Morgunblaðið - 15.08.1978, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 15.08.1978, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1978 • Nýbakaður Islandsmeistari í golfi, Hannes Eyvindsson • Gylfi Kristinsson GS, kom mjög á óvart í mótinu og GR, glaður á svip er hann tekur við hamingjuóskum. einbeittur mundar hann kylfuna. • Gamla kempan Þorbjörn Kjær- bo, lék mjög vel, og gaí ungu mönnunum ekkert eítir. Hér skoðar hann hvíta boltann íbygg- inn á svipinn. Hannes rauf sigur- göngu Björgvins ÍSLANDSMÓTINU í golfi lauk á laugardaginn. Leikið var á þrem völlum. Er þetta eitt fjölmennasta golfmót sem haldið hefur verið hér á landi. Meistaraflokkur karla lék á Hólmsvelli við Leiru. Gífurleg spenna var í keppninni og er síðasti dagur hófst áttu átta kylfingar möguleika á að hreppa íslandsmeistaratitilinn. Er upp var staðið eftir keppnina var fimm ára sigurgöngu Björgvins Þorsteinssonar lokið. Ungur kylfingur, Hannes Eyvindsson GR, 21 árs gamall, varð íslandsmeistari eftir þriggja hola höggleik við kornungan kylfing, Gylfa Kristinsson úr GS. Gylfi er aðeins 15 ára gamall. Veðurguðirnir fóru ómjúkum höndum um kylfingana meðan á keppninni stóð. Síðasta daginn var hávaðarok og úrhellis rigning. Var stórkostlegt að sjá hversu ein- beittir menn voru og létu veðrið hafa lítil áhrif á sig. Mótið gekk mjög vel fyrir sig og er varla hægt að segja að snurða hafi nokkurs staðar hlaupið á þráðinn. Fyrir keppnina bjuggust menn almennt við sigri Björgvins Þor- steinssonar, en honum gekk mjög illa síðasta daginn og þá sérstak- lega við púttin. Hvað eftir annað missti hann auðvelt pútt og var hreint ótrúlegt hversu óheppinn hann var. Björgvin hefur ávallt leikið best þegar pressan er mest því að hann er mikill keppnismað- ur, en nú brást þetta og sigurinn gekk honum úr greipum. Ungu mennirnir léku mjög vel í keppn- inni og komu sterkt frá mótinu. Þegar síðasta hring var lokið voru þeir jafnir Hannes Eyvinds- son og Gylfi Kristinsson, báðir með 307 högg. Næstir komu þeir Sigurður Hafsteinsson og „gamla“ kempan Þorbjörn Kjærbo sem lék vel með 308 högg. Þetta sýnir hve jöfn og spennandi keppnin var allan tímann. Geir Svansson kom svo í fimmta sæti með 309 högg. Þeir Hannes og Gylfi þurftu því að leika þriggja hola höggleik um fyrsta sæti og Sigurður og Þor- björn einnig um þriðja til fjórða sæti. Enn á nú var haldið út í rigninguna og má segja að ioftið hafi verið rafmagnað af spennu. Á fyrstu holu náði Hannes að setja pressu á Gylfa með því að vinna á honum eitt högg. Næstu holu voru þeir jafnir og enn hafði Hannes eitt högg í plús. Á þriðju holu þarf svo Hannes að taka víti, og áttu margir von á því að hann myndi ekki þola spennuna. En pilturinn lét ekki að sér hæða og högg hans á eftir upp á flötina var stórglæsilegt, boltinn hafnaði fet frá holunni. Glæsilega að verki verið. Gylfa tókst hins vegar ekki eins vel upp og mistókst í uppá- skoti sínu. Hannes púttaði síðan niður af öryggi og sigurinn var hans. Hörkukeppni var lokið. Sigurður Hafsteinsson náði svo að sigra Þorbjörn í keppninni um þriðja sætið. Það var ekki aðeins í meistara- flokki karla sem hart var barist. Keppnin hjá kvenfólkinu var ekki síður hörð. Þar sigraði Jóhanna Ingólfs- dóttir, GR, eftir mikla keppni við Sólveigu Þorsteinsdóttur úr Keili sem veitti henni verðuga keppni. I fyrsta flokki karla sigraði Gísli Sigurðsson örugglega, en hann lék á 336 höggum. _ Þ.R. Úrslit í moistaraflokki karla. Ilannos Eyvindsson GR 307 (70 - 79 - 75 - 71) (ivlfi Kristinssun GS 307 (81 - 77 - 71 - 75) SÍKurftur llafstoinssnn GR 308(73 - 81 - 73 - 81) Porhjiirn Kja'rbo GS 308 (75 - 82 - 73 - 78) Goir Svansson GR 309 (7(1 - 7fi - 78 - 79) Bjiirttvin Þorstoinsson GA 310 (73 - 80 - 78 - 79) Svoinn SÍKurhorKsson GK 311 (77 - 73 - 78 - 78) SÍKurður Thoraronson GK 312 (83 - 76 - 80 - 73) Óskar Sæmundsson GR 311 (75 - 76 - 78 - 85) Þórhallur UólmKoirsson GS 317 (80 - 79 - 78 - 80) MaKnús BirKÍsson GK 325 MaKnús llalldórsson GR 325 Moistaraflokkur kvonna Jóhanna InKÓIfsdóttir GR 328 (80 - 73 - 87 - 88) SóIvoík Þorstoinsdóttir GK 331 (86 - 81 - 76 - 88) Jakohína GuðlauKsdóttir GV (81 - 80 - 85 - 87) Kristín Pálsdóttir GK 317 (81 - 92 - 86 - 88) Kristín Þorvaldsdóttir NK 351 (89 - 88 - 87 - 90) 1. flokkur karla Gísli SÍKurðsson GK 336 (88 - 78 - 79 - 91) SINBJÖRN Björnsson GK 313 Viðar Þorstoinsson GA 311 (81 - 76 - 91 - 96) Jón Þór Ólafsson GR 311 (80 - 89 - 86 - 89) llonninK Bjarnason GK 315 (82 - 89 - 82 - 92) 2. flokkur karla Bjiirn Finnhjiirnsson G Lux 337 (86 - 86 - 82 - 83) llólmKoir IIólmKoirsson GS 311 (86 - 81 - 82 - 89) Jons V. Olafsson NK 316 Kristinn BorKþórsson NK 319 ' Einar GuðlauKsson NK 319 llrólfur Iljartarson 319 3. flokkur karla Samúol B. Jónsson GS 383 EKÍr MaKnússon Gos 381 ItaKnar Lárusson NK 385 HoIkí Gunnarsson GK 385 Stofan Stofánsson NK 389 1. flokkur kvonna ÁKÚsta 0. Jónsdóttir GI( 382 Sjiifn Guðjónsdóttir GV 383 Kristín Edoi NK 381 Guðrún Eirfksdóttir GR 392 SÍKríður Ólafsdóttir GII 397 Draumurinn rættist Ilannes Eyvindsson. — Draumurinn rættist, vissulega kom þetta mér á óvart. en þetta er draumur hvers golfleikara. Það má segja að ég hafi uppskorið eins og ég sáði. Ég hef æft sérlega vel fyrir mótið, og þá hjáipaði það til að vera í 12 daga úti á Spáni með unglingalandsliðinu. það var góð reynsla. Ég sótti mig mjög er á leið í keppninni og veðrið hafði ekki áhrif á mig. Mér finnst gott að leika golf í rigningu, það má vera að rokið hafi haft sín áhrif á að betra skor náðist ekki, en ég er fyllilega ánægður með útkomuna. Þetta er ofsalega góður völlur og sérlega vel hirtur og gott að leika golf hérna. Þá vil ég að það komi fram að aðstoðarmaður minn Einar Þórisson (caddý) var mér ómetanleg hjálparhella í keppninni, og það er hverjum golfleikara nauðsynlegt að hafa hjálparmann 1 svona strangri keppni. — Það sem kom mér mest á óvart var hve Björgvin lék illa í lokin. Hann hefur alltaf staðið sig best er mest reynir á cn nú brást hann. Á því var ég hissa. Taugaspennan í lokakeppninni var mikil og hég hélt að mér tækist ekki að sigra er ég þurfti að taka viti á þriðju holu í aukakeppninni. en næsta högg réð úrslitum fyrir mig, það heppnaðist fullkomlega og holtinn hafnaði aðeins fet frá holu. Þá létti mér mikið. Þetta var stórkostlegt högg og tilfinningin sem fylgdi á eftir var góð. Það fór straumur um mig allan. — Nú ætla ég að hvfla mig á golfi um stundarsakir. þetta er búið að vera svo erfitt, sagði Hannes að lokum í spjalli okkar. — Þr. Ákveðinn í að sækja á brattann Gylfi Kristinsson. — Ég er aðeins húinn að leika golf í fjögur ár. og vantar því reynslu í svona stórmót, en ég er fyllilega ána'gður með árangur minn, því að ég átti alls ekki von á að ná svona langt í keppninni. Það munaði miklu fyrir mig að leika á heimavelli. hér get ég gengið beint áð þeim járnum sem ég ætla að nota en það geri ég ekki annars staðar. Ég byrjaði illa síðasta daginn og fór fyrstu holuna í sjö höggum, en svo paraði ég allar að sjöttu holu. og eftir það lék ég allar undir pari sem er frábær árangur. — — Ég reyndi að ^ieyma veðrinu og einbeita mér og þá sérstaklega að ná réttri sveiflu þetta tókst vel nema rétt í hyrjun. Ég var óheppinn með högg á þriðju holu í aukakeppninni. Það var mjög vont að standa að högginu og það réð úrslitum, höggið misheppnaðist og þar með fór tækifærið á að ná titlinum. Fyrir mótið hafði ég hvflst í hálfan mánuð og það gerði mér gott. Ég er ákveðinn í að æfa vel í framtfðinni og sa-kja á hrattann af festu. Þess má geta að ég dvaldi ásamt félaga mínum Páli Detilssyni -úti í Englandi í fyrra hjá enskum atvinnumanni i golfi sem bauð okkur til sín. Sú dvöl var lærdómsrik og ánægjuleg og hafði mikil og góð áhrif á hve miklum framförum ég hef tekið. þr

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.