Morgunblaðið - 27.09.1978, Page 31
Ljósm.
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1978
;í i
• Þeir Hannes Weisweiler til vinstri, og aðstoðarmaður hans
Johannes Löhr fylgjast haukfránum augum með mönnum sínum á
æfingunni í gær.
IA mun sterkari
en égreilaiaiS með
- segir Weisweier
— Akranesliðið er mjög gott, miklu betra en ég átti nokkurn tíma
von á og í því eru a.m.k. 3 leikmenn sem gætu leikið í hvaða liði sem
er í Búndeslígunni, miðherjinn Pétur Pétursson, tengiliðurinn Karl
Þórðarson og vinstri bakvörðurinn Árni Sveinsson, sagði Ifennes
Weisweiler, þjálfari Kölnar, í viðtali við Mbl. í gær. Um það hvort
hann hefði áhuga á að fá einn eða fleiri þeirra til liðs við Köln, vildi
Weisweiler ckki tjá sig.
— Annars erum við ekki með
okkar sterkasta lið að þessu sinni
frekar en í leiknum ytra, þeir
Dieter Muller, Heinz Flohe og
Japaninn Okudera eru allir
meiddir, auk þess sem Muller
hefur nælt sér í einhvern vírus-
sjúkdóm. Samt geri ég mér
sigurvonir í leiknum og tel víst að
Köln muni komast áfram í 2.
umferð, þó að leikurinn verði
vafalaust mjög erfiður. Ég var að
skoða völlinn áðan og verð að
segja, að mér líst mjög vel á hann.
Góður árangur
Stefáns
STEFÁN Hallgrímsswn frjáls-
íþróttamaður dvelur nú nú njm
þessar mundir við ;efingar og
keppni í Vestur-Þýskalandi. Hefur
hann náð ágætis árangri og nú
nýverið keppti hann a frjáls-
íþróttamóti og setti þá persönulegt
met í 800 metra hlaupi, hljóp á
1.56.2 mínútum. Þá 1- < i-|)tí liann í
110 metra grindah';>upi og hijóp á
15.3 sek. og 400 metra grind á 52.6
sek.
Stefán stefnir að því að keppa í
tugþraut seinni partinn i október.
- þr.
spenna
í Magdeburg
VALSMENN leika sinn síðari leik í Evrópu-
keppni bikarhafa í kvöld kl. 5 að þýskum
tíma í Magdeburg. Valsliðið kom til Magde-
burgar kl. 11.30 í fyrrakvöld eftir frekar
þreytandi flugferð, alls var um átta flugtök
og lendingar að ræða hjá hópnum áður en
liðið komst á leiðarenda.
Allar móttökur ytra hafa
verið góðar. Mikil spenna
ríkir út af leiknum og hafa
nú þegar um 20.000 manns
tryggt sér miða á leikinn
sem fram fer á aðalleik-
vanginum í Magdeburg og
rúmar 40.000 áhorfendur.
Úrslitin heima á íslandi
hafa komið á óvart og fjalla
blöðin ytra og sjónvarpið
mikið um leikinn að sögn
Péturs Sveinbjarnarsonar,
en Mbl. hafði samband við
hann í gær. Að sögn Péturs
er íslensk kanttspyrna sér-
lega vel kynnt í Aust-
ur-Þýskalandi, en eins og
allir vita hafa Austur-Þjóð-
verjar ekki sótt gull í
greipar íslenskra knatt-
spyrnumanna á síðustu ár-
um. Pétur sagði að Vals-
ifíenn myndu stilla upp
óbreyttu liði frá því sem var
í leiknum heima, og væru
Valsmenn ákveðnir í að
verja heiður sinn og leika
góðan leik. Reynt verður að
styrkja miðjuspil liðsins.
í Austur-Þýskalandi er
litið á þetta sem forleik
fyrir landsleikinn sem
verður í Hallen viku síðar,
vitað er að Valsmenn hafa
fjóra landsliðsmenn í sínum
röðum, og fylgst verður vel
með þeim. þr.
„DOMARAMÁLIN
ALGERT HNEYKSU"
— ÞÚ MÁTT hafa það eftir mér, að framkvæmd dómaramálanna í handknattleiknum hc: sð hr< < i
hneyksli og það hefur verið frekar óskemmtileg reynsla að vera formaður dómstóls HS
Guðnason í viðtali við Mbl. í ga'r. Ástæðan fyrir viðtatinu við Berg var sú staðreynd. að I
og Þórs um sæti í 2. deild í handbolta var dæmdur ógildur sökum réttindalauss dómara. I i ; ' . ,
hafði sami dómari verið kærður oftar en einu sinni. en aldrei verið úrskurðaður ógildur.
Sagði Bergur, að kærumálin
hefðu verið orðin fleiri heldur en
tölu yrði á komið, og ef dæma
hefði átt í þeim öllum eftir
bókstafnum, hefðu 2—3 leikir
hverja helgi verið ógildir og segði
sig sjálft, að Islandsmótið, einkum
í yngri flokkunum, hefði þá riðlast
illilega. Til þess að flækja ekki
mótið meira en nauðsynlegt var,
ákvað dómstóllinn að dæma alla
leikina gilda. Síðan, þ.e. 19 apríl,
sendi dómstóllinn HSÍ harðort
bréf, þar sem samandið var beðið
að gera svo vel og taka dómara-
málin föstum tökum, ástandið
væri óþolandi. Þegar þessum
bréfaskriftum var lokið, átti enn
eftir að leika fyrrnefndan leik
UBK og Þórs og þegar sama
framkvæmdin var höfð í frammi,
þ.e.a.s. réttindalaus dómari látinn
dæma, ákvað dómstóllinn að nota
Golfmót á
Hornafirði
Golfklúbbur Hornafjarðar gengst
fyrir opnu golfmóti um næstu helgi,
dagana 30. sept. og 1. okt. Leikið
verður á Silfurnesvelli. Golfmót
þetta er það síðasta sem fram fer
hér á landi á árinu. Leiknar verða
36 holur og eru góð verðlaun í boði.
Allar upplýsftigar liggja fyrir hjá
golfklúbbum landsins, en vegna
útlits fyrir mikla þátttöku , eru
menn beðnir að tilkynna sig sem
fyrst til síns kiúbbs, eða Árna
Stefánssonar, Hótel Höfn, Horna-
firði.
lög og reglur varðandi handbolta
og dæma leikinn ógildan. Að-
dragandinn er sem sé langur og
mikill.
Þór vann fyrri leik liðanria
örugglega, en það voru Blikarnir
sem kærðu. Nú hefur verið ákveð-
ið, að leikurinn skuli fara fram á
Akureyri 7. október næstkomandi
og verða Blikarnir þá að vinna
með 2 marka m
sæti í 2. deild.
Mjög athyglisvert er að l’.reiða-
blik kærir leikiiin 5. maí, en
dómstóll HSI, afgreiðir ekki málið
fyrr en 13. september. l‘;tu \'iinu-
brögð eru ekki ti! fyrirmyndar. —
gg-
Tvær með ellefu rétta
í 5. leikviku komu fram tvær raðir með 11 réttum og eru eigendur
þeirra tvær konur, önnur úr Garðabæ en hin úr Reykjavík. Vinningur
fyrir hvorn vinningshafa verður kr. 357.500.- Með 10 rétta voru 28
raðir og vinningurinn á röðina kr. 10.900- Þessar getspöku konur
högnuðust á óvæntum útisigri Bristol City í Ipswich, en annars var
ekki mikið um óvænt úrslit í ensku 1. deildinni á laugardag, nema ef
vera skyldi jafntefli Nottingham Forest á heimavelli gegn
Middlesboro, 2—2. Þátttaka í getraunum hefur aukizt verulega 'á
þessum fyrstu fimm vikum, og er nú tvöföld á við sama tíma í fyrra.
Söluaðilar, sem eru íþróttafélögin um allt land, hafa í sölulaun 25% af
andvirði seðlanna, og á þessum fimm vikum hafa þau haft í sinn hlut 2
milljónir krófia.
VIKINGUR FER
í AÐRA UMFERÐ
ENSKA handknattleiksliðíð Halewood frá tiverpo
út úr Evrópukeppni bikarmeistara. Lið þetta drost a móti Víkingi 1
umferð og samkvæmt þessu hefur Víkingsliðið komist í 2. umfcrú
keppninnar með lítilli fyrirhöfn!
Víkingarnir höfðu átt viðræður
við enska liðið um fyrirkomulag á
leikjum liðanna. í miðjum klíðum
tilkynntu Englendingarnir að
þeim óaði kostnaður við þátttöku í
keppninni og að þeir hefðu ákveðið
að draga lið sitt til baka. Vík-
ingarnir hafa hins vegar ekkert
heyrt frá Alþjóða handknattleiks-
sambandinu en Mbl. fékk þetta
staðfest hjá IHF í, gær og í
telexskeyti frá sambandinu var
staðfest, að Víkingur væri kominn
áfram í 2. umferð.
Eysteinn Heglason formaður
handknattleiksdeildai Víking
sagði í gær að Vikingar væru a<>
ýrnsu leyti ‘ána'goir með i'tí'is;
málalok. Fýrirsjáaniegi hefði vcr-
ið að lítil aðsókn hefði orðið að
leikjunum við liðið, þar sem
handknattleikur i Englandi væri
ekki upp á marga fiska. Því van >
það gott fyrir fjárhaginn a svona
fór. Neikvæða hliðin á málinu v,vr
hins vegar sú, að leikmennir;
hefðu þarna orðið af skemmtii
keppnisferð til Englands. —