Morgunblaðið - 15.08.1978, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 1978
33
I3 /•N
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100KL. 10— 11
FRÁ MANUDEGI
og rekja má til malarveganna.
Allur akstur á vegum með varan-
legu slitlagi verður átakaminni og
þótt ekið sé þar eitthvað hraðara
en á malarvegum skiptir það ekki
máli, því þessir vegir eru bara
miklu öruggari. Það þykir ekki
mikill hraði að aka á kannski
70—80 á olíumalarvegum og væri
vel hægt að leyfa allt að 90 km
hraða á þeim, a.m.k. að sumarlagi,
því á þessum vegum er jafnvel oft
ekið á þessum hraða. Annað þyrfti
einnig að setja reglur um, en það
er lágmarkshraði, því það er oft
jafnhættulegt að aka hægt eins og
að aka hratt. Ökumaður sem ekur
á 50—60 á steyptum eða olíumal-
arvegum veldur því að allir aðrir
þurfa að aka framúr og það getur
verið stórhættulegt, menn verða
óþolinmóðir og taka áhættu, sem
þeir annars ekki gerðu fengju þeir
að aka áfram „óáreittir" á sínum
80—90 km hraða. Lágmarksöku-
hraði á þessum vegum þyrfti því
að vera 60 og jafnvel 70 km á klst.
ef vel á að vera. Bílar eru orðnir
mun betur útbúnir en áður var,
öryggiskröfur orðnar meiri og því
ætti ekki að vera um neina áhættu
að ræða.
Þessi pistill er sjálfsagt orðinn
lengri en góðu hófi gegnir, en mig
langar að~~minna á og leggja
áherzlu á að á næstu mjög fáum
árum verði lögð öll áherzla á
varanlega vegi. Halda verður
áfram með lagningu olíumalar
austur fyrir fjall og fara lengra
með veginn upp í Hvalfjörð. Nefna
má einnig að þeir sem búa úti á
landi vilja að hafin verði lagning
varanlegs slitlags út frá kaup-
stöðunum, t.d. frá Akureyri, Egils-
stöðum, Isafirði og víðar. Það á
ekki endilega alltaf allt að byrja í
Reykjavík. Yrði þetta gert í meira
mæli en talað hefur verið um,
kæmi fram mun meiri byggða-
stefna en nokkurn tíma og kæmi
hún vissulega öllum til góða þegar
fram í sækti.
Ökumaður“.
Nýtt Nýtt
Blússur frá ítalíu og Þýzkalandi.
Glæsilegt úrval.
Glugginn
Laugavegi 49.
Þessir hringdu . . .
• Betri textar
Ung kona, sem sagðist vera
mikið fyrir popptónlist, sagði að
sér fyndist textum hafa farið aftur
nú á síðari árum, eða að hennar
viðhorf hefðu breytzt frá því hún
var yngri. Sagði hún það vera
skoðun sína að hljómsveitir þyrftu
að vanda vel til texta, ekki sízt
þeirra sem sungnir væru á ís-
lenzku, það væri minna hægt að
fást um þá erlendu texta sem aðrir
settu saman. Vildi hún hvetja
innlenda textahöfunda til að taka
sig á og vanda vel til texta, því að
þeir væru vissulega það mikill
hluti af flutningi hljómsveitanna
að þeir mættu engan veginn vera
annars flokks og það yrði að leggja
mikla áherzlu á að vanda þá.
• Símatíminn
Velvakandi vill vekja athygli
lesenda á símatímanum, sem er
daglega kl. 10—11 f.h. frá mánu-
degi til föstudags. Þá geta menn
hringt og borið upp erindi sín, sem
þeir vilja koma á framfæri,
ábendingum, hugmyndum,
kvörtunum eða þökkum fyrir
eitthvað sem þeir telja þakkarvert
o.s.frv. Ekki er nauðsynlegt að
búið sé að skrifa það sem koma
skal á framfæri, nóg er að geta um
hvert málefnið er. Þeir sem hafa
hins vegar tilbúinn pistil geta lesið
hann upp og verður hann þá birtur
orðréttur.
Sem fyrr er nauðsynlegt að
viðmælendur geti nafns síns, en
óskum um nafnleynd er sinnt sé
þess eindregið óskað, en slíkt er
alfarið á ábyrgð ritstjóra og
verður því að vera innan ramma
meiðyrðalöggjafarinnar. En
skemmtilegast er þegar fólk skrif-
ar undir fullu nafni.
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á skákmóti í V-Þýzkalandi í ár
"kom þessi stað upp í skák þeirra
M. Fischers, sem hafði hvítt og
átti leik, og Götz
23. Rg5! (Hótar bæði 24. Rxf7+ og
24. Bxf6+) Hg7 24. Bxf6 - Dd7 25.
Dh5 — Rh7 26. Dxh6 og svartur
gafst upp, því að hann er mát í
næsta leik.
HÖGNI HREKKVÍSI
i ji i i n í n
„Varstu að hugsa um að strjúka í kvöld?“
EMCO BS-2
BANDSÖG
verkfœri & járnvörur h.f.
DALSHRAUNI 5. HAFNARFIRÐI. SIMI 53332
POLSKI
F/AT
Aðeins kr.
1815.000
KOMINN Á GÖTUNA MEÐ
RYÐVÖRN OG ÖLLU TILHEYRANDI
TIL AFGREIÐSLU STRAX.
TIL ÖRYRKJA KR.
1.395.000.
FÍAT EINKAUMBOO Á ÍSLANDI
DAVÍÐ SIGURÐSSON hf.
SlÐUMÚLA 35. SÍMI 85855