Morgunblaðið - 05.10.1978, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1978
19
Pólskir og tékkneskir andófsmenn:
Áfram unnið saman þrátt
fyrir aðgerðir lögreglu
VínarborK. 4. október. Reuter.
TÉKKNESKIR andófsmenn til-
kynntu í da>? að þeir hyKÓust
halda áfram samvinnu við pólska
stallbræður sína þrátt fyrir
samræmdar aðKerðir liiKreKlu
beKKja landanna Kegn andófs-
miinnum.
Leikritahöfundurinn Vaclav
Ilavel skýrði vestrænum frétta-
mönnum frá því 1' dag. að
aðserðirnar við landamæri land-
anna um heltíina kæmu á engan
hátt í veg fyrir áframhaldandi
samvinnu pólskra og tékkneskra
borgara sem berðust fyrir mann-
réttindum í löndunum tveimur.
Brezki verkamannaflokkurinn:
Andvígur sérstöku
gialdeyriskerfi EBE
Blackpool. EnKlandi.
1. október. Rcuter.
FLOKKSÞING breska Verkamanna-
flokksins samþykkti í dag ályktun
þess efnis, að óhugsandi væri með
iillu að Efnahagsbandalagslöndin
tækju upp sérstakt gjaldeyriskerfi.
Ályktunin er ekki bindandi fyrir
ríkisstjórn James Callaghans, en
þess er krafist að brezka þingið
skeri úr um hvort farið skuli að
hugmyndum bandalagsins.
Ennfremur var þess krafist í
ályktuninni, að Rómarsáttmálinn
yrði endursamin í þeim tilgangi að
draga úr völdum framkvæmdanefnd-
ar EBE svo að aðildarlöndin hefðu
frjálsari hendur um að taka ákvörðun
um eigin iðnaðar- og efnahagsstefnu.
Flokksþing Verkamannaflokksins
hefur að jafnaði gagnrýnt EBE, en
það felldi þó í dag tillögu þess efnis að
Bretar segðu sig úr bandalaginu.
Bresku verkalýðssamtökin (TUC)
þágu í dag boð James Callaghans
forsætisráðherra um viðræður um
stefnu stjórnarinnar í kjaramálum,
en bitur ágreiningur ríkir nú milli
verkalýðssamtakanna og ríkisstjórn-
arinnar í þessum efnum.
David Basnett, forseti TUC, sagði á
flokksþingi breska Verkamanna-
flokksins að samtökin væru hlynnt
því að viðræður hæfust hið fyrsta, „til
að við komumst út úr þeim ógöngum
sem við erum í.“
Þetta gerðist
1974 — Bandarísk fyrirtæki
hætta kornsölu til Sovétríkj-
anna.
1970 — Sadat tilnefndur eftir-
maður Nassers forseta.
1960 — Stofnun lýðveldis í
Suður-Afríku samþykkt í þjóð-
aratkvæði.
1947 — Kominform stofnað á
ráðstefnu kommúnista í Varsjá.
1939 — Rússar gera samning
við Letta.
1938 — Benes, forseti Tékka,
segir af sér.
1915 — Landganga Banda-
manna í Saloniki.
1910 — Lýst yfir stofnun
lýðveldis í Portúgal.
1796 — Spánverjar segja Bret-
um strið á hendur.
1582 — Gregorius páfi XIII
brevtir tímatalinu.
1502 — Kólumbus finnur Costa
Rica.
Afmæli dagsins. — Jacques
Offenbach, franskt tónskáld
(1819-1889) - María af Mod-
ina, drottning Jakobs II af
Englandi (1658-1718).
Innlent —
Keflavíkursamningurinn sam-
þykktur 1946 — Dýrfirðingar
drepa 13 spænska hvalveiði-
menn 1615 — F. Jón Thoroddsen
1819 — Bóluhjálmar dæmdur
1839 — Krieger leggur fram
Þá tilkynntu námsmenn í pólska
bænum Krakow í dag, að þeir
hefðu sent Sameinuðu þjóðunum
bréf þar sem kvartað væri yfir
vaxandi aðgerðum lögreglu gegn
námsmönnunum.
Loks sagði austurríski lögfræð-
ingurinn Wolfgang Aigner í dag,
að tékkneska lögreglan hefði tekið
hann fastan þegar hann kom til
þess að vera viðstaddur réttarhöld
þriggja Tékka í bænum Brno.
Aigner var handtekinn þegar hann
gekk í dómshúsið, en það voru
samtökin Amnesty International
sem sendu hann til að vera
viðstaddan réttarhöldin. Á heim-
leið í dag var Aigner svo yfir-
heyrður í tvær klst í landamæra-
stöð og bifreið hans og farangur
grandskoðuð.
stöðulagafrumvarpið 1870 —
íslendingar heiðra Jón Sigurðs-
son í hinzta sinn: landar hans í
Kaupmannahöfn halda honum
samsæti 1877 — Setuliðsstjórn
mótmælir skýrslu „ástands-
nefndar" 1941 — F. Albert
Guðmundsson 1923.
Orð dagsins. Það er lygi sem
gerir okkur kleift að gera okkur
greiq fyrir sannleikanum —
Pablo Picasso, spænskur list-
málari (1881-1973).
Finnskir björgunarmenn bera á braut hluti úr DC-3 flugvél finnska
flughersins. sem fórst í Kuopio í Finnlandi í fyrrakvöld. Með vélinni
fórust 15 manns, þar af ýmsir áhrifamenn í finnsku þjóðlífi .Símamynd AP
Finnland:
Fimmtán fórust
með DC-3 flugvél
Kuopio. Finnlandi. 4. okt. Reutcr.
EMB.ETTISMENN skýrðu frá
því í dag. að enginn hefði komist
af þegar DC-3 flugvél finnska
hersins fórst skömmu eftir flug-
tak í Kuopio seint í gærkvöldi. en
um horð voru 12 farþegar og
þriggja manna áhöfn.
Meðal þeirra sem fórust voru
héraðsstjóri, þrír alþingismenn og
kúnnur kaupsýslumaður, en þeir
voru að kynna áætlanir Finna í
varnarmálum.
Flugvélin steyptist í vatn
skömmu eftir flugtak og var þá
annar hreyflanna logandi. Rey.ndi
flugstjórinn að snúa til baka til
flugvallarins þegar eldsins varð
vart, en án árangurs.
Finnski herinn hefur yfir sjö
öðrum DC-3 flugvélum að ráða og
verða þær teknar úr notkun þar til
að nákvæm rannsókn á þeim og
tildrögum slyssins hefur farið
fram. Fyrr hafa menn ekki farist
með DC-3 flugvélum í Finnlandi.
Fyrirfór sér bugxið af harmi
,Gonf, 4. október. Routor.
STAÐFEST var í Genf í dag. að
stúlkan. sem í gær brenndi sig til
bana framan við Þjóðabandalags-
höllina í Genf. hefði verið Lynette
Philipps, 24 ára gömul áströlsk
stúlka, dóttir auðugs námahölds.
Stúlkan var félagi í „Proutist
universal" trúarhreyfingunni.
sem talin er hluti af Ananda
Marga trúflokknum. Foreldrar
stúlkunnar sögðu í dag. að dóttir
þeirra hefði verið yfirbuguð
vegna þeirrar fátæktar sem hún
sá allt 1 kringum sig f heiminum.
Hún hafi verið öll af vilja gerð að
hjálpa hinum fátæku. en orðið
fyrir gífurlegum vonbrigðum
með að geta ekkert gert og hafi
þetta orðið til þess að hún framdi
sjálfsmorð.
Erlend fréttaskgring:
Er ekki hægt að
stjóma Portúgal?
Óánægjuraddir borgara í
Portúgal verða æ háværari;
það lítur sem sagt út fyrir að
ekki sé gerlegt að stjórna
þessu landi. Ovissan sem slíkt
hefur í för með sér svo að ekki
sé nú minnzt á önnur aðkall-
andi vandamál, geta haft
hinar alvarlegustu afleiðingar.
í júlí 1976 tók við fyrsta
alvörustjórnin í landinu í
hálfa öld. Hún sat undir
forsæti Mario Soares eins og
óþarft ætti að vera að fjölyrða
um. Hún starfaði í sautján
mánuði og naut ekki meiri-
hluta á þingi. Hún átti því
iðulega undir högg að sækja og
tókst í fáu að framfylgja
góðum og gegnum stefnumál-
um og allra sízt að hemja
verðbólgu og atvinnuleysi í
Portúgal sem er löngu orðið
gersamlega óþolandi vanda-
mál og skánar ekki við það
ástand sem er í landinu. Þegar
stjórnin féll náðist samstaða
milli Sósíalistaflokks Mario
Soares og Miðdemókrataflokks
undir forystu Diego Freitas do
Amaral og sú stjórn tók við
síðla janúarmánaðar og þótti
ýmsum sem bjartara gæti nú
verið framundan og þingstyrk-
ur stjórnarinnar var það mik-
ill að ekki þurfti að hafa
áhyggjur af þinginu.
Metnaðarsamir ráðherrar
þessarar stjórnar réðust til
atlögu við efnahagsmálin og
gripið var til ráðstafana sem
miðuðu að því að draga úr
innflutningi, efla framleiðslu
innanlands og annað er til
heilla mátti horfa. En þessi
ríkisstjórn bar heldur ekki
gæfu til að starfa saman og
eftir hálfs árs starf riftuðu
miðdemókratar því eftir að
Sósíalistaflokkurinn hafði ekki
staðið við þá landbúnaðar-
stefnu sem mörkuð hafði verið
í stjórnarsáttmála flokkanna.
Þær hræringar sem urðu
fyrstu dagana á eftir hafa
þegar verið raktar og mörgum
þótti með ólíkindum hvað
Mario Soares, sá reyndi og
virti stjórnmálamaður, lét
skapið hlaupa með sig í gönur
varðandi samskiptin við Eanes
forseta Portúgals. Eanes vék
vitanlega ekki Soares úr em-
bætti, eins og Soares sagði við
fréttamenn æstur í bragði
heldur óskaði eftir því að hann
segði af sér þar sem stjórn
hans naut ekki lengur meiri-
hluta í þinginu. Stjórn Soares
sat þó um hríð eða þar til
Eanes kvað upp úr með það að
hann hefði ákveðið að biðja
Alfredo Nobre da Costa, að-
sópsmikinn iðjuhöld að mynda
utanþingsstjórn. Soares lagð-
ist umsvifalaust gegn þessari
stjórn og bannaði fyrrverandi
ráðherrum sínum að taka sæti
í stjórninni og hótaði öllu illu
þegar að því kæmi að stjórnin
leitaði eftir trausti þingsins.
Þar með var nokkurn veginn
augljóst að Sósíaldemókrata-
flokkur Francisco Sa Carneiro
myndi styðja stjórnina, þar
sem hann kappkostar jafnan
að ganga þvert á það sem
Sósíallistaflokkurinn gerir og
stundum svo mjög að nánast
verður hálfspaugilegt. Aftur á
móti kom það öllu meira á
óvart er miðdemókratar
ákváðu að greiða atkvæði gegn
stjórninni og ýmsir töldu
forsendurnar hæpnar: að þrír
menn sætu í stjórn da Costa
sem telja mætti fullvinstri-
sinnaða. Aftur á móti situr
stjórn da Costa enn og mun
gera það unz annar tveggja
kosta hefur verið valinn, að
reyna myndun enn einnar
stjórnarinnar ellegar efna til
kosninga. Stjórnin getur að
vísu ekki gert annað en fylgja
ákvörðunum sem áður höfðu
,verið teknar af fyrri stjórn.
Á málinu öllu eru vitaskuld
Eanes forseti
ýmsar hliðar. það hefur mælzt
misjafnlega fyrir meðal þorra
manna hversu mjög Eanes
forseti hefur komið við sögu
síðan hann var kjörinn. Sumir
segja að hann misnoti stöðu
sína og virðist haldinn ein-
hverju stórmennskuæði og
helzta hugsjón hans sé að
verða eins konar de Gaulle
Portúgals. Aðrir eru þeir sem
lofa forsetann fyrir snaggara-
legt frumkvæði og skýlausa
hreinskilni hans og vissulega
hefur trú fólks á getu og hæfni
stjórnmálamanna dvínað í
landinu síðustu árin.
Það er líka augljóst að það
getur orðið varasamt að efna
til kosninga á næstunni, því að
á þessum fáu árum sem liðin
eru frá því byltingin í landinu
ver gerð hafa verið kosningar
sýnkt og heilagt og fólk er
orðið býsna þreytt á þeim. Og
engin er kominn til með að
segja að skýrari línur birtist í
kosningum nú.
En þeir eru líka margir sem
bera ugg í brjósti vegna þess
NobredaCosta forsætisráðh
hvernig mál hafa þróast. Og
rifjað hefur verið upp mörgum
til hrolls, að á árunum milli
1910 og 1926 hafði Portúgal
hvorki meira né minna en
fjörutíu og fimm ríkisstjórnir
— og þessi staðreynd átti
töluverðan þátt í að síðan var
aðeins ein stjórn við lýði í
Portúgal á fimmta áratug —
einræðisstjórn Salazars. Á
þetta hefur verið bent og menn
hvattir til að draga lærdóm af.
Það er vissulega mikið talað og
skeggrætt og málin eru skoðuð
í Portúgal, en einhvern veginn
virðist enginn leikur að breyta
þeirri þráteflisstöðu sem upp
er komin í landinu. Enda þótt
fólk hljóti vissulega að gera
sér grein fyrir því, að þetta
ástand getur ekki varað nema
takmarkaða hríð. Það skiptir
ekki litlu hvað gerist og
hvernig það gerist og varla
vilja Portúgalar una þeirri
tilhugsun að fá yfir sig ein-
ræðisstjórn á ný í hvora áttina
sem væri.
h.k.