Morgunblaðið - 05.10.1978, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1978
39
Austur - Þjóðverjar hefndu ófaranna frá
síðustu Evrópukeppni og sigruðu 3:1
ÍSLENDINGAR töpuðu í gær fyrri leik sínum á móti
Austur-Þjóðverjum í Evrópukeppni landsliða, sem fram
fór í Halle, 3—1. Staðan í leikhléi var 2—1. Frammistaða
Islendinga var með miklum ágætum, þeir voru óragir við
að sækja í leiknum og áttu mörg ágæt marktækifæri og
komu austur-þýsku varnarleikmönnunum hvað eftir
annað í vandræði.
Leikur liðsins var opinn og skemmtilegur og allan
tímann hinn líflegasti að sögn Ellerts Schram er Mbl.
hafði samband við hann í gær.
VÖRNIN TAUGAÓSTYRK
FRAMAN AF
Fyrstu 15 mínútur leiksins var
leikurinn í jafnvægi, en þó tók
nokkurn tíma fyrir vörn íslenska
liðsins að ná saman. Þar sem
Jóhannes Eðvaldsson gat ekki
leikið með varð Janus Guðlaugs-
son að taka stöðu hans sem aftasti
maður og skilaði hann því með
mikilli prýði. Jón Pétursson lék
ásamt Janusi á miðju vallarins í
vörninni og mæddi mikið á þeim í
leiknum.
Fyrsta tækifæri íslendinga kom
á 4. mínútu er þeir fengu horn-
spyrnu en markvörður Þjóðverja
sló knöttinn frá. Rétt mínútu síðar
ver Þorsteinn Bjarnason vel
hörkuskot frá Riediger. Þessar
fyrstu mínútur leiksins var óör-
yggi í varnarleiknum og var það
dýrkeypt því að á 8. mínútu varð
mikill misskilningur á milli varn-
armannanna og ekki var hreinsað
frá markinu eftir sókn Þjóðverja,
og Peter náði að skora. Var þetta
mark af ódýrari gerðinni.
PÉTUR JAFNAR1 — 1
Það var enga uppgjöf að finna
þrátt fyrir markið og áfram sótt af
kappi. Á 15. mínútu fær Pétur
góða stungusendingu fram á völl-
inn og kemst vel inn í vítateiginn,
þar er honum brugðið illa og
dómarinn dæmir umsvifalaust
vítaspyrnu. Pétur tók vítaspyrn-
una sjálfur og skoraði af öryggi.
íslendingar höfðu jafnað metin.
Þeir áttu síst minna í leiknum og
fengu ágæt tækifæri. Guðmundur
Þorbjörnsson átti hörkugott skot
rétt framhjá stönginni á 27. mín.
og litlu seinna munaöi minnstu að
Pétri tækist að komast í gegnum
vörnina.
Á. 31. min. sækja Þjóðverjar og
löng sending kemur frá hægri
kantinum fyrir markið alla leið
inn í markteiginn. Svo virtist sem
Þorsteinn Bjarnason ætti góða
möguleika að ná til knattarins en
einn Þjóðverjanna varð fyrri til og
tókst að koma tánni í boltann og
stýra honum út í markteiginn
þaðan sem hann hrökk af Riediger
í markið.
Á 38. mín leikur Pétur upp
kantinn og nær að gefa góðan
bolta inn á Teit sem er í góðu færi
en náði ekki að skalla nægilega
fast og markvörðurinn varði skot
hans. I lok fyrri hálfleiks fá svo
Þjóðverjar gott færi sem misfórst.
DRÓ AF ÍSLENDINGUM
í SÍÐARI IIÁLFLEIK
Strax á 1. mín síðari hálfleiks
veður Karl Þórðarson upp með
boltann og gefur á Atla vel
staðsettan, en skot hans fór rétt
framhjá. Næstu fimm mínútur
pressa Þjóðverjar stíft og eiga
meðal annars skot í stöngina. Það
er svo á 55. mín að Íslendingar fá
tækifæri til að jafna metin. Teitur
brýst upp og rétt fyrir utan
vítateiginn er hann felldur gróf-
lega, og dæmd aukaspyrna. Árni
Sveinsson tók spyrnuna og þrumu-
skot hans söng í þverslá marksins
og út á völlinn.
Þjóðverjarnir keyrðu upp hrað-
ann í síðari hálfleik og um miðjan
hálfleikinn skora þeir sitt þriðja
mark. Var það Hoffmann sem
skoraði óverjandi eftir góðan
undirbúning. Var vel að þessu
marki staðið, og var þetta falleg-
asta mark leiksins. Árni Stefáns-
son, sem kom í markið i hálfleik
vegna meiðsla Þorsteins Bjarna-
sonar, átti ekki neina möguleika á
að verja skotið þrátt fyrir góða
tilraun. Síðustu 20 mínútur leiks-
ins var nokkuð af íslenska liðinu
dregið, völlurinn var þungur og
háll eftir mikla rigningu fyrr um
daginn og urðu menn því fyrr
þreyttir. Þjóðverjarnir sóttu stíft í
lokin en tókst ekki að skora fleiri
mörk. Karl Þórðarson átti síðasta
marktækifæri Islendinga, en mis-
tókst.
Spánverjarog
Tékkarunnu
60.000 og urðu þeir fyrir mikluni
vonbrigðum með lið sitt.
I Stokkhólmi léku Svíar við
Tékka. Komu Tékkar mjög á óvart
með því að sigra 3—1. Staöan í
leikhléi var 1 — 1. Mörk Tékka
skoruðu Masny 2 og Nehoda. Mark
Svía skoraði Borg. Áhorfendur að
leiknum voru 12.000.
TVEIR leikir fóru fram í Evrópu-
keppni landsliða í gærkveldi.
í Zagreb í Júgóslavíu sigruðu
Spánverjar heimamenn 2—1.
Staðan í leikhléi var 2—1. Mörk
Spánar skoruðu Juanito og Sant-
illa. Mark Júgóslavíu skoraði
• Þorsteini Bjarnasyni tekst að slá boltann frá ntarkinu eftir hiirkuskalla, Werner Peter, í leiknum í gær. Halihodzic. Áhorfendur voru
Símamynd AP
• Hér sést Werner Peter vera kominn i dauðafæri og skora fyrsta mark Þjóðverjanna í leiknum í Halle í
gær. Janus Guðlaugsson er til varnar en þeir Atli og Stefán fylgjast með álengdar. Þetta mark kom eftir
slæm varnarmistök.
Ellert sagði í viðtali við Mbl., að
hann væri eftir atvikum ánægður
með leikinn. Islendingar hefðu
teflt fram ungu liði og talsvert
breyttu frá því sem verið hefur. —
Þessi leikur var mun skemmtilegri
á að horfa en leikurinn gegn
Hollendingum. Þjóðverjarnir spila
hraðan bolta og eru með góðar
skiptingar. Þeim gekk illa að
komast í gegn um vörn íslendinga
nema þá helst með skyndisóknum,
sagði Ellert í lok spjallsins. Vörn
íslenska liðsins stóð sig vel með
Jón Pétursson og Janus sem bestu
menn. Þá skilaði Guðmundur
Þorbjörnsson sínu hlutverki mjög
vel. Teitur er betri en áður, bæði
sneggri og hefur betri boltameð-
ferð. Karl og Pétur áttu góða
spretti inn á milli í leiknum, og
báðir markmennirnir stóðu fyrir
sínu. Bestir í liði Þjóðverja voru
Peter og Hoffmann. Þess má geta
að lokum, að leikurinn verður
sýndur áður en langt um líður i
íþróttaþætti sjónvarpsins.
1 stuttu málii
Evrópukeppni landslióa. Halle.
AusturÞýskalandi. ísland — Þýskalandi
1-3 (1-2).
Mark fslandsi Pótur Pétursson úr víta-
spyrnu á 15. mínútu.
Mörk AusturÞýskalandsi Peter á 8. mín.
Ifieditter á 31. mín ott Hoffmann á 72. mín.
Áhorfenduri 12.000
Dómarii Reynolds frá Wales. — ÞR
LIÐ ISLANDSi Þorsteinn Bjarnason (Árni
Stefánsson á 46. mín). Janus Guðlauttsson.
Sigurður Björgvinsson. Karl Þórðarson.
Árni Sveinsson (Ingi Björn Albertsson 78.
mín). Jón Pétursson. Atli Eðvaldsson.
Stefán Sigurðsson. Pétur Pétursson. Teitur
Þórðarson. Guðmundur Þorbjörnsson.
LIÐ AUSTIJR-ÞVSKALANDS. Croy. Dörn-
er. Weise. Hause. Weber. Háfner (Linde-
mann 35. mín). Pommerenke. Eigendorf.
Riediger. Peter. Hoffmann.
WATFORD SLÓ UNITED ÚT!
ÞAU óvæntu úrslit áttu sér staö í
gærkvöldi að 3. deildar lið
Watford sigraði pekktasta lið
Englands, Manchester United
2—1 t' deildarbikarkeppninni. Og
Það sem meira var, paö var á
heimavelli United, fyrir framan
40.000 áhorfendur. Framherjinn
Luther Blisset skoraði bæði mörk
Watford í síöari hálfleiknum. Joe
Jordan hafði komið United yfir
1—0 í fyrri hálfleik. Eins og
kunnugt er, er Elton John,
söngvarinn frægi stjórnarformað-
ur Watford.
Nábúi United, Manchester City
náði aðeins jafntefli 1—1 á móti
Blackpool. Meistararnir Notting-
ham Forest sigruðu hins vegar
Oxford 5—0.
Úrslit urðu pessi í deildarbik-
arnum, priðju umferð:
Aston Villa—Crystal Palace 1—1
Blackpool—Manch. City 1—1
Chester—Norwich 0—2
Chesterfield—Charlton \ 4—5
Exeter—Bolton 2—1
Manchester—Watford 1—2
Oxford—Nott. For. 0—5
Úrslit í skoska deildarbikarn-
um: Arbroath—Airdrie 1—1
Celtic—Motherwell 0—1
Falkirk—Ayr 0—2
Hamilton—Aberdeen 0—1
Hibernian—Clydebank 1—0
Kilmarnock—Morton 2—0
Raith Rovers—Montrose 3—0
Rangers—St. Mírren 3—2