Morgunblaðið - 08.10.1978, Qupperneq 14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 1978
14
IVIynil um ungu kynslóóína í dag
HÁSKÓLABÍÓ hóí í gær sýningar á bandarísku kvikmyndinni
Saturday Night Fever, eða LaugardagskvöldsíáriÓ. í aðalhlutverkum
er leikarinn John Travolta og er það leikur hans í þessari mynd sem
fært hefur honum frægð og frama, en myndin hefur farið mikla
sigurfór um Bandaríkin, Evrópu og víðar frá því að hún var frumsýnd
fyrir 10 mánuðum.
Laugardagskvöldsfárið hlaut
góðar viðtökur þegar í upphafi og
hjálpaði þar til að tónlistin í
myndinni var vel þekkt meðal
æskunnar, þar sem sum laganna
höfðu komist í efstu sæti
vinsældalista austan hafs og
vestan um tveimur vikum áður en
myndin var frumsýnd, Er myndin
nú orðin ein tekjuhæsta kvikmynd
sögunnar.
Umrædd kvikmynd höfðar til
þeirrar kynslóðar sem í dag er á
aldrinum 15—25 ára. Margir á
þessum aldri finnst þeim án efa
kannast mjög við söguþráð
myndarinnar og boðskap. Fyrir
mörgum er viðfangsefnið ákaflega
náið. í stuttu máli fjallar myndin
um ungu kynslóðina í dag. Þunga-
miðjan er skemmtanaþrá unga
fólksins, diskóteklífið, tízkan og
tónlistin sem þar þrífst. Víða er
komið við. Fjallað er um kynslóða-
bilið, vandamál í sambúð miðaldra
foreldra og táningspilts.
Asteytingarsteinninn þar er fram-
tíð sonarins, en foreldrarnir,
einkum faðirinn, sætta sig ekki við
líferni pilts. Telja foreldrarnir að
hið áhyggjulausa og stefnulausa
hátterni piltsins sé ekki í þeim
anda að það verði til að tryggja
hann í framtíðinni. Mismunandi
gæðamat kemur berlega í ljós.
John Travolta leikur í myndinni
ungan piit sem starfar í máln-
ingarvöruverzlun. Pilturinn er að
jafnaði uppfullur af áhugamáli
sínu sem er dans og er sambúð
hans við vinnuveitandann stirð á
tímum. Uppsagnir og endurráðn-
JiIIian horfir á fljúgandi furðuhlutinn nálgast R«y hjástrar við fjallið sitt
Sagt frá myndinni „Olose Encounters“ sem Stjörnubíó er byrjað aö sýna
í návist hins ókunna
UNGUR maður stendur og mótar aí miklu kappi strýtulaga íjallslíki á
stoíuborðinu heima hjá sér meðan sjónvarpið lætur móðan mása við
hlið hans. Ung kona er á sama tíma að reyna að rissa upp mynd af
•/ • * /j /
i
tómið. Skyndiiega er athygli þeirra beggja vakin á fréttafrásögn í
sjónvarpinu og þegar á skjáinn kemur mynd af fjallinu Djöflaturni í
Wyoming í Bandaríkjunum er eins og þau hjúin fái hugljómun hvort í
sínu lagi, í skyndi tína þau saman alit sitt hafurtask og æða af stað til
Atriðið, sem hér er lýst, er
vendipunkturinn í kvikmyndinni
„Close Encounter of the Third
Kind,“ sem Stjörnubíó hefur nú
byrjað sýningar á. Ungi maðurinn,
Roy Neary, sem leikinn er af
Richard Dreyfus, og unga konan,
Jullian Guiler, sem Melinda Dillon
leikur, hafa bæði orðið fyrir sömu
reynslu — þau hafa komizt í
snertingu við hið ókunna; fljúg-
andi furðuhluti. Roy og Jillian eru
ekki sömu manneskjur á eftir.
Kona Roys yfirgefur hann ásamt
börnunum, þar sem hann er farinn
að hegða sér í meira lagi undar-
lega, en Jillian hefur orðið fyrir
því áfalli að hið ókunna afl tælir á
brott son hennar fjögurra ára.
Það er einna helzt hægt að líkja
reynslu þeirra Roys og Jillian við
það, að þau hafi orðið fyrir
furðuljósum á líkan hátt og þegar
fólk verður fyrir bifreiðum, en
áverkinn þó aðeins minni háttar
brunasár. Hins vegar hefur fyrir-
bærið skilið eftir mark sitt djúpt í
undirmeðvitund þeirra, einhvers
konar strýtuímynd, sem þau geta
ekki gert sér fyllilega grein fyrir
en ásaækir þau Jillian og Roy og
reyndar miklu fleiri, því að eftir
frásögn sjónvarpsins af miklum
varúðarráðstöfunum í grennd við
Djöflaturn í Wyoming streymir
þangað fólk sem hefur orðið fyrir
áþekkri lífsreynslu og söguhetj-
urnar.
Þarna er þá fyrir hópur vísinda-
manna undir forystu Frakkans
Lacombe, sem franski leikstjórinn
Francois Truffaut leikur, og hefur
svæðið verið rammlega afgirt
vegna tilrauna sem þarna fara
fram varðandi fljúgandi furðu-
hluti utan úr geimnum. Farið er
með tilraunir þessar sem hernað-
arleyndarmál, en engu að síður
tekst þeim Jillian og Roy að
brjóstast í gegn inn á tilrauna-
svæðið og verða þar vitni að því
þegar jarðarbúar ná í fyrsta sinn
sambandi við verur utan úr
geimnum. Hins vegar er óþarfi að
eyðileggja spennuna fyrir kvik-
myndahúsgestum með því að
tíunda söguþráðinn frekar.