Morgunblaðið - 20.09.1978, Side 29

Morgunblaðið - 20.09.1978, Side 29
I MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1978 29 TTT TT' ^ VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—11 , FRÁ MÁNUDEGI nrujjjnoí'ajs'v n Dularfullnr blettur vekur furðu í Sovét geislanin stafar frá, getur birst og komið fram í fjarlægum stað, jafnvel á öðrum hnetti, þar sem skilyrði til slíkrar framkomu eru fyrir hendi. Hér er um það fyrirbæri að ræða, er hamfarir kallast, og er alls ekki óþekkt hér á jörðu, þótt fáir vísindamenn hafi enn látið sér skiljast þennan möguleika lífsins. Ég hygg, að dýrið furðulega, sem nú er leitað í Seljordvatninu, sé einmitt þessa eðlis. Það mun ekki eiga heima hér á jörðu, heldur mun heimkynni þess vera í ein- hverju vatni á öðrum hnetti. Fyrir eitthvert sérstakt ástæði eða skiiyrði í Seljordvatni, hefur þetta dýr annars hnattar líkamnast um • Gangbrautum gleymt Eldri konai — Ég vildi fá að minna á í framhaldi af þessu hörmulega gangbrautarslysi nú um helgina í Reykjavík, að oft er engu líkara en ökumenn viti ekki hvað gang- brautir eru og hafi jafnvel gleymt að þær eru til, því þeir taka nærri því ekkert tillit til fólks sem bíður við gangbrautir. Ég hefi svo til daglega verið á ferli og því oft komið að gangbrautum. Eitt sinn er ég var við gangbrautina við Hótel Esju stöðvaði bíll og ég held út á gangbrautina, en þá kemur annar og hægir ekki á sér, heldur æðir áfram yfir gangbrautina og rétt strýkur á mér tærnar. í annað sinn taldi ég 12 bíla sem fóru fram hjá mér þar sem ég beið við gangbraut á Hverfisgötunni. Ég held því að óhætt sé að segja að það sé yfirleitt ekki bílstjórunum að þakka að ekki verða fleiri gangbrautarslys. • Tilkynna skatt- inn fyrirfram Kona nokkur hringdi og kvaðst vilja koma þeirri ábendingu á framfæri til stjórn- valda að látið yrði vita í tíma hvar markið yrði sett í sambandi við hátekjuskatt. — Það er ófært að fá EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU stundarsakir í þessu norska vatni, og því orðið mönnum sýnilegt við og við. Efnun þess hér er aðeins stundarfyrirbrigði. Það kemur hér fram, efnast um stund og hverfur aftur jafn skyndilega og það kom. Aftur og aftur getur þetta gerst, með stuttu eða löngu millibili. Og meðan þessar stuttu heimsóknir dýrsins standa yfir, getur það orðið sýnilegt og áþreifanlegt (en alls ekki þess á milli). Ef sérstak- lega stendur á, er því hægt að ná af því ljósmyndum, ef það birtist á yfirborði vatnsins, og einnig væri hægt að verða þess var með ratsjá eða öðrum leitartækjum ef það kæmi fram djúpt í vatninu. En ekki get ég hugsað mér að unnt yrði að handsama eða véiða slíkt dýr, því eðli þess er að hverfa með skyndingu til síns heima. Ekki kann ég skýringu á því, hvaða orsakir liggja til skyndi- heimsókna sem þessara. En þó má telja víst, að hið almenna lífafl- svæði þessa landshluta eða þessa héraðs eigi hér sinn hlut að máli, rétt eins og annarra staða, þar sem hliðstæðir atburðir gerast. Kemur þar margt til og fyrst og fremst hinn almenni hugsunar- háttur og einnig viðhorf fólks til fyrirbæra, sem enn hafa ekki verið útskýrð á náttúrufræðilegan hátt. En öll fyrirbæri eru náttúruleg og eðlileg þegar náð er réttum skilningi á eðli þeirra. Ingvar Agnarsson.“ þetta í höfuðið svona eftir á, sagði konan, og ætti að láta fólk vita það nógu snemma hvert hátekjumark- ið verður svo hægt sé að passa sig, því ekki er víst að menn ynnu svo mikið ef það væri vitaðdfyrirfram hvert þetta hátekjumark verður. Þá kvaðst konan einnig vilja beina því til auglýsenda og þeirra sem léðu máls á auglýsingum utan á húsum sínum, að þessar aug- lýsingar væru hafðar þannig að þær stingju ekki algjörlega í stúf við umhverfi sitt. 03^ SIG&A V/GGA t \iLVERAW HÖGNI HREKKVÍSI „Jæja, allténd ... þakka þér fyrir að reyna.“ „Við erum að reyna að ná barnhelda tappanum af magnýlinu.44 Moskvu. — 17. sept. — Reuter. DULARFULLUR blettur í loíti á íbúð gamallar konu. sem búsett er nálægt borginni Voronezh í miðjum Sovétríkjunum. hefur vakið mikið umtal þar í landi að undanförnu og flykkjast nú hundruð manna að heimili gömlu konunnar til að líta undrið augum. Orðrómurinn um yfirnáttúru- íran: legan blett í íbúð gömlu konunnar komst á kreik eftir að konan fullyrti við nágranna sína, að hún hefði séð svip af látnum sonarsyni sínum i blettinum. Síðan hefur verið ónæðissamt hjá gömlu kon- unni og hefur hún ekki haft undan við að stugga frá forvitnu fólki, sem drífur víðs vegar að, og er henni ekkert um þessar tíðu heimsóknir gefið. 18 þingmenn mót- mæltu herlögunum Teheran. 18. september. Reuter. ÁTJÁN þingmcnn neðri deildar þings íran gengu af þingfundi í gær í mótmælaskyni við herlögin sem sett voru í landinu 8. september. Skömmu áður höfðu 152 þingmcnn deildarinnar sam- þykkt herlögin. en 22 grciddu atkvæði á móti. Þingmennirnir sem greiddu at- kvæði gegn herlögunum sögðu að þau væru ekki í samræmi við þær yfirlýsingar forsætisráðherra landsins, að hann aðhylltist stjórnmálafrelsi. Við umræðurnar lýsti forsætisráðherrann, Jaafar Sharif-Emami, sig í meginatriðum sammála andstæðingum herlag- anna og sagðist forsætisráðherr- ann vona að hægt yrði að nema lögin úr gildi von bráðar. Forsætisráöherrann skýrði þingheimi frá því, að gripið hefði verið til herlaganna til að koma í veg fyrir að kommúnistar gætu kynt undir meiri háttar óeirðum í landinu. Upplýsingaráðherra landsins sagði og í dag, að stjórnvöld hefðu komist á snoðir um ráðabrugg kommúnista. Hann sagði að ýmsir leiðtogar kommún- ista í Vestur-Evrópu hefðu stutt ráðabrugg þetta. Upplýsingaráðherrann skýrði fréttamönnum frá því í dag að ástandið færi batnandi í landinu. Stjórnin er bjartsýn á að enn sljákki í mótmælunum í landinu og hefur því slakað á ýmsum ákvæðum herlaganna. Þannig hefur útgöngubann að næturþeli verið stytt um 90 mínútur í Teheran, Shiraz og Ahwaz og verzlunar- og viðskiptahverfið í Teheran hefur verið opnað á ný. Vissi Castró um ætlan Oswalds? Washington. — 18. sopt. — Reuter. RANNSÓKNARNEFNDIN, sem nú fæst við endurrann- sókn á morðinu á Kennedy Bandaríkjaforseta, hefur samkvæmt tilmælum Bandaríkjastjórnar athug- að hvort sá grunur hafi við rök að styðjast, að Castró forseti Kúbu og stjórn hans hafi vitað um ætlan Lee Harvey Oswalds um að ráða Kennedy af dögum. I samtali, sem nefndin átti við Castró nýlega um þetta atriði, harðpeitaði Castró, að hann eða stjórn hans hefðu vitað nokkuð um fyrirætlanir Oswalds. Og nefndin, sem fæst við rannsóknina, er eftir sem áður þeirrar skoðunar, að Oswald hafi verið einn að verki. Þessi óljósi grunur um að Castró og stjórn hans hafi á einhvern hátt verið viðriðin eða vitað um áform Oswalds eru m.a. til komin vegna greinar, sem brezkur blaðamaður ritaði skömmu eftir morðið, þar sem Castró neitaði að ræða við blaðamanninn um hugsanlega vitneskju um morðið og annars vegar ferð Lee Harveys Oswalds til Mexikó í vikunni áður en hann framdi morðið. I þeirri ferð á hann að hafa beðið um leyfi til að ferðast til Kúbu, en ekki er vitað hvort af þeirri ferð varð. Kórskóli Pólýfónkórsins veröur starfræktur í vetur. Kennslugreinar: Nótnalest- ur, tónheyrn, og raddbeiting. Innritun og nánari uppl. í símum 43740,17008, 72037, 71536 eftir kl. 6.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.