Morgunblaðið - 30.09.1978, Blaðsíða 16
48
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 1978
OTRAG-ELDFLAUG Á SKOTPALLI - Byssukjaftur, sem beinist að öðrum
Afríkuríkjum?
MOBUTU OG OTRAG-FORKÓLFURINN KAYSER. -
Draumsýn um eigin Kennedyhöfða.
Þá væri Þýzkaland
í veröldu fremst
Framtakssemi eldflaugaverkfræðings
frá Stuttgart hefur komið vestur-þýzku
stjórninni á kaldan klaka auk þess að
ýmsir draga nú í efa heilindi hennar í
málefnum Afríku. Blökkumánnaríki
heimsálfunnar fjargviðrast öfundsöm
yfir aðgerðum vestur-þýzka fyrirtækisins
Otrag í Zaire. Þar hefur Mobutu
þjóðhöfðingi skotið skjólshúsi yfir til-
raunir fyrirtækisins með ódýrar eldflaug-
ar. Talað er um friðsamlegan tilgang
ríkjum þriðja heimsins til framdráttar.
Það, sem af er, hafa þó hlutafjáreigendur
Otrags einir hagnast — og augsýnilega
haft þýzka skattgreiðendur að féþúfu.
Einsdæmi
Það lítur út eins og hitaveiturör. Hæðin
er tólt metrar, breidd áttatíu sentimetr-
ar. í raun er það eldflaug. Skammt er
þess að bíða að hundruð þessara röra
verði kippuð saman með skotkjarna og
þau send upp í himingeiminn. í lýðveld-
inu Zaire, sem áður hét Belgíska Kongó,
hafa þýzkir aðilar lagt mikið undir.
Fyrsta tilraunaskotið, 17. maí 1977,
hitti þegar í mark. Að vísu náði
eldflaugin varla hærra en Jumbo-þota.
En þegar hún féll áætlun samkvæmt til
jarðar eftir stutt flug og splundraðist á
afrískum eyðimerkursandi verður ekki
annað sagt en hún hafi hitt viðkvæman
blett heimspólitíkurinnar.
Flokksblað sovéska kommúnistaflokks-
ins hafði á orði „framkvæmd í anda
vestrænnar nýlendustefnu". Forsætisráð-
herra Angóla, Lopo Fortunato do Nasci-
mento, sagði í ræðu á þingi Sameinuðu
þjóðanna að eldflaugin væri „byssukjaft-
ur, sem miðaði á Afríkuríki". „Tages-An-
zeiger“ í Zúrich gerði því skóna að
umræddir hólkar „væru í rauninni engu
síður til þess fallnir að bera atómvopn".
„Neues Deutschland" staðhæfði í júlí sl.
að fyrirtækið Otrag væri yfirskin eitt
fyrir vígvélaiðnað Sambandslýðveldisins
og í sama mánuði komst sendiherra
Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum,
Andrew Young, svo að orði að eidflauga-
tilraunir Vestur-Þjóðverja hefðu verið
kveikjan að afskiptum Austur-Þjóðverja í
Shaba-héraði á sumri öndverðu.
Leiðtogar svörtu Afríku fóru ekki leynt
með áhyggjur sínar, er Helmut Schmidt
kanslari fór um lönd þeirra í Iok
júnímánaðar. Kaunda forseti Sambíu átti
sinn þátt í að það rann upp fyrir
kanslaranum að gera þyrfti reka að því
að draga úr umsvifum Otrags (stytting
fyrir „Orbital Transport — und Raketen
— AG“). í raun þurfti Schmidt ekki að
brýna ráðherra sína. Ráðherra í utan-
ríkisráðuneytinu, Klaus von Dohnanyi,
krafðist þess, að stjórnin legði þegar
algert útflutningsbann á fyrirtækið og
þjóðhetjan frá Mogadishu-aðförinni,
Hans Júrgen Wischnewski, stakk upp á
að senda mann á fund Mobutus að ráða
honum að grípa í taumana. „Hnekkir
utanríkisstefnu okkar er slíkur að
eitthvað verður að gera hvað sem öðru
líður," sagði Hans Dietrich Genscer
utanríkisráðherra.
Þörf orð í tíma töluð. Áreiðanlega er
einsdæmi að minni háttar einkafyrirtæki
hafi áður tekizt hrakhraufa þýzkri
utanríkispólitík eins og Otrag. Fyrirtæki
þetta, sem aðsetur hefur í Stuttgart og
Neu-Isenburg, hefur nú til umráða
landsvæði á stærð við austur-þýzka
alþýðulýðveldið í austanverðu Shaba-hér-
aði í Zaire. Á næstu árum hyggjast
forráðamenn þess skjóta á loft gervi-
hnöttum fyrir þróunarlöndin — og hver
veit hvort þeir láta þar við sitja.
I samningi Zaire-lýðveldisins og Otrags
lét Mobutu nefnilega svo um mælt að
vestur-þýzku eldflaugaverkfræðingarnir
hefðu óskoraðan yfirráðarétt yfir áður-
nefndu landsvæði til að gera úr garði
„eldflaugar til nota í geimi og gufuhvolfi
af hvaða tegund sem er“. I sextán síðna
samningi er hvergi að finna orðið
„friðsamlegur". I nýlendu sinni njóta
Þjóðverjar fullkomins frjálsræðis.
Alþjóðlega friðarrannsóknamiðstöðin í
Stokkhólmi hefur þegar varað við því að
Otrag-fyrirtækið útbreiði á þennan hátt
eldflaugatækni, sem einnig má nota í
hernaðarlegum tilgangi. Hún bendir á að
það afli viðkomandi þjóðum ekki aðeins
virðingar að eiga í himinhvolfinu gervi-
hnetti, sem Otrag hefur skotið á loft,
heldur kyndi og undir hernaðarlegri
Éþíópía
Mið-Afríkukeis^
aradæmiö
Eldflauga
tilrauna
svæöi
Otrags
'*] Eldflaugaskotpallur
ZAIRE
stæröa
samanburöur
Samband
/öveldiö
V-2 ELDFLAUGIN — Fyrsta skreí á geimferðaöld.
t