Morgunblaðið - 15.08.1978, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 15.08.1978, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1978 19 • Mikil er sveiflan hjá Sigurði Hafsteinssyni. Sigurður hafði forystu er síðasti keppnisurinn hófst, en tókst ekki nægilega vel upp og hafnaði í þriðja sæti eftir höggleik við Þorbjörn Kjærbo. • Björgvin borsteinssyni gekk óvenju illa með púttin í keppn- inni. Engu er líkara en að hér haíi hann gefist upp, og noti hendurnar til að koma boltanum ofan í. • Sigurvegarinn í meistaraflokki kvenna Jóhanna Helgadóttir GR. Hún tók forystu í upphafi og hélt henni til loka. Hefði frekar viljað tapa með því að leika vel Björgvin Þorsteinsson. — Ég hefði verið í sérflokki ef mér hefði tekist upp við púttin. Allan tímann lék ég mjög vel, en púttin réðu úrslitum hjá mér. Ég hef alltaf verið mjög misjafn í púttunum en aldrei gcngið jafn herfilega illa og núna. Ef öll púttin hcfðu gengið þá hefði ég unnið á 29 höggum. Maður var kominn með það á heilann að maður gæti ekki sett niður og það hefur sín sálrænu áhrif í svona keppni. Þá hafði veðrið líka slæm áhrif á mig, þessi mikla rigning sem verið hefur og þá sérstaklega núna á lokasprettinum. Þá hef ég ekki æft eins vel og undanfarin ár og ekki leikið jafn mikið. Mér hcfur gengið vel á íslandsmótum og yfirleitt verið í bestri æfingu um þær mundir. í upphafi mótsins byrjaði ég vel, en það heíur viljað brenna við að mér gangi illa í upphafi, en nú snerist dæmið við. Ég stefni að því að endurheimta titilinn, mér hefði fundist skemmtilegra að tapa fslandsmeistaratitilinum með því að leika vel, en ekki með því að spila svona illa. Völlurinn hér er góður og sérlega vel hirtur, en frekar hefur mér gengið illa hér í gegnum árin. Þ r Risamir steinlágu VESTUR-þýska knattspyrnan fór af stað um helgina og urðu þar ýmis merkileg úrslit, t.d. tap Köln fyrir Braunschweig, tap Mönchengladbach fyrir Hamburger o.fl. Eru því horfur á miklum sviptingum í Búndeslígunni í vetur. Danilo Popivoda skoraði sigur- mark Braunschweig gegn Köln á 25. mínútu leiksins. 2500 manns urðu vitni áð þessum óvæntu úrslitum. Þá kom og á óvart stórtap Mönchengladbach fyrir Hamburg- er. I lið Mönchengladbach vantar þó marga af fyrri máttarstólpum. Sigur Hamburger var öruggur allan tímann og þeir náðu forustu þegar á 2. mínútu með marki Reiman. Þeir Nogly og Kaltz bættu mörkum við fyrir hlé og þar við sat. Elstu menn muna vart, hvenær Bayern vann síðast leik á útivelli og þetta er orðinn kækur hjá liðinu og á laugardag tapaði liðið fyrir Dortmund og það var Burgs- muller sem skoraði sigurmark leiksins skömmu fyrir leikhlé. Landsliðsmiðherjinn Klaus Fischer var með skallahöfuöleðrið (sbr. að vera á skotskónum) í leik Shalke gegn Eintrakt Frankfurt. Fischer skoraði þrennu í leiknum og notaði til þess höfuðið. Tröllið Rolf Russman skoraði fjórða markið í auðveldum sigri Schalke. Keiserslautern voru einnig í markaskapi á laugardaginn, Klaus Toppmúller skoraði tvívegis og Wendt, Briegel og Schwarz bættu einnig salti í sár Stuttgart, sem svaraði aðeins með marki Olicher er staðan var orðin 4—0. Nýju liðunum gekk í heildina séð fremur illa, Nurnberg tapaði illa heima fyrir Bochum og Darm- stadt gerði aðeins jafntefli á heimavelli gegn Herthu. Armenia Bielefeldt má þó vel við una, fyrir viku sló liðið Hamburger út úr bikarkeppninni og nú náði það jafntefli á útivelli gegn Duisburg, Ronnie Worm skoraði fyrir Duis- burg en Schneider jafnaði fvrir Armenia. Þá er aðeins eftir að geta sigurs Dusseldorfs gegn Werder Bremen, Zimmerman, Búnther og Allop skoruðu fyrir heimaliðið, en Röber svaraði fvrir Bremen með marki úr vítaspyrnu. Úrslit í V-Þýskalandi: DuishurK — Armrnia liiiicícld |—1 SrhalkrOl — Kintrakt Frankfurt 1 — 0 Itiirussia Durtmund — llatrrn 1—0 I la m Ihi rmr — MiinrhrnKladharh :5—0 l'urttina Dussrld. — Wrrdrr lírrmrn :S — 1 Nurnhrrií — Itiirhiim 0-2 Krisrrslautrrn — Stuttitart i —1 Darnistadt — llrrtha ISrrlin 0 — 0 Fintr. ISraunsrhurÍK — Kiiln 1—0 Forest burst- aði Ipswich HINN árlegi „Charity Shield“ fótboltaleikur, sem er ágóðaleikur til góðgerðastarfs. fór fram á Wembley-leikvanginum í Lundúnum. bar áttust við að vanda Englandsmeistararnir og bikarmeistararnir, að þessu sinni Nottingham Forest og Ipswich. Ipswich tefldi fram hálfgerðu varaliði þar sem vantaði sex menn úr úrslitaleiknum í fyrra, gegn fullskipuðu meistaraliðinu Nottingham Forest. Og Ipswich átti aldrei möguleika. 68000 áhorfendur sáu Martin 0‘Niel skora fyrir Forest eftir aðeins fáar mínútur, eftir gróf mistök þeirra Gates og Mills. Á 27. mínútu bætti Peter Withe öðru markinu við eftir fyrirgjöf Barrett. Meistararnir létu ekki staðar numið og tæpri mínútu eftir að síðari hálfleikur hófst, skoraði Larry Lloyd þriðja markið með skalla eftir sendingu frá Robertson. Yfirburðir Forest voru algerir og þeir bættu tveimur mörkum við áður en yfir lauk, fyrst 0‘Niel á 76. mínútu og síðan John Robertson 3 mínútum fyrir leikslok. Enska fyrstu deildar liðið Middlesbrough hefur mikinn hugá að festa kaup á argentínsku HM-stjörnunni Rene Houseman, sem er af ensku bergi brotinn. I dag leikur Boro vináttuleik gegn liði Housemans, Huracan, og munu forráðamenn Boro að öllum líkindum gera tilboð í kappann, tilboð sem talið er munu hljóða upp á 334.000 sterlingspund. Fari Houseman til Boro verður hann fjórði Argentínumaðurinn sem til Englands fer, þar af eru þrír sem léku með HM-liðinu. Enska stórliðið Leeds United, leitar nú d.vrum og dyngjum að manni sem hæfur er til þess að taka að sér framkvæmdastjóra- starfið hjá félaginu, en eins og kunnugt er, var Jimmy Armfield sparkað fyrir skömmu. Ymsir hafa verið nefndir og var t.d. Lawrie McMenemy hjá Southhampton boðið starfið, en hann neitaði. Það nýjasta sem heyrst hefur, er að fyrrverandi þjálfari hollenska landsliðsins, Rinus Michels, hafi verið inntur eftir áhuga sínum á starfinu. Forráðamenn Leeds notuðu tækifærið er þeir voru á keppnisferðalagi í Hollandi fyrir skömmu og töluðu við Michels. Hefur ekkert verið gert opinbert um niðurstöður þeirra viðræðna. SKOSKA úrvalsdeildin ók af stað um helgina og var nokkuð um óvænt úrslit, eins og alltaf má vænta í knattspyrnu. Rangers, sem vann þrefalt í fyrra, töpuðu t.d. á heimavelli á sama tíma og erkifjendurnir Celtic sigruðu Morton á útivelli. Morton er nýkomið upp úr fyrstu deild, en liðið sem fylgdi þeim þaðan, Hearts, steinlá á heimavelli fyrir Aberdeen, 1—4. I rsiitin í skusku úrvalsdrildinnii Dunik'i' ftd. — Hibrrnian 0—0 llrarts — AI irnirr n i—j Murton — Crltii' ]—2 Muthrrwrll — l’artirk 0—1 Haniírrs — St. Mirrrn 0—1 Henry Rono-leikarniK' ## BREZKU samveldisleikarnir, sem fram fóru að þessu sinni í Edmonton í Kanada. hafa verið kallaðir manna á meðal „Henry Rono-leikarnir“, enda féllu flestir aðrir íþróttamenn gersamlega í skuggann af hlauparanum frábæra frá Kenya. Rónó sigraði örugglega í 3000 metra hindrunarhlaupi og 5000 metra hlaupi og virtist hafa lítið fyrir því. Þrátt fyrir alla þá athygli sem Rónó dró að sér, var hann ekki eini keppandinn og ýmsir náðu frábær- um árangri svo sem Englendingur- inn Daley Thompson, sem var ekki ýkjalangt frá heimsmetinu í tug- þraut. Thompson hlaut 8467 stig, en heimsmet Bruce Jenners frá Olympíuleikunum í Montreal hljóðaði upp á 8618 stig. Thompson er aðeins tvítugur og getur því auðveldlega bætt árangur sinn. Philbert Bayi frá Tanzaníu, sem kunnur varð eftir leikana 1974, reyndist ekki vera sami maðurinn að þessu sinni og sýndi ekkert sérstakt, hvorki í 1500 metra hlaupinu né í maraþonhlaupinu. Sömu sögu er að segja um þá Don Quarrie frá Jamaica og Ralene Boyle frá Ástralíu. Aldur- inn virðist vera að segja til sín hjá þeim félögum. Quarrie vann að vísu 100 metra hlaupið, en fékk krampa í 200 metra hlaupinu. Boyle varð hins vegar í öðru sæti í 100 metrunum og meiddist síðan í 200 metra hlaupinu. Tracy Wickham frá Ástralíu setti nýtt heimsmet í 800 metra skriðsundi kvenna, synti á 8:24,62 mínútum. Landi hennar, Michel Ford, varð einnig með betri tíma heldur en gamla heimsmetið. Þegar upp var staðið, höfðu Kanada, England og Ástralía hlotið langflest verðlaunin. Kanadamenn voru í fyrsta sæti, hlutu 45 gull, 31 silfur og 33 brons. Englendingar hlutu 27 gull, 28 silfur og 33 brons. í þriðja sæti höfnuðu Ástralíumenn, hlutu 24 gull, 33 silfur og 27 brons. ■ ■ Oruggur sigur Finna á Svíum FINNAR unnu Svía 240—168 í landskeppni í frjálsum íþróttum í Helsinki um helgina. Þessi sigur er sá stærsti sem Finnar hafa unnið á Svíum, en keppni þjóðanna hefur farið fram 38 sinnum síðan 1925. Finnar hafa unnið karlakeppnina í níu síðustu skipti og kvenna- keppnina sjö sinnum í röð. Finnar gera sér miklar vonir um góðan árangur í kúluvarpi og stangarstökki á Evrópumótinu í Prag í haust. I kúluvarpi náði Rejo Stálberg að sigra í landskeppninni með 20,86 metra kasti og Antti Kalliomaki vann stangarstökkið með 5,45 m. Tæplega 50 þúsund áhorfendur fylgdust með keppninni, en lítið var um toppárangur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.