Morgunblaðið - 08.10.1978, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 08.10.1978, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. OKTÓBER 1978 31 Fitumaíling loðnunnar á íslandi: Ólík efnis- og sýn- istaka hér og í Noregi LOÐNUSJÓMENN hafa lýst yfir óánægju með þær mælingar sem gerðar eru á fituinnihaldi loðnuaflans um þessar mundir og hafa þeir sagt að loðna, sem fitumæld er á íslandi, sé 2—3% fitusnauðari en loðna af sömu miðum sem fitumæld er í Noregi. Morgunblaðið leitaði upplýsinga um þetta mál hjá Emilíu Martinsdóttur Fjöldi eintaka sem opinberar stofnanir kaupa ekki nálægt 200 — segir ritstjóri Dagblaðsins „ÉG veit ekki hver talan er á þeim eintökum sem opinberar stofnanir kaupa af Dagblaöinu, en hún stendur ekki á 200 né neinni tölu nálægt henni,“ sagði Jónas Kristj- ánsson ritstjóri Dagblaösins er Mbl. spurði hann í gær’ hversu mörg eintök af Dagblaðinu væru seld opinberum stofnunum. „Það er enginn samgangur á milli 200 eintakanna sem ríkið kaupir af hinum blöðunum í einu lagi og okkar lausu eintaka, sem einstak- ar stofnanir kaupa og greiða hver fyrir sig,“ sagði Jónas, „enda segir Höskuldur Jónsson ráðuneytis- stjóri fjármálaráðuneytisins í samtali í Mbl. í gær að hluta ríkisstyrksins sé varið til kaupa á 200 eintökum fimm dagblaða en að Dagblaðið sé þar undanskilið." Einar Karl og Ami Bergmann ritstjórar Þjóðviljans FRAMKVÆMDASTJÓRN Alþýðubandalagsins hefur fyrir sitt leyti fallizt á að Arni Bergmann og Einar Karl Har- aldsson verði ráðnir ritstiórar Þjóðviljans í stað Kjartans Olafs- sonar og Svavars Gestssonar. Stjórn útgáfufélags Þjóðviljans mun ganga frá ritstjórnarráðn- ingunum á fundi á mánudaginn. Árni Bergmann hefur að undan- förnu haft umsjón með sunnu- dagsblaði Þjóðviljans og Einar Karl verið fréttastjóri Þjóðviljans. Svavar Gestsson viðskiptaráð- herra hefur látið af störfum ritstjóra við Þjóðviljann, og Kjart- an Olafsson mun einnig taka sæti á Alþingi, sem kemur saman á þriðjudaginn. Loðnuveiðar „Á þessum fundi norrænu sam- starfsnefndarinnar um sjávarút- vegsmál munu íslenzku fulltrúarn- ir reifa málið um Jan Mayen loðnuna við Norðmenn. Um fram- hald þess get ég ekkert sagt á þessu stigi, en málið kemur ólíklega upp aftur fyrr en að ári,“ sagði Jón Arnalds ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsmáalaráðuneytinu í samtali við Mbl. Norræna samstarfsnefndin um sjávarútvegsmál kemur saman í Bergen 12. og 13. október og sitja fundinn af íslands hálfu Már Elísson, Jakob Jakobsson og Ágúst Einarsson. efnaverkfræðingi hjá Rannsóknastofnun fisk- iðnaðarins. „Her á landi er fitumæling á sama hátt og í Noregi,“ sagði Emilía, „nema að Norðmenn nota annað efni en við til þess að leysa upp fituna. Það efni heitir bensen og er mjög hættulegt í notkun, enda eru Norðmenn að hverfa frá notkun þess. Bensen leysir einnig upp meiri fitu en ether og jafnvel sumt sem ekki er fita. Við notum hins vegar eter til þess að leysa upp fituna, en það þýðir 1% lægri fitu, en 1% hærra fitufrítt þurrefni. Þá ber þess að geta að Norðmenn taka 3 sýni annað- hvort efst í lestinni eða úr miðju en aldrei nálægt botni. Hér eru sýnin tekin á hálftíma fresti af færibandi við löndun. Ef sjór er notaður við löndun þá lækkar hlutfall bæði fitu og þurrefna í sýninu og einnig vigtast sjórinn ef hann kemur með inn í verksmiðjuna. Það hlýtur hins vegar ávallt að vera álitamál hvar á að taka sýnin, en kaupendur og seljendur ákváðu það sín á milli fyrir tveimur árum og eftir því vinnum við.“ Forráðamenn síðdegisblaðanna: Höfðu ekki sam- band við mig út af ákvörðuninni — segir viðskipta- ráðherra „ÞAÐ ER rétt. að við Davíð töluðumst við um síðustu mánaðamót og síðan höfum við hitzt að máli. þar sem við eiguni báðir sæti í stjórn Blaðaprents. Hins vegar höfðu forráðamenn síðdegisblaðanna ekki samband við mig út af þessari sérstöku ákvörðun þeirra í verðlagsmálun- um og það er það sem mér finnast undarleg vinnubrögð," sagði Svavar Gestsson viðskiptaráð- herra er Mbl. leitaði til hans í gær vegna þeirra ummæla Davíðs Guðmundssonar framkvæmda- stjóra Vísis í samtali við Mbl.. að kvörtun viðskiptaráðherra um að ekki hefði verið haft samhand við hann vegna málsins væri órétt- mæt. Að öðru leyti kvaðst Svavar ekki vilja ræða þetta mál frekar á þessu stigi. /markamjr BYRJAR Á MORGUN 40-80% AFSLATTUR Á ÖLLUM VÖRUM VERZLUNARINNAR. KOMDU STRAX OG GERÐU REYFARAKAUP

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.