Morgunblaðið - 05.10.1978, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1978
Spitfire ok Hurricanc orrustafluKvclar og Lancaster sprengjuflugvél eins
og þær sem voru notaðir í orrustunni um Bretland 1940.
Telur orrustuna um
Bretland þjóðsögu
Á sama tíma og Brctar hafa minnzt afmælis loftorrustunnar um
Bretland í síðari heimsstyrjöldinni hefur komiA á markaðinn bók eftir
flugliðsforingja að nafni H.R. Allen sem heldur því fram að sigur brezka
flughersins (RAF) í orrustunni sé meira og minna goðsögn.
Hann segir að tölur sem hafi verið
gefnar upp um fjölda þeirra þýzku
flugvéla sem var grandað séu meira
og minna tilbúningur, að orrustan
hafi ekki verið sérstaklega merkileg
samanborið við loftorrustur þær sem
yoru seinna háðar yfir Stalíngrad og
Möltu og að þýzki flugherinn (Luft-
waffe) hafi ekki verið hrakinn burtu
úr brezkri lofthelgi.
Flugliðsforinginn segir að ef RAF
hefði raunverulega farið með sigur af
hólmi hefði Luftwaffe ekki getað
haldið uppi loftárásum á brezka-
borgir á hverri nóttu eins og hann
gerði unz Hitler fyrirskipaði innrás-
ina í Rússlandi í júní 1941.
„Alltof mikið hefur verið gert úr
mikilvægi loftorrustunnar og það
sem verra er: hún er orðin tilfinn-
ingamál," segir Allen í grein í The
Times um bókina. Hann sagði að
útlendingar sem börðust í RAF, ekki
sízt Pólverjar, hafi ekki fengið þá
viðurkenningu sem þeir hafi átt
skilið.
Þá segir hann að Winston
Churchill forsætisráðherra hafi
„fundið upp“ nafnið á loftorrustunni
og átt þátt í því að búa til þá
„goðsögn" sem orrustan hafi 'orðið,
ekki sízt með hinum ódauðlegu
viðurkenningarorðum hans um flug-
mennina: „Aldrei i sögu mannkynsis
hafa eins margir átt eins fáum eins
mikið að þakka."
Auk þess segir Allen að í raun og
veru hafi aðeins verið grandað
þriðjungi þeirra þýzku flugvéla sem
staðhæft var að hefðu verið skotnar
niður, en tölurnar hafi haft áróðurs-
gildi á sínum tíma. Hann segir að
skoða verði sögulega atburði af
víðum sjónarhóli og tilfinningar og
saga fari illa saman.
The Times segir að H.R. Allen hafi
verið undirofursti og tekið virkan
þátt í loftorrustunni 1940 sem
flugmaður í orrustuflugvélum. Blaðið
segir að hann hafi verið sæmdur
flugkrossinum og stjórnað fleiri
flugsvéitum en nokkur annar Breti í
sögunni.
Talsmaður brezkra landvarnaráðu-
neytisins segir hins vegar að ekkert
sé vitað um Allen og að hann sé ekki
á skrá.
„Ætlunin er að hlúa
að tónlistarlífinu ”
KÓFÉLAGAR í karlakór Kefla-
víkur hafa undanfarin tvö ár staðið
í þeim stórræðum að byggja hús
yfir starfscmi sína og markmiðið er
nú jafnframt það, að húsið verði
samkomuhús Keflvikinga, en slík
aðstaða er engin fyrir hendi innan
bæjarmarkanna. Kórfélagarnir
hafa aðallega unnið að bygging-
unni um helgar og að öllu leyti í
sjálfboðavinnu, vinnustundirnar
eru þegar orðnar um 14 þúsund.
Blm. hitti þá Hauk Þórðarson
formann kórsins. Óla Þór Hjarta-
son formann byggingarnefndarinn-
ar og Anton Jónsson yfirsmið í
byggingunni og spjallaði við þá um
framkvæmdirnar.
„Skóflustungan var tekin að hús-
inu 27. maí 1976, en það var
Bergsteinn Sigurðsson heiðursfélagi
kórsins sem tók stunguna.
Vinna við uppslátt hófst siðan 13
ágúst sama ár, og það ár kláruðum
við sökkulinn. I fyrra og í sumar
hefur þessi áfangi hússins verið
steyptur upp og nú er jafnframt
áformað að hefja framkvæmdir við
viðbótarbyggingu á bakhliðinni um
100 fm að stærð. Gólfflötur hússins
alls er nú þúsund fermetrar."
Hvert var upphafið að því að þið
fóruð út í þessar framkvæmdir?
„Þessi mál voru fyrst til umræðu
innan kórsins fyrir tuttugu árum, og
þetta hefur alltaf staðið til frá 1957.
Húsið fe. síðan að fæðast svona
löngu síðar, sem betur fer þá drógust
framkvæmdir til þessa dags því í
byrjun var það aðeins lítið hús sem
ætlunin var að reisa, en með árunum
hafa menn orðið meira stórhuga og
það var lagt út í byggingu á stóru
félagsheimili. Hugmyndin hefur
þróast í það, að húsið verði hér
samkomuhús, en í Keflavík höfum
við ekkert slíkt sem hefur verið mjög
slæmt.“
Þetta hefur verið sjálfboðavinna
hjá ykkur að öllu leyti, hvernig hafið
þið hagað vinnunni? Eru allir
kórfélagarnir þátttakendur?
Kórfélagar
í Karlakór
Keflavíkur
reisa hús í
sjálf-
boðavinnu
„Já, hér koma þeir allir sjálfviljug-
ir og óboðaðir og vinna af krafti, allir
sem koma fá verk að vinna. Hér
stendur enginn í reiðileysi, ef hann
mætir. Eiginkonur kórfélaga hafa
líka komið og unnið með okkur, fært
okkur kaffi og stutt okkur með
fjáröflun. Já, vinnustundirnar eru
orðnar um fjórtán þúsund."
Hvað hefur byggingin kostað
ykkur?
„Útlagðir peningar í húsið eru milli
ellefu og tólf milljónir sem komið er.
Það er undravert hvað það hefur
kostað lítið. Gröftur fyrir húsinu,
fyllingin í sökkul og teikningar voru
gefið. Þá má geta þess að teikningar
unnu Ragnar Emilsson og Axel
Nikolaisson. Steypan, timbur, járn og
kranavinna eru kostnaðarliðirnir,
tækjakaup hafa verið mjög takmörk-
uð. En öll þessi útgjöld hafa verið í
algjöru lágmarki.
Haukur Þórðason. Anton Jónsson og Óli Þór Iljaltason.
Konur stjórnnwkunarma
vestra í uppreisnarhug
Stöðugt fleiri eiginkonur bandarískra stjórnmálamanna sa:tta
sig ekki lengur við hefðbundið hlutverk sitt eins og opinskáar
yfirlýsingar frá mörgum þeirra hafa leitt í ljós í sumar. Þessar
yfirlýsingar þeirra hafa fjallað um hjúskaparerfiðleika þeirra,
löngun þeirra í áfengi vegna þess álags sem þær búi við, annað
hvort af því að þær standa í skugga eiginmannsins þegar hann
stendur í stjórnmálabaráttunni vegna einmanakenndar sem
grípi þær þegar eiginmaðurinn berst fyrir frama sínum — og
almenna óbeit þeirra á stjétrnmálalífinu.
Meðal hinna opinskáustu hafa
verið Betty Ford, kona Gerald
Fords, Joan Kennedy, kona Ed-
ward Kennedys, og Joy Baker,
kona Howard Bakers, leiðtoga
repúblikana í öldungadeildinni.
Nýlega rauf Pat Nixon, kona
Richard Nixons, áralanga þögn.
Þessi fámælta kona sagði: „Þegar
maður minn hóf afskipti af
stjórnmálum fórnaði ég öllu sem
mér hafði verið kært.“
Tölur um aukningu hjónaskiln-
aða bandarískra stjórnmála-
manna tala sínu máli. Tólf af 100
þingmönnum öldungadeildarinn-
ar og rúmlega 70 af 435 þing-
mönnum fulltrúadeildarinnar
hafa skilið við konur síðan
síðustu kosningar fóru fram. Til
skamms tíma skildu stjórnmála-
menn við konur sínar í kyrrþey
og á ytra borðinu hafa hjónabönd
þeirra verið með felldu., En nú
hefur þessi hefð verið rofin með
tveimur nýlegum og umtöluðum
skilnaðarmálum.
• Þegar Berman Talmadge,
öldungadeildarmaður demókrata,
skildi við konu sína, Betty, 35 ára,
sakaði hún hann um lögbrot í
einkalífi og opinberu lífi. Siða-
efnd öldungadeildarinnar rann-
sakar nú fjármál Talmadges og
hann hefur sætt harðri gagnrýni
í blöðum.
• Þegar 31 árs gamals hjóna-
band Edward Brookes og konu
hans Remigina fór út um þúfur
komst stjórnmálaferill Brookes í
Jiættu því að í málaferlum þeirra
reyndi þingmaðurinn að hlunn-
fara konu sína við skiptingu
búsins. Remigina Brooke lagði
svo fast að honum opinberlega að
hann varð að gefa opinbera
skýringu og afsaka sig opinber-
lega. Nú er vafasamt að hann nái
endurkosningu í haust þótt talið
hafi verið að hann væri öruggur.
Breytt afstaða eiginkvenna
bandarískra stjórnmálamanna er
talin afleiðing bandarískrar
kvenréttindabaráttu og breytinga
á stöðu bandarískra kvenna af
völdum hennar. Kona eins stjórn-
málamannsins segir að kvenrétt-
indabaráttan hafi veitt konum
aukið frelsi til að tjá tilfinningar
sínar og hamla gegn því að þeim
sé sagt fyrir verkum. Á sama
tíma hefur starf stjórnmála-
manna í Washington aukizt og
þetta álag á líka sinn þátt í að
splundra fjölskyldum þeirra.
Fyrsta þekkta konan gift
stjórnmálamanni sem talaði
opinberlega um áfengisvandamál
sitt var Betty Ford, fyrrverandi
forsetafrú. Þegar hún var lögð
inn á sjúkrahús til meðferðar í
maí vildi hún lýsa fyrir furðu
lostnum almenningi hvernig dag-
legt álag og einmanakennd vegna
fjarveru eiginmannsins þegar
hann var á ferðalögum hefði gert
hana stöðugt háðari áfengi og
lyfjum sem hún tók við giktar-
sjúkdómi.
Seinna lýsti Joan Kennedy því
yfir að hún hefði náð tökum á
áfengisneyzlu sinni eftir eins árs
baráttu og þátttöku í A-samtök-
unum. Hún sagði að allt snerist
um stjórnmál í Washington, að
hún hefði getað ráðið við
drykkjulöngunina í opinberum
boðum en þegar þeim lauk hafði
henni fundist hún vera einmana
og að hennar væri ekki þörf.
Betty Ford með fjölskyldu
hundinum Liberty.
Gullúnsan
í 221.40 dali
Lundúnum, októbor. Reuter.
GULLVERÐ ha kkaði enn upp úr
öllu valdi í dag. og kostar únsan
nú 221.40 bandaríkjadali. en var
219.10. Gullhækkunin er
afleiðing af ringulreiðinni. sem
nú ríkir á gjaldeyrismarkakði,
þrátt fyrir tilraunir svissneska
seðlahankans til að stemma stigu
við hcnni. meðal annars með því
að kaupa bandarískan gjaldmiðil,
stuðla að aukinni fjárfestingu
erlendra aðila í Sviss og draga úr
styrk frankans. Þessar ráðstafan-
ir virðast ekki hafa haft tilætluð
áhrif. því að viðbrögð fjárfest-
ingaraðila hafa almennt orðið
þau að snúa sér að vestur-þýzka
markinu.
Bandaríkjadalur gengur nú á
1.9204 v-þýzk mörk, sem er með
lægsta móti, og hefur vægi hans
gagnvart svissneska frankanum í
dag orðið á sömu lund. Eftir að
tilkynnt var um ráðstafanir seðla-
bankans í Sviss í gær hækkaði
bandaríkjadalur og nálgaðist um
tíma 1.62 franka, en féll svo aftur í
dag og stóð í 1.5795 frönkum við
lokun í dag.