Morgunblaðið - 24.08.1978, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 1978
Um 60 flugvélar sýna á
Flugdeginum í Reykjavík
FJÖLBREYTT dagskrá verður á
Reykjavíkurflugvelli laugardaginn
26. ágúst n.k. en þá standa
íslenzka flugsögufélagið og Vél-
flugfélag íslands fyrir flugdegi
með þátttöku 50—60 flugvéla og
þar af munu nokkrar vélar að utan
heimsækja landið, en það eru vélar
frá Noregi, Danmörku og Vest-
ur-Þýzkalandi. Þá mun varnarliðið
á Keflavíkurflugvelli taka veruleg-
an þátt í Flugdeginum. Dagskrá
Flugdagsins fer hér á eftir en hún
verður samfelld frá kl. 13—18.
M.a. mun brezkur listflugmaður
sýna listir sínar, en þátttaka
vélanna 60 er fléttuð saman í
samfellda dagskrá þar sem mikið
verður um framhjáflug og lending-
ar. Flestar vélarnar verða til sýnis
á Reykjavíkurflugvelli en sýning-
arsvæðið þar sem sýningarflugið
fer fram verður flugvallarmegin
við Loftleiðahótelið og gamla
flugturninn. Aðgangseyrir verður
1000 kr. fyrir fullorðna og 400 kr.
fyrir 10—16 ára en ókeypis verður
fyrir yngri en 10 ára. Á hverjum
klukkutíma verða dregnir út tveir
happdrættisvinningar sem eru
flugferðir um daginn yfir Reykja-
vík og er hver aðgöngumiði um leið
happdrættismiði. Hér fer á eftir
áætluð dagskrá flugsýningar flug-
dagsins, 1978.
Áður en sjálf dagskráin hefst, er
gert ráð fyrir að um 15 einkaflug-
vélar fari í hópflug yfir borgina, og
verða þær lentar áður en dagskrá-
in hefst.
Flugsýningin sjálf hefst kl.
14.00.
1. Tvær Douglas Dakota vélar
eða Þristar koma fljúgandi yfir
svæðið. Önnur er frá danska
flughernum en hin frá Land-
græðslunni. Þær lenda báðar.
2. Tvær Lockheed P—3 Orion
kafbátaeftirlitsflugvélar munu
fljúga yfir svæðið. Önnur er frá
norska flughernum og mun hún
framkvæma nokkur hjáflug og
lenda síðan, en hin er frá varnar-
liðinu og mun lenda eftir fyrsta
samflugið.
3. Þota Arnarflugs mun sýna
hjáflug en ekki lenda.
4. Björgunarsveitin á Keflavík-
urflugvelli mun sýna hvernig
þyrla tekur eldsneyti á flugi og
Tíu manna sveit
á ólympíuskákmót-
ið í Buegnos Aires
Olympíuskákmótið hefst í Buenos Aires í Argentínu þann 25.
október n.k. og lýkur 12. nóvember, og er þetta í 23. sinn sem
ólympi'umót í skák er haldið.
í frétt frá Skáksambandi ís-
lands segir, að teflt verði í River
Plate Club og búizt sé við mikilli
þátttöku eða allt að 70—80 þjóðum
í karlaflokki og 30—35 þjóðum í
kvennaflokki.
Olympíumótin eru haldin annað
hvert ár og hefur svo verið frá því
árið '1950. íslendingar hafa að
jafnaði sent lið til keppni síðan
1952, en þeir tóku fyrst þátt í
olympíumótinu í Hamborg 1930.
Ápið 1939 fóru íslenzkir skákmenn
mikla frægðarför á slíkt mót til
Buenos Aires, þar sem þeir unnu
B-flokk keppninnar. Álls hafa
íslendingar teflt á 18 olympíumót-
um, en hingað til aðeins í karla-
flokki. Olympíumót í kvennaflokki
hafa farið fram 7 sinnum og hefur
nú verið ákveðið að íslenzkar
skákkonur taki þar þátt í fyrsta
sinn.
Á fundi Skáksambands íslands
s.l. mánudag voru keppnissveitir
Islands á Olympíumótinu í Buenos
Aires ákveðnar, Friðrik Ólafsson
stórmeistari, teflir á 1. borði, á 2.
borði teflir Guðmundur Sigurjóns-
son stórmeistari, á 3. borði Helgi
Ólafsson alþjóðlegur meistari, á 4.
borði Ingi R. Jóhannsson, alþjóð-
legur meistari, á 5. borði Margeir
Pétursson 2/3 alþjóðlegur meistari
þyrlan mun síðan sýna hæfni sína.
Eldsneytisvélin Lockheed
HC—130E Hercules mun ekki
lenda, en hinsvegar Sikorsky
HH-3E þyrlan.
5. Brezkur listflugmaður, Tony
Bianchi, kemur sérstaklega til að
sýna listflug á hinni nýju Cap 10
listflugvél. Cap 10 vélin er í eigu
nokkurra Islendinga.
6. Fjórar McDonnell Douglas
F—4E Phantom þotur munu sýna
fylkingarflug og aðflug en ekki
lenda.
7. Tvær Lockheed T—33A æf-
ingaþotur munu sýna fylkingar-
flug og aðflug en ekki lenda.
8. Félagar úr Fallhlífarklúbbi
Reykjavíkur munu sýna fallhlífar-
stökk.
9. Félagar úr Svifflugfélagi
Reykjavíkur munu sýna svifflug.
10. Fokker F—27 Friendship
flugvél F.í. mun sýna hjáflug.
11. Orion flugvél bandaríska
flotans mun sýna flugtak með
hámarksafköstum (maximum per-
formance take-off).
12. Hópflug hinna gömlu og
góðu Piper Cub flugvéla.
13. Transall C—160 frá vest-
ur-þýzka flughernum flýgur yfir
og lendir.
Auk þessa munu þotur Flugleiða
koma yfir flugvöllinn eftir því sem
áætlanir þeirra leyfa.
Undirbúningsnefndin tekur
enga ábyrgð á því að röð atriða
verði nákvæmlega eins og að
framan er talið.
og á 6. borði Jón L. Árnason 1/2
alþjóðlegur meistari.
Guðlaug Þorsteinsdóttur
Norðurlandameistari teflir á 1.
borði kvennasveitarinnar, á 2.
borði teflir Ólöf Þráinsdóttir,
Islandsmeistari, á 3. borði Birna
Norðdahl og á 4. borði Svana
Samúelsdóttir.
í karlaflokki verða tefldar 14
umferðir eftir svissneska kerfinu
en í kvennaflokki verður um
riðlakeppni að ræða, með 7 um-
ferða forkeppni og 7 umferða
lokakeppni í hverjum flokki.
í fréttatilkynningu Skáksam-
bandsins segir, að í mikið sé ráðizt
að senda keppnislið svo langan veg
til keppni, en áætlaður kostnaður
við þátttökuna sé á bilinu 4 til 4,5
milljónir króna. Hafa konurnar
undir forystu Birnu Norðdahl sýnt
lofsvert framtak með því að safna
að miklu leyti sjálfar fyrir sínum
ferðakostnaði, en engu að síður sé
enn óbrúaður kostnaður vegna
olympíumótsins upp á um 3
milljónir kr. Því ætlar stjórn
Skáksambandsins á næstunni að
beita sér fyrir fjáröflun í þessu
sambandi og í fréttatilkynningu
segir að héitið sé á fyrirtæki og
almenning málinu til stuðnings, og
gíróreikningur SI sé nr. 62500.
is-m
afsláttur
á eftirtöldum vörum
til mánaðamóta:
Var Nú
Khaki buxur ..10.900.-... .... 8.900.-
Stutterma skyrtur .... 4.900.-... 3.900-
Mittisjakkar herra.... ,..17.900.-... ....14.900-
Missitjakkar dömu..., „..14.500.-,.. 12.600-
Pils .... 9.900.-,.. 7.900-
Bolir .... 2.600.-,.. 1.900-
Allir kjólar
15%
afslátt
dömuvesti
15%
afslátt
TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
KARNABÆR
AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a Simi trá skiptibordi 28155