Morgunblaðið - 15.08.1978, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. AGUST 1978
Sprengja banar
einum í Teheran
Sólar-
landa-
ferðir
hækkaí
Noregi
Osló. I I. ágílst. Al\
NORSKAR feröaskrifstofur
munu í vetur bjóða 30 til iOc/r
dýrari hópfcrðir til suður-Evrópu
cn í fyrravetur. ef marka má
ferðaáætlun þeirra fyrir vetur-
inn. sem út kom fyrir skömmu.
Mest er verðhækkunin á ferðum
til Spánar, Majorca og Kanaríeyja,
en þangað hafa flestir Norðmenn
farið yfir vetrartímann. Sé ferða-
áætiun ferðaskrifstofanna grand-
skoðuð kemur í ljós að sumar
tveggja vikna ferðir til Knaríeyja
eru meira en 40% dýrari í vetur en
í fyrravetur.
Ferðaskrifstofa nokkur, sem
hingað til hefur boðið tveggja
vikna ferðir á jafnvirði 117.000
króna, hyggst í vetur hækka verðið
í þessari sömu ferð upp í 195.000
krónur.
Ástæður fyrir þessum hækkun-
um eru sagðar margar og má
nefna meðal þeirra að norska
ríkisstjórnin ákvað nýlega að
leggja aukaskatt á allar vetrar-
sólarlandaferðir og nemur skatt-
urinn jafnvirði 5,700 króna. Þá
hefur hótelgisting á Spáni einnig
hækkað nokkuð í verði og verð-
bólgan í Noregi og almennar
launahækkanir þar í landi spila
einnig inn í.
í fyrra fóru 200.000 Norðmenn
til Spánar, Majorca og Kanaríeyja
og fyrstu sex mánuði þessa árs
jókst ferðastraumurinn til suður-
landa um 24%
Tt hcran. íran. 11. áliíi'I. AP.
SPRENGJA sprakk á veitinga-
stað í Tcheran á sunnudagskviild
með þeim afieiðingum að maður-
inn, sem hafði hana meðferðis í
svörtum plastpoka. lét lífið en 45
særðust. Hinn látni var íranskur.
Hersveitir eru stöðugt á verði í
þremur stærstu borgum Iran og
fjölda bæja, þar sem a.m.k. tólf
hafa látið lífið, þrjú hundruð særzt
og hundruð manna hafa verið
handteknir frá því að óeirðirnar
hófust að nýju í síðustu viku. í
borginni Isfahan hefur verið
ríkjandi útgöngubann og herlög
voru sett í s.l. mánuði en sex
manns létu lífið í óeirðum á
föstudag og sextíu og sex særðust.
í Teheran var allt með fremur
kyrrum kjörum á mánudag og
lögreglan taldi ekki ástæðu til að
setja á útgöngubann.
Flestir uppreisnarmannanna í
Teheran, Isfahan, Shiraz og fjölda
smærri borga eru íhaldssamir
múhameðstrúarmenn sem vilja að
hinni ströngu löggjöf múhameðs-
trúarmanna verði komið á að nýju,
konum verði vikið á brott úr æðri
menntasetrum, áfengisverzlunum
verði lokað og hert verði eftirlit
með leikhússýningum og sjón-
varpsdagskrá. Þá eru uppreisnar-
mennirnir andvígir nýjum reglum
sem Iranskeisari, Reza Pahlavi,
hefur komið á, um jafnrétti
kynjanna og aukið trúfrelsi.
Stjórnvöld í íran segja marxista
æsa múhameðstrúarmenn til að-
gerða gegn keisaranum og stjórn
hans.
Af gestum þeim er særðust á
veitingastaðnum á sunnudags-
kvöld voru a.m.k. tíu Bandaríkja-
menn en enginn þeirra særðist
alvarlega. Um tuttugu manns voru
þó enn á sjúkrahúsum í dag, flestir
alvarlega særðir.
S Fyrsti páfinn
sem jarðaður
er á þessari öld
— hinir hvfla í steingröfum
\ alihanifl. 12. ágiiM.
\I\ Kcutrr.
Milljónatugir manna um
heim allan fylgdust með útför
Páls páfa í sjónvarpi síðastlið-
inn laugardag og 100.000
manns heiðruðu minningu lát-
ins leiðtoga með nærveru sinni
á Sankti-Péturs torgi í blíð-
skaparveðri. þar sem Páli páfa
var m.a. lýst sem „sönnum
boðbera friðar". Fjölmennt lið
vopnaðra og óvopnaðra
liigreglumanna var einnig við-
statt útförina til verndar þeim
fjölmörgu fyrirmönnum hvaða-
næva að út heiminum. sem
viðstaddir voru. en meðal
þeirra voru Kurt Waldheim
franikvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna. Rusalynn Carter
forsetafrú Bandaríkjanna og
Andreotti forsætisráðherra
Ítalíu.
Kista Páls, einföld kista úr
sýprusviði, lá á persnesku teppi
framan við altarið, sem klætt
var hvítum dúk, og skreytt
örfáum kertum að ósk páfa.
Aftan og framan við altarið sátu
svo rúmlega eitt hundrað
kardínálar í viðhafnarklæðum.
Páll páfi var jarðaður í
kapellu undir altari Sankti-Pét-
urs kirkjunnar og voru aðeins
örfáir kirkjunnar menn,
kardínálar og nokkrir embættis-
menn Vatíkansins, viðstaddir
greftrunina og var það einnig að
ósk Páls. Verkamenn úr
Vatíkaninu tóku gröfina. Páll
páfi er einasti páfi þessarar
aldar, sem hefur verið jarðaður,
hinir hvíla í steingröfum.
Þegar athöfninní lauk og
kista páfa var borin til greftrun-
ar stóð mannfjöldinn upp og
margir veifuðu hvítum klútum
sem hinztu kveðju til látins
leiðtoga. Öllum háttsettum
kirkjunnar mönnum kom saman
um, er þeir voru spurðir, að
athöfnin hafi í senn verið
látlaus og virðuleg og í anda
Páls páfa.
Símamynd AP
Tvær nunnur og óþekktur syrgjandi Páls páfa biðja honum
blessunar í Sankti-Péturs kirkjunni í Róm. Myndin var tekin á
laugardagsmorgun áður en útför páfa var gerð.
Alltaf fell-
ur dollarinn
l.ondnn. 11. áttúst. Keutrr.
BANDARÍKJADOLLAR féll enn í
verði í dag og gullverð hækkaði
mjög, er gjaldeyrirbraskarar
flýttu sér að skipta gjaldeyri
sínum í eðalmálminn. Dollarinn
hresstist aðeins við, er tilkynnt
var að gaslindir hefðu fundizt út
af ströndum Bandaríkjanna, en
f.vrr en varði tók hann aftur að
falla í verði.
Ráðherra utanríkisviðskipta í
Japan, Nobuhiko Ushiba, sagði í
viðtali við Reuter í dag, að
Bandaríkjastjórn yrði að taka fall
dollarans fastari tökum, ellegar
gæti fallið haft ófyrirsjáanlegar
afleiðingar í för með sér.
I London var verð gulls skráð í
morgun á 212.25 dollara en hækk-
aði er á daginn leið og var er
gjaldeyrismörkuðum var lokað
skráð á 214.60 dollara únsan.
í Tókýó hélt dollarinn enn
áfram að falla og var skráður á
194.80 yen við lokun.
I Evrópu féll dollarinn gagnvart
öllum helztu gjaldmiðlunum, en þó
einkanlega á móti svissneska
frankanum.
Gaslindirnar, sem tilkynnt var
að hefðu fundizt, fundust út af
strönd New Jersey og Texaco
olíufyrirtækið, sem á 31% af
svæðinu, sagði að fundurinn vekti
bjartar vonir.
Rússar segja
Vestur-Berlín
ekki v-þýzka
YesturBerlín. 15. ágúst. Reuter.
SOVÉTMENN hafa varað við því
að þátttaka Vestur-Berlínar í
atkvæðagreiðslu til Evrópúþings,
brjóti í bága við Berlínarsam-
komulag fjórveldanna, Sovétríkj-
anna, Bandaríkjanna, Bretlands
og Frakklands, frá 1971. Halda
Sovétmenn því fram að Vest-
ur-Berlín sé ekki hluti af Vest-
ur-Þýzkalandi.
Christina
í Moskvu
Aþrnu. 11. áxúst. AP.
CHRISTINA Onassis flaug til
Moskvu í dag með rússneska
flugfélaginu Aeroflot, að sögn
starfsmanna á alþjóðlega flugvell-
inum í Aþenu. Til Moskvu hefur
hún sýnilega farið í þeim tilgangi
að hitta eiginmann sinn, Rússann
Sergei Kauzov, en þau hafa verið
gift í tvær vikur og þar af aðskilin
í meira en viku og hafa verið uppi
sögusagnir um væntanlegan skiln-
að þeirra.
Neitað um
fararleyfi
til Moskvu
Óh|«. | |. áiííi>t. Kciitcr.
FJÓRUM norskum blaðamönnum
hefur verið neitað um fararleyfi til
Moskvu, þar sem þeir ætluðu að
fylgjast með umræðum fulltrúa
landanna tveggja um sjávarút-
vegsmál, sem hefjast í dag.
Opinber ástæða fyrir synjun
þessari var sú, að opinber stofnun,
sem sér um að útvega ferðamönn-
um hótelrými, kvaðst ekki sjá sér
fært að útvega mönnunum fjórum
herbergi.
Aðstoðarráð-
herra saknað
Ajíana, (luam 11. ánúst. Reuter.
FLUGVÉL í eigu bandaríska
sjóhersins af gerðinni C-II hrapaði
í dag í sjóinn út af strönd Guam.
Um borð í vélinni voru 30 farþegar
og þar á meðal James Joseph
aðstoðardómsmálaráðherra
Bandaríkjanna. Síðast þegar frétt-
ist hafði einn maður fundizt
lifandi, en leit að hinum var haldið
áfram.