Morgunblaðið - 11.08.1978, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 1978
Frá Magaluíströndinni á Mallorca.
I tvarp kl. 2<):.‘ÍO:
H vad gerir fólk
á Mallorca?
í útvarpi í kvöld klukkan
hálfníu vcröur þáttur er nefn-
ist „Minjagripir frá Mallorca"
og er hann í umsjá Hermanns
Hermann Sveinbjörnsson
Svcinbjörnssonar fréttamanns.
Fluttur verður fyrri þátturinn
af tveimur.
Hermann sagði að í þættinum
í kvöld væru aðallega viðtöl við
fararstjóra og ferðafólk á Mall-
orca. Fólk segði álit sitt á
staðnum og hvað þar væri hægt
að gera. Rætt væri um það
hvðrnig veröld þetta væri, en að
mati sumra er þetta aðeins
tilbúirt veröld fyrir ferðamenn,
og erfitt að finna þarna raun-
verulegt spænskt þjóðlíf.
Inn á milli atriða verður
leikin tónlist, sem tengist efn-
inu, en að sögn Hermanns er
megnið af efninu í þættinum
tekið upp úti á Mallorca.
Frumflutt verk eftir Vagn Holmboe
Klukkan níu í kvöld verð-
ur útvarp írá listahátíð í
Reykjavík í vor. Fluttir
verða tónleikar Strok-
kvartetts Kaupmannahafn-
ar í Norræna húsinu þann 8.
júní s.l.
Á dagskrá er Strengja-
kvartett nr. 67 í D-dúr,
„Lævirkjakvartettinn", eftir
Joseph Haydn og Fimmtándi
kvartett op. 135 eftir Vagn
Holmboe en það er frum-
flutningur á því verki.
Kynnir er Þorsteinn
Hannesson. Strokkvartett Kaupmannahafnar.
ITtvarpkl. 21.00:
„Svarta dalían" nefnist
bandarísk sjónvarpskvik-
mynd, sem sýnd verður í
sjónvarpi í kvöld klukkan
21.30.
Myndin er byggð á sönn-
um atburðum og gerist árið
1947. Þá í janúarmánuði
finnst illa útleikið lík ungr
ar stúlku í Los Angeles. I
myndinni er rakin saga
stúlkunnar, eftir því sem
lögreglunni berst vitneskja
um hana.
Með aðaihlutverk í mynd-
inni fer Lucie Arnaz, en
þýðandi er Ragna Ragnars.
Myndin er rúmlega einnar
og hálfrar klukkustundar
löng og er sýnd í lit.
Bandarísk sjónvarpsmynd
byggð á sönnum atburðum
Lucie Arnaz og Donna Mills í hlutverkum sfnum í „Svörtu
dalíynni".
S jónvarp kl. 2 1.20:
Útvarp Reykjavík
FOSTUDKGUR
11. ágúst
MORGUNNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Létt lög og morgun-
rabb.
7.55 Morgunbæn
8.00 Fréttir. 8.10 Dagskrá.
8.15 Veðurfr. Forustugr.
dagbl. (útdr.).
8.30 Af ýmsu tagi. Tónleik-
ar. ,
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barn-
anna. Kristín Sveinbjörns-
dóttir heldur áfram lestri
sögunnar „Áróru og litla
bláa bílsins" eftir Anne
Cath. — Vestly (4).
9.20 Tónleikar. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Það er svo margt. Einar
Sturluson sér um þáttinn.
II. 00 Morguntónleikar.
„Harmonien" hljómsveitin í
Björgvin leikur Hátíðar-
pólonesu op. 12 eftir Johan
Svendsen. Karsten Andersen
stjórnar. Elisabeth Schwarz-
kopf syngur Ijóðsöngva eftir
Richard Strauss. Fíl-
harmóníusveitin í Vínarborg
leikur „Hnotubrjótinn",
ballettmúsík op 71a eftir
Pjotr Tsjaíkovský. Herbert
von Karajan stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
1 ilkynningar.
IJ. 15 Veðuríregnir. Fréttir.
Tilkynningar. Við vinnuna.
Tónleikar.
14.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
SÍÐDEGIO
15.00 Miðdegissagan.
„Brasilíufararnir" eftir Jó-
hann Magnús Bjarnason.
Ævar R. Kvaran les (2).
15.30 Miðdegistónleikar.
Illjómsveit franska ríkisút-
varpsins leikur Sinfónfu f
C-dúr eftir Georges Bizet.
Sir Thomas Beecham stjórn-
ar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popp. Dóra Jónsdóttir
kynnir.
17.20 Hvað er að tarna? Guð-
rún Guðlaugsdóttir stjórnar
þætti fyrir börn um náttúr
una og umhverfið. XI.. Trjá-
ræJjJ
17.40 Barnalög
17.50 Varnir við innbrotum.
Endurt. þáttur Ólafs Geirs-
sonar frá síðasta þriðjud.
18.05 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Vcðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Skálholt — höfuðstaður
íslands í sjö aldir. Dr. Björn
Þorsteinsson prófessor flyt-
ur erindi. (Frumflutt á
Skálholtshátíð 23. í.m.).
20.00 Frá tónlistarhátíðinni í
Savonlinna í Finnlandi í
fyrra. Elisabeth Speiser
syngur lög eítir Franz Schu-
bert og Othmar Schöck.
Irwin Gage leikur á píanó.
20.30 Minjagripir frá Mall-
orca. Hermann Sveinbjörns-
son fréttamaður tók saman
þáttinni — fyrri hluti.
21.00 Frá listahátíð í Reykja-
vík í vor. Tónleikar Strok-
kvartetts Kaupmannahafn-
ar i Norræna húsinu 8. júníl
a. Strengjakvartett nr. 67 í
D-dúr, „Lævirkjakvartett-
inn", eftir Joseph llaydn.
b. Fimmtándi kvartett op.
135 eftir Vagn Hoimboe
(frumflutningur). — Þor-
steinn Hanncsson kynnir.
21.40 Silfurbjöllur. Árni
Blandon les ljóð eftir Jón úr
Vör.
21.50 Þýzk alþýðulög. Þar-
lendir karlakórar syngja.
22.05 Kvöldsagan. „Góugroð-
ur“ eftir Kristmann Guð-
mundsson. Hjalti Rögnvalds-
son leikari les (2).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Úr dölum Yorkshirc (L)
Finnsk mynd um líf dala-
bændanna í Yorkshire en
þeir leggja einkum stund á
sauðfjár- og nautgriparækt.
Meðal annars er sýnt gripa-
uppboð, kynbótasýning.
sportveiðar auðmanna og
guðsþjónusta í sveitakirkju.
Þýðandi og þulur Krist-
mann Eiðsson.
21.10 Frá LLstahátíð 1978
^lJpptak^rá^jnaraþontón-
22.50 Kvöldvaktin. Umsjón.
Ásta R. Jóhannesdóttir.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
L4UG4RD4GUR
12. ágúst
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Létt lög og morgun-
rabb.
7.55 Morgunbæn.
8.00 Fréttir. 8.10 Dagskrá.
8.15 Veðurfr. Forustugr.
dagbl. (útdr.).
8.30 Af ýmsu tagii Tónleik-
ar.
9.00 Fréttir. l'ilkynningar.
9.20 Óskalög sjúklinga>
Kristín Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
(10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir).
11.20 Barnatfmi. Umsjóni
Guðjón Ólafsson.
leikum" í Laugardalshöll.
Islenskir kórar syngja. ’
Stjórn upptöku Egill Eð-
varðsson.
21.30 Svarta dalían (L)
Bandarfsk sjónvarpskvik-
mynd, byggð á sönnum
atburðum.
Aðalhlutverk Lucie Arnaz.
í janúarmánuði 1947 finnst
illa útleikið lfk ungrar
stúlku í Los Angeles. I
myndinni er rakin saga
stúlkunnar eftir því sem
lögreglunni berst vitneskja
um hana.
Þýðandi Ragna Ragnars.
23.05 Dagskrárlok
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 Brotabrot. Einar Sig-
urðsson og Ólafur Geirsson
sjá um þáttinn.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Vinsælustu popplögin.
Vignir Sveinsson kynnir.
17.00 „Einn á ferð", smásaga
eftir Ingu Birnu Jónsdóttur.
Jónas Jónasson les.
17.20 Tónhornið. Stjórnandii
Guðrún Birna Hannesdóttir.
17.50 Söngvar í léttum tón.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Allt í grænum sjó. Um-
sjónarmenni Hrafn Pálsson
og Jörundur Guðmundsson.
19.55 Jörg Demus sem einleik-
ar og hljómsveitarstjóri.
Hann flytur ásamt kammer-
hljómsveit belgíska útvarps-
ins tvo pi'anókonserta eftir
Bach, í F-dúr og d-moll.
(Hljóðritun frá tónlistar-
hátíð í Chimay í Belgíu).
20.30 Viðey og sundin blá.
Tómas Einarsson tók saman.
Rætt við Lýð Björnsson
sagnfræðing og Örlyg Hálf-
dánarson bókaútgefanda.
Lesarii Valdemar Hclgason.
21.20 Gleðistund. Umsjónar-
menni Guðni Einarsson og
Sam Daniel Glad.
22.05 „Fýsnin til fróðleiks og
skrifta" Guðrún Guðlaugs-
dóttir ræðir við Guðmund
Illugasoni — síðari hluti.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.45 Danslög.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR
11. ágúst