Morgunblaðið - 05.10.1978, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1978
Pétur og
Karl fara
ekki til
FcTwerrte
EKKERT verður af pví að þeir
félagar Pétur Pétursson og Karl
Þórðarson fari til hollenska
liðsins FC Twente til Þess aö líta
Þar á aðstæöur, a.m.k. ekki fyrst
um sinn.
Framkvæmdastjóri
Feyenoord, sem hér er staddur
um Þessar mundir, varð ekkert
ánægður Þegar hann frétti af Því
að Pétur og Karl ætluðu til
Twente eftir leikinn í A-Þýzka-
landi og gaf í skyn að hann vildi
ekkert viö Þá tala ef Þeir geröu
Það. Hafa Þeir Pétur og Karl
ákveðið að koma beint heim
með ísienzka landsliöinu í dag til
viðræðna við framkvæmdastjóra
Feyenoord en ef til vill fara Þeir
síðar til Twente til Þess að líta
Þar á aðstæður.
— SS.
FH-Haukar
í kvöld
í KVÖLD fara fram tveir leikir í
handknattleik í íþróttahúsinu í
Hafnarfiröi. Kl. 20.00 keppa í
meistaraflokki kvenna FH og
Haukar um Emblu-bikarinn, sem
verslunin Embla gaf til þessarar
keppni. Strax að þeim leik loknum
keppa FH og Haukar svo í
meistaraflokki karla um Esso-bik-
arinn.
Enn lendir
Best í vanda
ÍRSKA knattspyrnustjarnan George
Best heíur jafnan verið laginn við að
koma sér í alls kyns vandræði. Nú á
hann yfir höfði sér að vera dæmdur frá
knattspyrnuiðkun fyrir fullt ok allt.
Hreska knattspyrnusamhandið hefur
farið þess á leit við alþjóðasambandið að
hann verði dæmdur frá keppni vegna
þess að nýlega lék hann í Austurrfki á
vejfum daghlaðs frá Detroit. Félajf hans.
F'ort Lauderdale. hafði lánað hann til
leikjanna. Best braut með þessu Iök sem
alþjóðasambandið hafði sett honum þar
sem saKði að hann mætti ekki leika utan
Bretlands meðan enska deildakeppnin
væri í Kangi. Reglur þessar voru settar
er Best yfirjfaf Fulham á miðju
keppnistímabili síðastliðið ár.
Stein tekur
við skozka
landsliðinu
SKOZKA knaftspyrnusambandið
tilkynnti í gaer að Jock Stein hefði
tekið við skozka landsliðinu í
knattspyrnu. Stein var fram-
kvæmdastjóri hjá Glasgow Celtic
áður en hann tók við starfi hjá
Leeds en þar hefur hann starfaö
undanfarnar sex vikur.
Stein tekur við stjórn skozka
landsliðsins af Ally McLeod, sem
fór miklar hrakfarir með liðið í
HM-keppninni í Argentínu. — Mér
þykir mjög slæmt aö þurfa að
hætta hjá Leeds, sagði Steín, en
konan mín sættir sig ekki við að
flytjast til Englands svo að ég tók
þessu góða tilboöi frá Skotlandi.
Stein gerði Celtic að Evrópu-
meisturum árið 1967. Hann hefur
verið álitinn einn af betri fram-
kvæmdastjórum í skozkri knatt-
spyrnu í mörg ár. Leeds hefur
ekki ákveðið hver verður eftir-
maður Steins hjá félaginu.
Þrír leikir
REYKJAVÍKURMÓTIÐ í hand-
knattleik í meistaraflokki karla
heldur áfram í kvöld í Laugar-
dalshöllinni. Þá fara fram Þrír
leikir. Kl. 19.00 leika Víkingur og
Þróttur, kl. 20.15 ÍR og Valur og
síöasti leikur kvöldsins er milli
Leiknis og Fram.
• Barátta inn í vítateig
hollenska liðsins. Lárus
Guðmundsson, Ragnar
Margeirsson og Arnór
Guðjohnsen sækja að mark-
verði Hollendinga.
ÍSLENZKA unKlintíaland.sIiðið,
leikmenn 16 —18 ára. hefur á
brattann að sækja í Evrópu-
keppninni eftir tap Keun Hol-
landi á Lautjardalsvellinuin í
Kær. 1.0. Seinni leikurinn fer
fram í horjjinni Zwolle í IloIIandi
8. nóvemher n.k. og verður ísland
þá að vinna jftiðan sigur til þess
að komast í úrslitakeppnina
næsta vor. Miðað við gang leiks-
ins var sigur Hollendinj;a ósann-
Kjarn. ísland átti a.m.k. skilið
jafntefli.
Leikurinn í gær var í heildina
vel leikinn af báðum liðum en
hann var ekki sérlega skemmtileg-
ur á að horfa. Mikill m-unur var á
liðunum í gærkvöldi, Hol-
lendingarnir stærri, tekniskari og
fljótari en íslenzku piltarnir en
okkar menn voru harðari í návígj-
um. Kóm greinilega fram í þesum
leik að ýmsir mikilvægir þættir
knattspyrnunnar virðast vanrækt-
ir í unglingaþjálfun hér á íslandi
og þarf KSI greinilega að taka það
mál alvarlega fyrir. Aðeins einn
maður í íslenzka liðinu, Arnór
Guðjohnsen, virtist hafa knatt-
tækni og hraða á við hollensku
piltana.
Island byrjaði' leikinn betur en
þegar á leikinn leið náðu Hollend-
ingarnir svo yfirhöndinni. Bæði
liðin fengu góð tækifæri, Arnór
skaut naumlega yfir í dauðafæri,
hollenski markvörðurinn varði
stórglæsilega skallabolta frá
Benedikt og augljósri vítaspyrnu
var sleppt þegar Lárusi var
brugðið innan vítateigs. Einni
mínútu fyrir hlé urðu Heimi
Standard
tapaði
STANDARD, liö Ágeirs Sigurvins-
sonar tapaði 2:0 fyrir Anderlecht í 1.
deildinni belgísku í gærkvöldi.
Önnur úrslit urðu Þessi:
Winterslag — Charleroi 1:2
Lokaren — Courtrai 2.0
La Louviere — FC Brtlgge 2:2
FC Liege — Bercme 3:1
Beringen — Waterschei 2:2
Beerschot — Lierse 3:0
Waregem — Molenbeek 1:1
Anderlecht hefur forystu eftir 7
umferöir meö 12 stig, næstu lið hafa
9 stig. Standard er í 10. sæti með 7
stig.
Minni vonir um sæti
í úrslitum eftir tap
qeqn Hollandi heima
Karlssyni á mistök á miðju
vallarins, Hollendingarnir náðu
boltanum og sendu hann fram
völlinn tii leikmanns nr. 8 í
hollenska liðinu, Ricardo F.A.
Talan. Hann tók mikinn sprett og
hreinlega stakk varnarmenn ís-
lenska liðsins af og renndi boltan-
um í markið framhjá Bjarna
markverði.
Seinni hálfleikurinn var tíðinda-
lítill. Sóknarleikur íslenzka liðsins
var ansi einhæfur, mest reyndar
langspyrnur fram miðjan völlinn
en kantarnir lítið sem ekkert
nýttir. Hollenzka vörnin var föst
fyrir og það sama mátti segja um
íslenzku vörnina. Mesta hættan
skapaðist við hollenzka markið
þegar dæmdar voru aukaspyrnur á
Hollendingana á þeirra eiginn
vallarhelmingi. Munaði litlu að
Benedikt tækist að skora eftir
aukaspyrnu, sem Skúli Rósantsson
framkvæmdi en skot Benedikts fór
í hliðarnetið. Fimm mínútum fyrir
leikslok átti Agúst Hauksson
þrumuskot að markinu af 30 metra
færi. Markmaðurimj hélt ekki
boltanum, hann skoppaði í stöng-
ina og hættunni var bægt frá.
Þetta var síðasta marktækifæri
ísjenzka liðsins í leiknum.
Islenzka liðið lék þennan leik
skynsamlega, hélt boltanum mik-
ið, kannski einum of, en sóknin var
alltof einhæf. Miðverðirnir Bene-
dikt og Arni stóðu sig vel í þessum
leik en bakverðirnir voru ansi
seinir og settu útherjar Hollend-
inga þá oft í vanda. Heimir
Karlsson var sterkur á miðjunni
en í framlínunni voru þeir beztir
Sæbjörn og Arnór en greinilegt
var að Hollendingarnir óttuöust
hann mest og var hann í sérstak-
lega strangri gæzlu. Bjarni mark-
vörður var mjög öruggur, greini-
lega framtíðarmarkvörður.
Hollenzka liðið var mjög
skemmtilegt, tæknin með ólíkind-
um hjá ekki eldri drengjum og
hraðinn mikill. Var liðið eins og
vasaútgáfa A-landsliðsins. Bezti
maður liðsins var Talan, nr. 8,
markaskorarinn, einstaklega fljót-
ur og tekniskur leikmaður.
Dómari var Valentine, Skoti, og
mátti af tilburðum hans halda að
þar væri á ferðinni trúðurinn, sem
Leikfélag Reykjavíkur ku vera að
fá um þessar mundir. — SS
í STUTTU MÁLI.
LauKardalsvöllur I. október, Evríipu-
krppni unnlinxaliöa 16 — 18 ára, ísland —
Holland 0.1 (0.1).
MARK HOLLANDS. Talan á 39. mlnútu.
ÁMINNING. Engin.
ÁIIORFENDUR. 918.
LIÐ ÍSLANDS. Iljarni SÍKurdsson ÍBK.
Ilaraldur Olafsson ÍBl. Gunnar Gislason
KA, Ágúst Hauksson Þrótti, Benedikt
Guðmundsson UBK, Skúli Rósantsson ÍBK.
Heimir Karlsson Vikinxi. Berxur II.
Berxsson Sellossi. I.árus Guðmundsson
Víkinxi. Arnór Guðjohnsen Lokaren ok
Sæbjörn Guðmundsson KR. Kavnar
Marxreisson ÍBK o« Ástvaldur Jóhannsson
ÍA komu inná sem varamenn í s.h. í stað
Bergs ok Lárusar.
SAGT EFTIR LEIKINN
Lárus Loftsson, Þjálfari ís-
lenzka liðsins:
ÉG SEGI það sama og eftir leikinn
við Wales í fyrra sem lauk með
jafntefli: Viö getum unnið á útivelli
og komist áfram. Ég var að mörgu
leyti ánægöur meö leikinn. Ég var
búinn að segja strákunum að
halda boltanum svo að við gætum
líka ráðið gangi leiksins en værum
ekki alltaf í vörn og þaö geröu þeir.
Við fengum góð tækifæri en vorum
óheppnir að nýta þau ekki. Hol-
lenska liöið er nákvæmlega eins
og ég bjóst við. Við vorum
kraftmeiri en hollensku strákarnir
en okkur vantar hraöa og tækni.
Þetta hefur komið fram í öllum
unglingaleikjunum og ástæöan er
sú aö unglingaþjálfunin hefur verið
svo vanrækt hjá okkur að það er
með eindæmum.
Ger Blok, þjálfari hollenska
liðsins:
Sigurinn í þessum leik var
mikilvægur fyrir okkur. Þetta var
góður leikur og prúömannlega
leikinn. íslenzka liðið lék vel að
mínu mati, vörnin var sterk og
markvöröurinn (Bjarni Sigurösson)
mjög öruggur. Beztu menn fram-
línunnar voru nr. 10 (Arnór
Guðjohnsen) og nr. 8 (Bergur H.
Bergsson) en nr. 9 (Lárus
Guömundsson) hefur góða tækni.
Ég vona að við vinnum seinni
leikinn og komust áfram í úrslitin.
Valentine, skozkur dómari
leiksins:
Það er gaman að koma hingað
aftur en ég var hérna fyrir mánuöi
og dæmdi leik ÍBV og Glentoran.
Leikurinn í kvöld var mjög prúð-
mannlegur og auðdæmdur og
strákarnir sýndu að mínu mati
góða knattspyrnu.
Benedikt Guömundsson, fyrir-
liði íslenzka liösins:
Við vorum óheppnir að skora
ekki úr þeim færum sem viö
fengum. Ég fékk mjög gott færi en
misnotaði þaö vegna þess hve
óvanur ég er því að fá svona
dauöafæri. Hollendingarnir eru
mjög tekniskir en það var erfiðara
að spila gegn Wales í fyrra. Ég hef
þá trú aö viö vinnum úti í Hollandi
og komust áfram.
Arnór Guðjohnsen:
Þetta var ekki nógu gott hjá
okkur, við hefðum átt að nýta
færin sem við fengum. Hol-
lendingarnir voru eins og ég bjóst
við, mjög tekniskir og fljótir. í fyrra
unnum við Wales á útivelli og
hvers vegna ætti okkur ekki að
takast þaö sama í Hollandi? - SS.