Morgunblaðið - 29.10.1978, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 1978
svæðis höfðu í marga daga orðið
varir við undarletjan ljósagang á
lofti, aðallega að nóttu til en þó
stöku sinnum að degi til. Hinn 27.
júní 1959 var sr. Gill sóttur inn til
sín til að koma út að skoða
undarlegan hlut sem hékk í loftinu
nokkur hundruð metra frá skóla-
húsinu. Gill og menn hans fóru út
og sáu egg-laga hlut með lending-
arbúnaði. Efst á hlutnum var
pallur — sem virtist einna helzt
vera ætlaður til athugana. Hlutur-
inn hækkaði sig og hvarf af
svæðinu. Næsta dag kom hlutur-
inn aftur. I þetta sinn seig hann
hægt til jarðar meðan sjónarvott-
ar horfðu furðu lostnir á úr aðeins
um 30 metra fjarlægð. Meðan
hluturinn lækkaði sig sáu sjónar-
vottar nú „menn" á pallinum efst á
hlut þessum. Þeir virtust vera að
vinna við eitthvað — að viðgerð
eða einhverju í þá áttina. Meðan
annar „áhafnarmanna“ var niður-
sokkinn við vinnu sína, leit hinn í
átt til séra Gill og hinna áhorfend-
anna.
Ósjálfrátt veifaði sr. Gill hend-
inni til „áhafnarmannsins".
Skyndilega l.vfti „áhafnarmaður-
inn“ hendinni og veifaði, eins og
hann væri annað hvort að líkja
eftir klerki eða svara merki hans.
Prestur endurtók kveðju og
„áhafnarmaðurinn" svaraði í sömu-
mynt. Brátt voru allir sjónarvott-
ar farnir að veifa höndunum og
„áhafnarmaðurinn" svaraði á
móti. Séra Gill tók skýrslu af
öllum sjónarvottunum, gerði mæl-
ingar í því skyni að áætla stærð
hlutarins og hefur hin ítarlega og
greinargóða skýrsla hans því að
geyma eitt frægasta tilfellið frá
K.vrrahafssvæðinu.
• Þáttur bandaríska
flughersins
Hinir fljúgandi furðuhlutir
hafa hvergi verið rannsakaðir
betur en í Bandaríkjunum og er
þáttur bandaríska flughersins þar
í lang mikilvægastur. Hlutur hans-
hefur þó verið æði vanþakklátur,
því að enda þótt sérfræðingum
hersins hafi tekizt að koma með
skýringar um eðlilegan uppruna
flestra þessara fyrirbæra, þá hefur
þeim ekki tekizt að skýra þau öll
og þannig hvorki tekizt að sanna
að fljúgandi furðuhlutir utan úr
geimnum séu hugarburður né að
tilvist þeirra sé staðreynd. I
hugum margra áhugamanna um
þetta efni er trúin á þessi
fyrirbæri slík að kalla má trúar-
brögð, og þessir aðilar hafa einatt
sakað flugherinn og bandarísk
yfirvöld um samantekin ráð að
þegja þetta mál í hel og sögusagnir
hafa verið á kreiki um, að þrír
fljúgandi diskar séu faldir í helli í
Hynek, fyrrum ráðunautur bandaríska flughersins við
landabréf þar sem merkt er inn á hvar sést hefur til fljúgandi
furðuhluta í Bandaríkjunum og til hliðar eru sýnishorn af
myndum sem hann á í fórum sínum.
Colorado Spring af flughernum og
að lík tveggja lítilla geimvera frá
fari utan úr geimnum, er farist
hafi hér á jörðu, séu geymd í vökva
í kjallara tæknideildar flughersins
í Ohio.
Bandaríski flugherinn hófst
fyrst handa um athuganir á
þessum fyrirbærum seint á
fimmta áratugnum þegar frásagn-
ir fóru að berast um undarlegan
ljósagang og fyrirbæri á himni frá
l!©fn)(§ IRW
...er Philips mest seiaa
myndseguibandiö í Evrópu?
Ástæðurnar eru margar. Við getum nefnt hin frábæru mynd og tóngæði
Philips. Líka mætti nefna.að tækiö er sérstaklega einfalt í notkun.
Kostir Philips VCR kerfisins koma best í Ijós á litsjónvarpstækjum með
stórum skermum en það er sú gerð er flestir Evrópubúar kjósa.
Philips kerfiö er það eina á markaönum í dag, sem hannað er í Evrópu fyrir
evrópska litsjónvarpskerfiö.
Philips myndsegulbandið hentar öllum. Það hentar vaktavinnufólki,
sjómönnum og öllum öörum, sem ekki geta sest niöur við sjónvarpið hvenær
sem er. Fjölskyldur í fjölbýlishúsum geta sameinast um tæki og sent út t.d.
barnatíma á laugardagsmorgnum.
Philips myndsegulbandið er stillanlegt þrjá sólarhringa fram í tímann og
sjálfvirkni tryggir vel heppnaöa upptöku. Viöhald Philips myndsegulbandsins
er auk þess einfaldara en annarra sambærilegra tækja.
Þess vegna kaupa flestir Philips myndsegulband.
heimilistæki sf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655
ýmsum áreiðanlegum aðilum, enda
var þetta talið geta stafað frá
óvinum landsins og varða öryggi
landsins. Rannsóknin hafði ekki
staðið nema tvær vikur, þegar
Mantell-málið fræga kom upp.
Mantell var flugsveitarforingi,
sem árið 1947 var sendur í flugvél
sinni til að kanna fljúgandi
fyrirbæri, sem sést hafði yfir
Kentucky bæði með berum augum
og á ratsjá. Mantell veitti fyrir-
bærinu eftirför og lýsti því sem
„hlut“, en áður en hann gæti gert
nánari grein fyrir því rofnaði
sambandið við hann og litlu síðar
fannst brakið úr flugvél hans á
jörðu niðri. Málið vakti mikla
athygli og margir eru vantrúaðir á
hina opinberu skýringu hersins
um að Mantell hafi í reynd verið
að elta reikistjörnuna Venus, sem
hafi verið í mjög óvenjulegri stöðu
þessa stund; hann hafi klifrað of
hátt án súrefnistækja og misst
meðvitund.
I kjölfar þessa atviks kom svo
upp Chiles and Witted-málið ári
síðar en þeir voru tveir farþega-
flugmenn, sem sáu úr vél sinni og
lýstu mjög greinilega fljúgandi
furðuhlut, sem þeir höfðu flogið
fram á og virt fyrir sér lengi úr
lítilli fjarlægð. Þetta varð til þess
að ákveðið var að setja á laggirnar
sérstakan starfshóp sérfræðinga
til að ganga úr skugga um hvað
þarna hefði verið á ferð og kanna
fleiri lýsingar til að fá málið út úr
heiminum í eitt skipti fyrir öll.
Þessum sérfræðingahópi tókst að
finna skýringar á flestum fyrir-
bærunum, sem fyrir hann komu,
en þó voru 23% málanna ennþá
óupplýst. Yfirmönnum flughersins
þóttu þau þó þess eðlis að
ástæðulaust væri að halda rann-
sókninni áfram.
Flugherinn neyddist þó strax til
að endurskoða þessa afstöðu sína
vegna þess að bylgja furðuhluta
gekk yfir landið 1952, og þá
blandaðist meira að segja CIA í
málið, enda voru þetta tímar
Kóreustríðsins, McCarthy-ismans
og kalda stríðsins, svo að tor-
tryggnin var í algleymingi. Þá
varð til „Project Blue Book“ eða
Bláa bókin, þar sem sér&tök
rannsóknarnefnd kannaði hin
margvíslegustu fyrirbæri sem vart
varð við og stóð þessi rannsókn
yfir allt til ársins 1969 er henni
var formlega hætt enda lá þá fyrir
sú niðurstaða að þessir furðuhlutir
ógnuðu ekki öryggi landsins.
Nefndarmenn töldu sig líka hafa
eðlilegar skýringar eða komið
fram með líklegar tilgátur á um
94% fyrirbæranna, sem á fjörur
nenfdarinnar rak á þessum tíma.
Einn af sérlegum ráðgjöfum
nefndarinnar var stjörnufræðing-
urinn J. Allen Hynek, sem annað-
ist vettvangsrannsóknir í mörgum
þeirra mála, sem nefndin fékk til
meðferðar, og var lengi helzti
skotspónn ofsatrúarmanna á hina
fljúgandi furðuhluti sakir tegðu
sinnar að fallast á að þeir ættu
uppruna sinn á fjarlægum hnött-
um og setti reyndar allt á annan
endann árið 1966, þegar hann
staðhæfði að sýnir yfir Michigan
stöfuðu af lofttegundum frá
fenjum þar en væru ekki fljúgandi
furðuhlutir, eins og fjöldi sjónar-
votta staðhæðfi. Hynek hefur
síðan að nokkru leyti snúið við
blaðinu. Hann veitir nú forstöðu
sjálfstæðri rannsóknarmiðstöð á
fljúgandi fyrirbærum, segir frá-
sagnir og lýsingar á þeim of
margar og ítarlegar til að unnt sé
að hafna tilvist fljúgandi furðu-
hluta. Hynek var reyndar sérlegur
ráðgjafi Stven Spielbergs við gerð
myndarinnar „Close Enconters of
the Third Kind“ sem nú er verið að
sýna hér.
• Socorro-máliö
Eitt þeirra tilfella sem Hynek
fékk til meðferðar gerðist í
Socorro í Nýju Mexikó 24. apríl
1964. Vegalögreglumaðurinn
Lonnie Zomorra varð var við
svartan Chevrolet, sem ekið var
með ofsa hraða um bæinn og veitti
honum eftirför. Þegar hann var
kominn lítið eitt út fyrir bæinn í
hæðótt landsvæði, heyrði hann
drúnur og veitti eftirtekt blossa á
himninum framundan. Bjarminn
var bláleitur og gulleitur, og það
var eins og hann væri hreyfingar-
laus, sagði Zamora, svo að hann
ákvað að hætta eftirförinni og
kanna hvað þarna væri á ferð.
Hann ók því út af aðalveginum og
eftir troðningum og upp á nálæga
hæð, en tók þá eftir glampandi
hlut um 100 til 150 metra utan við
yeginn. Fyrsta hugsun hans var að
þetta væri líkast bíl og hann
kallaði um talstöðina til aðal-
stöðvanna og gerði aðvart. Lög-
reglumaðurinn í fjarskiptunum
staðfestir þetta og segist síðan
hafa heyrt Zamora stöðva bíl sinn
og stíga út. Zamora lýsir fram-
haldinu þannig: „Meðan ég nálgað-
ist staðinn hélt ég helzt að þetta
væri bíll sem hefði endastungist
stæði upp á endann. Þegar ég tók
að horfa frekar sá ég að þetta var
skínandi hlutur. Hluturinn var
líkastur áli — virtist hvítleitur þar
sem hann bar við mosann en ekki
krómaðir. Mér virtist hann vera
eins og fótbolti (amerískur) í
laginu. Eg sá líka tvær verur í
samfestingi."
Önnur þeirra virðist hafa snúið
sér við og horft beint í átt til bíls
Zamora. Hann minnist þess að
nærvera hans hefði komið verun-
um í opna skjöldu og þær hafi
stokkið upp. Þegar hér var komið
færði Zamora sig nær með það í
huga að veita þeim aðstoð en um
leið og hann nálgaðist heyrði hann
drunur, geysiháværar en þó ekki í
Iíkingu við þotu. Hljóðið kom
snögglega en í lágri tíðni í fyrstu,
en jókst siðan snögglega í ærandi
hávaða. Um leið sá hann eld-
bjarma og hann hentist til baka til
ökutækis síns. Hluturinn byrjaði
að rísa en Zamora beygði sig
niður, féll við, missti af sér
gleraugun en reis upp og hentist
áfram yfir hæðina.
„Ég var hræddur við hávaðann,“
sagði Zamora síðar. „Ég leit við en
hélt um leið höndunum fyrir
andlitinu. Það var enginn hávaði
lengur. Ég leit upp og sá hlutinn
hverfa frá mér. Svo hættu drun-
urnar alveg, ég heyrði hvin ... svo
algjöra þögn.“ Zamora kallaði upp
stöðina, ærður af skelfingu og
meðan hann talaði við vaktmann-
inn í fjarskiptunum horfði hann á
hlutinn hverfa á braut. Lögreglu-
menn komu þegar á vettvang. Þeir
sáu brunna runna á nokkrum
stöðum og fjögur djúp för í
jarðveginum, sem af lýsingu
Zamora að dæma voru eftir fætur
sem farið hafði staðið á. Lögreglu-
menn kölluðu hernaðaryfirvöld á
vettvang, og sérfræðingar rann-
sóknarnefndar flughersins var
kvaddir til. Þeir hafa lýst því yfir
að eftir yfirheyrslu yfir Zamora
geti þeir naumast annað en tekið
frásögn hans trúanlega, eh hafa
ekki getað komið með neinar
haldgóðar skýringar á því hvað
þarna hafi verið á ferð. Raunar
segir í skýrslum nefndarinnar að
einna helzt líti út fyrir að þarna
hafi farið fram tilraunir með
tunglferju á borð við þá, sem
Bandaríkjamenn notuðu síðar við
lendingu sína á tunglinu — en
jafnframt tekið fram að ekki hafi
tekizt að fá neins staðar staðfest
að unnið hafi verið að tilraunum
með ferjuna á þessum slóðum er
þetta gerðist.
(Byggt á: UFO’s Past, Present &
Future eftir Robert Emenegger.)