Morgunblaðið - 22.09.1978, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1978
Vetrarbörn komin
úthjálÐUNNI
HJÁ IÐUNNI er nú komin út
skáldsagan Vetrarbörn eftir
danska rithöfundinn og grafík-
listamanninn Deu Trier Morch i
þýðinKu Nínu Bjarkar Árnadóttur,
rithöfundar.
Þessi bók hefur hlotið mikið lof
jíajínrýnenda ok hvarvetna verið
tekið tveim höndum. I Danmörku
hefur bókin selst í nálega 100
þúsund eintökum og höfundurinn
hlaut fyrir hana verðlaun danska
bóksalasambandsins „Gullnu lár-
berin“, sem eru eftirsóttustu
bókmenntaverðlaun þar í landi.
Þetta er skáidsaga um 18 konur
o(j baksvið þeirra í þjóðfélaKÍnu og
innan vetiííja fjölskyldunnar. Kon-
urnar eru allar staddar á fæð-
int;ardeild, nánar til tekið á deild
þar sem þær konur eru lagðar inn
sem þurfa að vera undir læknis-
hendi einhvern hluta meðgöngu-
tímans. Þær bíða allar þess að
fæða. Aðrar persónur í bókinni eru
eiginmenn kvennanna, börn þeirra
og venslafólk, starfsfólk spítalans,
ræstingarkonur, sjúkraliðar,
hjúkrunarfólk, ljósmæður, læknar
og prófessorar — og að sjálfsögðu
öll nýfæddu börnin, þegar þau
koma í heiminn. í sögunni speglast
hið sérkennilega andrúmsloft sem
ríkir á deildinni, blandið kvíða og
tilhlökkun og konurnar deila sorg
og gleði, þó að leiðir þeirra eigi
eftir að skilja.
í grein í Aftenposten hafði
Sissel Lange-Nielsen m.a. þetta að
segja um bókina, og er það nokkuð
dæmigert fyrir þær móttökur sem
hún hefur fengið:
„Af hverju hefur engum dottið í
hug fyrr að skrifa svona bók?
Nærri því helmingur mannkyns
hefur einhvern tíma legið á sæng
"og sá atburður er tengdur lífi alls
•mannkynsins. Það er auðvelt að
ímynda sér að svo merkilegur
atburður sé stöðug uppspretta
umræðu — og áhuga. En þó
undarlegt megi virðast hafa fæð-
ingar og allt sem þeim viðkemur
vakið litla athygli í þessu þjóðfé-
lagi okkar þar sem allt mótast að
viðhorfum karlmanna. Sögur af
barnsfæðingum koma aðeins fyrir
sem aukaatriði í skáldsögum um
annað efni. í Vetrarbörnum snýst
allt um barnsfæðingar.
Dea Trier Morch sendi frá sér
þessa bók á'arinu 1976 og hún varð
strax metsölubók, hún fékk verð-
laun bóksalasambandsins og hún
hefur verið kvikmynduð. Á bókin
skilið allt það lof sem hún hefur
fengið? Já, á því er enginn efi. Það
er nefnilega ekki auðvelt að skrifa
skáldsögu um heilan mánuð á
fæðingardeild og gera það á svo
áhrifamikinn hátt að maður gleyp-
ir í sig bókina, en það hefur Deu
Trier Morch tekist.
Hún hefur skrifað bók sem er
sannkallað listaverk. Bók um eitt
af mikilvægustu hlutverkum kon-
unnar. Bókin er áhrifamikil, sönn
og afdráttarlaus, myndskreytt af
höfundinum sjálfum þar sem
hvert stig fæðingarinnar er sýnt á
listrænan og áhrifamikinn hátt.“
Dea Trier Morch hefur sjálf sagt
um ástæðuna fyrir því að hún
skrifaði Vetrarbörn: Dauðinn er
svo snar þáttur í verkum ílestra
rithiifunda að mér fannst ég
verða að skrifa um lífið.
Dea Trier Morch er grafíklista-
maður auk þess að vera rithöfund-
ur. Hún er fædd í desember 1941
og nam við Listaakademíuna í
Kaupmannahöfn 1958—1964. Hún
hefur einnig stundað nám um
lengri og skemmri tíma í Varsjá,
Kraká, Belgrad, Prag og Lenin-
grad á árunum 1964—1967.
Vetrarbörn er gefin út með
styrk frá Norræna þýðingarsjóðn-
um. Bókin er 294 bls. að lengd,
prentuð í Prenttækni. Bókbandið
annaðist Bókfell hf„ en bókin er
fáanleg bæði sem pappírskilja og
innbundin.
(Fréttatilkynning)
DEA TRIEft MORCH
VETRARBÖRN
skAldsaga iðunn
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Frá vinktri. fremri röð. Herra og frú Karlheinz H.G. Krug, Hrafn Harðarson, bæjarbókavörður. Helga
Sígurjónsdóttir, forseti bæjarstjórnar. Magnús Bjarnfreðsson. formaður bókasafnsstjórnar. aftari röð.
Sigríður J. Magnúsdóttir og Kristín Björgvinsdóttir, starfsmenn í Bókasafni Kópavogs. Ilelgi
Tryggvason. Helga Einarsdóttir og Guðmundur Gíslason í bókasafnsstjórn.
Þýzk bókagjöf til
Bókasafns Kópavogs
MIÐVIKUDAGINN 6. sept-
ember s.l. var Bókasafni
Kópavogs afhent rausnar-
leg bókagjöf frá MART-
IN-BEIIAIM GESELL-
SCHAFT í Darmstadt,
Vestur-Þýskalandi, en sú
stofnun hefur að markmiði
að kynna þýskar bók-
menntir og menningu.
í kaffisamsæti, sem haldið var
af þessu tilefni í Bókasafni Kópa-
vogs, afhenti sendiráðunautur
Sambandslýðveldisins Þýskalands,
Karlheinz H. G. Krug, bækurnar
fyrir hönd stofnunarinnar. Bæk-
urnar eru 110 að tölu og valdar af
mikilli kostgæfni til þess að sýna
þversnið af þýskum nútímabók-
menntum, fagurbókmenntum sem
fræðibókmenntum. Má nefna sem
dæmi höfunda eins og H. Böll, G.
Grass, T. Mann, H. Hesse og K.
Lorenz.
Bækurnar verða til sýnis og
útláns í Bókasafni Kópavogs, 2.
hæð, og er það opið alla virka daga
nema laugardaga kl. 14—21.
Káta ekkjan af stað á ný
Á sunnudagskvöldið
hefjast að nýju sýningar í
Þjóðleikhúsinu á Kátu
ekkjunni sem sýnd var 34
sinnum á síðasta leikári
við miklar vinsældir. Ekki
verða nema fáar sýningar.
Aðalhlutverkin eru í
höndum Sieglinde Kah-
mann og Sigurðar Björns-
sonar, Guðmundar Jóns-
sonar, Ólafar Harðardótt-
ur og Magnúsar Jónsson-
ar.
Allur þjóðleikhúskór-
inn kemur fram í sýning-
unni auk Islenska dans-
flokksins. Hljóðfæra-
leikarar úr Sinfóníu-
hljómsveit íslands leika
undir stjórn Páls P. Páls-
sonar.
Leikmyndina við sýn-
inguna gerði Alistair
Powell en leikstjóri Kátu
ekkjunnar er Benedikt
Árnason.
Sem fyrr segir verður
fyrsta sýningin nú á
sunnudagskvöldið og
næstu sýningar á fimmtu-
dag og laugardag.
Aðdáendur Kátu ekkjunnar, Sieglinde Kahmann allt um kring á sviðinu.