Morgunblaðið - 15.08.1978, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 15.08.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGUST 1978 3 Eitt er það sem vekur sérstaka athygli okkar, það er hversu loftið hér er tært og heilnæmt. Við spurðum Yang hvers vegna þeir hefðu óskað eftir þátttöku íslensks fimleikafólks í seinni sýningunni. — Að mati okkar skapar það vináttu og skilning milli fimleika- fólksins. Við getum margt lært af þeim, og gagnstætt. Svona heim- sóknir eiga að byggjast á vináttu og skilningi. Við munum lengi minnast þessarar ferðar til ykkar fagra lands, sagði Yang að lokum í spjalli okkar. Einn af fimleikamönnunum er Wang Hsiao Ming, aðeins 15 ára gamall. Hann sagðist hafa æft fimleika frá því að hann var fimm ára gamall, og tekið þátt í mörgum meiriháttar alþjóðlegum mótum. Þetta væri hans fyrsta utanferð og sér þætti þetta stór stund í lífi sínu. — Landið ykkar er svo fallegt og fólkið mjög vinalegt, sagði Wang. Marsreir efstur en Guðmwidur í 2. sæti á Gausdalsmótinu MARGEIR Pétursson er nú efst- ur á skákmótinu 1 Gauksdal í Noregi þar sem hann er með 4V2 vinning af 5 mögulegum. Guð- mundur Sigurjónsson er í 2.-4. sæti með 4 vinninga ásamt Svíunum Wahlbom og Schusfler. í 5.-8. sæti eru Wibe frá Noregi, DeSirmian frá Bandaríkjunum, Sydor frá Póllandi og Grunfeld frá ísrael með 3‘/2 vinning. Haukur Angantýsson er með 1 'k vinning og jafnteflislega biðskák og Jónas Árnason og Jóhann Hjartarson eru báðir með 1V2 vinning. í 2. umferð vann Margeir Poulsson og Guðmundur vann Kristiansen, en þeir eru báðir Norðmenn. í þriðju umferðinni vann Guðmundur Hauk og Mar- geir vann DeSirmian og í 4. umferðinni vann Margeir Wibe og Guðmundur vann Gulbrandsen. I 5. umferðinni vann Margeir Sydor og Guðmundur vann Wedberg frá Svíþjóð. í 6. umferð leiða þeir Margeir og Guðmundur saman hesta sína, en mótið er 9 umferðir. Bæði Wibe og Sydor, sem Margeir vann, eru alþjóðlegir meistarar. Margeir Pétursson. Ólafur Jóhannesson: 45daga fangelsi SKIPSTJÓRI norska hrefnuveiðarans Andfjord, sem tekinn var að ólögleg- um hrefnuveiðum norður af landinu fyrir helgina var dæmdur í 45 daga fangelsi þegar dómur var kveðinn upp á Akureyri á sunnudag. Auk þess var skipstjórinn dæmdur í 50 þús. kr. sekt og hrefnan sem báturinn veiddi norður af landinu og veiðarfæri voru gerð upp- tæk. „Ég er ánægður með aukin skoðanaskipti í Tímanum” „AUÐVITAÐ eru skiptar skoðanir manna á milli í Framsóknarflokknum og ég er mjög ánægður yfir því að Tíminn er batnandi blað,“ sagði Ólafur Jó- hannesson formaður Fram- sóknarflokksins þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gær og spurði hann álits á þeim skoðanaskipt- um og átökum sem ættu sér stað um þessar mundir milli framsöknarmanna á síðum Tímans. „Þegar rnenn greinir á,“ sagði Ólafur, „er eins gott að segja skoðun sína, og að birgja slíkt með sér og mér þykir kostur að Tíminn Magnús Jóns- son og Geim- steinn til Bandaríkjanna Hin árlega norræna hátíð, Scandinavinan- American Festival ’78 í New Jersey í Bandaríkjunum verður haldin 16. september n.k. í N.J. Garden State Arts Center. Magnús Jóns- son óperusöngvari mun syngja á hátíðinni við undirleik Ólafs Vignis Albertssonar og hljómsveit- in Geimsteinn mun leika íslenzk lög undir stjórn Rúnars Júlíussonar. Gert er ráð fyrir að 7000 manns taki þátt í hátíðinni en m.a. eru á dagskrá fimleikar, þjóð- dansar, sænskur fiðluleikur og finnskt harmónikkutríó. hefur breytzt og er að breytast. Það hefur lengi staðið til að breyta Tímanum, en það hefur gengið hægar að koma þeirri breytingu á en æskilegt hefði verið, en það er með blöð eins og annað, þau þurfa að taka breytingum.“ o INNLENT Iscargó áfram í Eþíópíu ÍSCARGO mun halda áfram flugi með matvæli og fleira í Eþíópíu fyrir lúthersku heimskirkjuna samkvæmt upplýsingum Lárusar Gunnarssonar hjá íscargo og mun flugið að minnsta kosti standa yfir út ágústmánuð. Fyrst var samið við íscargo um 100 tíma flug innan Eþíópíu og síðan aftur um 100 tíma. Aðallega er flogið með mjölmat, nokkuð af lyfjum, og mjólkurduft, en íslenzka vélin hefur flutt um 16 tonn á dag til Asmara þegar fært hefur verið frá Addis Ababa og Assab. Norska kirkjan hfur samið við íscargo um þessa flutninga. Mannfjöldi á landbúnað- arsýningunni MIKILL mannfjöldi heim- sótti Landbúnaðarsýning- una á Selfossi í gær, eða um 6000 manns. Veður var mjög gott og hefur svo verið síðan sýningin var opnuð, en s.l. sunnudag heimsóttu um 15 þús. manns sýninguna og 3000 á laugardag, þannig að alls hafa um 25 þús. manns sótt Selfoss heim í tilefni sýningarinnar. I dag verða nautgripir og sauðfé sýnd sérstaklega, sýnikennsla verður á vegum Afurðadeildar landbúnað- arins, Fálkinn og Stál verða með sérsýningu. Þá verða allar deildir sýningarinnar opnar og sitthvað sérstakt er á dagskránni. Keyrði á Ölfusárbrú SÉRKENNILEGUR árekstur varð á Ölfusárbrú aðfaranótt mánudags er bifreið keyrði þar á brúarstólpa miðsvæðis á brúnni. Skemmdist bifreiðin talsvert svo og tveir brúarstólpar. Grunur leikur á að ökumaður hafi verið ölvaður að sögn lögreglunnar. Nýtt ísL metí 200m. hlaupi Vilmundur Vilhjálms- son setti í gærkveldi íslandsmet í 200 metra hlaupi, 21,1 sek. á frjáls- íþróttamóti Ármanns sem fram fór í Laugar- dal. Gamla metið átti hann sjálfur og var það 21.2 sek. sett í fyrrasum- ar. Annar 1 hlaupinu varð Mike Bailey frá Luxemborg á 21.2 sek. og Sigurður Sigurðsson þriðji á 21.5 sek. sem er hans besti árangur. Hreinn Halldórsson sigraði í kúluvarpi kast- aði 20,06 metra. Nánar verður skýrt frá mótinu á íþróttasíðu blaðsins á moreun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.