Morgunblaðið - 05.10.1978, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1978
5
Formaður Landssambands bakarameistara:
Gæóin,verðið og
þjónustan bötnuðu
- þegar gerinnflutningurinn var gefinn frjáls
„Við erum í sjálfu sér á móti
öllum boðum og bönnum í
þessa átt. en sjálísagt fjetum
við iítið sagt við því að ATVR
verði veitt einkasala á gerinu.
ef það er það sem stjórnvöld
vilja. Við munum þá hins vcgar
óska eftir því að ríkisvaldið
hafi samráð við okkur um þetta
mál þannig að tryggt verði að
við fáum eftir sem áður efni til
okkar starfa." sagði Kristinn
Albertsson formaður Lands-
sambands bakarameistara,
þegar Mbl. bar undir hann þá
hugmynd fjármálaráðuneytis-
ins að afhenda ÁTVR innflutn-
ing á gersveppum.
„Áfengisverzlunin hafði
einokun á þessu áður, en síðan
var innflutningurinn gefinn
frjáls og þá varð gerið miklu
ódýrara, þannig að við hættum
að skipta við áfengið," sagði
Kristinn. „Einnig fengum við
betri vöru eftir skiptin, en þetta
er viðkvæm vara og áfengið
flutti þetta inn hálfsmánaðar-
lega, en aðrir innflytjendur
vikulega. Breytingar á skipa-
ferðum kunna að hafa átt
einhvern þátt í þessari breyt-
ingu. Eg skal ekki um það segja.
En þjónustan batnaði líka, því
áður urðum við að sækja vöruna
til áfengisins en eftir breyting-
una fengum við vöruna senda til
okkar.
Annars verða það nú ekki
bara bakarar og bruggarar sem
verða fyrir barðinu á þessari
breytingu, ef af verður, þótt
mest sé nú um þessa hópa talað.
Eg er anzi hræddur um að
fleirum bregði við því það er
orðið mikið um það að fólk
stundi alls konar sérbakstur í
heimahúsum og þessi breyting
mun ekki síður koma við þá
starfsemi heldur en okkar
bakstur og bruggið."
Áfengissalan:
Meiri og
lengri
sam-
dráttur
í sölu
— eftir síðustu
verðhækkun en áður
„ÞAÐ hefur talsvert borið á því
að minna magn seldist eftir
síðustu vcrðhækkun á áfcngi,“
sagði Ragnar Jónsson skrifstofu-
stjóri ÁTVR, er Mbl. spurði hann
í gær. hvort áhrifa frá síðustu
verðhækkun hefði gætt í sölu
áfengis. Ragnar sagði að reynsl-
an væri sú að jafnan drægi
eitthvað úr sölu fyrst eftir
verðhækkanir, en nú hefði sveifl-
an orðið mun meiri en venjulega
og héldist lengur. Ragnar kvaðst
ekki hafa við höndina tölur í
þessu sambandi.
Birgir Stefánsson verzlunar-
stjóri Snorrabrautarútsölunnar
sagði að sér hefði virzt eins og
ekkert drægi úr sölunni við
verðhækkunina í júlí en við
síðustu verðhækkun hefði dregið
úr sölunni og hefði í september
selzt talsvert minna magn en í
sama mánuði í fyrra. Sagði Birgir
að hvað magnið snerti hefði
septembersalan verið 35—40%
minni en salan í fyrra og að
aukningin í krónutölu hefði aðeins
verið um 30% meðan reiknað hefði
verið með um 70% aukningu í
krónutölu.
„Ég man ekki eftir svona
miklum og langvarandi samdrætti
í sölunni," sagði Birgir. „Ég man
eftir 30% verðhækkun árið 1968.
Það dró talsvert úr sölunni fyrst
eftir hana, en þó ekkert i líkingu
við það sem nú hefur verið.“
Erlingur Ólafsson aðstoðar-
verzlunarstjóri Lindargötuútsöl-
unnar sagði: „Það hefur orðið
greinileg fækkun á flöskunum,
sem hér fara út.
Venjulega hefur samdrátturinn
eftir verðhækkun staðið í hálfan
mánuð eða svo, en ég hef ekki
merkt neina aukningu hvað magn
snertir ennþá frá síðustu hækk-
un.“
Lækkuö verö a
þegar stórlækkuöum
veröum á
Stórútsölu
og
verksmiðjuútsölu
Karnabæjar
og
Belgjagerðarinnar
í kjallara Iðnadarmannahússins
að Hallveigarstíg 1.
D Pólar úlpur, barna- unglinga-, fulloröinna. D Anorakkar barna-,
unglinga, fulloröinna, D Sloppar, kembuteppi. D Kerrupokar
D Stórkostlegt úrval af alls konar efnum. D Kakhi buxur
D Terylenebuxur D Herraskyrtur D Dömupeysur D Dömudragtir
D Tweed pils D Kjólar D Bolir D Mussur D Flauelsbuxur
D Denimbuxur D Dömublússur D Dömujakkar D Mittisjakkar
D PilsD Herrajakkaföt m. vesti D DressD Herrajakkar D o.m.fl.
o.m.fl.
Pessa útsölu er ekki
ruooa utouiu ui unni
hægt að láta fram t
sér fara á þessum
síðustu og verstu
tímum.