Morgunblaðið - 10.08.1978, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 1978
Guðmundur sigraði
á skákmótinu í Skien
GUÐMUNDUR Sigurjónsson
varð efstur með lxh v af 9
mögulegum á alþjóðaskákmótinu
í Skien í Noregi, sem lauk í gær. í
síðustu umferðinni vann hann
Westerinen frá Finnlandi í 30
leikjum. Haukur Angantýsson
hafnaði í 6.-8. sæti með 6'A
vinning og þeir Jón Kristinsson
og Jóhann Hjartarson urðu í
Guðmundur Sigurjónsson.
9.—12. sæti með 6 vinninga. Alls
voru þátttakendur á mótinu 96
talsins.
„Skákin mín og Westerinen vai
æsispennandi en ég hafði svart,“
sagði Guðmundur þegar' Mbl.
ræddi við hann í gær. „Við lögðun
allt í sölurnar, sviptingar urðu
miklar og ennfremur tímahrak, en
að lokum tókst mér að ná fram
vinningi eftir 30 leiki.“
Guðmundur sagðist hafa byrjað
á að vinna 3 fyrstu skákirnar,
síðan gert 3 jafntefli og unnið svo
þrjá síðustu skákirnar. Næstir á
eftir Guðmundi á mótinu urðu þeir
Sússler frá Svíþjóð, Ögaard frá
Noregi, Grinfeld frá Israel og
Schnider frá Svíþjóð, allir með 7
vinninga.
Að sögn Guðmundar Sigurjóns-
sonar vakti árangur Jóhanns
Hjartarsonar, sem er aðeins 15 ára
gamall, mikla athygli og hafa
forráðamenn skákmóts, sem nú er
að hefjast í Gausdal í Noregi, farið
þess á leit að Jóhann tefli þar
ásamt fleiri Islendingum.
Um mótið í Skien sagði
Guðmundur, að það hefði verið
mjög erfitt, þar sem oft var setið
við skákborðið í 10 klst. á dag.
Áfrýjun í Guðmundar- og Geirfinnsmálum:
Ríkissaksóknari fer
fram á þyngingu dóma
RÍKISSAKSÓKNARI hef-
ur áfrýjað til Hæstaréttar
dómum yfir sex af þeim sjö
ungmennum, sem hlutu
dóma í Geirfinns- og Guð-
mundarmálum í sakadómi
Reykjavíkur í desember s.l.
í áfrýjunarstefnu er far-
ið fram á staðfestingu á
dómunum yfir Kristjáni
Viðari Viðarssyni og
Sævari Ciesielski, en þeir
hlutu lífstíðarfangelsi, en
farið er fram á þyngri
dóma yfir Tryggva Rúnari
Leifssyni, sem dæmdur var
í 16 ára fangelsi, Guðjóni
Skarphéðinssyni, sem
dæmdur var í 12 ára
fangelsi, Erlu Bolladóttur,
sem dæmd var f 3ja ára ,
Talsmenn Flugleiða á fundinum í gær.
Flugleiðir auka hluta-
fé um 300 millj. króna
Efna til f jölskyldugetraunar
STJÓRN Flugleiða hefur ákveðið Farþegafjöldi Flugleiða hefur
fangelsi og Albert Klahn
Skaptasyni, sem dæmdur
var í 15 mánaða fangelsi.
Fjórir hinna dómfelldu, Sævar,
Kristján, Tryggvi og Guðjón höfðu
óskað eftir áfrýjun en Erla og
Albert ekki. Samkvæmt lögum var
saksóknara skylt að áfrýja dómun-
um yfir fjórum fyrstnefndu
mönnunum, þar eð þeir hlutu
lengri dóma en 5 ára fangelsi.
Sjöundi maðurinn, sem dóm
hlaut, var Ásgeir Ebenezer
Þórðarson, en hann hafði átt hlut í
fíkniefnasendingu til landsins
ásamt Sævari, en kom ekki við
sögu sjálfs Geirfinnsmálsins.
Hann hlaut fjögurra mánaða
skilorðsbundinn fangelsisdóm. Ás-
geir áfrýjaði dómnum ekki og
ríkissaksóknari sá heldur ekki
ástæðu til áfrýjunar er varðar þátt
Ásgeirs og mun mál hans því ekki
fara fyrir Hæstarétt.
að auka hlutafé félagsins um 300
millj. kr. eða 11% og verður það
þá alls 2940 millj. kr. Þá hafa
Flugleiðir ákveðið að bjóða lands-
mönnum til getraunakeppni —
Getraunakeppni heimilanna —
þar sem þrenn 1. verðlaun verða
fyrir alla fjölskylduna auk 20
aukaverðlauna, farmiða fyrir tvo
milli landa og innanlands. Kom
þetta fram á blaðamannafundi
sem haldinn var með forráða-
mönnum Flugleiða í gær, en um
þessar mundir eru liðin fimm ár
frá því að Flugleiðir h.f. var
stofnað með sameiningu Flugfé-
lags íslands og Loftleiða h.f.
Á blaðamannafundinum kom
fram, að þær þotur, sem nú annast
Evrópuflug Flugleiða, anna því
vart lengur og er rætt um að bæta
við þann flota. Þær þotur, sem nú
eru notaðar, eru af gerðinni
Boeing 727—100. Nú er hætt að
framleiða þessa gerð en verk-
smiðjurnar framleiða nú stærri
vélar svipaðar og nefnast þær
727—200, og taka 160 manns í
sæti, en þær gömlu 126.
aukizt nokkuð á þessu ári eða um
6.5% í venjulegu áætlunarflugi, úr
293.238 fyrstu sex mánuði s.l. árs í
312.402 á sama tíma á þessu ári.
Nokkur samdráttur hefur hins
vegar orðið í leigufluginu og ef það
er talið með er heildarfarþega-
aukningin 5,4%.
Farþegum á Norður-Atlants-
hafsflugleiðinni hefur fjölgað um
6,4% fyrstu sex mánuði þessa árs,
en að sögn forsvarsmanna Flug-
leiða, hefur afkoman á þessari leið
ekki batnað að sama skapi, sökum
harðnandi samkeppni.
Bíðum ákvarðana með
Hafnarfj arðarveginn
— segir vegamálastjóri
- Samkvæmt vegalögum Mbl. spurðist fyrir um
leggur Vegagerðin vegi
eftir skipulagi þar sem
skipulagsskylt er. Búið er
að samþykkja veginn frá
Reykjavík eins og hann er í
dag að Arnarneshæð, en
ekki lengra og miðast
núverandi tillaga við að
hann haldi áfram gegnum
Garðabæ, sagði Snæbjörn
Jónasson vegamálastjóri er
Allt að lokast og
uppsagnir hafnar
— segir Karl Steinar Guðnason
— Við sjáum ekki fram á annað
en svartaþoku ef svo má segja,
því hér er allt að lokast og
uppsagnir hafnar bæði hiá fisk-
vinnslufyrirtækjum og lslenzk-
um aðalverktökum, sagði Karl
Steinar Guðnason formaður
Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavfliur og nágrennis er Mbl.
spurðist fyrir um atvinntihorfur
á Suðurnesjum.
Lögreglan herðir eftirlit með ökuhraða í borginni:
Sex ökumenn svipt-
ir ökuleyfi fyrir að
aka yfir 100 km hraða
Á FYRSTU 8 dögum ágústmán-
aðar hefur lögreglan í Reykja-
vík verið daglega í ratsjár-
mælingum í höfuðborginni. 135
ökumenn hafa verið kærðir
fyrir ökuhraðabrot og af
þessari tölu hafa 48 ökumenn
vcrið teknir fyrir ökuhraða,
sem var milli 80 —90 km á
klukkustund, 28 fyrir öku-
hraða, sem var milli 90—100
km á klukkustund og 6 öku-
menn fyrir að aka hraðar en
100 km á klukkustund. Sá sem
hraðast ók mældist á 110 km
hraða í EHiðaárbrekkunni.
Umræddir 6 ökumenn voru
sviptir ökuskírteini tímabund-
ið og þeir auk þess látnir
greiða háar sektir en lág-
markssekt er 8000 krónur. í
höfuðborginni má hvergi aka
hraðar en 60 km á klukku-
stund.
Slysum í borginni öðrum en á
ökumönnum og farþegum hefur
fækkað það sem af er árinu og
mun því lögreglan herða eftirlit-
ið með ökuhraðanum, sagði
Óskar Ólason, yfirlögregluþjónn
umferðarmála í samtali við Mbl.
í gær.
— Slysin, þar sem ökumenn
og farþegar slasast, verða fyrst
og fremst vegna þess að ökutæk-
in, sem í árekstrinum lenda, eru
á of miklum hraða, sagði Óskar.
— Margir ökumenn gera sér
ékki grein fyrir því hve mikil-
vægt er fyrir þá að hafa
ökuréttindin fyrr en þeir hafa
misst þau. Það að missa öku-
réttindin bitnar oft ekki ein-
göngu á viðkomandi ökumanni
heldur einnig á fjölskyldu hans
og jafnvel atvinnu. Mér er alveg
full alvara með að vara öku-
menn við þessu aukna eftirliti
lögreglunnar því við hér í
lögreglunni kynnumst því hvað
það getur verið sárt og til-
finnanlegt fyrir margan mann-
inn að missa ökuréttindin.
— Við höfum verulegar áhyggj-
ur af því hvað framtíðin ber í
skauti sér, sá vandi sem við blasir
bíður myndunar nýrrar ríkistjórn-
ar og við getum lítið gert á meðan.
Fjöldauppsagnir eru nú hafnar hjá
Islenzkum aðalverktökum, nýlega
var sagt þar upp 30 trésmiðum og
það liggur í loftinu að tugum
manna verði sagt upp nú um
næstu mánaðamót. Venjulega er
hér nokkur ördeyða á þessum
árstíma, en nú blasir við meiri
háttar stöðvun og fólk lætur skrá
sig atvinnulaust.
veginn gegnum Garðabæ.
— Þessi tillaga verður að hanga
uppi í tilskilinn tíma og síðan
munu skipulagsyfirvöld athuga
þær kvartanir og ábendingar sem
fram koma og taka málið til
meðhöndlunar. Svo virðist sem
hver höndin sé upp á móti annarri
þannig að ómögulegt er að segja til
um nú hvor leiðin verður valin,
niður með sjó eða eins og vegurinn
liggur nú.
Vegamálastjóri sagði að til væri
fjárveiting til framkvæmda við
Hafnarfjarðarveginn skv. núver-
andi skipulagstillögum og yrði því
Vegagerðin að bíða með fram-
kvæmdir þar til ákvörðun yrði
tekin.
Hins vegar er ekki á fjárlögum
gert ráð fyrir framkvæmdum við
Reykjanesbraut frá Breiðholts-
hverfum þar sem ekki hefur enn
hafizt neinn undirbúningur fyrir •
þær framkvæmdir, sagði vega-
málastjóri að lokum.
Tveir seldu
í Bretlandi
SKUTTOGARINN Vigri seldi 241
lest af fiski í Hull í gærmorgun
fyrir 46.3 millj. kr. og var
meðalverð fyrir aflann kr. 192.
Þá seldi Erlingur GK 6 107.5
lestir í Fleetwood fyrir 25,9 millj.
kr. og var meðalverð á kíló kr. 241.
Skattskrá Vesturlands:
Samanlögð gjöld
rúmir 3,2 milljarðar
SKATTSKRÁ Vesturlandsum-
dæmis hefur verið lögð fram og
nema samanlögð gjöld alls kr.
3.250.480.000 og eru þau lögð á
6.973 einstaklinga og 438 fyrir-
tæki. Hækkun frá fyrra ári er
67,26%“ og er þctta því ákaflega
skikkanleg skattskrá,“ sagði Jón
Eiríksson skattstjóri, „og er hún
áberandi jöfn og við höfum lagt
áherzlu á að endurskoða allan
atvinnurekstur og teljum við að
þetta séu nokkuð sannar tölur.“
Hæstu samanlögð gjöld einstaklinga eiga að greiða:
Pétur Geirsson, Botnsskála 5.650.412
Guðjón Bergþórsson, Akranesi 4.842.894
Soffonías Cecilsson, Grundarfirði 3.327.934
Úlfar Kristjónsson Ólafsvík 4.196.525
Jósef H. Þorgeirsson, Akranesi 3.816.033
Þessi fyrirtæki eiga að greiða hæst samanlögð gjöld: Kaupfélag Borgfirðinga 34.478.316
Olíustöðin 28.746.715
Hraðfrystihús Ólafsvíkur 17.831.963
Hvalur hf. 17.480.211
Þorgeir og Ellert hf. 17.111.195