Morgunblaðið - 15.08.1978, Page 21
21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1978
Aukakeppni IBK og
UBK í 3. flokknum
ÚRSLITALEIKIR íslandsmótsins í 3. flokki drengja fóru fram á
Ilúsavík nú um hclgina. Þar áttust við G lið og var þeim skipt í tvo
riðla. í A-riðli voru lið frá UBK, Austra og Haukum, og urðu úrslit úr
lcikjum þeirra sem hér segir. UBK — Austri, 5—0 (I—0), Austri —
Ilaukar 3—0 (1—0) og Ilaukar — UBK 1—9 (1—6). í B-riðli áttust við
lið IBK. bórs og ÍR. og þar urðu úrslit eftirfarandi. ÍBK — Þór 4—0
(1-0) Þór - ÍR 4-0 (0-0) og ÍR - ÍBK 0-3 (0-2)
Að afloknum leikjum í riðlunum
hófust sjálf úrslitin og var fyrst
leikið um 5 sætið. Þar voru það
Haukar og ÍR sem áttust við, og
lauk leik þeirra með sigri Hauka
2—1, eftir framlengingu. Leikur
þessara liða var mjög jafn en
tilþrifalítill og þófkenndur á að
horfa.
Þar næst var leikið um 3. sætið
og voru það Austri og Þór sem þar
leiddu saman hesta sína. í fyrri
hálfleik var leikur liðanna i
jafnvægi en þó áttu Þórsarar
hættulegri tækifæri, og tókst þeim
að skora eitt mark fyrir leikhlé. í
síðari hálfleik datt svo allur botn
úr leik Austramanna og Þórsarar
sigruðu með 5 mörkum gegn engu.
Þá var komið að aðalleik móts-
ins, leiknum um 1. sætið en þar
áttust við lið ÍBK og UBK. Strax
varð ljóst að þessi lið voru í
algjörum sérflokki og var leikur
þeirra tvímælalaust besti leikur
keppninnar. Allan leikinn var
algjört jafnræði með liðunum.
UBK hafði yfirburði í knattmeð-
ferð og samleik, en í vörn ÍBK var
hvergi veilu að finna og hinir
fljótu og ákveðnu sóknarmenn
þeirra náðu oft að skapa sér góð
færi. Það var svo á 22. mín. að
frammherja ÍBK, Ragnari
Margeirssyni, tókst að skora og
þar með koma liði sínu yfir.
Aðeins 5 mínútum síðar tókst
UBK að jafna metin og var þar að
verki Sigurður Grétarsson sem
skoraði beint úr aukaspyrnu. Það
sem eftir var leiksins tókst
hvorugu liðinu að skora þrátt fyrir
margar góðar tilraunir af beggja
hálfu. Þannig var staðan jöfn að
venjulegum leiktíma loknum og
við það sama sat í framlenging-
unni og lauk þannig leik liðanna
án þess að úrslit fengjust. Það
verður því að leika annan úrslita-
leik og verður hann að líkindum
leikinn innan skamms, og þá má
sannarlega eiga von á spennandi
og skemmtilegum leik.
• %
v#
I *
i'
• \
v.#'
Stjarnan lenti í 4. sæti í 4. flokki.
• ÍBK þarf að leika aukaleik við
. Breiðablik um sigurinn í 3. flokki.
• Þór varð í þriðja sæti
Austri frá Eskifirði varð númer 4.
• Víðir varð númer 5
Haukarnir urðu í fimmta sæti
lindri varð í sjötta sæti, en Hornfirðingarnir vöktu mikla athygli.
(Ljósm. ('iuómundur (iuójónsson).
• Stjarnan endaði í sjötta sæti
(Ijósm. Hiirkur Arnviöarstm)
FULLKOMiN
AÐSTAÐA
TILIÐKANA
FRJÁLSRA
ÍÞRÓTTA
Á blaðamannafundi. sem
íþróttaráð Reykjavíkur efndi
til, í síðustu viku var skýrt frá
þcim framkvæmdum sem átt
hafa sér stað við hinn nýja og
glæsilega frjálsíþróttaleik-
vang í Laugardal.
Leikvangurinn hefur nú
verið sjö ár í byggingu, og
fyrsta íþróttamótið, sem fram
fer á vellinum, eru Reykjavík-
urleikarnir.
Þótt leikvangurinn sé nú
kominn í nothæft ástand er
ýmis frágangur eftir, og búa
þarf völlinn betur tækjum.
Stefnt er að því að þessu verði
að mestu lokið næsta vor og
hefur verið ákveðið að efna til
sérstaks vígslumóts 17. júní
næsta sumar, en þá verða 20 ár
liðin síðan aðalleikvangurinn í
Laugardal var vígður.
Hinn nýi frjálsíþróttaleik-
vangur í Laugardal er fyrsti
íþróttavöllurinn á íslandi þar
sem hlaupabrautir eru lagðar
gerviefni og markar því þátta-
skil í gerð frjálsiþróttavalla á
íslandi. Völlurinn er teiknað-
ur á Teiknistofunni s/f Ár-
múla. en verkfræðistörf hefur
annast verkfræðistofa Sigurð-
ar Thoroddsen. Fyrstu fram-
kvæmdir hófust árið 1972 og
var þá landið jafnað og dýpri
frárennslislagnir lagðar. Vor
ið 1977 var síðan hafist handa
um að ljúka verkinu, verktak-
ar voru Gunnar og Sverrir s/f.
Eftirlit hefur annast Bygging-
ardeild borgarverkfræðings.
Hlaupabrautir og atrennu-
brautir eru lagðar gerviefni.
Rubtan. sem framleitt er af
fyrirtækinu Armerad Betong
Vagförvattringar í Svíþjóð.
Efnið er að öllu leyti mjög líkt
hinu svokallaða tartanefni en
mun ódýrara í' innkaupi. Rub-
tan efnið var lagt á brautirnar
af sérfræðingum frá sænska
fyrirtækinu. Illaupahrautirn-
ar eru 6. en gert er ráð fyrir að
þeim fjölgi í 8 síðar. Fullkom-
inn knattspyrnuvöllur er inn-
an hringbrautarinnar.
Steypt áhorfendasta'ði eru
fyrir 5000 áhorfendur og
undirstöður hafa verið steypt-
ar fyrir áhorfendastúku sem
taka mun 400 áhorfcndur í
sæti.
Kostnaður við gerviefni á
hlaupabrautir og atrennu-
brautir er ea.kr. 58.0 milljónir
og heildarkostnaður við leik-
vanginn ca. kr. 150.0 milljón-
ir. Mikil vinna hefur verið
lögð í undirhyggingu vallar-
ins. þar sem vellir. sem lagðir
eru gerviefnum. þurfa mjög
vandaða undirbyggingu. Þá
hefur undirbygging knatt-
spyrnuvallarins verið miðuð
við það að hægt verði í
framtíðinni að setja á hann
gervigras án mikils tilkostnað-
ar. Fimm ára ábyrgð er á
gerviefninu frá samska fvrir-
tækinu sem setti efnið á
völlinn.
Með tilkomu þessa gla'silega
| vallar er öll aöstaða til frjáls-
íþróttaiðkana hér orðin eins
og best verður á kosið. Er
framtak Reykjavíkurhorgar í
þessum efnum mjög lofsvert.
— þr.