Morgunblaðið - 25.08.1978, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1978
25
fclk í
fréttum
Draumareisa
til íslanÉs
+ Kaupmannahafnarblaðið
Aktuelt efndi í sumar til
ljósmyndasamkeppni með-
al lesenda sinna um „Sum-
armyndina 1978“. Verð-
launin: „Draumareisa til
íslands".
A sunnudaginn var
skýrði blaðið frá niður-
stöðu samkeppninnar.
Hlaut stóra myndin hér að
ofan verðlaunin, en hún
sýnir konu verðlaunahaf-
ans taka mynd af engi-
sprettu. Það var einmitt
engisprettumyndin (litla
myndin) sem þau sendu til
blaðsins, en verðlauna-
myndin fylgdi með. —
Dómnefnd blaðsins var
sammála um að stóra
myndin skyldi hreppa verð-
launin. Sá sem hlaut þau er
ungur vélamaður í Hróar-
skeldu, Sören Langkilde
Madsen. — Hann er á einni
myndinni ásamt eiginkonu
sinni, Birgit, og 6 mánaða
syni þeirra, en hann heitir
Jacob. Hjónin munu fara
til íslands í draumareis-
una, segir Aktuelt, áður en
langt um líður.
Hótaði dómara sínum
London 23. ágúst, Reuter.
UNGUR Arabi. sem sakaður
er um að hafa myrt ísraelska
flugfreyju í skotárás á sunnu-
dag, hótaði dómara, ef hann
yrði ekki þegar látinn laus.
Lögreglan var með mikinn
viðbúnað í öryggisskyni fyrir
utan Marlborough Street dóm-
saliriti, þegar Arabinn, Fahad
Mihyi, kom fyrir rétt. Þegar
dómarinn, David Hopkin,
spurði Mihyi hvort hann hefði
eitthvað að segja sér til máls-
bóta svaraði Mihyi: „Ef þú
lætur mig ekki lausan mun
eitthvað miður gott koma fyrir
þig.“ Dómari spurði þá hvort
Mihyi væri að fara fram á það
að vera leystur ú.r haldi gegn
tryggingu, eða hvort hann væri
að hóta sér, svaraði arabinn að
hann væri að hóta honum.
Grænlandsferð
Uemura á enda
Tókýó, 23. ágúst — AP
JAPANSKI ævintýramaðurinn
Naomi Uemura hefur lokið ferð
sinni yfir endilangan Grænlands-
jökul heilu og höldnu. að því er
ættingjar hans í Tókýó skýrðu
frá í dag.
Uemura sem ferðaðist á hunda-
sleða var 103 daga að fara eftir
Grænlandsjökli. Ferðaiag sitt yfir
jökulinn hóf hann 13. maí á leið
sinni til baka frá Norðurpólnum,
en hann varð fyrstur manna til að
fara þangað einn síns liðs. Græn-
landsjökull er um 2,650 kílómetra
langur. Uemura sigraði hann á
þriðjudag, að því er ættingjar
hans skýrðu frá.