Morgunblaðið - 29.10.1978, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 1978
Orgeltónleikar
Undir yfirskriftinni
ColleKÍum Musicum hélt Imelda
Blöchlijíer tónleika í Kristkirkju
s.l. föstudag. Tónleikarnir hóf-
ust á Sónötu nr. 5 eftir Mendels-
sohn. Sem orgeltónskáld er
Mendelssohn frekar einhæfur.
Þykkur hljómbálkur meö óaflát-
anlegum endurtekningum smá-
stefja er einkennandi fyrir flest
orgelverk hans. Annað verkefn-
iö var eftir Brahms, fimm
sálmforleikir úr op. 122. Sumir
sálmforleikirnir eftir Brahms
eru gullfallegar tónsmíöar og
vandasamt að finna þeim fal-
Tónllst
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
lega raddskipan. Ekki var orgel-
iö vel hreint, þó stillt hafi það
verið eftir því sem undirrituðum
var sagt. Skemmtilegasta verk-
ið, sem Imelda Blöchliger lék, er
eftir César Franck og heitir
Pastorale. Þar fór víða saman
góður leikur og reisuleg tón-
smíð. Aría eftir Alain er nokkuð
snoturt verk en sundurlaust í
formi. Tónleikunum lauk með
gotneskri svítu op. 25 eftir Leon
Boellmann.
Svítan er á köflum þægilegt
verk og endar á rismikilli
Tokkötu. Imelda Blöchliger er
góður orgelleikari en heldur er
svona efnisskrá einhæf, bæði
hvað stíl og gerðir tónverka
snertir, til að gera sér vel grein
fyrir getu orgelleikarans.
A laugardaginn kemur heldur
Imelda Blöchliger fyrirlestur
um orgel og orgelsmíði í Sviss og
fer fyrirlesturinn fram í Norr-
æna húsinu.
Sjómannablaðið Víkingur 40 ára
Sjómannablaðið Víkingur hefur
um þessar mundir komið út i 40 ár
og er síðasta tölublað Víkings 40
ára afmælisrit. Ritstjóraskipti
hafa orðið hjá Víkingi og lét
Guðmundur Jensson af því starfi
og við tekur Guðbrandur Gíslason.
í frásögn blaðsins af ritstjóra-
skiptunum eru Guðmundi þökkuð
margra ára störf í þágu blaðsins og
vonast eftir að blaðið megi enn
njóta krafta hans með því að senda
því greinar og annað efni, og hinn
nýi ritstjóri er boðinn velkominn,
en hann hefur m.a. starfað við
blaðamennsku, kennslu og sem
fulltrúi hjá Ferðamálaráði íslands.
Meðal efnis í þessu tölublaði
Víkings er grein um öryggi fiski-
skipa eftir Hjálmar R. Bárðarson,
viðtal við Markús Guðmundsson
1939 40afaiælisrit 1978
Forsíða afmælisritsins.
eftirlistmann sjávarútvegsráðu-
neytisins, Guðmundur Hallvarðs-
son og Steinar Sigurjónsson rita
greinar, sagt er frá norrænni
fiskveiðiráðstefnu og birtar eru
launatöflur FFSÍ og Stýrimanna-
félagsins.
I ritstjórnargrein segir m.a.:
„Víkingurinn tekur stakkaskiptum
á fertugsafmælinu. Þakka ber það
sem vel hefur verið gert í útgáfu
blaðsins á undanförnum árum —
það er vissulega margt sem liggur
ekki gleymt. En því er eins farið
með tímarit og önnur mannanna
verk, að eigi þau að halda notagildi
sínu verða þau að aðlaga sig
aðstæðum hverju sinni, tileinka sér
ný og síbreytileg viðhorf. Með þetta
í huga var ákveðið að breyta útliti
Víkings og auka fjölbreytni efnis
sem hann flytur lesendum sínum.“
m(KVTM(
Jól á skíðum
Austurríki
22.12—5.1.
(nt^VTMC
FERÐASKRIFSTOFA
lönaöarhúsinu - Hallveigarstíg 1,
s. 28388 — 28580.
Brldge
Umsjóni ARNÓR
RAGNARSSON
Frá Tafl- og
bridgeklúbbnum
Sl fimmtudag hófst hjá
félaginu fimm kvölda hrað-
sveitakeppni með þátttöku 18
sveija. Spilað var í tveimur
riðlum og varð árangur efstu
sveita þessii
A-RIÐILL.
Sveit Sigurðar
Steingrímssonar 676
Sveit Gests Jónssonar 647
Sveit Eiríks Helgasonar 618
B-RIÐILL.
Sveit Margrétar
Þórðardóttur 643
Sveit Ingvars Haukssonar 626
Sveit Ingólfs Böðvarssonar 614
Meðalárangur 576.
Næsta spilakvöld verður á
fimmtudag í Domus Medica og
hefst klukkan 19.30.
Breidgedeild
Breiðfirðinga
Fjórtán sveitir mættu til
leiks í aðalsveitakeppni félags-
ins sem hófst sl. fimmtudag.
Fjórar sveitir unnu leiki sína
hreint og eru með 20 stig. Þær
eru: Sveit Jóns Stefánssonar,
Ingibjargar Halldórsdóttur,
Hans Nielsens og Hreins
Hjartarsonar. Sveit Elíasar
Helgasonar hefir 17 stig og
sveit Sigríkar Pálsdóttur 13.
Keppni þessi mun standa í 13
kvöld.
TELPURNAR á myndinni, sem heita Erna Björg
Bjarnadóttir og Helga Bryndís Jónsdóttir — og eiga
heima vestur á Seltjarnarnesi, efndu fyrir nokkru til
hlutaveltu til ágóða fyrir Krabbameinsfélag Reykjavík-
ur, að Sæbraut 17 þar í bæ. Söfnuðu þær 11.000 krónum
til félagsins.
ÞESSAR telpur efndu fyrir nokkru til hlutaveltu vestur
á Seltjarnarnesi til ágóða fyrir Styrktarfél. vangefinna.
Söfnuðu þær 6200 krónum til félagsins. — Telpurnar
heita. Sonja Victorsdóttir, Hlín Osk Þorsteinsdóttir,
Guðbjörg Ruth Kristjánsdóttir og Sigrún Sif Kristins-
dóttir.
NÍU þúsund og níu hundruð krónur söfnuðust á
hlutaveltu sem þessir krakkar efndu til í Espigerði 4 hér
í bænum, til ágóða fyrir Sjálfsbjörg, lamdssamb.
fatlaðra. Krakkarnir heita. Birna P. Kristinsdóttir,
Kristín G. Jónsdóttir, Agnes Ólafsdóttir og Lára
Ásgrímsdóttir. Á myndina vantar Magnús Kristinsson.
ÞESSIR krakkar efndu fyrir nokkru til hlutaveltu að
Kópavogsbraut 93 í Kópavogi til ágóða fyrir Styrktar-
félag vangefinna. Söfnuðu þau 1600 krónum. Börnin
heita. Bergþóra Ólafsdóttir, Bryndís Ingimundardóttir
og Davíð ölafsson.