Morgunblaðið - 25.08.1978, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1978
5
„Svartfugl” Gunn-
ars á pappírskilju
ALMENNA bókafélagið hefur sent frá sér nýja útgáfu af
skáldsögunni SVARTFUGLI eftir Gunnar Gunnarsson —
að þessu sinni sem pappírskilju. Bókin er gefin út með
hliðsjón af notkun við bókmenntakennslu í skólum og með
það í huga hefur Sveinn Skorri Höskuldsson prófessor
skrifað um söguna ítarlega ritgerð, sem birt er hér sem
eftirmáli. Er hér um að ræða sögugreiningu með þeim
aðferðum, sem nú eru notaðar í bókmenntakennslu. Auk
þessa hefur Eysteinn Þorvaldsson menntaskólakennari
samið orðskýringar við söguna, einnig kafla, sem hann
nefnir Nokkur atriði til íhugunar og loks Verkefni
varðandi söguna í heild.
Gunnar Gunnarsson
Svartfugl fjallar eins og kunn-
ugt er um Sjöundármálin víðfrægu
— er sakamálasaga í orðsins
fyllstu merkingu, því að auk þess
að vera spennandi verða áhrifin af
henni þannig að þau knýja lesand-
ann til umhugsunar um sálarlíf,
ábyrgð, sekt og sýknu.
Sveinn Skorri tekur skýrt fram
í ritgerð sinni að túlkun hans sé
aðeins ein leið af fleiri til skilnings
á sögunni. Hann segir: „Ef sú leið,
sem hér er farin inn í veröld
Svartfugls, getur opnað lesendum
fleiri vegu til hugmyndavekjandi
upplifunar á sögunni er vel farið,
en fyrir því skulu greinin sjálf sem
og sagan, er hún fjallar um, lesnar
gagnrýnu auga að endanleg bók-
mennaskýring er ekki til.“
Þessi nýja útgáfa Svartfugls er
270 bls. að stærð, þar af er sagan
sjálf 225 bls., ritgerð Sveins
Skorra 32 bls. og athugagreinar
Eysteins Þorvaldssonar 11 bls.
Bókin er unnin í Prentsmiðjunni
Odda.
Lúmínó í Siglufirði:
Vinnur dýra-
meltu úr loðnu
DANSKA skipið Lumino, sem var
í borlákshöfn um tíma s.l. vetur
í þeim tilgangi að vinna dýra-
meltu úr loðnu er nú komið á ný
til íslands og liggur í Siglufirði.
Þar tekur skipið 500 tonn af
loðnu, sem unnið verður úr og fer
skipið síðan með afurðirnar til
Danmerkur, þar sem þær verða
notaðar í dýrafóður.
Björn Dagbjartsson forstjóri
Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðar-
ins sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að útkoman af
meltuvinnslu skipsins við Island
s.l. vetur hefði verið góð og vantaði
aðeins að fá einhverja íslendinga
til að fara út í slíka framleiðslu.
Sagði hann, að ýmsir aðilar
hérlendis hefðu áhuga á þessari
framleiðslu og hefði henni t.d.
verið sýndur verulegur áhugi í
Vestmannaeyjum, og væri vitað að
Danir væru tilbúnir að aðstoða
íslendinga á allan hátt við fram-
leiðsluna.
Björn sagði, að þessi vinnsla á
loðnunni yki ekki verðmæti afurð-
anna, heldur væri miklu ódýrara
að vinna hana á þennan hátt
heldur en í mjöl. Það væri miklu
ódýrara að koma upp verksmiðju
sem ynni loðnuna á þennan hátt
heldur en loðnubræðslu. Tæki til
vinnslunnar væru bæði færri og
ódýrari.
Þá kom það fram hjá Birni að
Dönum hafa verið sendar fleiri
fisktegundir en loðna til að vinna
úr meltu og kom t.d. í ljós að
grásleppa hentar vel til þessarar
vinnslu, en fram til þessa hefur
megninu af grásleppunni verið
hent, — það eru aðeins hrognin
sem eru hirt.
Huppa hef-
ur skilað
rúmlega 250
þúsund kr.
EYDÍS Einarsdóttir. sem vann
samkeppni „Mjólkurdagsnefnd-
ar“, hefur að því er segir í
fréttatilkynningu frá Upplýs-
ingaþjónustu landbúnaðarins,
haft heppnina með sér, þar sem
fyrsta kálfs kvígan Huppa frá
Brúnastöðum virðist ætla að
halda góðri nyt í sumar.
Eydís fær greitt fullt verðlags-
grundvallarverð fyrir mjólkina úr
Huppu. í síðasta mánuði mjólkaði
Huppa 380 lítra, grundvallarverð-
ið er kr. 137,90 á lítra, svo samtals
fær Eydís frá Mjólkurbúi Flóa-
manna 52.400 kr. Frá 1. mars og
fram til 31. júlí hefur Eydís fengið
254.528 kr. Huppa hefur mjólkað
á þessu tímabili 2011 ltr., hún
hefur fengið 594 kg. af fóður-
blöndu og um 900 fe í heyfóðri, en
á tún var hún sett 17. júní. Fóðrið
sem Huppa hefur fengið kostaði
um 90.000 kr. Félagsbúið á Brúna-
stöðum hefur aftur á móti fengið
greitt frá mjólkurbúinu 170 þús.
kr. fyrir mjólkina úr Huppu og
þegar allur kostnaður hefur verið
dreginn frá við mjólkurframleiðsl-
una eru eftir handa bændunum
upp í kaup 68 þús. kr.
Léttir frá Stórulág
setti met í 800 og
1500 metra brokki
Skeiðhestar mætast á Lag-
arfljótsbrúnni á sunnudaginn
HESTAMENN af Suðvesturlandi heimsóttu á miðvikudag
hestamenn í Hornafirði og efndi Hestamannafélagið
Hornfirðingur til kappreiða ávellinum aðFornustekkjum
þá um daginn. í hópi hestamannanna að sunnan ?oru
Aðalsteinn Aðalsteinsson, sem kom með skeiðhestinn
Fannar, Sigurbjörn Bárðarson, sem kom með hlaupahross-
in Glóu og Reyk, Jósep Valgarð kom með hlaupahryssuna
Mæju frá Skáney og Reynir Aðalsteinsson kom ni.a. með
skeiðhestinn Trausta. í Hornafirði mættust sunnanhrossin
og hornfirsk hlaupahross. Það bar helst til tíðinda að hinn
19 vetra brokkari, Léttir frá Stórulág, rann bæði 800 og
1500 metra brokkið undir íslandsmetum í báðum
gremunum.
Hestamennirnir að sunnan
héldu í gær frá Hornafirði til
Egilsstaða en þar ætla þeir að
reyna hross sín við kappreiðahross
af Héraði. Verða haldnar kapp-
reiðar á Iðavöllum n.k. laugardag
og á sunnuag er ætlunin að halda
skeiðkappreiðar á Lagarfljóts-
brúnni og verða þar reyndir einir
átta vekringar og hefjast kapp-
reiðarnar kl. 14. Það er álit þeirra,
sem til þekkja að Lagarfljótsbrúin
sé einhver besti skeiðvöllur lands-
ins en á brúnni er trégólf og hún
er nær 300 metra löng, þannig að
þar fæst fullur 250 metra sprettur.
Hestamenn á Héraði hafa oft
hleypt vekringum þarna á brúnni
og náð góðum hraða og hafa þegar
verið fengin öll tilskilin leyfi
vegna kappreiðanna á sunnudag.
Meðal þeirra hesta, sem koma tl
með að mætast þarna á brúnni,
verða Skjóni, núverandi íslands-
methafi í skeiði, og Fannar, sem
átti metið áður.
Alls voru það fimmtán hross,
sem voru reynd á kappreiðunum
að Fornustekkjum og urðu úrslit
þau að í 250 metra skeiði sigraði
Fannar, Harðar G. Albertssonar á
22,4 sek. í 250 metra stökki sigraði
Reykur Harðar G. Albertssonar á
18,2 sek. í 350 metra stökkinu
sigraði Glóa, Harðar G. Alberts-
sonar á 24,7 sek. og í 800 og 1500
metra brokkinu sigraði Léttir frá
Stórulág, eign Sigurðar Sigfinns-
sonar. I 800 metra brokkinu náði
Léttir tímanum 1.23,3 mín. og í
1500 metra brokkinu 2,56,0 mín.
Fyrr i sumar hafði Funi Marteins
Valdimarssonar í Búðardal sett
met í þessum greinum, í 800
metrunum 1.35,6 mín. og 1500
metrunum 3.02.5 mín.
Sýna hjálpar-
tæki á Akureyri
HJÁLPARTÆKJABANKI Rauða
kross íslands og Sjálísbjargar
heldur sýningu á hjálpartækjum
í Alþýðuhúsinu á Akureyri í dag,
föstudaginn 25. ágúst. Sýningin
er opin frá kl. 13 til 19.
Mjólkin jókst um
1,9% — Sala dróst
saman um 2,4%
FYRSTU sem mánuði ársins jókst
innvegin mjólk til mjólkursamlag-
anna um 1.9% miðað við sama
tímabil 1977. Á þessum sex fyrstu
mánuðum hefur sala á nýmjólk
minnkað um 2,4%, samdráttur
hefur auk þess orðið í sölu undan-
rennu cða 0.3% og sala á skyri
hefur minnkað um 3.3%.
Allveruleg aukning varð í sölu
rjóma eða 7.1% og smjörsalan var
51% meiri fyrstu 6 mánuðina í ár en
sömu mánuði í fyrra. Sala á
venjulegum ostum 45 og 30% jókst
lítillega en mikil aukning varð í sölu
á bræddum ostum. Birgðir af ostum
1. ágúst voru 986 lestir en það er
svipað og í fyrra. Smjörbirgðir voru
aftur á móti 856 lestir en það er 183
lestum meira en í fyrra.
Greinar
gerð verðlags
stióra veldur úlfaþyt
S.Í.S. krefst nánari skýringa
NIÐURSTAÐA norrænnar
könnunar á innkaupsverði á
Norðurlöndunum, þar sem m.a.
kemur fram, að innkaupsverð
hérlendis sé allt að 25% hærra
en gerist á hinum Norðurlönd-
unum hefur vakið töluverða
athygli. Af þessu tilefni leitaði
Mbl. álits nokkurra aðila
verzlunarinnar á könnuninni.
S.Í.S. hefur einnig sent frá sér
yfirlýsingu um könnunina og
fer hún hér á eftin
Yfirlýsing S.Í.S.
„I tilefni fréttar verðlags-
stjóra í blöðunum í dag varðandi
samanburð á innkaupum á sömu
vöru til Norðurlanda, þar sem
fram kemur að þessi innkaup til
íslands eru talin benda til
21% — 27% óhagstæðara verðs
en til annarra Norðurlanda,
telur sambandið nauðsynlegt að
verðlagsyfirvöld geri opinber-
lega nákvæma grein fyrir því til
hvaða vara og vöruflokka athug-
unin náði, svo allir geti myndað
sér rétta skoðun á þessu máli.
Þá er nauðsynlegt að verðlags-
yfirvöld geri almenningi ýtar-
lega grein fyrir helztu þáttum í
verðmynduninni, bæði í heild-
sölu og smásölu. — Loks vill
Sambandið lýsa yfir því að
upplýsingar um verðmyndun á
öllum vörum, sem það flytur til
landsins, standa verðlagsyfir-
völdum til reiðu, þar með talin
umboðslaun af innflutningi
þess.“
Könnuninni verður
haldið áfram
Mbl. sneri sér til Ólafs
Jóhannessonar viðskiptaráð-
herra um þetta mál og sagði
hann að þessari könnun yrði
haldið áfram hjá verðlagsnefnd
og kvaðst ekkert frekar hafa um
málið að segja að sinni.
Þá hafði Mbl. samband við
Magnús Finnsosn á skrifstofu
Kaupmannasamtakanna, en
hann sagðist álíta að niðurstaða
þessarar samnorrænu könnunar
snerti ekki kaupmenn og væri
einkamál heildsala og innflytj-
enda í landinu. Kaupmenn væru
einungis milliliðir heildsala og
neytenda, en hins vegar þyrfti
þetta mál nánari athugunar við.
Árni Árnason hjá Verzlunar-
ráði Islands kvaðst ekkert vilja
láta hafa eftir sér um þetta mál,
en Verzlunarráð væri að taka
saman greinargerð um þessa
könnun verðlagsstjóra og yrði
hún send fjölmiðlum í dag.
Neytendasamtökin hafa einn-
ig ákveðið fund með sér í dag
um þetta mál að sögn Gísla
Jónssonar stjórnarmanns þar og
kvaðst hann ekki vilja tjá sig
um málið fyrr en að þeim fundi
loknum. En hann sagði þessar
niðurstöður verðlagsstjóra stað-
festa það, sem áður hefði borið
á góma i umræðum um þessi
mál.
„Settar reglur
sniðgengnar,“ segir
Snorri Jónsson
„Það er gefið mál að
innkaupsverð á vörum hingað til
landsins er i mörgum tilvikum
hærra en kaupverð á sömu
vörum út úr verzlunum erlendis,
sem hefur ekki svo lítil áhrif í
efnahagsvandanum hér á landi,“
sagði Snorri Jónsson fulltrúi
A.S.I. í verðlagsnefnd um grein-
argerð verðlagsstjóra. „Það
stríðir gegn réttlætiskennd
manns að verða vottur að því, að
settar reglur í þjóðfélaginu eru
sniðgengnar," sagði hann enn-
fremur en annað vildi hann ekki
um málið segja.
Þá snéri Mbl. sér til Júlíusar
Ólafssonar framkvæmdastjóra
umboðs- og heildverzlunar
Kristjáns Ó. Skagfjörð, en hann
kvaðst ekki vilja tjá sig um
málið að svo stöddu, en vísaði til
væntanlegrar niðurstöðu af
fundi Félags íslenzkra stórkaup-
manna sem haldinn verður í dag
um þetta mál.
Viðurkenning á göll-
um löggjafarinnar
„Fyrst vil ég að það komi
fram að Innkaupasamband mat-
vörukaupmanna IMA hefur eng-
in umboð fyrir innfluttar vörur,
en það er mín skoðun að í
greinargerð sinni hafi verðlags-
stjóri í raun viðurkennt hvað
verðlagslöggjöfin, sem við.búum
yið, er meingölluð," sagði Torfi
Torfason framkvæmdastjóri
IMA í viðtali við Mbl. um
innkaupsverðskönnunina. „En
það má nefna það,“ hélt Torfi
áfram, „að án efa er umbúða-
kostnaður á vöru til íslands
meiri en til hinna Norðurland-
anna og eflaust spilar keypt
vörumagn einnig inn í dæmið.
Aðspurður kvaðst Torfi telja
ástæðu til þess að verðlagsstjóri
gerði nánari grein fyrir niður-
stöðum sínum af þessari könn-