Morgunblaðið - 15.08.1978, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 15.08.1978, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1978 Systir mín, + KRISTÍN JÓHANNESDÓTTIR. frá Ytri-húsum í Dýrafiröi, andaöist 13. ágúst. Jens Jóhannesson. + Eiginkona mín, móöir okkar og tengdamóðir, SIGRÍDUR HJÖRLEIFSDÓTTIR, Bogahltð 24, andaöist á Borgarspítalanum 12. ágúst. Ágúst Guðmundsson, Sigríður Ágústsdóttir, Grímur Brandsson, Atli Ágústsson, Þóra Sigurjónsdóttir. t Móöir okkar og amma, SÓLBORG GUDJÓNSDÓTTIR, Lokastíg 24, veröur jarðsungin frá Fossvogskirkju miövikudaginn 16. ágúst kl 10.30 f.h. Börn og barnabörn hinnar látnu. + Eigínmaöur minn, BJÖRN BJÖRGVINSSON löggiltur endurskoðandi lézt 12. ágúst. Erla Jónsdóttir. + Útför eiginkonu minnar og móöur okkar, GUÐRÍDAR GÍSLADÓTTUR, Unnarbraut 5, Seltjarnarnesi, verður gerö frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 17. ágúst kl. 10.30. Blóm og kransar afbeðnir. Fínnur Guðmundsson Helga Finnsdóttir Guðrún Finnsdóttir. + Útför eiginmanns míns, STEFÁNS EGGERTSSONAR, sóknarprests Þingeyri, ferfram frá Fossvogskírkju fimmtudaginn 17. ágúst kl. 13.30. Guðrún Sigurðardóttir. Bróðir okkar, VALTÝR KARVELSSON, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 16. ágúst kl. 15. Guörún Karvelsdóttir, Jóna S. Andersen, Lúðvík Karvelsson. + Útför BJARNA EINARSSONAR, vélsmiðameistara, Hrisateigi 45, Reykjavík, veröur gerö frá Fossvogskirkju miövikudaginn 16. ágúst kl. 13.30. Elisabet Þorkelsdóttir, Þorkell Bjarnason, Ása K. Oddsdóttir, Björgvin Bjarnason, Krístjana Kjartansdóttír, Björgvin Á. Bjarnason, Ólöf H. Bjarnadóttir og barnabörn. Hrefna Ingvarsdótt- ir Minningarorð F. 6. október 1921. D. 7. áKúst 1978. En það er eðli mjúkra móðurhanda að miðla gjöfum eins og þú. D. Stef. Hrefnu, bað mig fyrir, er hún hélt í hönd ömmu sinnar skömmu fyrir andlát hennar og amma sagði: Linda mín, ég er að fara, ég bið að heilsa öllum. Helena Svavarsdóttir og börn. í dag kveð ég mína kæru tengdamóður sem frá okkur hvarf svo snöggt og óvænt. Mér var þessi sómakona afar kær eins og reýnd- ar öllum er henni kynntust, því leitun er að slíkri mannkosta- manneskju er hún var, alltaf með útréttar hendur öðrum til hjálpar. Börnum sínum og barnabörnum var hún einstök og ef eitthvað bjátaði á var ávallt knúið dyra á heimili hennar og Sigurbjörns að Skeiðarvogi 141. Þar átti hún fallegt og gott heimili og var þar veitt af rausn. Hrefna var fædd í Hafnarfirði 6. okt. 1921 dóttir hjónanna Sigríðar Böðvarsdóttur og Ingvars Einars- sonar skipstjóra. Ingvar er látinn fyrir nokkrum árum en Sigríður dvelur á Dvalarh. aldr. sjómanna. Af börnum Ingvars og Sigríðar komust 7 til fullorðisára og er Hrefna annað barn þeirra er kveður þennan heim. Hrefna var tvígift, fyrri maður hennar var Guðmundur Eyjólfsson, með hon- um eignaðist hún tvo syni Birgi f. 7. ágúst 1943 og Guðmund Ingvar f. 30. janúar 1945. Guðmund mann sinn missti hún er Dettifoss fórst í febrúarmánuði 1945. Var hún því ung ekkja með tvo litla drengi. En öll él birtir upp um síðir og seinna giftist hún Sigurbirni Ólafssyni sem reyndist henni trúr og traust- ur lífsförunautur. Með Sigurbirni eignaðist hún Arnar f. 16. janúar 1949 og Rafn f. 31. janúar 1955. Þrír elstu synirnir eru kvæntir fjölskyldumenn og sá yngsti heit- bundinn. Það er stutt milli lífs og dauða, nú um verzlunarmanna- helgina var ég ásamt fjölskyldu minni með Hrefnu og Sigurbirni upp í Borgarfirði í fögru umhverfi og fallegu veðri. Þar var glatt á hjalla og naut Hefna þess að leika og starfa með barnabörnum sínum er þarna voru. Að kvöldi sunnu- dags veiktist hún skyndilega, að morgni mánudags var hún öll. Ég bið góðan guð að gefa mínum kæra tengdaföður, aldraðri móður hennar, börnum og barnabörnum styrk til að taka á móti þeirri miklu sorg er kvatt hefur dyra. Nafna hennar ung sagði, er hún heyrði andlát ömmu sinnar: „Hún amma verður örugglega fallegur engill." Hrefnu er nú sárt saknað svo traust og góð er hún ávallt var. Að síðustu þakka ég af heilum hug allt það, sem hún hefur fyrir mig og mína gjört. Blessuð sé minning hennar. G.P. Mig setur hljóða, er ég sest niður til að minnast tengdamóður minnar, Hrefnu Ingvarsdóttur, sem svo skyndilega var kölluð frá okkur. Það eru svo margar og góðar minningar sem koma upp í huga minn að ég get ekki látið hjá líða, að þakka henni fyrir hönd barna minna. Það sem frá þeim ér tekið, kemur ekki aftur. Enginn kemur í ömmu stað, enginn er eins og Hrefna amma. Minningarnar eru margar og dýrmætar og ég veit að þær eiga eftir að leiða þau til góðra verka, alitaf gat amma sagt þeim hvað var rétt í leik og starfi, enginn gat skipt eins jafnt og Hrefna amma. Þar eiga best við orð Rósu, yngstu systur minnar, sem er fósturdóttir mín og elsta sonar Hrefnu, ég man ekki aðra ömmu en Hrefnu, hún var mér alltaf svo góð. Ég veit að Rósa minnist fermingardags síns, þá koma Hrefna amma og Salli afi fyrst upp í huga hennar. Þau fylltu vel upp í stórt skarð sem þá hafði nýlega verið höggvið í hennar líf. Ég ætla að láta það verða lokaorð, sem Linda, fyrsta barnabarn „Kallið er komið, komin er nú stundin", segir í hinum fallega sálmi Valdimars Briem. Oft er það þó svo, að einhver viðvörun eða aðdragandi um að kallið sé nærri fer á undan, smátími fyrir þann sem brott skal halda það sinn — og ættingja hans að venjast tilhugsuninni og sætta sig við það sem óumflýjan- legt verður. Þannig var því þó ekki varið með mágkonu mína.Hrefnu Ingvarsdóttur, sem nú verður kvödd hinzta sinni. Maðurinn með ljáinn lagði þar skjótt og umsifa- laust. Hún og maður hennar höfðu mjög gaman af að bregða sér í smáferðalög og tjalda einhvers- staðar úti í náttúrunni og oftast fór eitthvað af börnunum með eða barnabörnin. Hress og kát lögðu þau af stað í eina slíka útilegu um verzlunarmannahelgina. Tjaldað var í Borgarfirði og skyldi nú notið útiverunnar saman þessa fríhelgi. Sonur og tengdadóttir, sem höfðu verið með þeim, nýbúin að kveðja og farin, en tvö af barnabörnunum ætluðu að verða eftir í tjaldinu með afa og ömmu eins og svo oft áður. Allt var bjart, gott og indælt, þegar Hrefna hneig skyndilega niður og kvartaði um þrautir í höfði. Henni var ekið í skyndi til læknis í Borgarnesi, en þaðan á sjúkrahúsið á Akranesi, þar sem hún lézt skömmu síðar. Banamein- ið reyndist vera heilablóðfall. Hrefna virðist hafa gert sér ljóst þá þegar að hverju stefndi sagði við mann sinn að hún væri að deyja og bað hann fyrir börnin. Við Lindu litlu, sonardóttur sína, mælti hún; Ég er að fara, skilaðu kveðju frá mér, ég bið að heilsa öllum. Fyrir þessa kveðju þökkum við Hrefnu af alhug og dáum það hugrekki og æðruleysi, sem að baki hennar býr. Það er hugrökk kona og sátt við lífið og mennina, sem hefur hugsun á því að biðja fyrir kveðjur til allra, er hún svo skyndilega er slegin til jarðar á miðjum aldri, svo mörgu var ólokið og frá svo mörgum sem hún unni og vildi vera lengur samvistum við varð hún að hverfa. Eftir stendur hnípinn hópur og reynir að átta sig á, að eiginkona, móðir, tengdamóðir og elskuleg amma verður ekki framar til að bjóða þau velkomin heim á sinn glaðværa hátt. Hrefna átti því láni að fagna, að eiga gott og hamingjusamt fjöl- skyldulíf, góðan eiginmann og félaga, fjóra myndarlega syni, tengdadætur sem henni þótti vænt um og barnabörn sem hún sá ekki sólina fyrir. Fjölskyldan ’ var Hrefnu allt og hún naut sín aldrei betur en þegar þau voru öll samankomi á vistlegu heimili þeirra hjóna að Skeiðarvogi. Þá var hún hrókur alls fagnaðar og fyrst til að fara í alls konar leiki við börnin, bæði inni og úti. Barngóð var hún með afbrigðu og aldrei var hún svo upptekin að hafa ekki tíma fyrir þau, sama hvort þau voru skyldmenni eða ekki, alltaf var kassinn góði með leikföngunum dreginn fram, er börn komu í heimsókn. Hrefna ólst sjálf upp í stórum systkinahópi, var eitt af sjö börnum hjónanna Ingvars Einars- sonar skipstjóra, sem látinn er fyrir nokkrum árum, og konu hans, Sigríðar Böðvarsdóttur, sem nú er háöldruð kona og verður að sjá á eftir öðru barni sínu, en Ingvar bróðir Hrefnu lézt fyrir 6 árum. Eftir eru fimm úr hópnum og sendi ég þeim öllum samúðar- kveðjur, sérstaklega Huldu, tvíburasystur hennar, en þær voru alla tíð mjög nánar og samrýndar. Á þessu stóra æskuheimili hennar sem rekið var af miklum myndarbrag alla tíð, var mikið um gesti og gangandi og vöndust systkinin við það að hafa marga í kring um sig. Oft hefur verið gaman að hlusta á þau rifja upp glaðar og skemmtilegar endur- minningar frá þessum dögum. Sjálf á ég hugljúfar endur- minningar frá þeim dögum að börn okkar voru yngri og öll þessi stóra fjölskylda safnaðist saman á jólum til að dansa í kringum jólatréið á heimili afa og ömmu Siggu. Þá var oft glatt á hjalla, en Hrefna og Salli fremst í flokki að halda uppi fjörinu, allir urðu að vera með, enginn mátti skerast úr leik. Þessi skemmtilegi siður fluttist síðan með systkinunum inn á þeirra eigið heimili og ekki gæti ég hugsað mér jólin án þeirra og vona að þetta haldist áfram hjá börnum okkar og barnabörnum. Hrefna var tvígift. Fyrri mann sinn, Guðmund Eyjólfsson missti hún eftir skamma sambúð, en með honum eignaðist hún tvo eldri syni sína, Birgi og Guðmund. Með eftirlifandi eiginmanni og föru- naut um 30 ára skeið, Sigurbirni Ólafssyni, eignaðist hún einnig tvo syni, Árnar og Rafn. Sigurbjörn hefur reynzt þeim eldri bræðrum hinn bezti faðir og félagi alla tíð, svo þar var enginn munur á. Þessum ástvinum Hrefnu, ásamt aldraðri móður hennar, sendum við hjónin okkar innilegustu samúðarkveðjur, einnig tengda- dætrum og barnabörnum hennar. Ég veit að hið góða og nána samband, sem ríkti innan fjöl- skyldu hennar meðan hennar naut við, dofnar ekki þótt hún sé ekki lengur til að hlúa að því, heldur verði hinar góðu endurminningar, sem hún skyldi ykkur eftir, til að treysta böndin enn betur. Með þessum fátæklegu orðum kveð ég svo Hrefnu, þakka henni fyrir samveruna og ég harma það að hún skyldi ekki verða lengri. Megi algóður Guð vaka yfir fjölskyldu Hrefnu og gefa henni styrk. Hvíli hún í friði. J.J. Afmœlis- og minningargreinar AF GEFNU tilefni skal það enn ítrekað, að minningargreinar, sem birtast skulu í Mbl., og greinarhöfundar óska að birtist í blaðinu útfarardag, verða að berast með nægum fyrirvara og eigi síðar en árdegis tveim dögum fyrir birtingardag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.