Morgunblaðið - 05.10.1978, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1978
Skoðunarferð í íbúðir aldraðra
Við Liintíuhlíð eru 30 íbúðir fyrir aldraða.
Ilúsið við Furugerði.
Grúðurhúsið þar sem vetrarKarðurinn við Liinsu- Úr einni íhúðinni við FuruKerði.
hlíð mun verða.
Adda Bára Sigfúsdóttir skýrir frá framkvæmdum við Dalhraut.
Blaðamönnum var í síðustu viku
boðið ásamt borKarstjórn í kynnis-
ferð í íbúðir, sem borfíin hefur eða
er að láta byKfíja fyrir aldraða.
Árið 1975 var komið á fót
byfíRÍnfíarnefnd sem sjá skyldi um
þessar framkvæmdir og er Albert
Guðmundsson formaður þeirrar
nefndar.
Fyrst var komið við í Furugerði
en þar stendur fullbúið hús með 74
íbúðum fyrir aldraða. Upphaflega
var gert ráð fyrir því að húsið við
Furugerði yrði starfrækt í nánu
sambandi við Grensásdeild þar
sem gert var ráð fyrir að Grensás-
deildin yrði starfrækt sem sjúkra-
stofnun fyrir aldraða. Þar sem
Grensásdeildin hefur nú öðru
hlutverki að gegna hafa íbúðirnar
við Furugerði verið hannaðar með
tilliti til þess að íbúar hússins séu
nokkuð sjálfbjarga.
I húsinu við Furugerði eru 74
íbúðir, eins og áður segir, þar af 60
einstaklingsíbúðir og 14 hjóna-
íbúðir. Að auki er ein húsvarðar-
íbúð og aðstaða til ýmissa
þjónustu- og félagsstarfa. íbúar
fluttu inn í vor en þjónustuaðstað-
an var í seinna lagi og er nú verið
að koma henni í gagnið.
Samkvæmt upplýsingum félags-
málastjóra Reykjavíkurborgar,
Sveins Ragnarssonar, er gert ráð
fyrir því að til staðar verði ekki
einungis þjónusta fyrir íbúa
hússins heldur og fyrir aldraða
íbúa í hverfínu og næsta nágrenni.
Þessi þjónustu- og félagsaðstaða
sem um er að ræða er t.d.
tómstundaiðja ýmiss konar, bað og
hárgreiðsla og einnig mun félags-
málaráðgjafi verða í húsinu með
vissa viðtalstíma. I matsal hússins
mun verða hægt að fá keypta eina
máltíð á dag.
í upphaflegri áætlun var gert
ráð fyrir því að verzlun yrði við
hlið hússins en ekki varð af því en
bifreið frá Sláturfélagi Suöurlands
kemur daglega og sækir fólk til
innkaupa og skilar því heim aftur
því að kostnaðarlausu.
Um dvöl í húsinu við Furugerði
sóttu 225 einstaklingar þannig að 3
voru um hverja íbúð. Leigan fyrir
einstaklingsíbúð er 27 þúsund
krónur á mánuði með rafmagni og
hita en 35 þúsund krónur fyrir
hjónaíbúð. Til að fá inni í íbúð í
húsinu þurfti umsækjandi að hafa
búið í Reykjavík í minnst 7 ár og
vera ellilífeyrisþegi. Einnig var
tekið tillif til aðstæðna, félags-
legra og heilsufarslegra, við val á
íbúum en er flutt var inn var
meðalaldur íbúa 77 ár. Enginn
íbúðáreigandi fékk inni í húsinu
við Furugerði.
Arkitektarnir sem teiknuðu hús
aldraðra við Furugerði voru þeir
Guðmundur Kr. Guðmundsson og
Ólafur Sigurðsson.
Við Dalbraut eru framkvæmdir
við íbúðir aldraðra vel á veg
komnar en þar er um að ræða þrjú
raðhús og stærri byggingu í
tveimur álmum með tengiálmu á
milli. í húsunum verða 46
einstaklingsíbúðir og 18 hjóna-
íbúðir. Stofnun þessi verður
dvalarheimili fyrir aldraða (elli-
heimili) og er gert ráð fyrir því að
þeir sem þar búi þurfi á töluverðri
aðstoð að halda. Hjúkrunar-
fræðingur verður því til staðar
allan sólarhringinn og einnig mun
forstöðumaður skipuleggja starfið
og lífið yfirleitt á heimilinu.
Ibúarnir munu geta keypt sér eina
máltíð á dag, svo og aðrir aldraðir
íbúar í næsta nágrenni.
Við Dalbraut verður eins og við
Furugerði þjónustu- og félagsað-
staða, setustofa, snyrtiherbergi,
hárgreiðsla, verzlun og sjónvarps-
herbergi — auk læknis- og
hjúkrunarþjónustu eins og áður
hefur komið fram.
í raðhúsunum þremur eru 18
íbúðir, 6 íbúðir í hverju húsi,
sorpgeymslur, geymslur,
þvottahús og þurrkherbergi.
í stóra húsinu verða 46 íbúðir
auk félags- og þjónustuaðstöðunn-
ar.
Húsin við Dalbraut voru teiknuð
á árunum 1975—76 og voru
arkitektar þeir sömu og hönnuðu
húsið við Furugerði. Gert er ráð
fyrir að framkvæmdunum ljúki á
næsta ári og að kostnaður við
byggingarnar verði um 800
milljónir. Formaður fram-
kvæmdanefndar bygginganna við
Dalbraut er Adda Bára Sigfús-
dóttir.
Þriðja og síðasta húsið sem
skoðað var er við Lönguhlíð og er
það fullbúið. Ekki hafði verið flutt
inn í íbúðirnar í síðustu viku en
íbúðunum hafði verið úthlutað og
búist við að hægt yrði að flytja í
þær einhvern næstu daga.
I húsinu við Lönguhlíð eru 30
einstaklingsíbúðir auk einnar
húsvarðaríbúðar. Ibúðirnar eru á
tveimur efri hæðum hússins en á
jarðhæðinni er aðstaða fyrir
lækna, sjúkraþjálfun, hár- og
fótsnyrtingu. Einnig verða þar
vinnusalur, þvottahús, línherbergi,
skrifstofa, eldhús, borðstofa,
ræstiklefar, geymslur, snyrting og
aðstaða fyrir starfsfólk. Öráðstaf-
að rými er um 115 m2 og í risi eru
geymslur.
Byggingaverkið var boðið út í
júní 1976 og hófust framkvæmdir í
október sama ár. Áætlaður kostn-
aður er um 400 milljónir.
I garðrými Lönguhlíðar er vetr-
argarður — upphitað gróðurhús —
sem mun eiga að lengja sumar
íbúanna og gefst þeim kostur á að
ganga um í blómagarði allan
ársins hring.
Arkitektarnir Helgi og Vil-
hjálmur Hjálmarssynir teiknuðu
húsið í samráði við Vífil Oddsson
verkfræðing og Svein Ragnarsson
félagsmálastjóra. Formaður
byggingarnefndar þeirrar sem sér
um framkvæmdir við Lönguhlíð er
Kristján Benediktsson.
Að lokinni þessari kynnisferð
flutti AÍbert Guðmúndsson ávarp
og sagði frá starfsemi byggingar-
nefndar aldraöra. Einnig kom það
fram í ávarpi Alberts að þegar er
farið að hugsa fyrir næsta skrefi í
b.vggingarmálum aldraðra. Albert
sagði að til greina kæmi að byggja
hjúkrunarheimili nálægt Borgar-
spítalanum, 40—60 íbúða hús í
Breiðholti og hús nálægt Heilsu-
verndarstöðinni en ekkert hefur
verið ákveðið í þeim efnum ennþá
en Albert kvað þá mundu taka
ákvarðanir bráðlega.
í lokin flutti Sigurjón Péturs-
son, forseti borgarstjórnar ávarp
þar sem hann þakkaði byggingar-
nefnd aldraðra gott starf. Hann
kvað mikið starf hafa verið unnið
á skömmum tíma en hann kvað
einnig mikið óunnið. Það kom
fram hjá Sigurjóni að gott sam-
starf hefði verið í byggingarnefnd-
inni og þótt miklar breytingar
hefðu verið gerðar innan borgar-
stjórnar undanfarið hefði engin
rödd heyrst þess efnis að breyta
ætti til innan byggingarnefndar
aldraðra sem Albert Guðmunds-
son veitir forsæti.
„Fyrstu skrefin eru kannski
þýðingarmest," sagði Sigurjón, „en
þau hafa verið stigin af kjarksemi
og framsýni."