Morgunblaðið - 15.08.1978, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.08.1978, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1978 5. flokkur íslandsmeistarar Vals í 5. aidursflokki. \ Lið Keflavíkur varð í öðru sæti. , «... ^i«.. ■■. - • Flf-ingar urðu í þriðja sa ti Lið ÍK varð í sjötta sæti í úrslitunum. (’urtlaui;llr siKurK. irss»nt VALUR vann yngsta flokkinn VALUR varö íslandsmeistari í 5. flokki, en úrslitakeppnin hjá þessum yngstu knattspyrnumönnum landsins fór fram í Vestmannaeyjum yfir helgina. Var Valur vel að sigri í mótinu kominn, liðið var áberandi besta liðið, greinilega vel þjálfað. Sex lið höfðu unnið sér rétt í úrslitakeppnina sem sÍKurveKar- ar úr hinum sex riðlum íslands- mótsins. Var iiðunum skipað í tvo riðla.í A-riðli lentu Keflavík. FIL Völsungur, en í B riðli voru Valur. ÍK (KópavoKÍ). ok Sindri (Ilöfn í Ilornafirði). \-Iill)ILI.t Koflavík - Fll .1-3 Koflavfk — VölsunKur 2—1 KII — Völsunjíur 3—3 ll-KIDILL. Valur — ÍK fi —1 Valur — Sindri fi—1 Sindri — ÍK 2—1 Um 5. og 6. sætið léku því Völsungur og ÍK og sigraði liðið frá Húsavík, Völsungur, með yfirburðum, 6—1. Var mál manna sem fylgdust með úrslitakeppninni að Völsungar væru með þriðja besta liðið í keppninni en þeir höfðu ekki heppnina með sér. I leiknum um 3.og 4. sætið kepptu FH og Sindri og sigraði FH 1—0 í jöfnum leik. Var þá komið að úrslitaleiknum milli Vals og Keflavíkur. Vals- menn tóku leikinn strax föstum tökum og sóttu til muna meira en Keflvíkingarnir en þeim Vals- mönnum gekk erfiðlega að skapa sér góð færi enda vörðust Kefl- víkingarnir hetjulega undir þungri sóknarpressu Valsmanna. Þegar aðeins um 2 min. voru eftir til leiksloka var staðan enn 0—0 en þá brunaði Heimir Jónasson, útherji Vals, upp völlinn og skaut þrumuskoti sem hafnaði upp í þaknetinu, sigurmark Vals og Islandsmeistaratitillinn var þeirra. Lokastaðan varð því þessi: 1. Valúr, 2. Keflavík, 3. FH, 4. Sindri, 5. Völsungur, 6. ÍK. Veðurguðirnir voru hinum ungu knattspyrnuköppum ekki hliðholl- ir að þessu sinni, alla keppnisdag- ana var beljandi austan rok og rigning í Vestmannaeyjum nema síðasta daginn þegar úrslita- leikirnir voru leiknir, þá loksins var skaplegt veður. ÍBV annaðist um framkvæmd úrslitakeppninnar og tókst það í alla staði vel. — hkj. VÍKINGAR meistar- ar í4. flokknum VÍKINGUR varð íslandsmeistari í 4. flokki, er liðið vann sigur gegn KR í úrslitaleik á sunnudaginn. Andri Marteinsson skoraði eina mark leiksins um miðjan sfðari hálfleik og höfðu Víkingar þá staðið af sér mikið KR-stórviðri. Fyrri hálfleikur var frekar jafn, en KR-ingar voru þó yfirleitt heldur meira í sókn. Báðir markverðirnir fengu þó að sýna hvers þeir voru megnugir. I síðari hálfleik sóttu KR-ingar hins vegar mun meira, en Víkingar börðust grimmilega og gáfu fáa höggstaði á sér og smáa. Það var síðan um miðjan hálfleikinn, að Andri skoraði sigurmarkið, en löng sending barst inn í vítateig KR. varnarmistök litu dagsins ljós og Andri fylgdi vel eftir og vippaði knettinum yfir markvörðinn. KR-ingar áttu síður en svo slæman dag, heppnin var einfald- lega ekki á þeirra bandi að þessu sinni. Hjá þeim skaraði enginn sérstaklega fram úr. Liðið var jafnt. Það sama er að segja um Víkinga, en þeir Kristján Björg- vinsson, Andri Marteinsson og Einar Einarsson voru þó áberandi góðir. I keppninni um þriðja sætið sigraði KA lið Stjörnunar með 3—2. Stjarnan jafnaði tvívegis mörk KA, en rétt fyrir leikslok var Stjörnuvörnin illa sofandi og KÁ-menn laumuðu inn sigurmark- inu. Leikurinn var lengst af nokkuð jafn, en varnarleikur Stjörnunnar var oft frekar slakur og því fór sem fór. Víðir Garði og Sindri frá Höfn léku um 5. og 6. sætið og var leikurinn hinn skemmtilegasti á að horfa og knattspyrnulega séð besti leikurinn í úrslitunum. Sindramenn léku oft ljómandi fallega knattspyrnu, einkum í fyrri hálfleik, en þeir dofnuðu í þeim síðari og þá voru Víðismenn sterkari. Um miðjan síðari hálf- leik, var staðan 2—2, er Víðismenn skoruðu greinilegt rangstöðumark, sem þó fékk að standa. Það-vakti athygli, að línuverðir sáust aðeins í sjálfum úrslitaleiknum, en ekki öðrum. Maður þykist vita, að þetta stafi af manneklu í stéttinni, en eigi að síður er þetta afar bagalegt. Þarna voru mörg efni á ferðinni eins og vænta mátti og er leitt að mörg lið æfi aðeins og leiki á malarvöllum. Meðal þeirra mörgu sem athygli vöktu, voru Arnór hjá Sindra og Jónas hjá Víði, báðir 4. flokkur tveir stórskemmtilegir miðvallar- leikmenn og Arnór minnir á Karl Þórðarson hjá IA. Þr.slit í A. rirtli. KK - KA 3-0 KR — Vírtir fi — 1 Vfoir-KA 0— I l'rslit í H-riAlii Stjurnan — VíkinKur 0—1 Stjarnan — Sindri 2—1 Víkintfur — Sindri 1 —ft í'rslitaluikirnir. 1. —2. sa*tiA KR — VíkinKur 0—1 3.— 1. sa*tift Stjarnan — KA 2 — 3 5,-fi. sa*tift Sindri — Víftir 2— 1 • KR ingar töpuðu naumlega í úrslitunum. • KA hreppti þriðja sætið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.