Morgunblaðið - 15.08.1978, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.08.1978, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1978 23 Er sjálfstraust Karpovs að bresta? Fjögurra daga hlé hefur verið hér í einvígi Karpovs og Korchnois um heims- meistaratitilinn, þar sem Karpov kom þeim skila- boðum til Lothar Schmid dómara í gegnum Saitzev aöstoðarmann sinn, að hann ætlaöi að fresta tólftu skákinni fram til þriöjudagsins, en hvor keppandi um sig hefur rétt til að fresta þremur skák- um í fyrstu 24 umferðun- um. Ef einvígið varir í meira en 24 umferðir hefur hvor skákmaöur rétt til að fresta einni skák í hverjum átta umferðum. Þaö er álit Oscars Panno stórmeistara frá Argentínu, að um 50 um- ferðir þurfi til að útkljá einvígiö aö þessu sinni. Ef svo fer þá veröur það okkur sem ætluðum á Ólympíumótið í skák í október í Buenos Aires til mikilla vonbrigða. Hiö sama á við um Karpov og tvo meðlimi hinnar opin- beru sovésku sendinefnd- ar hér, stórmeistarana Tal og Balashov, þar sem reiknað er með aö þeir þrír skipi lið Sovétríkjanna á Ólympíumótinu ásamt Spassky, Petrosian og Polugaevsky, en fyrsti varamaður veröur Gulko. Áskorandinn, Viktor Korchnoi, hefur sagt að hann hyggist leika á fyrsta borði Svisslendinga á Ólympíumótinu, og að- stoðarmenn hans þeir Keene og Stean verða báöir í enska liöinu. Sá orðrómur hefur verið á kreiki í blööum hér að ef einvígiö dregst á langinn veröi því frestað svo skák- mennirnir geti teflt í Buen- os Aires. En þó aö þetta kunni að hafa verið stað- fest af Forencio Campo- manes skipuleggjanda Ólympíumótsins, sem sagöi að báðir keppendur hefðu fallist á slíkt fyrir- komulag áður en einvígið hófst, þá tel ég þaö afar ólíklegt aö bæði áskor- andinn og heimsmeistar- inn hafi litiö svo áhyggju- lausum augum á heims- meistaraeinvígið. Oscar Panno er hingað kominn til aö taka viö af Miguel Najdorf sem frétta- ritari stærsta blaös Argen- tínu, El Clarin. Najdorf varö aö bregöa sér í viðskiptaerindum til Lond- on, en áöur en hann fór lét hann svo um mælt aö Panno kæmi einnig hing- að til aö aðstoöa Korchnoi. Þetta voru frétt- ir fyrir hina ensku aðstoð- armenn Korchnois, þá Keene og Stean, en þegar ég bar þeim stórmeistur- unum fréttirnar létu þeir í Ijós hrifningu meö aö fá svo góöan liösauka. Panno er mjög góöur rannsóknarmaður og hefur djúpan skilning á taflinu. Þetta voru einnig fréttir fyrir Panno og neitaði hann við mig í fyrstu aö hann væri hingaö kominn til að aðstoða Korchnoi. Hann játti því þó að hann kynni aö gefa fylgdarliöi Korchnois góð ráð, en væri þó ekki opinber aöstoðarmaöur hans. Hann geröi að sínum ummæli Mikhail Tals fyrr- verandi heimsmeistara, sem kom hingað að því er séð verður sem fréttaritari sovéska skáktímaritsins 64 en er af öllum talinn vera óopinber aðstoðar- maður Karpovs: „Ég er hér til að skrifa fréttir af einvíginu, en ef ég verð spurður hvort leika skyldi hrók á c1 eða d1 þá er ekki hægt að reikna með því að ég geti setið á mér.“ Hvað sem þessu líður þá færa báöir keppendur sér í nyt það fjögurra daga frí sem þeir fengu. Þeir hvíla sig nú og undirbúa sál og líkama og kryfja byrjunarfræðina fyrir tólftu skákina. í sovésku herbúðunum er því statt og stöðugt neitað aö eitthvaö sé miður við sálarástand eða sjálfstraust Karpovs. „Hann þarfnast aðeins stuttrar hvíldar," segja þeir. Þaö fer hins vegar ekki fram hjá óvilhöllum áhorfanda, að miðað við taflmennsku Karpovs í síöustu tveimur skákun- um, þá þarf eitthvað meiri- háttar að koma til, til að betrumbæta slaka frammistöðu hans á skák- boröinu. Korchnoi hlýtur að hafa fagnað hvíldinni einnig. Harka hans og einbeiting fram aö þessu hljóta að hafa dregið úr þreki hans, enda er hann 47 ára gamall. Fyrir okkur sem fylgjumst meö átökunum virðist einvígið nú á mikil- vægum tímamótum og Korchnoi sýnist smávegis sálrænt forskot. Málin sjást ef til vill í nýju Ijósi eftir tólftu skákina. Mynúllst eftir VALTÝ PÉTURSSON ENN eru sýningar í gallerí Suðurgötu 7. Þar er ekkert sumarfrí, eins og oft tíðkast í slíkum stofnunum erlendis, Nú eru það tveir, sem sýna, annar niðri, hinn uppi. Sá sem sýnir niðri, er ÁRNI INGÓLFSSON og mun hafa verið við nám í Hollandi að undanförnu, en ef satt skal segja, veit ég ekkert Sýningar í Suðurgötu 7 um þann mann, nema það er ég las hjá Aðalsteini Ingólfssyni í Dagblaðinu. Þar segir hann eitthvað í þá áttina, að Árni hafi haft mikla hæfileika, er hann stundaði nám í Myndlistar- skólanum hérlendis, og finnst Aðalsteini heldur slakur árangurinn af dvöl Árna meðal þeirra í því blauta Hollandi. Hvað sem þessu líður, get ég ekki séð stórbrotna hugsjón í þessum eða þessu verki, sem Árni hefur komið fyrir í Suður- götu 7. Það er vissulega að bera í bakkafullan lækinn að ætla sér að skrifa um þessa sýningu af nokkurri íhugun. Þar er heldur lítið um að fjalla og sannast mála varla nokkur skapaður hlutur. Eitt er þó merkilegt við þessa sýningu. Það er alveg furðulegt að kalla þetta list og enn furðulegra að flokka slíkt undir hugtakið myndlist. Ég er allur af vilja gerður að tala vel um fyrstu sýningu ungs manns, en því miður get, ég ekki fundið nokkra ástæðu til að fjalla um þetta á líkan hátt og tíðkast um myndlist. Ef hið opinbera skóla- kerfi í Hollandi er í þessum dúr hvað myndlist snertir, ættum við að hugsa okkur tvisvar um, áður.en við senduíh okkar fólk til framhaldsnáms í því landi. Það er sagt, að allt sé leyfilegt í myndlist nútímans. Það*má vel vera rétt, en samt sem áður vcrður eitthvað að vera á ferö, sem snertir tilfinningalíf þess, er kemst í snertingu við það, sem sýnt er. Á íoftinu er það STEPHAN KUKOWSKI, sem er búsettur í Englandi, er sýnir. Hann virðist vera kátur i andanum og gera gys að öllu því, sem í eina tíð var álitið hafa gildi í myndlist. Ekki varð ég fyrir miklum áhrifum af því, er hann hefur sent gallerí- inu, og ég veit varla, hvað hann er að fara. Meistarinn segir í bréfi til gallerísins að upp skuli, sett skilti, sem á sé letrað „Icelandic Centre for Brunchian Thought and Study“ Mr. Brunch mun vera hugarfóstur þess, er sýnir og því er þessi leikur í mínum augum „tóm tjara“ eins og unglingarnir segja. Ef þetta allt saman hefur tilgang og er stórkostlegt? Já, þá getur maður ekkert sagt, en mikið fjári er þetta billegt og þrautleiðinlegt. Það örlar hvergi á gamansemi, en það er nú einmitt gamansem- in, sem oft á tíðum bjargar sýningum, sem þeim tveim, sem ég hef reynt að minnast á í þessum línum. Það getur verið freistandi að eiga við það ógerlega. Andrew prins stanzaði stutt ANDREW Bretaprins átti na-tur- dviil í Ueykjavík á mánudagsnótt. en hann var þá á leið til Bretlands frá Samveldisleikunum í Kanada. Einkaflugvél Andrews lenti um hálftólfleytið á sunnu- dagskvöld á Reykjavíkurflug- velíi. þar sem starfsmenn brezka sendiráðsins hér tóku á móti honum og óku þegar í stað með hann í brezka sendiráðið. í gærmorgun var farið með Andrew í stutta ökuferð um Reykjavík, en hann hélt af landi brott laust fyrir hádegi í gær. Eins og kunnugt er hefur eldri bróðir hans Karl verið við veiðar undan- farið í Hofsá í Vopnafirði, en þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir tókst Andrew ekki að ná samhandi við hann. Myndina, sem hér fylgir, tók Rax við komu Andrews til Reykja- vikurflugvallar á sunnudagskvöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.