Morgunblaðið - 05.10.1978, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. OKTOBER 1978
Kröfluvirkjun:
Ekki tókst að hreinsa
alveg tappa úr holu II
— byrjað á nýrri holu í suðurhlíðum Kröflu
Aðalfundur hverfafélaga
Sjálfstæðisflokksins
HVERFAFÉLÖG Sjálfstæðis-
flokksins halda á næstunni aðal-
fundi sína, svo og félögin Vörður
og Óðinn og hefur þegar verið
ákveðið með eftirtalda fundi:
Fella og Hólahverfi, að Selja-
braut 54 7.10. kl. 25.30; Smáíbúða-,
Bústaða- og Fossvogshverfi 10.10.
kl. 20.30 í Valhöll; Árbæjar- og
Seláshverfi 11.10. að Hraunbæ 102
B kl. 20.30; Austurbær-, Norður-
mýri 12.10. í Valhöll kl. 20.30;
Háaleitishverfi 18.10. í Valhöll kl.
18.00; Hlíða- og Holtahverfi 23.10.
í Valhöll kl. 20.30; og Laugarnes
25.10 í Valhöll kl. 20.30. Fundir
Óðins og Varðar verða væntanlega
haldnir 26.10. og 31.10 í Valhöll, en
önnur félög hafa ekki ákveðið með
sína fundi.
Gamalt hús fær nýtt þak
UNNIÐ hefur verið að því að
undanförnu að skipta um þak á
verzluninni í Aðalstræti 10, sem er
í röð elztu húsa í borginni.
Bárujárnsþak kemur í stað gamla
steinflöguþaksins, sem setti
óvenjulegan og skemmtilegan svip
á þetta gamla hús og margir munu
vafalaust sakna þess. Að beiðni
Húsfriðunarnefndar hefur heil-
lögum flögum verið haldið til haga
og verða fengnar Árbæjarsafni.
Þakið var orðið illa farið og
nauðsynlegt að gera við það, en
ekki þótti stætt á að ráðast í svo
dýra framkvæmd sem þá að
endurbyggja flöguþakið meðan
framtíð Grjótaþorpsins er ekki
ráðin. Að sögn Nönnu Hermanns-
son, forstöðumanns Árbæjar-
safns, er steinflöguþakið frá því á
síðari hluta 19. aldar og því alls
ekki upprunalegt, eins og margir
ætla. Sagði Nanna að yrði húsið
fært í efdra horf mætti gera ráð
fyrir að sett yrði á það tréþak.
„VIÐ áætlum að setja
virkjunina aftur í gang í
fyrstu vikum nóvember-
mánaðar, en undir lok þessa
mánaðar ætti hola 11 að vera
tilbúin og öðrum nauðsynleg-
um undirbúningsverkum að
vera lokið," sagði Einar
Tjörvi Elíasson fram-
kvæmdastjóri Kröflunefndar
í samtali við Mbl. í gær. Við
borun í holu 11 tókst ekki að
hreinsa burt tappa eins og
áætlað var, þannig að Einar
Tjörvi sagði að holan virtist
vera nokkuð þéttari fyrir
bragðið, og því myndi eitt-
hvað minna fást úr henni en
áður var ráðgert. Aftur á
móti benti allt til þess að hún
yrði stöðug. Nú er verið að
bora nýja holu, holu 12, í
suðurhlíðum Kröflu og sagði
Einar Tjörvi að það verk
gengi mjög yel en við það er
beitt nokkuð breyttum að-
ferðum frá fyrri borunum.
Talað er um að holan verði
1800—2000 metra djúp og
sagði Einar Tjörvi að hún
ætti að komast í notkun
undir árslok.
I holu 11 var settur tappi í
leiðarann á um 1300 metra
dýpi svo hægt væri að steypa
leiðarann þar fyrir ofan.
Þarna er um að ræða tappa
úr áli sem síðan á að vera
hægt að bora burtu. Það gekk
þó illa og m.a. stíflaðist
borkrónan svo að taka varð
borinn upp aftur og hreinsa
hana. Þegar borinn var sett-
ur niður í aftur gekk ekki að
bora tappann frekar þannig
að því var hætt. „Hvaða
afleiðingar þetta hefur kem-
ur ekki fyllilega í ljós fyrr en
holan fer að blása," sagði
Einar Tjörvi Elíasson. „Hol-
an er heit, en hún virðist vera
þéttari fyrir bragðið, þannig
að hún gefur ef til vill
eitthvað minna en við
reiknuðum með. En hún
verður væntanlega stöðug.“
Einar Tjörvi sagði að í
tilraunakeyrslu í sumar þar
sem hola 11 var inni að hálfu
leyti hefði virkjunin náð
mest að senda um 7 MW út á
línu, en nú mætti búst við að
það mark yrði 5—6 MW.
„Fortune”
skrifar
um Laxá
í Aðaldal
BANDARÍSKA viðskipta-
tímaritið Fortune birti nýlega
þriggja blaðsíðna grein um
laxveiðar í Laxá í Aðaldal
prýdda fjölda litmynda. Grein-
in er eftir Marilyn Wellemeyer
og fjallar um veiðiferð tveggja
hópa kaupsýslumanna, frá
Kanada og Chicago. Þeir veiddu
ekki eins mikið og þeir bjuggust
við en voru ánægðir með
ferðina. Kanadamönnunum
fannst aflinn og stærð laxins
standast vel samanburð við það
sem þeir eiga að venjast í ám í
Norður-Quebec. Útgefandi For-
tune er Time-fyrirtækið í
Bandaríkjunum. Myndin sýnir
hluta greinarinnar.
Frá málverkauppbðinu í fyrradag. Ragnar Borg stjórnaði því.
Málverk Júlíönu á hæsta verði
KLAUSTURHÓLAR héldu mál-
verka- og bókauppboð um helg-
ina. Bókaupphoðið fór fram í húsi
Klausturhóla við Laugaveg á
laugardaginn en málverkaupp-
boðið fór fram á Hótel Sögu í
fyrradag.
Samkvæmt upplýsingum
Guðmundar Axelssonar kaup-
manns fór málverk eftir Júlíönu
Sveinsdóttur á hæsta verði eða 560
þúsund krónur auk söluskatts eða
samtals á 672 þúsund krónur.
Málverk eftir Finn Jónsson fór á
500 þúsund auk söluskatts. Mál-
verk eftir Sverri Haraldsson fór á
430 þúsund auk söluskatts og
önnur mynd eftir Júlíönu fór á 400
þúsund að viðbættum söluskatti. Á
uppboðinu var 91 málverk og
seldust öll. Ragnar Borg stjórnaði
uppboðinu.
Á bókauppboðinu fóru á hæstu
verði Eftirmæli 18. aldar eftir
Magnús Stephensen, prentuð að
Leirárgörðum 1806 á 105 þúsund
auk söluskatts og Ævisaga Bjarna
Pálssonar, Leirárgörðum 1800, á
81 þúsund auk söluskatts. Stjórn-
andi bókauppboðsins var Anton
Holt.
Næsta bókauppboð Klaustur-
hóla verður 21. október og næsta
málverkauppboð 5. desember.
Kunnur trúdur
á f jölum Idnó
SÆNSKI trúðurinn og látbragðs-
leikarinn Armand Miohe er nú
staddur hér á landi ásamt konu
sinni Eda Michelson. leikara og
tveimur hljóðfæraleikurum- Þau
koma öll fram á sýningu í Iðnó í
kvöld. fimmtudag. og Miehe
heldur síðan fyrirlestur í Nor-
ræna húsinu nk. laugardag en
Síldar-
bátunum
fjölgar
- VEIÐIN er heldur að
glæðast á vestursvæðinu,
sem er hér vestur af Hroll-
augseyjum, en þar fengu
nokkrir bátar afla í gær, allt
að 200 tunnum hver sagði
Jens Mikaelsson á Höfn í
samtali við Mbl.
— Hér eru orðnir svo
margir bátar að liggur við
örtröð og eru stundum 15—20
bátar í einu í ósnum í einni
halarófu. Einn báturinn tók
niðri í ósnum á útleið í dag,
en hélt áfram eftir að hafa
setið fastur í klukkutíma.
Flestir bátarnir fóru út milli
kl. 17 og 19 í gærdag og hefur
undanfarin kvöld verið mikil
ljósadýrð vestur um allar
fjörur þar sem bátarnir eru
svo margir, sagði Jens að
lokum.
Armand Miehe
hann er hingað kominn í boði
Norræna hússins og Leikfélags
Reykjavíkur. Einnig heldur hann
sýnikennslu með leiklistarnem-
um.
Armand Miehe er af þekktri
fjölleikahúsætt, sem á uppruna
sinn í Mið- og Suður Evrópu en
sjálfur hefur hann alið aldur sinn í
Danmörku eða Svíþjóð og komið
þar fram í fjölleikahúsum. Miehe
er tvímælalaust kunnasti lát-
bragðsleikari og fjölleikahústrúð-
ur Norðurlanda um þessar mund-
ir, en hann hefur einnig látið
leikhúsið töluvert til sín taka og
varð fyrstur til að kynna ítalska
leikritaskáldið Dario Fo og verk
hans hér á Norðurlöndum.
Miehe og förunautar hans koma
hingað frá Grænlandi, þar sem
hann hefur haldið sýningar um
alla Vesturströndina undanfarið
en að lokinni verunni hér er
förinni heitið til Færeyja.