Morgunblaðið - 29.10.1978, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 1978
29
nokkuð keimlíkt efni „Tívolís".
Góður hornblásturs Viðars er
nokkuð einkennandi í laginu, sem
er líflegt með tíðum taktskipting-
um. I enda lagsins er nokkuð
skemmtileg samlíking; „Nú eru
endurnar á Tjörninni / með
rassmótora í pöntun, sterka og
stóra/ þær heita andfræðingar
núna/ vilja komast í B-4“. Hér er
eitt kýlið (eða kannski afleiðing af
öðru!).
„Sjómennirnir
hafa Þaö gott“
syngur Valgeir i laginu „N-9“ sem
fjallar reyndar um misgóða, fyrstu
sjóferð sjómanns nokkurs. Björg-
vin Gíslason (gítar) og Lovísa
Fjeldsted (selló) setja svip á lagið
með leik sínum.
„Gæfa eða
gjörvileiki“
er gott jazzað sveiflulag með
skemmtilegum undirleik og ágæt-
um söng Sigrúnar Hjálmtýsdóttur,
eins og hennar er von og vísa. Þó
verður að segjast að textinn er
ekki beysinn.
„Eitt sinn hippi
ávallt hippi“
Sigurður Bjóla sér hér um sönginn
í rólegra lagi og húmorísku.
„Njáll og
Bergþóra“
heitir lagið sem slær botninn í
fyrri hliðina á ógleymanlegan
hátt. Sigrún syngur hér hressi-
legasta lag plötunnar og að
margra mati það besta. Textinn
fjallar um svipað fólk og í laginu
„Sturlu", eða eins og kemur fram í
textanum „þau eru róttækt menn-
ingarsnobb".
„Græna
byltingin“
er afar létt of líflegt lag sem
Valgeir syngur, og líklegt til
vinsælda. Platan sjálf er tileinkuð
þessu lagi þar sem hulstrið,
textablað og sjálf platan eru græn.
„Margar eru nefndirnar/ en
hvurnig er með efndirnar/ sem
sumir lofuðu sumum?"
„Elliheimilið
Grund“
er án efa lag eftir Sigurð Bjólu en
það er sungið af Sigrúnu. Textinn
fjallar um líf á elliheimili á sinn
dapra og vonlausa hátt, sem
speglast í laginu. Flautuleikur
Halldórs Pálssonar setur mynd-
rænan svip á lagið og gefur því
„andlit".
„Aksjónmaðurinn“
Hér er Valgeir á ferð með sögu um
aðalhetjuna í „Barbie“-dúkku-
seríunni. Eins og aðrir fram-
kvæmdamenn (á ýmsum sviðum)
er aksjónmaðurinn „sannfærður
um gildi þess að vera sannfærður"!
Annars er hér á ferðinni sá texti á
plötunni sem hægt er að lesa mest
út úr, þó Spilverksmenn hafi
kannski ekki reiknað dæmið þann-
ig-
„Páfagaukur“
er líklega slakasta lagið á plöt-
unni, þótt reynt sé að styrkja það
með góðum saxófónleik.' Sigurður
syngur þetta lag sem endar á
þessum línum „60 manns sátu
sveittir í dag/ og reyndu að koma
druslunni í lag/ þeir reyna og
reyna og reyna og reyna/ skipti á
minni bíl koma til greina".
„ísland“
titillagið endar svo þessa ágætu
plötu. Lagið um Island er á
mörkum þessa að vera lof og last,
en það endar á klassísku kýli,
herstöðvarmálinu. Lagið er nokk-
uð líflegt og hressilega sungið af
Sigurði.
- O -
Þeir sem vilja eiga það besta af
íslenskri dægurlagatónlist ættu
ekki að láta Spilverksplöturnar
fram hjá sér fara, hvorki þessa né
þær sem á undan henni komu.
HIA.
Póker hætía
alvinnu-
mennsku
Hljómsveitin Póker er í þann
mund að hætta atvinnumennsku
í tónlistinni. Stafar það einfald-
lega af því að grundvöllur fyrir
starfsrækslu hljómsveitar af
þeirra tagi er sáralítill hérlendis
í dag. Smám saman hefur
fótunum verið kippt undan
slíkri starfsemi fyrst með missi
Tónabæjar síðan hafa húsin
hvert af öðru tekið upp diskótek.
Svo má líka segja að plötuútgáfa
hafi spilað sterklega inn i málið,
tilbúnar hljómsveitir sérhæfðar
í nytjatónlist hafi þótt arðbær-
ari til útgáfu.
Póker sem er í dag skipuð
Pétri Kristjánssyni, Björgvini
Gíslasyni, Kristjáni Guðmunds-
syni, Pétri Hjaltested, Ásgeiri
Óskarssyni og Jóni Ólafssyni,
mun því lítið láta heyra í sér á
næstunni nema eitthvað sér-
stakt komi til.
Þeir fóru utan til Bandríkj-
anna í ágúst síðastliðnum og
léku í Bay St. Louis í klúbb
Jerry Fishers, fyrrum söngvara
Blood Sweat & Tears, og fengu
ágætisundirtektir. Stúdíó eitt
sem heitir Studio in the Country
sýndi áhuga og vildu forsvars-
menn stúdíósins reyna sitt til að
koma Póker á framfæri.
Stúdíóið hefur til þessa verið
mikið notað af hljómsveitinni
Kansas sem er nokkuð fræg
vestra. Þeir vilja að Póker taki
upp efni hjá þeim sem stúdíóið
sjái svo um að koma á framfæri
eða gefa jafnvel út sjálft.
Annars er of snemmt að segja
frá þessum málum nú þar sem
línurnar eru álls ekki orðnar
skýrar enn, en við skulum vona
að þeir þurfi ekki að leggja upp
laupana án þess að skilja eftir
sig allavega eina breiðskífú, sem
ætti þó aö vera löngu útkomin.
Lambert er nú hættur og
hljómsveitin að leita eftir
nýjum liðsmanni. Lambert
leikur þó á nýju plötunni.
WHITESNAKE
hljómsveit Dave Cover-
dale fyrrum söngvara Deep
Purple hefur bæst liðsauki
í fyrrum stjórnanda Deep
Purple, Jon Lord. Lord
leikur á væntanlegri
breiðskífu Whitesnake,
„TROUBLE“.
PETER TOSH
fyrrum liðsmaður Bob
Marley & Wailers, er að
gefa út plötu hjá EMI
„BUSH DOCTOR“, en á
þeirri plötu leika bæði
Keith Richard og Ronnie
Bob Dylan
Wood og Mick Jagger
syngur í einu laganna.
Annars er Tosh all illa
haldinn þessa dagana eftir
að lögreglan í Jamaica
komst að því að hann var
að reykja ólöglega tóbaks-
tegund. Tosh sem var sett-
ur inn, kom úr fangelsinu
með gat á höfði sem þarfn-
aðist 20 spora og með
brotinn handlegg, og
nokkrar kærur á hendur
lögreglunni.
VAN MORRISON
er nýbúinn að gefa út
„WAVELENG HT“ sem er
talin hans besta í langan
tíma. Hjálparmenn hans á
plötunni eru t.d. Garth
Rod Stewart
Hudson, sem var í Band og
Peter Bardens, sem var í
Camel.
BEACH BOYS
eru líka nýkomnir með
nýja plötu „M.I.U. Album“
sem er þeirra síðasta fyrir
Reprise. Platan fær yfir
höfuð góða dóma.
FRANK ZAPPA
er með nýja plötu í
búðunum „STUDIO TAN“
sem átti að vera komin út
fyrir um ári síðan
NEIL YOUNG
er loks búinn að gefa út
„COMES A TIME“ og fær
sú góðar viðtökur erlendis
og er sögð hans besta síðan
„HARVEST" kom út. HIA
Van Morrison
Rosc Royce.
Vinsældalistar
EINA vikuna enn eru skötuhjúin John Travolta og Olivia Newton-John í
efsta sæti brezka vinsældalistans og er allt útlit fyrir að þeim verði ekki
velt úr sæti fyrir jól. Mesta athygli þessa vikuna vekur þó ekki
sigurganga þeirra heldur það að ELO og Leo Sayer virðast vera á leið
niður lisfann án þess að hafa nokkurn tíma komist ofarlega á blað.
Annað nýju laganna, „MacArthur park“, hefur gert það gott í
Bandaríkjunum að undanförnu og engin hætta er á öðru en að það verði
einnig vinsælt í Bretlandi.
Aðeins eitt nýtt lag er á bandaríska listanum þessa vikuna og eru það
Captain and Tennille, sem það flytja. Gömlu hljómsveitirnar tvær,
Rolling Stones og Who, eru á svipuðum stöðum og í liðinni viku, en þó er
ótrúlegt hve vinsældir Stones eru í Bandaríkjunum um þessar mundir.
John Paul Young nýtur greinilega mikillar hylli meðal ungra Frónbúa,
því hann er í efsta sæti topp fimm listans, en á lista Óðals er Exile efst.
Nýju lögin tvö á „litla“ íslenzka listanum eru vís til afreka, einkanlega
þegar menn eins og Billy Joel eiga í hlut.
Að endingu er rétt að fara nokkrum orðum um lista þeirra í
Vestur-Þýzkalandi, en hann er svo til óbreyttur. Aðeins eitt nýtt lag er á
þessum lista og flytja þeir Marshall og Hain það.
London.
1. (1) Summer night — John Travolta og Olivia Newton-John.
2. (3) Rasputin — Boney M.
3. (4) Sandy — John Travolta
4. (2) Lucky stars — Dean Friedman
5. (10) Rat trap — Boomtown Rats
6. (5) Love don’t live here anymore — Rose Royce
7. (16) MacArthur park — Donna Summer
8. (6) Sweet talkin’ woman — Electric Light Orchestra
9. (8) I can’t stop loving you — Leo Sayer
10. (24) The public image — Public Image Ltd.
New York.
1. (1) Hot child in the city — Nick Gilder
2. (2) Kiss you all over — Exile
3. (7) MacArthur park — Donna Summér
4. (4) You needed me — Anne Murray
5. (5) Whenever I call you „friend" — Kenny Loggins
6. (3) Reminiscing — Little River Band
7. (10) Beast of burden — Rolling Stones
8. (8) Right down the line — Gerry Rafferty
9. (9) Who are you — Who
10. (12) You never done it like that — Captain og Tenille
Reykjavík, „Topp fimm“ úr þættinum „Á tíunda tímanum“
1. (1) Love is in the air — John Paul Young
2. (2) Summer night city — ABBA
3. (3) Summer nights — John Travolta og Olivia Newton-John
4. (—) My life — Billy Joel
5. (—) Picture this — Blondie
Reykjavík. „Óðal top ten’*
1. (6) Kiss you all over — Exile
2. (1) You make me feel — Sylvester
3. (5) Got a feeling — Patrick Juvet
4. (4) Best of both worlds — Robert Palmer
5. (3) Love is in the air — John Paul Young
6. (2) Dreadlock holiday — 10 CC
7. (12) Blame it on the Boogie — Jacksons
8. (14) On what a cirkus — David Essex
9. (7) Boogie, oogie, oogie — A Taste Of Honey
10. (10) Mellow loving — Judy Cheeks
Bonn
1. (1) You’re the one that I want — John Travolta og Olivia Newton-John
2. (2) Mexican girl — Smokie
3. (3) Summer night city — ABBA
4. (7) Rasputin — Boney M.
5. (5) Gimme gimme you love — Teens
6. (4) Oh Carol — Smokie
7. (6) Miss you — Rolling Stones
8. (8) Baker street — Gerry Rafferty
9. (11) Dancing in the city — Marshall og Hain
10. (9) Eagle — ABBA