Morgunblaðið - 10.08.1978, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 1978
Njáll Þórarinsson stór-
kaupmaður — Sjötugur
Hver stund sem við lifum er í
raun og veru stórkostleg tímamót,
misjafnlega skýr og mikilsverð. Eg
minnist nú tímamóta í sögu Njáls
Þórarinssonar stórkaupmanns.
Víða hefir Njáll farið, fæddur í
Hamborg í Þýzkalandi, við nám og
störf í Bandaríkjunum 1922—1926,
lauk prófi í verzlunarfræðum í
Kaupmannahöfn. Löggiltur
skjalaþýðandi og dómtúlkur í
ensku. Stórkaupmaður í Reykjavík
frá 1943. Njáll er ötull og laginn
verzlunarmaður, enda hinn mesti
þrekmaður. Höfðingi í lund,
hjartagóður, framúrskarandi
prúðmenni í allri framkomu,
stillilegur og hægur, jafnvel þög-
ull, sé hann ekki tekinn tali að
fyrra bragði. En eftir því sækjast
þeir sem hann þekkja bezt, því þar
má ætíð vænta, sem nokkur veigur
er í. Njáll nær römmum tökum á
umtalsefninu, og knáar tillögur, en
mjúkar skeiða fram á kostum
valinna orða.
Góðtemplarareglan, Náttúru-
lækningafélag íslands, Fríkirkjan
í Reykjavík, hefir Njáll lagt sér
svo á hjarta, að heita má að í
þessum félögum lifi hann og
hrærist. Mannúð Njáls er ótak-
’mörkuð. Ætíð vægur í dómum um
aðra, og manna fundvísastur á
það, ef nokkuð er, sem þeim verði
talið til gildis. Að hlýða á tal hans
er sönn unun, æðri menntun. Augu
hans ljóma af eldlegu fjöri, þegar
hann talar um það, sem honum er^
hugleiknast.
Hvers vegna eiga Austur- og
Vestur-íslendingar að halda
saman?
Vegna þess að löngun Austur-
og Vestur-íslendinga er ótrúlega
mikil til að hafa enn meira
EF ÞAÐ ER PRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Al GLVSINGA-
SÍMINN ER:
22480
Gull-
smíða-
vinnu-
stofa
r
í
nýju
hús-
næði
samband og samvinnu. Annað
atriði er og mikilvægt að V<jst-
ur-íslendingar standa enn með
annan fótinn í íslenzkum hugsun-
arhætti og menningu, framúrskar-
andi frændræknir: Ættlandið
gamla verður að styrkja sem bezt
brúna á milli þjóðarbrotanna,
auka og margfalda samskiptin og
samvinnuna. Þá verða allir að
leggjast á eitt. Sumum kann að
þykja þetta lítilsvert mál. En svo
er ekki.
Njáll er einn helzti máttarstólpi
„Ferðaklúbburinn Ameríkuferðir"
sem á að hafa það að aðalsmerki
að styrkja enn meir en verið hefir
sambandið við Vestur-íslendinga,
ná til alls almennings.
Við megum aldrei gleyma Vest-
ur-íslendingum. Órofa tryggð
þeirra við Island er stórkostleg.
Alþjóð verður að treysta bræðra-
böndin milli Austur- og Vestur-ís-
lendinga, ekki einungis á stóraf-
mælum, það yrði helzt of langt bil
á milli.
Þeir verða að finna elskuna
streyma á móti sér, þegar þeir
heimsækja landið, eld frændrækni
og vináttu. Njáll ber óvenju heitan
frændræknishug til Vestur-íslend-
inga og vill veg þeirra og gengi
sem bezt. Allt starf hans innan
„Ameríkuferða" er reist á þeim
göfuga grundvelli að gera Vest-
ur-Islendingum gagn, styrkja
brúna á milli þjóðarbrotanna.
Njáll er gæfumaður á allan hátt,
en stórkostlegasta gæfan er hin
góða kona hans er hann gekk að
eiga fyrir 46 árum, frú Jóhanna f.
1. ágúst 1908 dóttir Steindórs
trésmiðs Ólafssonar hér í borg.
Hjördís mín og ég sendum Njáli
og frú Jóhönnu innilegustu ham-
ingjuóskir, og þökkum þeim
ómetanlega vináttu og hlýhug.
Helgi Vigfússon.
Akureyri, 4. ágúst. — 1 DAG
var Gullsmíðavinnustofan
Skart opnuð á nýjum stað á
Strandgötu 19. Aður var hún í
Glerárgötu 20. Allar inn-
réttingar í verzluninni eru
nýjar og frumlegar og einnig
hafa verið gerðar lagfæringar
utan húss, þannig að vistarver-
ur allar eru bjartar og vist-
legar.
Eigendur eru hjónin Halldóra
Kristjánsdóttir og Flosi Jónsson
gullsmiður en einnig vinnur þarna
Steinn Guðnason gullsmiður. í
vinnustofunni eru smíðaðir alls
konar skartgripir úr gulli og silfri,
en áhersla er lögð á módelsmíðaða
skartgripi. Einnig annast gull-
smiðirnir viðgerðir og reynt
verður að afgreiða trúlofunar-
hringa samdægurs. _ g p
ÞiÖ læslð dyrunum
ogleggíöafstað
Framundan bíða:
London Róm Karachi Bankok Manila Tokio
Hong Kong Honolulu San Fransisco New York.
Frænka passar blómin,
amma börnin
og lyklana.
í Keflauík kemst fiðringurinn í
hámark. Þið leggið fram farseðla og
vegabréf... Svo eruð þið flogin.
Umhverfis jörðina
á 30 dögum á vegum ferðaskrifstofunnar Sunnu.
- Verðlaun í áskrifendaleik Dagblaðsins. -
Allir sem eru áskrifendur þann 20. ágúst eru
með í leiknum.
Sértu ekki áskrifandi nú þegar,þá hringdu
strax ogpantaðu áskrift. Opið til kl. 10 öll
kvöld nema laugardagskvöld.
MMBIAÐIÐ
Áskrifendasími 27022
Lœrðu númerið utanað. Um það verður spurt þegar þú
vitjar vinningsins.