Morgunblaðið - 15.08.1978, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1978
Sóknarleikur í öndvegi
í 4:4 leik Fram og FH
— FH-ingar leiddu 3:0 í leikhléi og
höfðu sigurinn tvívegis í hendi sér
ÞAÐ VAR MIKIÐ um mörk í loik FII og Fram í Laugardalnum á sunnudagskvöldið og áður en yíjr lauk urðu mörkin 8 talsins, jafntefli varð í
leiknum iA. Gangur leiksins var í stuttu máli þannig að í fyrri hálfleik skoruðu FH-ingar 3 mörk og í leikhléi áttu menn ekki von á öðru en
stórsigri Ilafnfirðinganna. Framarar voru þó greinilega ekki á sama máli og á fyrstu 20 mfnútum seinni hálfleiksins skoruðu þeir 3 mörk og
staðan var orðin jöfn. Er aðeins tvær mínútur voru eftir af leiknum skoruðu FH-ingar enn og aftur töldu menn FH-sigur tryggðan. Framarar
voru sem fyrr á öndverðum meiði og á síðustu mínútu leiksins tryggði Kristinn Atlason Fram annað stigið með skallamarki.
FH-ingar fengu þarna dýrmætt
stig í baráttunni á botninum, en
auðvitað hefðu þr átt að vinna
þennan leik. Að vera með þriggja
marka forystu á að nægja hvaða
liði sem er til sigurs. En FH-ingar
uggðu ekki að sér, þeir héldu
áfram að sækja og vörn þeirra
riðlaðist. Framarar halda enn
þriðja sætinu í deildinni og
jafnteflið var eftir atvikum sann-
gjárnt, því að Framliðið var sízt
lakari aðilinn í þessum leik ef á
heildina er litið. I fyrri hálfleikn-
um gerðist það hvort tveggja að
Framarar misnotuðu öll sín mark-
tækifæri og engin völdun var í
vörninni þegar mörkin komu.
Ungu ieikmennirnir í liðunum
voru mjög atkvæðamiklir í þessum
leik. Guðmundur Steinsson, sonur
Steins Guðmunsonar, formanns
Fram, gerði tvö af mörkum Fram
og var síðara markið sérlega
giæsilegt hjá þessum efnilega,
eldsnögga leikmanni. Pálmi Jóns-
son kom inn á sem varamaður hjá
FH í leiknum og skoraði fjórða
mark liðsins. Áður hafði annar
ungu leikmannanna í FH, Guðjón
Guðmundsson, skorað og loks var
það Kristinn Atlason, sem setti
punktinn yfir i-ið með marki á
síðustu mínútunni.
Leikur Fram og FH var bráð-
skemmtilegur á að horfa og oft á
tíðum brá fyrir mjög skemmtilegu
spili hjá liðunum. Sóknarleikurinn
var nokkuð á kostnað varnarinnar,
en einkum var það þó sambands-
leysi milli miðvarða liðanna, sem
skóp mörkin. . . , ... .. , ,,
Það hjalpaði heldur
ekki upp á sakirnar að tengiliðir
liðanna hugsuðu greinilega meira
um sóknarhlutverk sín en varnar-
hlutverk.
MARKASÚPAN
Ef litið er á mörkin þá komu þau
á eftirfarandi hátt til að gera
langa sögu stutta:
• Guðmundur Steinsson, nýliði í Framliðinu, skorar þriðja mark
Fram og jafnar leikinn með þrumuskoti.
0:1. Ásgeir Arnbjörnsson átti
sendingu utan af vinstri kanti,
knötturinn fór yfir vörn Fram og
markvörð. Janus Guðlaugsson var
réttur maður á réttum stað og
góður skalli hans sigldí rakleiðis í
netið frá markteigslínu.
0:2. Löng sending upp hægri
kantinn á Leif Helgason, sem
leikur á einn Framara og rennir
knettinum síðan fyrir markið á
Guðjón Guðmundsson. Þrumuskot
hans fór í einn varnarmanna
Fram, markvörðurinn var lagður
af stað fyrir knöttinn, sem gjör-
breytti um stefnu og fór í hornið
hinum megin við hann.
0:3. Magnús Teitsson á fyrirgjöf
frá hægri og Leifur Helgason var
óvaldaður. Fastur skalli hans fór
örugglega í netið.
1:3 Pétur Ormslev skorar af
stuttu færi eftir skalla frá
Guðmundi Hafberg.
2:3. Guðmundur Steinsson
kemst á milli sendingar frá
Gunnari Bjarnasyni, sem ætluð
var Friðrik markverði. Guðmund-
ur átti ekki í erfiðleikum með að
skora eftir þessi mistök.
3:3. Nýliðinn Guðmundur
Steinsson er enn á ferðinni og eftir
að hafa leikið inn að marki frá
hægri kanti lét hann mikið skot
ríða af með vinstri fæti af um 20'
metra færi. Knötturinn þaut í
markhornið nær upp undir slá.
3:4. Pálmi Jónsson skoraði af
FRAM-FH 4:4
Textii Ágúst I. Jónsson
Myndi Ragnar Axelsson.
stuttu færi eftir mistök hjá
Frömurum.
4:4 Langt innkast frá vinstri.
Kristinn Atlason stingur sér á
milli varnarmanna og skallar
knöttinn í þverslá og inn.
GÓÐ LIÐ Á
GÓÐUM DEGI
Hægt væri að telja upp tækifæri
í leiknum, sem ekki urðu að
mörkum. Pétur Ormslev átti t.d.
skot í slá og yfir í fyrri hálfleik og
í seinni hálfleiknum komst Ólafur
Danivalsson einn innfyrir, en skot
hans fór framhjá. Reyndar hafði
Ólafur komist framhjá varnar-
mönnum Fram skömmu áður, en
þá greip Trausti Haraldsson til
þess ráðis að grípa í skyrtu hans og
snúa Ólaf niður. Fyrir þetta ljóta
brot fékk Trausti aðeins gult
spjald.
Lið Fram og FH geta bæði náð
skemmtilegum leikjum, en það
sem háir þeim er hversu misjöfn
þau eru. Að þessu sinni voru þeir
beztir í FH-liðinu Janus Guðlaugs-
son, Benedikt Guðbjartsson og
Magnús Teitsson. I liði Fram vakti
Guðmundur Steinsson mesta
athygli undirritaðs, en Pétur
Ormslev og Ásgeir Elíasson gerðu
einnig góða hluti. Varamennirnir
Gunnar Guðmundsson og Pálmi
Jónsn frískuðu báðir upp á lið sín.
Valur Benediktsson dæmdi leik-
inn og flautaði hann helzt ekki í
blístru sína nema þegar um
innkast eða útspark var að ræða.
I stuttu máli,
Islandsmótið 1. deild, Launardalsvöllur 13.
áKÚst. Fram — FH 4:4 (0:3)
Mörk Fram. Pétur Ormslev á 51. mín.
Guðmundur Steinsson á 53. og 65. mín.
Kristinn Atlason á 5K). mínútu.
Mörk FII. Janus Guðlautfsson á 17. mín.
Guðjón Guðmundsson á 32. mín., Leifur
Hel^ason á 42. mín, Pálmi Jónsson á 88.
mínútu.
ÁminninK' Trausti Haraldsson, Fram,
fékk jfula spjaldið.
Blikar eiga nú
vonarglætu
FYRSTI SIGUR UHK á heimavelli í sumar í 1. deildar leik kom á sunnudaginn er UBK lagði áhugalaust lið
ÍBV að velli 2-0. Ekki er hægt að scgja annað en að sigur þeirra hafi verið sanngjarn. liðið lék ágæta
knattspyrnu og haráttan var meiri í liði þeirra en oftast áður. Og þá er ekki að sökum að spyrja, allt
gengur betur þegar áhuginn er fyrir hendi. Með þessum sigri UBK í deildinni auka þeir möguleika sína á
að falla ekki þó svo það sé frekar langsótt að ætla að þeir sleppi við fall.
Leikurinn á sunnudag var ekki
sérlega vel leikinn hjá liðunum
og virtust Eyjamenn vera frekar
áhugalitlir, og sama um hver
úrslit leiksins yrðu. Einstaka
sinnum brá fyrir sæmilegum
leikköflum hjá liðunum en þess á
milli var mikið um miðjuþóf og
sendingar gegu á milli.
Blikarnir byrjuðu leikinn af
miklum krafti og strax á upp-
hafsminútum leiksins áttu þeir
tvö ágæt marktækifæri en Páll
Pálmason var vel á verði og
bjargaði. Framan af skiptust
liðin á að sækja og skapa sér
tækifæri en fá þeirra voru hættu-
leg.
Á 20. minútu fyrri hálfleiksins
áttu Eyjamenn sitt bezta mark-
tækifæri, er Tómas Pálsson var
komin í gegn og skaut af mark-
teig. en Sveinn Skúlason mark-
vörður UBK var eldsnöggur að
kasta sér og verja meistaralega
vel. Þarna fór forgörðum gott
tækifæri á að ná forystu en lánið
var ekki með Tómasi að þessu
sinni.
Fyrsta mark leiksins og það
eina sem skorað var í fyrri
hálfleik kom á 39. mínútu. Óskar
Valtýsson var með knöttinn og í
stað þess að hreinsa frá markinu
UBK —JBV 2:0
Textii Þórarinn Ragnarsson |
. Mynd. Ragnar Axelsson
gaf hann knöttinn til baka og
ekki tókst betur til en svo að
knötturinn hrökk á Sigurjón
Rannversson sem var á auðum sjó
og brunaði hann að markinu og
skoraði örugglega framhjá út-
hlaupandi markverði íbv.
Var þetta laglega gert hjá
Sigurjóni. Þannig var staðan í
leikhléi.
í siðari hálfleik sóttu Eyja-
menn öllu meira til að byrja með
en sköpuðu sér ekki nein tæki-
færi. Var spil þeirra of þröngt og
brciddin ekki notuð nægilega vel.
Á 58. minútu leiksins kemur
svo annað markið. Eftir að mikið
hafði verið sparkað'inni í vítateig
ÍBV-manna á milli myndaðist
þvaga og svo virtist sem Þór
Hreiðarssyni leiddist þófið, því að
hann tók af skarið og prjónaði
sig í gegn um hóp leikmanna lék
síðast á markvörðinn og rcnndi
knettinum yfir marklinuna af
stuttu færi. 2—0 fyrir UBK.
Eftir markið reyndu Evjamenn
að sækja sig en lítil samstaða
virtist vera og hvorki gekk né
rak. Blikarnir áttu hins vegar
ágæta spretti og tvívegis var
Sigurður Haraldsson f ágætu færi
en tókst ekki að nýta þau sem
skyldi. Þó skall hurð nærri
hælum er góður skalli hans fór
rétt utan við stöngina. Þá varði
Páll mjög vel gott skot frá honum
stuttu síðar.
í lok leiksins átti Tómas ágætis
markskot sem sleikti stöngina
utanverða. Var þctta eina skotið
sem skapaði einhverja hættu við
mark UBK.
í liði UBK áttu markvörðurinn
Sveinn Skúlason og Þór Hreiðars-
son beztan leik. Þá brá fyrir
góðum sprettum hjá Vigni og
Hinrik i framliunni.
Hjá ÍBV var og enginn einn
öðrum fremri, liðið f heild virkaði
áhugalaust og baráttan var f
lágmarki. Það skyldi þó aldrei
vera að þeir hafi verið búnir að
vinna leikinn áður en farið var
inn á völlinn. Slfkt kann ekki
góðri lukku að stýra.
í STUTTU MÁLI.
hópaviiKsviillur 13. áxúst íslandsmútift 1.
doild
l)BK - ÍBV 2-0 (1-0)
Mörk UBK. SÍKurjón Rannvcrsson á 39.
mínútu ojí I>ór HrciAarsson á 58. mínútu.
ÁminninK- Fnjfinn.
Ahorícndur 355.
——
• Sjaldgæf sjón í sumar. Breiðabliksmenn fagna marki og sigri í
leiknum við Vestmannaeyinga. Sveinn Ottósson og Sigurjón
Rannversson.
'I