Morgunblaðið - 10.08.1978, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 1978
15
Heimskautafar-
inn N obile látinn
ynni því A varla tím^ á þessu sviði
til mótvægis minni flutningagetu í
hverrri ferð.
Skip B myndi þurfa að greiða
hærri hafnagjöld, en þau gjöld,
ákveðin af hafnastjórnum, eru þó
háð samþykki stjórnarráðsins, og
er vel hægt að hugsa sér að haga
nefndum gjöldum þannig, að skip í
þjónustusiglingum samkvæmt fyr-
irframgerðum ferðaáætlunum
yrðu ekki fyrir óeðlilegum kostn-
aði af því að hafa sem víðtækasta
þjónustumöguleika. Annars er
þetta minna atriði vegna þess að
hafnir landsins skapa þýðingar-
mikil skilyrði fyrir atvinnulíf og
samgöngur, en flestum er höfnun-
um fjár vant og þurfa styrki frá
ríkinu í einni eða annarri mynd.
Sennilega þyrfti fjölmennari
áhöfn á skip B en skip A. Það
atriði er háð lögum og sumpart
samningum við stéttafélög, en
minnt skal á, að í Noregi var
ráðgert að hafa aðeins einum
skipverja meira á burðarmeira
skipinu.
Skip A yrði með búnaði mun
dýrara en skip B, sem myndi hafa í
för með sér meiri vexti af
höfuðstól og meiri fyrningu. Við-
haldskostnaður A og búnaður yrði
verulega meiri en við skip B og
siglingaúrföll vegna viðgerða vafa-
laust einnig tíðari.
Séu gerð sérstök hafnamann-
virki til aksturs inn og út úr
skipum, þarf að taka tillit til
þeirrar fjárfestingar, annað er
blekking.
Svo sem á hefir verið bent, yrði
skip A yfirleitt að nota krana eða
tilsvarandi lyftitæki til afgreiðslu
á verulegum hluta varnings í
venjulegum strandferðum og
myndi í því sambandi væntanlega
þurfa jafnmikinn mannafla til
sams konar afgreiðslu og skip B.
Að lokinni þessari afgreiðslu, er að
jafnaði ekki eftir meira verkefni
en svo á hverri höfn, að bezt
virðist borga sig að láta sama
mannafla og krana ljúka
afgreiðslunni.
I áður nefndu dæmi um flutn-
ing sements frá Faxaflóa til
Akureyrar, sem gæti fallið undir
út- og innaksturs-aðferðina. virð-
ist koma í ljós, að skip B myndi
fræðilega geta skilað af sér
verkefninu (með siglingu án
farms til baka) á ca. 120—121
klst., en skip A þyrfti ca. 168 klst.
til að ljúka tilsvarandi flutningi.
I báðum tilvikum er reiknað með
240 tonna afköstum við lestun og
losun á klst. og farmgjaldi fyrir
2160 tonn á 3485/- kr. 7.527.600.
Sýnist líklegt að rekstrarútkoma
B í sambandi við hið umrædda
verkefni yrði varla undir 1,5
millj. kr. hagstæðari en A. þar af
um það bil helmingur vegna
minni olíueyðslu.
Eins og öllum má ljóst vera, er
hægt að teygja útreikninga og
áætlanir sem þessar á ýmsa vegu.
T.d. skal bent á, að það myndi ekki
fá staðizt, að Esja eða Hekla héldu
nema að litlu leyti 13 mílna
ganghraða í langleiðasiglingum
við strendur landsins, þrátt fyrir
fullt álag á vélar, sem myndi
heldur ekki notað, en siglingatími
lítils háttar lengdur til verulegs
sparnaðar í olíukostnaði. En frá-
vik gilda jafnt fyrir skip A og B.
Svipað er að segja um tíma-
reikning fyrir lestun og losun í
dæminu um sementsflutning frá
Faxaflóa til Akureyrar. Þar er
reiknað með tafarlausu bryggju-
rými og afgreiðslu með áætluðum
hámarksafköstum á hvaða tíma
sólarhrings sem er, jafnt á helgum
dögum sem virkum. Slíkt myndi þó
auðvitað ekki fá staðizt í reynd, en
sízt er hallað á skip A í umræddu
dæmi, þar eð óhagræðisfrávik
yrðu samkvæmt líkum meiri í
sambandi við það skip, sem þyrfti
þrjár ferðir til að flytja sama
magn þungavöru og B í iveimur
ferðum.
Vegna þess hve skip eru misjöfn
að gerð og búnaði, getur orðið
dálítið mismunandi hlutfall milli
burðargetu, (d.w.) skipa, sem geta
verið ýmist opin eða lokuð hlífðar-
þilfarsskip.
Fleira mætti taka fram í þessu
sambandi, en hér skal staðar
numið að sinni. Vona ég að greinin
verði til nokkurs gagns.
HEIMSKAUTAFARINN og loftfars-
stjórinn frægi ítalinn Umberto
Nobile lézt á dögunum á 94.
aldursári. Er meó honum genginn
síðasti heimskautafarinn sem
frægö og frama gat sér á fyrstu
áratugum aldarinnar. Á sínum tima
vakti Það heimsathygli Þegar hann
stýrði loftskipinu Norge á Norður-
skautsferðinni 1926 sem farin var
undir forystu Roalds Amundsens og
Bandaríkjamannsins Lincoln
Ellsworth.
Upphaflega höfðu ítalir boðið
heimskautaförunum tveimur loftskip-
ið endurgjaldslaust gegn því aö þaö
flygi undir ítölskum fána. Þessu var
synjaö og skipiö greitt að fullu. Ekki
ríkti nein andans eining milli mann-
anna þriggja á leiöinni vegna þessa,
en förin á Spitzbergen til Alaska
tókst mætavel og varð fræg.
Síðan skipulagöi Nobile ítalskan
Norðurpólsleiðangur 1928 meö öðru
loftskipi sem hann hafði hannað,
Italia. Það fórst 270 km NA af
Spitzbergen. Nobile og fleiri slösuö-
ust, en Amundsen lagði þá líf sitt í
hættu til aö freista þess aö bjarga
vini sínum en steyptist þá niður í
íshafið ásamt frönskum flugmanni og
fannst aldrei. Eftir 40 daga var þeim
síöan bjargaö af áhöfn sovézka
ísbrjótsins Krasin.
Nobile fæddist í Lauro í Suður
Ítalíu. Áhugi hans á loftskipum
vaknaöi strax á bernskuárum, og
beindist umfram allt að því að hanna
loftskip til feröa um heimsskauts-
svæöin.
Nobile
Rhódesíustjórn:
Afnemur
kynþátta-
mismun í
áföngum
Salisburv, 8. ág. AP. Reuter.
STJÓRNIN í Rhódesíu tilkynnti í
dag. þriðjudag. að hún myndi
banna með lögum kynþáttamis-
mun á öllum opinberum stiiðum
og opna verzlunar- og iðnaðar-
svæði fólki af öllum kynþáttum.
Sagði Ian Smith af þessu tilefni.
að þetta væri liður í að afnema
kynþáttamismun í áfiingum og
þessari stefnu yrði framhaldið
þar til hann væri úr sögunni.
Vikan á ótrúlega lágu kynningarverði:
LEYFILEGT < KYNNINGAR VERÐ 1
vikan á neytendamarkaói
Vikan er aldeilis spræk þessa dagana. Hún er á fullri ferð með Dagblaðinu
í neytendamálum.
í hverju blaði birtast verð og gæðakannanir á ýmsum vörutegundum eða aðrar mikils-
verðar upplýsingar fyrir neytendur.
Áskrifendur fá stórt og fallegt veggspjald til að færa inn heimilisútgjöldin og kannað
verður hver séu meðalútgjöld fjölskyldna, sundurliðuð eftir fjölda fjölskyldumanna.
Þannig fá áskrifendur samanburð á sínum mánaðarlegu útgjöldum við stóran hóp annars
fólks í landinu.
Gríptu simann, hringdu í 27022 og pantaðu kynningaráskrift. Þá kostar mánaðaráskrift
þig aðeins kr. 1.440 og eintakið kr. 330 til áramóta.
Upphæðin verður innheimt í einu lagi.
Einnig flytur Vikan efni fyrir alla fjölskylduna:
Forsíðuviðtölin frægu, framhaldssögur, smásögur eftir íslenska sem erlenda höfunda,
myndasögur fyrir bqrnin, bílaþætti, poppþætti, getraunir, heilabrot, draumaráðningar
og margt, margt fleira.
UTiUfiUfi* k FJOLf ARNASTA HRING
LANDSiNS
CíeneWiMer sélaHandafer&ir
VHCAN JV
iYTIiNDA'
MAI1KADI
fS < { VIKANÍPARÍS
-.vv- -jBB - -
•« r - ■
SUMAR í
GETRAUN
- 3 :;;r-
DUBUNF.RS
I poppfrsnðirHi
M r- 'V
smfftðfWAMfrr
„ÞaitHtörkasthg tiUmmnfáiskon hfegtmtrK.
Gríptu gæsina meðan hún gefst. Hringdu strax og pantaðu kynningaráskrift
til áramóta. Síminn er 27022.