Morgunblaðið - 10.08.1978, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 1978
Spjallaó vió skattgreiðendur á
Vestur- og Austurlandi
„Sómi að vera skatt-
hæstur í sínu umdæmi”
- segir Pétur Geirsson veitinga-
maður í Botnsskála
Kappreiðar Fáks og Skeið-
félagsins nk. laugardag
PÉTUR Geirsson, veitingamaður
í Botnsskála í Hvalfirði. greiðir
hæstan skatt einstaklinga f Vest-
urlandsumdæmi þetta árið, kr.
5.650.412. Aðspurður um hvernig
honum litist á þessa upphæð og
það að vera gjaldhæstur f um-
dæminu sagði Pétur að það hljóti
alltaf að vera sómi að því að vera
skatthæstur f sínu umdæmi, og
um upphæðina sagði hann „að
skattgreiðendur hljóti þá að vera
lágir hér yfirleitt“. Hann sagðist
telja það merki virðingar að hafa
tekizt þetta núna, þannig hefði
verið litið á skatthæstu menn í
sinni heimasveit hér áður fyrr.
En sjálfur væri hann ekki
óánægður með þessa skattákvörð-
un, við henni væri ekkert að
segja.
Þriðji gjaldhæsti einstaklingur-
inn í Vesturlandsumdæmi er
Soffanías Cecilsson útgerðarmað-
ur í Grundarfirði með kr. 4.427.934
í skatta. Á síðasta ári var
Soffanías annar skatthæsti greið-
andinn og árið þar áður hæstur. í
viðtali við Mbl. kvaðst hann hafa
verið gjaldhæsti maðurinn í sinni
sveit frá því að hann myndi eftir
sér. Þetta árið sagðist hann hljóta
að vera laus við tekjuskatt, en
þessi skattur sem á hann væri
lagður væri að mestu aðstöðu-
gjaldið, en upphæðin hefði ekki
komið honum á óvart þar sem hún
hækkaði stöðugt ár frá ári.
„Aðstöðugjaldið er engan veginn
réttlátur skattur þegar .tillit er
tekið til þess hversu óarðbær
reksturinn hefur verið. Tekju-
skattur og eignarskattur eru aftur
réttlátir skattar," sagði Soffanías
og að með tilliti til taprekstrar á
fyrirtækinu gæti hann ekki sagt
að hann væri ánægður með sinn
skatt þetta árið.
Gjaldhæsti einstaklingurinn á
Austurlandi er Björn Ólafsson
umboðssali á Höfn í Hornafirði
með kr. 26.625.921 en Mbl. náði
ekki tali af honum í gær. En meðal
fimm skatthæstu manna í Austur-
landsumdæmi eru þrír læknar.
Mbl. náði tali af Eggert Brekkan
lækni á Neskaupstað en hann er
þriðji hæsti gjaldandinn með kr.
4.421.520.
Eggert sagðist telja þá upphæð
sem honum væri ákveðin í skatta
afskaplega eððlilega. Hann hefði
sjálfur reiknað út hver hún mundi
verða og sá útreikningur væri
Soffnaías Cecilsson.
réttur upp á eyri. Aðspurður um
ástæðuna fyrir því að þrír læknar
væru meðal efstu skattgreiðend-
anna fyrir austan sagði Eggert
það stafa m.a. af því vinnuálagi
sem væri á læknum.
BENEDIKT Gröndal, formað-
ur Alþýðuflokksins, hefur beð-
ið Morgunblaðið fyrir eftirfar-
andi athugasemdi
LAUGARDAGINN 12. ágúst
kl. 2 eftir hádegi gangast
Skeiðfélagið og Hestamannafé-
lagið Fákur fyrir kappreiðum
á Fáksvellinum Víðidal í
Reykjavík. Eru þetta aðrar
kappreiðar sem Skeiðfélagið
stendur að, og er aðaláherzla
lögð á sem beztan árangur í
skeiði.
Fáksvöllurinn er einn bezti
völlur landsins enda hafa náðst
þar glæsileg íslandsmet. Keppt
— Skuldir þær sem
stofnað var til eftir að
Raftækjaverksmiðjan
keypti hluta í Háaleitis-
braut 68 eru á ábyrgð og
áhættu Sementsverk-
smiðjunnar sjálfrar, því
henni var þegar tilkynnt
„í tilefni af ummælum í rit-
stjórnargrein Morgunblaðsins í
dag, miðvikudag, þess efnis, að eitt
fyrsta málið, sem tekið hafi verið á
verður í 250 m skeiði, 150 m
nýliðaskeiði, 250 m folahlaupi,
350 m stökki, 800 m stökki og
800 m brokki. 150 m nýliða-
skeiðið var tekið upp á síðustu
kappreiðum Skeiðfélagsins og
mæltist það mjög vel fyrir, sem
góð keppnisgrein fyrir hesta
sem eru lítið reyndir. Veglegir
verðlaunagripir eru fyrir 3
eístu hesta í hverri grein og
sérstakir verðlaunagripir fyrir
metárangur.
um eigendaskipti að hús-
næðinu og að Breiðholti
væri óheimilt að nota það
til tryggingar á skuldum
eftir að sala fór fram sagði
Jón Finnsson lögmaður
Rafha í samtali við Mbl. í
gær.
fyrsta fundi nýkjörins þingflokks
Alþýðuflokksins, hafi verið þing-
farakaupið og væntanleg fríðindi
þingmanna, óska ég að taka
eftirfarandi fram:
í fyrsta lagi kom þingfarakaupið
og önnur fríðindi okkar þing-
manna aðeins til umræðu er ég
sem formaður flokksins gerði nýju
þingmönnunum grein fyrir ýmsum
hliðum á þeirra störfum. Nýju
þingmennirnir hófu þannig ekki
máls á þessu atriði og höfðu ekkert
um það að segja á þessu stigi.
í öðru lagi hefur þingfararkaup
verið borið undir Alþýðuflokkinn.
Það var ósk frá ráðherrum um að
Alþýðuflokkurinn samþykkti með
hinum flokkunum að greiða
biðlaun til þeirra alþingismanna,
sem ýmist féllu eða buðu sig ekki
fram í síðustu kosningum. Þing-
flokkur Alþýðuflokksins hafnaði
þessari ósk einróma og neitaði að
taka þátt í samkomulagi þar að
lútandi, þar sem enginn lagabók-
stafur er til sem heimilar slíkar
greiðslur og hinir yngri þingmenn
innan þingflokksins bentu sérstak-
lega á að það væru fáránlegar
starfsaðferðir að fara að greiða
allt að 30—50 milljónir króna úr
ríkissjóði með munnlegu sam-
komulagi þingflokkanna einu
saman án þess að nokkur heimild
væri fyrir slíku í lögum.
Annað hefur ekki verið um
þingfararkaup eða aðstöðu þing-
manna fjallað í þingflokknum á
fundum hans í sumar."
Tveir farandbikarar verða
veittir, í 250 m skeiði gefur
Hörður G. Albertsson farand-
bikar sem keppt verður um og í
150 m skeiði gefur Árni
Höskuldsson farandbikar. Flest
af þekktustu hrossum landsins
mæta til keppni og verða mættir
flestir methafar í þeim greinum
sem keppt verður í svo að búast
má við mjög spennandi keppni í
öllum greinum.
— Rafha keypti húsið hinn 7.
júlí 1977 og afsal fer til þinglýsing-
ar daginn eftir. Eignin var þá
undir hamrinum m.a. vegna 13,5
m. kr. skuldar við Sementsverk-
smiðjuna og vissum við um hana.
Við erum reiðubúnir að greiða
þessar 13,5 milljónir gegn því að
aflétt verði öðrum skuldum, enda
til þeirra stofnað mörgum mánuð-
um eftir að sala fer fram og trúum
við því ekki að nokkur dómari
viðurkenni að Sementsverksmiðj-
an hafi veðrétt í þessu húsnæði
fyrir þeim skuldum.
Jón Finnsson sagði einnig að sér
fyndust þessi viðskipti nokkuð
undarleg, að Sementsverksmiðjan
gæti ekki hugsað sér að stöðva
Breiðholt en frekar að ganga að
þriðja aðila. Hann sagði að málið
væri nú fyrir Bæjarþingi Reykja-
víkur, þ.e. að Sementsverksmiðjan
hefði stefnt Breiðholti vegna
skulda að upphæð 37,7 milljónir og
farið fram á að veðréttur í húseign
Rafha yrði viðurkenndur, en því
hefði Rafha mótmælt. Ekki væri
hægt að segja til um hvenær
málinu lyki, en Rafha hefði 20 m.
kr. tryggingu sem stæði þar til
Breiðholt hefði losað umrædd veð.
Tilraunir
með ódýr
slitlög
VEGAGERÐ ríkisins
vinnur um þessar mund-
ir að tilraunum með
hundið slitlag á vegi.
Fara þessar tilraunir
fram á þremur stöðum á
landinu þ.e. vestan við
Blönduós, í Melasveit og
skammt utan þjóð-
garðsins á Þingvöllum.
Snæbjörn Jónasson vega-
málastjóri sagði í samtali við
Mbl. að leggja ætti tvenn lög á
þessa vegi og væri nú þegar
búið að leggja fyrra lagið á
öllum stöðunum, en síðara lagið
á suma, en því yrði lokið á
næsta sumri. Yrði því ljóst á
næsta hausti hvernig þessar
tilraunir hafa gengið, en vega-
málastjóri sagði að slík ódýr
slitlög sem hér væri um að
ræða, hefðu gefizt vel í Noregi.
Sænskir í Norræna húsinu
UM þessar mundir stendur yfir í Norræna húsinu sýning níu sænskra graííklistamanna, en sýning
þeirra verður opin til 20. ágúst n.k. frá kl. 14—19 dagiega.
Myndin hér að ofan var tekin við opnun sýningarinnar og á myndinni eru: Pár Gunnar Thelander, Alf
Olssen, Göran Nilson, Lars Lindeberg, Gösta Gierow, Karl Erik Hággblad, Philip von Schamtz, Nils G.
Stenqvist og Bengt Landin.
Alþýðuflokksmenn hafna
samkomulagi um biðlaun
Athugasemd Benedikts Gröndal við forystugrein Mbl.
(Fréttatil.)
Skuldimar á ábyrgð
Sementsverksmiðjunnar
segir J ón Finnsson lögmaður Rafha