Morgunblaðið - 10.08.1978, Blaðsíða 36
U íiLÝSINííASÍMINN ER:
22480
Plorsimlilníiit)
FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 1978
Yinnsla hafin hjá
ísfélaginu í Eyjum
Önnur f rystihús eru þar ekki
starf rækt, né heldur í Sand-
gerði eða Keflavík
ÍSFÉLAG Vestmannaeyja byrjaði
vinnslu á afla í' gær. Mbl. hafði
samband við Eyjólf Marteinsson
skrifstofustjóra ísfélagsins og
sagði hann að hjá þeim hefði í
raun aðeins verið um „lögboðið
þjóðhátíðarstopp- að ræða eða í
eina viku. Fiskurinn hefði
klárast í vinnslu 2. ágúst, en
aflinn væri nú það mikill að þeir
ætluðu að reyna að halda fram-
leiðsiu áfram út ágústmánuð og
vonandi lengur og þá ekki sízt
vegna ráðstafana ríkisstjórnar-
innar og Seðlabankans 26. júlí
s.I., en ábyrgðin stendur fram til
ágústloka. Isfélagið myndi nú
taka afla frá sínum viðskipta-
bátum að því marki sem það réði
við.
Eyjólfur kvaðst reikna með því
að fullt staríslið ísfélagsins yrði
ráðið á ný, ef aflinn yrði nógur,
en í störf væri cnn ekki fullskip-
að, aðallega vegna fría, sem fólk
hefði tekið sér um þjóðhátíðina.
Önnur frystihús eru ekki starf-
rækt í Vestmannaeyjum, en
vinnslu lauk hjá Fiskiðjunni h.f.
fyrir þjóðhátíð og var fastráðnu
starfsfólki þá sagt upp.
Hjá Miðnesi h.f. í Sandgerði og
Keflavík h.f. í Keflavík hefur
engin framleiðsla verið siðan á
miðvikudag í síðustu viku. Mbl.
hafði tal af Ólafi B. Ólafssyni
forstjóra Miðness h.f. og sagði
hann að frystihúsin hefðu hætt að
taka á móti fiski 26. júlí s.l., og að
vinnslu á því hráefni hefði lokið 2.
ágúst og vinnsla síðan legið niðri.
Ólafur sagði að hjá Miðnesi h.f.
ynnu nú aðeins fáir menn við
málningu og aðrar endurbætur á
húsakosti og öðru, en annað
starfsfólk væri ekki hjá fyrirtæk-
inu.
Reykjavíkurleikarnir í frjálsum íþróttum hófust á Laugardalsvellinum í gærkveldi
og var í fyrsta skipti keppt á hinni nýju tartanbraut sem lögð var á völlinn. Mikill
fjöldi áhorfenda fylgdist með keppninni sem fram fór í blíðskaparveðri. Árangur var
mjög góður í öllum greinum og keppnin spennandi og skemmtileg. Hér sjást úrslitin í
100 metra hlaupi. Sigurvegarinn, Charlie Wells frá Bandaríkjunum, er lengst til
vinstri, þá kemur Sigurður Sigurðsson, Steve Riddick sem varð annar, Vilmundur
Vilhjálmsson sem varð fjórði og Bill Collins sem hafnaði í þriðja sæti.
Keppnin heldur áfram í kvöld og hefst kl. 19.30. Ljósmynd Emilía.
Viðræður um þriggja flokka
stjóm munu hefjast á morgun
Pylsuvagn
á Lækjar-
torg?
SÓTT hefur verið um leyfi
fyrir að hafa pysluvagn á
Lækjartorgi í Reykjavík, en á
fundi borgarráðs fyrir
skömmu var umsókninni vísað
til heilbrigðismálaráðs til
umsagnar.
Jóhann Eyjólfsson, sá sem
sótti um leyfið, sagði í samtali
við Mbl. í gær að hann hefði
einu sinni áður sótt um slíkt
leyfi og væri þetta ítrekun.
Hugmyndin væri sú að hafa
þetta svipað og er í Kaup-
mannahöfn, — litla vagna sem
færa má fram og aftur eftir
þörfum, sagði Jóhann. — Hugs-
unin var sú að hafa vagninn á
Lækjartorgi eða við enda Aust-
urstrætis, einhvers staðar þar
sem samkomulag yrði um. Eg
get ekkert um það sagt hvort
þetta verður samþykkt nú en
þessu erindi var hafnað í fyrra
sinnið er ég sótti um og þá af
heilbrigðisyfirvöldum.
Almennt áhugaleysi og vantrú á
þjóðstjórn, segir Geir Hallgrímsson
FORSVARSMENN Sjálfstæðisflokksins munu eiga viðræður við
fulltrúa Alþýðuflokksins og Framsóknarflokksins íyrir hádegi á
morgun. föstudag. um myndun meirihlutastjórnar þessara þriggja
flokka. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins kom saman til fundar í gær,
og gerðu þeir Geir Hallgrímsson formaður flokksins og Gunnar
Thoroddsen varaformaður þar grein fyrir þreifingum sinum um
myndun þjóðstjórnar, sem ekki reyndist grundvöllur fyrir, og frá
fyrirætlunum sínum að freista næst að mynda meirihlutastjórn
Sjálfstæðisflokks. Alþýðuflokks og Framsóknarflokks. Þingflokks-
fundir verða í dag bæði hjá alþýðuflokksmönnum og
framsóknarmönnum.
flokks kom fram, að báðir þessir
flokkar verða með miðstjórnar-
fundi í dag til að ræða viðbrögð
þeirra fyrir viðræðurnar á morg-
un. Kjartan Jóhannsson varafor-
maður Alþýðuflokksins vildi ekki
tjá sig um horfurnar en Ólafur
Jóhannesson formaður Fram-
sóknarflokksins sagði að Ijóst
mætti vera að mörg ljón væru í
veginum fyrir stjórnarsamstarfi
þessara þriggja flokka.
Lúðvík Jósefsson formaður Al-
þýðubandalagsins taldi ekki óeðli-
legt að þessir þrír flokkar reyndu
nú með sér, því að komið hefði í
ljós, að Alþýðuflokkurinn vildi
fara sömu leiðir og jafnvel ganga
lengra en fráfarandi stjórnar-
flokkar, þá leið sem þrautreynd
hefði verið á liðnum árum og
jafnan leitt til nýrra og nýrra
kollsteypa. Spáði Lúðvík því, að
kæmu þessir flokkar sér saman og
fylgdu framangreindri leið í efna-
hagsmálum, myndi verðbólgan
enn aukast og ófriður verða á
vinnumarkaði.
í frétt frá Geir Hallgrímssyni,
formanni Sjálfstæðisflokksins, í
gær kemur fram, að niðurstöður
viðræðna hans og dr. Gunnars
Thoroddsen við fulltrúa hinna
flokkanna um þjóðstjórn hafi
verið að ekki væri grundvöllur
fyrir því að halda þeim lengur
áfram og að Geir Hallgrímsson
myndi næst hafa frumkvæði að
viðræðum við fulltrúa Alþýðu-
flokks og Framsóknarflokks.
í samtali við Mbl. sagði Geir
Hallgrímsson, að ekki væri nein-
um einum um að kenna að myndun
þjóðstjórnar tókst ekki, heldur
hafi verið almennt áhugaleysi eða
vantrú á stjórnarmyndun af þessu
tagi, svo að ekki hafi þótt rétt að
athuguðu máli að knýja frekar á
þá ieið. „Eg tel hins vegar
nauðsynlegt að hafa reynt þessa
leið vegna þess að við stöndum
auðvitað andspænis þeim vanda,
sem ekki verður leystur án sam-
heldni, ekki eingöngu stjórnmála-
manna heldur og forvígismanna á
öðrum sviðum og ekki'sízt almenn-
ings.“
Geir Hallgrímsson sagðist
hvorki vera bjartsýnn né svart-
sýnn á þær viðræður sem í hönd
færu um myndun þriggja flokka
stjórnar heldur yrði reynslan að
skera úr um hvort þessi möguleiki
leiddi til árangurs.
I samtölum við forsvarsmenn
Alþýðuflokks og Framsóknar-
Flugleiðir hefja
flug til Baltimore
FLUGLEIÐIR' hafa nú fengið
leyfi bandarískra yfirvalda til að
hefja áætlunarflug milli Balti-
more í Bandarikjunum og
Evrópu, en ekki er enn ákveðið
hvenær flug til Baltimore hefst.
A blaðamannafundi, sem for-
stjórar Flugleiða efndu til í gær,
sögðu þeir að undanfarið hefði
mikið verið rætt um viðkomustaði
Flugleiða í Bandaríkjunum. Mikl-
ar athuganir hefðu farið fram á
hvort tiltækilegt og rétt væri að
hefja flug til fleiri staða en New
York og Chicago og í ljós komið að
það gæti verið hagkvæmt. Lengi
vel hefði aðeins verið flogið til
New York en frá árinu 1973 einnig
til Chicago. Nú væri svo komið að
!ó farþega til og frá Bandaríkjun-
um með Loftleiðavélum væru á
Chicago leíðinni.
Farþegar um flugvöllinn í Balti-
more munu einnig koma frá
Washington, þar sem Friendship
flugvöllurinn fyrir utan Baltimore
er annar flugvöllur Washington.
V erkamannabústadirnir:
Breiðholtssamningi rift
STJÓRN Verkamannabústaða
Reykjavík hefur, að því er Mbl.
hefur öruggar heimildir fyrir,
ákveðið að rifta samningi sínum
við Breiðholt hf. um byggingu
verkamannabústaða. Stjórnin sat
á fundi í ga>rmorgun og aftur
síðdegis fram til kvölds og mun
Breiðholti hf. þegar hafa verið
skrifað í gærkvöldi um þessa
ákvörðun. Stjórn verkamannabú-
staðanna mun taka verkið að sér
til að byrja með.
Sigurður Jónsson, forstj. Breið-
holts hf., sagði í samtali við Mbl. í
gærdag að fyrirtækið myndi ekki
verða opnað í dag, en því var lokað
vegna vanskila á opinberum gjöld-
um og sagði Sigurður að þeir væru
að athuga sín mál í rólegheitum,
en vildi að öðru leyti ekki tjá sig
um málið.
Gylfi Þórðarson, framkvstj.
Sementsverksmiðjunnar, sagði í
gær að samningar við steypustöðv-
ar hefðu verið á þann veg að gerð
væri upp á hálfsmánaðar fresti
úttekt þeirra og veittur gjaldfrest-
ur í 45 daga. Hefði Breiðholt ekki
getað staðið í skilum að þeim
fresti liðnum og því hefðu verið
stöðvuð viðskipti við Breiðholt
nema gegn staðgreiðslu, en aðrar
steypustöðvar hefðu fyrrgreindan
gjaldfrest.
Sjá „Skuldirnar í ábyrgð
Scment.sverksmiðjunnar*"
á bls. 2.
Islenzkar kartöflur
eftir hálfan mánuð
HJÁ Grænmetisverzlun land-
búnaðarins fékk Mbl. þær upp-
lýsingar að fyrstu íslenzku
kartöflurnar myndu væntanlega
koma á markað milli 20. og 25.
ágúst. Höfðu borizt fréttir frá
kartöflubændum í Öræfum og
austur undir Hornafirði og var
búizt við að bændur í Öræfum
yrðu fyrri til, kartöflur frá þeim
kæmu á fyrrgreindum tíma, en
um það bil viku síðar frá bændum
í grennd við Ilornafjörð. Er þetta
nokkru seinna en verið hefur
síðustu ár þegar fyrstu íslenzku
kartöflurnar hafa komið á
markaðinn á tímabilinu 7, —10.
ágúst. Skv. upplýsingum
Grænmetisverzlunarinnar voru
bændur fremur bjartsýnir á að
uppskera yrði góð.
— Það er miklu bjartara útlit
núna heldur en var fyrst í Sumar
og vonumst við eftir góðri upp-
skeru, sagði Magnús Sigurlásson
fréttaritari Mbl. í Þykkvabæ er
Mbl. spurðist fyrir um horfur á
kartöfluuppskeru í haust.
Ekki kvaðst Magnús geta sagt
nákvæmlega til um hvenær fyrstu
kartöflur frá Þykkvabænum
kæmu á markaðinn, en líklega yrði
það ekki fyrr en eftir mánaðamót-
in ágúst-september vegna þess
hversu hægt hafi sprottið í vor.
Sett var niður 1 um 300 hektara
svæði í Þykkvabæ.