Morgunblaðið - 05.10.1978, Síða 4
4
Lister
Dieselvélar
5—250 hestöfl
vatnskældar eöa
loftkældar.
Rafstöðvar
2—175 KVA
Bátavélar
meö gír
Vélasalan h.f.
Garðastræti 6
S. 15401, 16341.
m/s Esja
fer frá Reykjavík þriðjudaginn
10. þ.m. vestur um land í
hringferð og tekur vörur á
eftirtaldar hafnir: ísafjörð, (Bol-
ungarvík um ísafjörð), Akureyri,
Húsavík, Raufarhöfn, Þórshöfn,
Bakkafjörö, Voþnafjörð, Borg-
arfjörð eystri, Seyðisfjörö,
Mjóafjörð, Neskaupstað, Eski-
fjörð, Reyöarfjörð, Fáskrúös-
fjörð, Stöðvarfjörö, Breiðdalsvík,
Djúpavog og Hornafjörð.
Móttaka alla virka daga nema
laugardag til 9. þ.m.
- Seljum—
reyktan lax
og gravlax
Tökum lax í reykingu
og útbúum gravlax.
Kaupum einnig lax
til reykingar.
Sendum i póstkröfu —
Vakúm pakkað et óskað er.
ÍSLENZK
MATVÆLI
Hvaleyrarbraut 4-6,
Hafnarfiröi Simi: 51455
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1978
Útvarp kl. 20.50:
„Kærí lygari”
- bréfaskipti Bernards Shaw
og frú Patrick Campbell
Útvarpsleikritið sem
flutt verður í kvöld er
gamanleikur í tveimur
þáttum og er hann saminn
af Jerome Kilty upp úr
bréfaskiptum Bernards
Shaw og frú Patricks
Cambells. Leikritið nefnist
„Kæri lygari“ og er þýtt af
Bjarna Benediktssyni frá
Hofteigi. Leikstjóri er
Sveinn Einarsson en með
hlutverkin fara Sigríður
Þorvaldsdóttir og
Þorsteinn Gunnarsson.
Flutningur verksins tekur
röskar 100 mínútur.
Bréfritararnir, frú
Patrick Campbell og
Bernart Shaw, eru þekktar
persónur. Campbell, sem
réttu nafni hét Beatrice
Stella Tanner var ein
dáðasta leikkona sinnar
samtíðar. Hún fæddist í
London árið 1865 og fór að
leika ung að árum. Mesta
frægð hlaut hún fyrir
hlutverk Elizu Doolittle í
leikriti Bernards Shaw,
„Pigmalion", en það var
frumsýnt 1914. Síðar hefur
verið gert söngvaleikrit
upp úr þessu verki og ber
nafnið „My fair lady“.
Campbell er lýst sem heill-
andi og andríkri konu með
djúpa og heillandi rödd og
stór tindrandi augu. Háð-
fuglinn og jurtaætan
Bernard Shaw komst í
kynni við hana um alda-
mótin og síðan skrifuðust
þau á um það bil 40 ár.
Litlu munaði að bréfin
frá Shaw glötuðust. Frú
Campbell andaðist í
Suður-Frakklandi árið
1940 rétt fyrir innrás
Þjóðverja. Bréfin voru
geymd í hattaöskju í íbúð
leikkonunnar í París og
það munaði litlu að
Þjóðverjar næðu þeim. Það
er enskri konu, Agnesi
Claudius, að þakka að þau
eru enn til.
Bandaríski leikarinn og
rithöfundurinn Jerome
Kilty (f.1922) færði bréfin í
leikritsbúning og var verk-
ið frumflutt af höfundin-
um og konu hans árið 1956.
Þjóðleikhúsið sýndi „Kæri
lygari" leikárið 1966—67.
Sveinn
EinarsNon.
Þorsteinn
Gunnarsson.
Sixríður
Þorvaldsdóttir.
Saga fyrir yngstu
hlustendurna
Guöbjörg Þórisdóttir les fyrri hluta sögu eftir Hersilíu
Sveinsdóttur í morgunstund barnanna í dag. Sagan- nefnist
„Haukur og Dóra“ og er aö sögn höfundar samin sem kennslubók í
lestri. „Þetta er saga fyrir yngstu hlustendurna og sneitt hjá öllum
löngum orðum," sagöi Hersilía.
Um efni sögunnar er það að segja að hún er um systkini sem fara
í sveit til ömmu og afa og er aðallega sagt frá þeim og dýrunum i
sveitinni, fuglunum og húsdýrunum. Bókin „Haukur og Dóra“ kom
út hjá Ríkisútgáfu námsbóka fyrir nokkrum árum.
Morgunstund barnaanna hefst kl. 9.05 en síðari hluti sögunnar
um Hauk og Dóru verður lesinn í morgunstundinni á föstudaginn.
utvarp Reykjavlk
FIM41TUDKGUR
5. október
MORGUNNINN ""
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Létt lög og morgunrabb.
(7.20 Morgunleikfimi).
7.55 Morgunbæn.
8.00 Fréttir. 8.10 Dagskrá.
8.15 Veðurfr. Forustugr.
dagbl. (útdr.).
8.30 Af ýmsu tagi. Tónleikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna.
Guðbjörg Þórisdóttir les
fyrri hluta sögunnar af
„llauki og Dóru“ eftir
Hersiiíu Sveinsdóttur.
9.20 Morgunleikfimi. 9.30 Til-
kynningar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Víðsjá. Friðrik Páll Jóns-
son fréttamaður stjórnar
þættinum.
10.45 Til eru fræ
Evert Ingólfsson tekur
saman þátt um rannsóknar-
stöð Skógræktar ríkisins á
Mógilsá.
11.00 Morguntónleikar. Alicia
I)e Larrocha og Fíl-
harmoníusveit Lundúna
leika Sinfónísk tilbrigði
fyrir píanó og hljómsveit
eftir César Franck. Rafael
Friihbeck De Burgos stj./
Ungverska ríkishljómsveitin
leikur Svítu fyrir hljómsveit
eftir Béla Bartók. János
Ferencsik stj.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir.
Tilkynningar.
Á frívaktinni. Sigrún
Sigurðardóttir kynnir óska-
lög sjómanna.
SÍODEGIO
15.00 Miðdegissagan. „Föður-
ást“ eftir Selmu Lagerlöf.
Hulda Runólfsdóttir les (12).
15.30 Miðdegistónlcikar.
Walter Klien leikur á pianó
„Holbergssvítu“ op. 40 eftir
Edvard Grieg/ Elisabeth
Schwarzkopf syngur Þrjú
sönglög eftir Robert
Schumann.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfegnir).
16.20 Tónleikar.
17.10 Lagið mitt. Helga Þ.
Stephcnsen kynnir óskalög
barna.
17.50 Víðsjá. Endurtekinn
þáttur frá morgni sama
dags.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
KVÖLDIÐ____________________
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál
Eyvindur Eiríksson fiytur
þáttjnn.
19.40 íslenzkir einsöngvarar
og kórar syngja
20.10 Úr , ljóðaþýðingum
Magnúsar Ásgeirssonar.
Bessi Bjarnason og Árni
Blandon lesa.
20.25 Sinfóníuhljómsveit ís-
lands leikur í útvarpssal
Einleikari. Manuela
Wiesler. Stjórnandi. Páll P.
Pálsson. Konsert í G-dúr
fyrir flautu og hljómsveit
eftir Carl Philipp Emanuel
Bach.
20.50 Lcikrit „Kæri lygari"
cftir Jcromc Kilty
Gamanleikur í tvcimur þátt-
um. gerður úr bréfaskiptum
Bcrnards Shaws og Patricks
Campbells.
Þýðandi. Bjarni Benedikts-
son frá Ilofteigi.
Leikstjóri. Sveinn F]inars-
son.
Persónur og léikcndur.
Bernard Shaw/ Þorsteinn
Gunnarsson. Patrick
Campbell/ Sigríður
Þorvaldsdóttir.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Áfangar
Umsjónarmenn. Ásmundur
Jónsson og Guðni Rúnar
Agnarsson.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
msm
FÖSTUDAGUR
6. október
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Prúðu ieikararnir
Gestur í þessum þætti er
Peter Sellers.
Þýðandi Þrándur
Thoroddsen.
21.00 Kastljós
Þáttur um’innlend málefni.
Umsjónarmaður Sigrún
Stefánsdóttir.
22.00 Út úr myrkrinu
Bandarfsk sjónvarpskvik-
mynd, hyggð á sönnum
viðburðum.
Aðalhlutverk Marc Singer.
David llartman, sem verið
hefur blindur frá barns-
aldri, er að ljúka mennta-
skólanámi. Hann á þá ósk
heitasta að verða læknir og
sækir um skólavist í mörg-
um háskólum. cn gengur
illa að fá inngöngu.
Þýðandi Kristrún Þórðar-
dóttir.
23.35 Dagskrárlok.