Morgunblaðið - 15.08.1978, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 15.08.1978, Blaðsíða 36
ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1978 Breiðholt h.f. og Verkamannabústaðirnir: ,,Ad leysa mál- inífriðsemd” „I>AÐ or vorift að ra'ða ýmis mái í sambandi við yfirtciku verksins. sórstaklona ta kniloií mál." sajíái Eyjc'clfur K. SÍKurjcinssun formacV ur stjc'irnar VB í samtali við Mbl. í KaT þoKar hann var inntur eftir upplýsinfíum um þrc'iun mála milli VB cift Broiðholts h.f. Kvað Eyjólfur framkva'mdastjóra VB cif; lótífræðinfí ræða við Brcið- holtsmonn. Sifíurður Jónsson hjá Broiðholti kvað árangur dassins rýran. því mcnn væru margir upptoknir. on hann kvað þá stofna að því að ffora upp málin oins og mönnum sæmdi. „og ég hold." safjði hann. „að monn hafi vilja til þoss að loysa þetta farsadlofía moð samkomulaKÍ." Egill Skúli í starf borgar- stjóra í dag EGILL Skúli Ingibergsson borgarstjóri í Reykjavík tekur við starfi sínu í dag. en meirihluti borgarstjórnar hefur ráðið hann út kjörtímabilið. Egill Skúli er 51 árs gamall, verkfræðingur að mennt og hefur m.a. starfað við eigin verkfræðifyrirtæki um ára- bil. Ilann er kvæntur Margréti Guðlaugu Þorsteinsdóttur. Eyjólfur kvaðst annars hafa litlu við yfirlýsingu VB að bæta, reikningar við Breiðholt hefðu verið sléttir þegar sumarfrí hófust og kvaðst hann vonast til þess að unnt væri að ganga frá þessum málum í friðsemd. Þá kvað hann fulltrúa VB hafa rætt við fulltrúa verkalýðsfélaga í dag um að stuðla að því að VB greiddi ógreidd vinnulaun í sambandi við bygg- ingu verkamannabústaða í Hóla- hverfi og kvað Eyjólfur það tryggt. Tveir bátar farn- ir til reknetaveiða TVEIR reknetabátar eru farnir út til veiða í tilraunaskyni og þá fyrst og fremst til að freista þess að veiða nýja síld til beitu, en annars hefjast síldveiðar í reknet almennt kringum 25. ágúst n.k. Enn sem komið er hafa bátarnir tveir ekki fengið mikinn afla. Annar báturinn hefur leitað fyrir sér við Snæfellsnes, en hinn undan austanverðu Suðurlandi. Þessa dagana er úrvalsflokkur kínversks fimleikafólks á ferð hér á landi. Fimleikaflokkurinn sýnir í Laugardalshöllinni í kvöld og á fimmtudag. Sjá bls. 2. Kekkon- en fékk 5 laxa í gær- morgun LAXVEIÐI Kekkonens Finnlands- forseta gekk vel í Víðidalsá í gærdag og í gærmorgun fékk forsetinn 5 laxa, að því er Morgun- blaðinu var tjáð í veiðihúsinu Tjarnarbrekku. Eftir hádegið hvíldi forsetinn sig og hélt á ný til veiða kl. 16.30 í gærdag þ.e. 1 Vi tíma eftir að veiði í ánni mátti hefjast á ný, eftir hádegishléið. Rætt um sfldarverðið VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegsins kom saman til fundar í gær, til að fjalla um verð á síld til söltunar og frystingar á komandi síldarvertíð. Sveinn Finnsson framkvæmdastjóri Verðlagsráðsins sagði þegar Morg- unblaðið ræddi við hann, að verðákvörðunar væri vart að vænta á allra næstu dögum. Ganga alþýðuflokks- menn úr skaftinu í dag? Núverandi stjórnarmyndunartilraun á lítinn hljómgrunn innan þingflokksins núorðið FLEST bendir til þess að forsvarsmenn Alþýðu- flokksins muni draga sig út úr yfirstandandi stjórnarmyndunartilraun til samstjórnar Sjálfstæðis- flokks, Alþýðuflokks og Framsóknarflokks í dag eða eftir daginn í dag, þótt þeir mæti á viðræðufundi þeim sem Geir Hallgríms- son hefur boðað til í dag. Forsvarsmenn Alþýðu- flokksins hafa ekki viljað láta hafa annað eftir sér um þingflokksf und þeirra í gær en þar hafi menn skipzt á skoðunum og reifað málin á breiðum grundvelli, eins og Kjartan Jóhannsson, varaformaður Alþýðuflokksins orðaði það. Samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið hefur aflað sér kom það fram á þessum fundí, að mjög Lúdvík Jósefsson: Ónáðum ekki flokkana 3 ef þeir eiga samleið LÚÐVÍK Jósepsson for- maður Alþýðubandalags- ins sagði í samtali við Mbl. í gær, að honum þætti ótrúlegt að flokkarnir þrír, sem nú freista mynd- unar stjórnar, kæmu sér ekki saman um málefna- grundvöll þegar fyrir lægi að þeir væru sammála í meginatriðum um lausn efnahagsvandans og sagði varðandi ályktun Verka- mannasambandsins, að Al- þýðubandalagið hafi ekki viljað fallast á kauplækk- un sem Alþýðuflokkurinn taldi óhjákvæmilega og að hann vissi ekki betur en Verkamannasambandið væri enn þeirrar skoðunar að vilja ekki kauplækkun. Lúðvík sagði, að ályktun Verka- mannasambandsins kæmi sér ekk- ert á óvart, því að það-hefði legið fyrir að verkalýðshreyfingin hefði helzt óskað eftir samstarfi þessara flokka en það lægi líka fyrir á hverju þessar óskir strönduðu — Alþýðubandalagið hafi ekki viljað kauplækkun en Alþýðuflokkurinn talið hana óhjákvæmilega — „og við vitum ekki betur en Verka- mannasambandið sé jafnhart á því og áður að vilja ekki kauplækkun," sagði Lúðvík. Lúðvík sagði ennfremur, að úr því yrði að fást skorið hvort hinum þremur flokkunum tækist að mynda stjórn en honum væri ómögulegt að segja til um hvað gerðist ef það hefðist ekki. „Hitt hef ég sagt áður að mér finnst eðlilegt að þessir flokkar reyni til hlítar stjórnarmyndun og að það sé næsta ótrúlegt að þeir geti ekki komið sér saman eftir að hafa lýst því allir yfir, að þeir séu sammála í grundvallaratriðum, þ.e.a.s. um gengislækkun og talsverða kaup- lækkun. Við viljum ekki ónáða þessa aðila heldur láta þá í friði til að koma sér saman, ef þeir eiga samleið." Sjá „Magnús og Lúðvík greinir á um vextina" bls. 2. dvínandi áhugi er meðal þing- manna fyrir framangreindri þriggja flokka stjórn. „Það voru vöflur á okkur, þegar við tókum þennan kost og þær vöflur hafa mjög aukizt eftir ályktun Verka- mannasambandsins," sagði einn af þingmönnum flokksins, og annar þingmaður lét svo ummælt að það sem aðallega stæði í þeim alþýðu- flokksmönnum, væri að þeim þætti sem þeir væru með sam- starfi af þessu tagi einungis að ganga til liðs við fráfarandi stjórn. Eftir viðræðufund þann sem Geir Hallgrímsson hélt ásamt Gunnari Thoroddsen með fulltrú- um hinna flokkanna tveggja í gær, gekk hann á fund forseta Islands og spurði Mbl. Geir að því í gær hvað honum og forseta Islands hefi farið á milli. „Það er eðlilegt að forseta íslands sé greint frá gangi viðræðnanna um stjórnar- myndun og ræddum við um horfurnar í þeim efnum eftir viðræðufund flokkanna þriggja í morgun, en meira er ekki af samtali okkar að segja,“ sagði Geir. „Á viðræðufundinum í morg- un var fjallað um ýmis önnur mál en efnahagsmálin, en þau voru einnig rædd allítarlega. Nú er beðið eftir ákveðnum upplýsingum í sambandi við efnahagsmálin, sem væntanlega verða til fyrir næsta viðræðufund, sem ákveðinn var kl. 3 á morgun, þriðjudag.“ Geir var spurður álits á ályktun Verkamannasambandsins þess efnis að Alþýðuflokkur og Alþýðu- bandalag tækju aftur upp viðræð- ur um stjórnarmyndun. Forsætis- ráðherra svaraði: „Um ályktun Verkamannasambandsins vil ég ekki segja annað en það, að Alþ.flokkur og Alþ.bandalag hafa haft u.þ.b. 5 vikur eftir kosningar til að koma sér saman um úrræði. Þeirri tilraun lauk með illvígum deilum og brigzlyrðum þeirra á milli. Það er þeirra að meta nú hvort þeir geta sett þessar deilur niður. Stjórnarmyndun þarf hins vegar að ganga fljótt eftir þá töf sem orðin er.“ Sjá „Horfur óvissar" — umsögn Ólafs Jóhannes- sonar bls 2. Skólastjóri Handíóaskólans: Einar Hákonarson fékk flest atkvæði FJÓRIR umsækjcndur voru um stöðu skólastjóra Handíða- og myndlistarskólans í Reykjavík og hefur Fræðsluráð Reykjavíkur afgreitt umsögn um málið til mcnntamálaráðuneytisins sem síðan veitir stöðuna. Þeir, sem sóttu um, eru Einar Hákonarson listmálari, Einar Þorsteinn Ásgeirsson arkitekt, Gunnsteinn Gíslason myndlistarkennari og Guðmundur Á. Sigurjónsson list- málari. Við atkvæðagreiðslu í Fræðslu- ráði hlaut Einar Hákonarson 4 atkvæði, Einar Þorsteinn Ás- geirsson 2 atkvæði og Gunnsteinn Gíslason 1 atkvæði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.