Morgunblaðið - 15.08.1978, Síða 13

Morgunblaðið - 15.08.1978, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1978 13 íMMMMMM, Sérstakar vinnusýningar eru haldnar d sýningarsvœdi skógræktarinnar og er þá unninn ýmiss viður, svo sem arinviður og borðviður úr trjdbolunum. Sýnishom aföllum ís- lenzkum trjátegundum • „Hér er að finna sýnishorn af öllum þeim trjátegundum, sem hafa reynzt nógu harðgerðar, til að þola íslenzkar aðstæöur," sögðu starfsmenn Skógræktarfé- lags Reykjavíkur, en Skógrækt- arfélag Reykjavíkur og Skógrækt ríkisins sýna á sameiginlegu sýningarsvæði á landbúnað- arsýningunni. Alls eru sýndar 58 trjátegundir og 44 runnategundir, en runnateg- undirnar eru einkum ætlaðar til garðræktar. Sumar trjátegundirn-. ar eru nytjategundir og er lerkið þar fremst í flokki. Er til sýnis ýmsislegt; sem unnið hefur verið úr íslenzkum trjám, svo sem girðingarstaurar, borðviður og arinviður. Þá eru einnig vinnusýn- ingar af og til, en þar sýna starfsmenn hvernig viðurinn er unninn. Skjólbelti er til sýnis á svæðinu, en þar hefur birki, greni og viðju verið plantað í skjólbelti. Uppeldi trjáplantna er sýnt í plastgróður- húsi, sem að sögn starfsmanna er bæði ódýrt og einfalt í uppsetn- ingu. Eru sýndar trjáplöntur, sem sáð hefur verið í beð og bakka, auk þess sem trjáplöntur, sem fjölgað hefur verið með græðlingum, eru sýndar. Loks má geta þess að til sýnis eru algengustu og harðgerð- ustu garðrunnategundirnar. Happdrætti er starfrækt á vegum skógræktarinnar og eru vinningar ýmsar trjáplöntur. Að sögn starfsmanna skógrækt- arinnar hefur aðsókn að sýningar- svæðinu verið mjög misjöfn. Hún var heldur dræm fyrstu tvo dagana, enda var veður þá leiðin- legt og sýningargestir skoðuðu þann hluta sýningarinnar, sem er innandyra. í gær var aðsókn hins vegar góð. Ostar seldir á kynningarverði • Osta- og smjiirsalan sýnir á sýningunni allar ostategundir sínar, og auk þess allt annað sem fæst hjá henni. Þá er gestum boðið að bragða á ostum og auk þess að kaupa ost á sérstöku kynningarverði, en ekkert er um smjörsölu á sýningunni. Ostárnir, sem boðið er upp á, eru Óðalsostur og Gouda-ostur, en sá síðarnefndi er sterkur 45% ostur. Þá er gestum boðið að kaupa ost á kynningarverði, eins og fyrr sagði, en kynningarverð þetta er nálægt því að vera heildsöluverð og munar um 300 til 400 krónum á því og venjulegu verzlanaverði. Gouda-ostur og Óðalsosturinn eru seldir í eins kílós pökkum, en aðrir ostar eru seldir margir saman á kynningarbakka. Kynningarbakkarnir eru af þremur gerðum, einn bakki ein- göngu með hvítlaukssmurosti, annar með fimm tegundum af smurosti, en sá þriðji er blandað- ur. Hefur sala gengið vel, að sögn starfsmanna Osta- og smjörsöl- unnar. Þá hefur það einnig verið vinsælt hjá gestum að þiggja pstaveitingarnar. Uppskriftir að ýmislegum osta- réttum er hægt að fá á sýningar- svæði Osta- og smjörsölunnar og þar er einnig að fá bækling um geymslu og næringarinnihald ost- anna. Osta- og smjörsalan býður gestum að bragða á ostum og auk jtess eru ostarnir til sölu d sérstöku kynningarverði. Sverrir Geirmundsson við mjólkurkœlitankinn, en á bak við Sverri sést í ,free-heater“ kerfið. Dráttarvélar, mjólkurkœUtankur og hitakerfi • Sverrir Geirmundsson hjá . Dráttarvélum h/f tjáði okkur að Dráttarvélar væru með tvö sýn- ingarsvæði, annað inni í gagn- fræðaskólanum cn hitt á útisýn- ingarsvæðinu. Á útisýningar- svæðinu eru sýndar dráttarvélar og ýmis heyvinnutæki, en inni í skólanum er sýndur mjólkurkæli- tankur og svokallað „Free-heaiter“-kerfi. Mjólkurkælitankurinn er um 1500 lítrar að stærð, en það er samkvæmt upplýsingum Sverris frekar stór tankur. Við hann er tengt áðurnefnt kerfi, sem saman- stendur af vatnstanki og kælivél. „Free-heater-kerfið nýtir hitann frá kælivélinni til að hita upp vatn til notkunar í mjólkurhúsinu," sagði Sverrir og bætti við að þetta væri hiti, sem alltaf væri til staðar, svo í raun væri með þessu verið að nýta hita, sem annars væri ónýttur. „Með þessu má segja að bændur fái ókeypis heitt vatn,“ sagði Sverrir. Þá er á innisvæðinu þjónustu- deild, þar sem meðal annars eru sýndir varahlutir í Perkins dísilvélar. Þar eru einnig til sýnis brynningarskálar fyrir kýr og svín, seir\ og myndir af þjónustu- deild Dráttarvéla h/f. Á útisýningarsvæðinu eru sýnd- ar Massey-Ferguson dráttarvélar af mörgum stærðum, auk þess sem sýndar eru hinar ýmsu gerðir heyvinnutækja. Garðyrkjuskóli ríkisins: „Erum að reyna að minna á okkur” • „Við erum að reyna að minna á okkur með þátttöku okkar í þessari sýningu. Við erum innan um aðra garðyrkjumenn af því að við lítum svo á að við cigum heima í þeirra félagsskap." sagði Sigurður Þráinsson kennari í Garðyrkjuskóla ríkisins. Sigurð- ur tjáði okkur að þeir væru aðallega að minna á Garðyrkju- skólann sem skólastofnun og í öðru lagi sem tilraunastofnun. Á innisvæði Garðyrkjuskólans tók tilraunastarfsemi þeirra mesta rúmið. Þar voru crysan- temumgræðlingar sýndir í mis- munandi ljósi, natríum- og kvika- silfursljósi. Á svæði skólans utan- húss gat að líta heimilisgróðurhús sem þeir höfðu í samvinnu við garðyrkjubónda. Skólinn hafði útvegað plötnurnar í húsiö, tó- mata, paprikur og fleira en fyrir utan húsið var kryddjurtagarður, einnig gerður í samvinnu við garðyrkjubónda. „Það er erfitt að gera þverskurð af starfi skólans“ sagði Sigurður, „en þegar bæði úti- og innisvæðin eru skoðuð þá held ég að þau gefi óvenjugóða mynd af því.“ Sýninyarsvœði Garðyrkjuskólans.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.