degi þegar tíu ár eru
Johnson
liðin frá innrásinni í
landið.
Þetta er í fyrsta skipti
sem svo háttsettur Tékki,
sem var í hringiðu atburð-
anna í ágúst 1968, leysir
frá skjóðunni um hvað
gerðist í landinu dagana
eftir innrásina.
Sjá nánar um bók Mlynars á
bls 16 „Dubcok neitaði að
skrifa undir“.