Morgunblaðið - 29.10.1978, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 1978
27
Þegar ég kom hingað til Reykja-
víkur, voru viðbrigðin eðlilega
mikil. — Nú var ég ekki lengur
sjálfs míns herra, sagði Ottó, og
varð að fara inn á hinn almenna
vinnumarkað verkamanna. Það
tók mig reyndar ekki svo langan
tíma að aðlaga mig breyttum
aðstæðum. Lengst af eftir að ég
kom hingað til Reykjavíkur hef ég
unnið í ísbirninum, sagði hann.
Þar sem annars staðar, sem
Ottó hefur komið við sögu, hefur
hann verið hinn jákvæði bjart-
sýnismaður, sem fólk hefur dregizt
að, félagslyndur maður og léttur í
lund og sérlega dagfarsprúður.
Ottó á það til að kasta fram
stöku, ef svo ber undir. Minnist ég
þess frá ailöngum kunningsskap
okkar.
Þú lofaðir okkur í Isbirninum
einu sinni hér í fyrndinni að heyra
vísu um frú Bryndísi Schram
sjónvarpsstjörnu m.m. Ottó?
Já, þú manst eftir því. — Jú, ég
gerði hana er frúin tók þátt í
fegurðarsamkeppni, Ég vona að
það misvirði eða misskilji það
enginn þó ég segi að það hefur
alltaf glatt gömul augu mín að sjá
glæsilegar konur. — Þetta var á
fegurðarsamkeppni fyrir all-
mörgum árum. Hún var kveikjan
að þessari stöku:
Alveg geisla engil mynd,
eldheit hringa tróða.
Tindrar eins og tárhrein lind
töfrar yndi bjóða.
Ottó hefur ætið haft mikla
ánægju af hvers konar mannamót-
um og mannfagnaði og er þar
jafnan hrókur alls fagnaðar. — Og
þegar ættrækni, sem honum er
ríkulega í blóð borin, og ánægja
hans við að blanda geði við aðra
tóku sig saman í huga hans fyrir
þó nokkrum árum, varð hann
aðalhvatamaður þess að stofnað
var niðjafélag foreldra hans Þor-
valds og Sólborgar í Svalvogum.
Sagði Ottó að nú væru komnir í
þetta félag sennilega nokkuð á
þriðja hundrað manns. —
Já, þau hafa skilið eftir sig spor
í sandinum foreldrar mínir, þykir
þér það ekki?
Ég spurði Ottó hvort hann
myndi nú, væri hann ungur maður
vilja gerast vitavörður?
Já, ég held það. Mest vegna þess
að þetta er allt orðið hreinn leikur.
Vitaverðir fá nú alla aðstoð og
hjálp frá vitamálastjórninni, eig-
inlega sama hvort þú þarft að fara
um landveg, sjóveg eða loftsins
vegu.
Ur því þú fórst að tala um þetta,
sagði Ottó, þá verð ég að fá að
koma því að hjá ykkur í Morgun-
blaðinu, vonbrigðum mínum yfir
því að Svalvogaviti skuli standa
mannlaus nú í vetur, a.m.k. eins og
nú horfir. — Og sjálfur radíóvit-
inn, sem þar var settur upp til að
skapa aukið öryggi vegna flugsins
til Þingeyrar, er þar með þagn-
aður. — Það hefði eitt út af fyrir
sig þótt stórmál þar vestra í eina
tíð, þori ég að fullyrða. —
Ég segi þetta, því hvers konar
slysavarnamál hafa jafnan átt hug
minn, sagði Ottó. — Hann sagði
síðan:
Ætti ég mér ósk tengda Sval-
vogum er hún sú að ung hamingju-
söm hjón tækju sig til, færu til
fundar við vitamálastjórann og
bæðu um að fá að gerast vitaverðir
í Svalvogum. Já, þetta væri
afmælisgjöf sem vissulega myndi
gleðja mig og mína konu. Og
sannfærður er ég um að slíkt yrði
gæfuspor ungu hjónanna.
Svona undir lok þessa samtals
okkar Ottós Þorvaldssonar sagði
hann eitthvað á þá leið að hann
vonaöist til þess að hann gæti
farið vestur aftur næsta vor. Svo
hafa málin skipast þar, að hann á
nú býlið Höfn, næsta bæ við
Svalvoga, keypti það fyrir nokkr-
um árum og hefur endurreist
gamla bæinn og notar nú sem
sumarbústað.
Vorstemmningin heima í Sval-
vogum er mér ætíð tilhlökkunar-
efni, sagði hann.
Sv.I>.
í tilefni af afmælinu taka Ottó
og Magnea kona hans á móti
ættingjum sínum og vinum í
Slysavarnafélagshúsinu á Granda-
garði eftir kl. 16 í dag, sunnudag.
Fréttabréf frá Hvammstanga:
Hátt á f jórða tug
húsa í byggingu
Á sl. vori hlýnaði seint og
óttuðust menn jafnvel grasleysisár
og hvers kyns erfiðleika af völdum
veðurs. Lítið varð samt úr þessu,
þótt heyfengur yrði að vísu nokkru
minni en í meðalári. Hinn er svo
hluturinn í haust, að veður hefir
verið einmuna gott og má segja, að
ekki hafi gert snjó og kulda er að
kveði fyrr en í dag. Nú urðu líka
ýmsir að hlaupa til að ná fé sínu
heim og í hús, því að það hafði
verið úti hingað til, að vísu í
nálægum girðingum.
Ef segja á að eitthvað eitt
einkenni staðinn hér þá er það
uppbygging. Það hafa nær aldrei
verið undir 30 hús í byggingu í
einu á undanförnum árum, en hátt
á fjórða tug í byggingu í upphafi
þessa árs. Heil gata er í byggingu
nyrst í þorpinu, Melavegur, eða 20
hús. Þá er byrjað að byggja næstu
götu þar fyrir ofan og 5 hús í
byggingu þar. 5 húsa raðbygging á
vegum sveitarfélagsins við Fífu-
sund, 5 hús við hvora götu,
Hvammstangabraut og Höfða-
braut, auk þess sem á að fara að
byrja á byggingum íbúða fyrir
aldraða. Hefur Lionsklúbburinn
Bjarmi þar riðið á vaðið með að
afhenda til byggingarinnar eina
milljón króna. Ymis önnur félaga-
samtök og einstök félög hafa
heitið svipuðum upphæðum til
þessarar byggingar, þegar hún
hefst. Sitt við hvorn enda Mela-
vegar eru tvær stórbyggingar. Að
norðan frystihús Kauþfélagsins,
ásamt sláturhúsi, sem enn er í
byggingu, svo að nota þarf gamla
sláturhúsið niðri á tanganum enn.
Að sunnan er svo búningsaðstaða
fyrir sundlaug og íþróttahús
komin undir þak, þótt ekki sé hún
fokheld enn. Við Hvammstanga-
braut er að verða fokheld nýbygg-
ing við Mjólkursamlagið. Það
gefur auga leið, að við allar þessar
byggingar vinnur fjöldi manns, en
samt er hér svo tilfinnanlegur
húsnæðisskortur, að t.d. var ekki
hægt að útvega öllum kennurum
húsnæði er þess þurftu í haust.
Sem stendur er hér mikil vinna,
en að lokinni sláturtíð virðist geta
brugðið nokkuð til beggja vona.
Yfir 20 sóttu um vinnu við
Rækjuvinnsluna Meleyri, en að-
eins 11 fengu vinnu. Þá er ekkert
um vinnu fyrir skrifstofufólk.
Segja má að smölun og sláturtíð
hafi gengið vel hér. Hjá sláturhúsi
Káupfélags Vestur-Húnvetninga
er slátrað um 40 þúsund fjár, en
hjá sláturhúsi Verslunar Sigurðar
Pálmasonar, ríflega 10 þúsund
fjár. Þá er og nokkur stórgripa-
slátrun og örfá svín.
Þótt sláturtíðin sé alltaf mikill
annatími, þá var hér einnig
nokkurt líf og fjör í sumar.
Símamenn gistu hér hluta úr
sumrinu og þessa dagana eru að
tengjast nýju húsin í norðurbæn-
um, sem hafa verið símalaus í um
ár, sum hver. En nú er síminn
kominn, en símamennirnir farnir.
Hópur jarðfræðistúdenta frá
Háskóla Islands dvaldist hér í
grunnskólanum í 10 daga í ágúst
og vann að rannsóknum á jarð-
fræði Vatnsness. Athuganir þess-
ar voru liður í þjálfun jarðfræði-
nema í gerð jarðfræðikorta og
mælingu jarðiagssniða og beindust
aðallega að könnun á fornum
jarðlögum og setlögum, en einnig
að jökulmenjum og gömlum
sjávarhjöllum.
Það sem helst kom á óvart var
hve útbreitt líparít er á nesinu og
einnig hversu marga bergganga er
þar að finna en hvort tveggja
bendir til að á Vatnsnesi séu leifar
kulnaðrar megineldstöðvar. Rann-
sóknum þessum verður sennilega
haldið áfram á næstu sumrum á
vegum Háskóla íslands.
Kvenfélögin og líknarfélög hafa
gefið Sjúkrahúsi Hvammstanga
nýtt fæðingarrúm og litasjónvarp
í sumar svo að nokkuð sé nefnt.
Skt. Georgsskátar, þ.e. eldri
skátar af öllu landinu, héldu hér
sitt 15 ára afmælismót í sumar og
komu hingað hátt á annað hundr-
að skátar. Búðir voru settar í
Kirkjuhvammslandi, en þar að-
stoðaði hreppsfélagið og skátar úr
Skátafélaginu Húnar. Var séð
fyrir öllum nauðþurftum fyrir
þetta stórar búðir. Skt. Georgs-
gildin starfa nú í nær 10 bæjarfé-
lögum hér á landi og taka einnig
virkan þátt í norrænu og alþjóð-
legu samstarfi.
Gæsaveiöi hefir verið drjúg í
haust og rjúpa er nokkur á
Vatnsnessfjalli, en mjög stygg.
í maí síðastliönum var sam-
þykkfr skjaldarmerki fyrir þorpið.
Er það þríhyrningur með sneið inn
í yfir öldutoppum. Táknar myndin
fjallið og tangann út frá því, en
neðra leika um öldur Ishafsins.
Merkið teiknaði Bernharð Stein-
grímsson á Akureyri.
Svo að aftur sé vikið að bygging-
um og þá þeim, sem í bígerð eru,
þá eru Heilsugæslustöð hér full-
hönnuð og Rækjustöðin Meleyri,
sem komin er í eigið húsnæði er að
fullgera efri hæð þess. Einnig
stendur til að byggja yfrir sauma-
stofuna Drífu, sem vinnur úr
dúkum úr íslenskri ull frá Pólar-
prjón. Sömuleiðis hyggst Verslun
Sigurðar Pálmasonar hefja bygg-
ingu nýs verslunarhúsnæðis bráð-
lega. Þá hefir verið stofnuð hér
verksmiðja til að vinna mjöl úr
fiskúrgangi, rækjuskel og slátur-
úrgangi. Verður þetta lítil verk-
smiðja og á að fara að hefja
byggingarframkvæmdir.
Þá er ekki síður að verða
nauðsynlegt að byggja yfir grunn-
skólann, en þar er í vetur kennt í
tveim geymslum, til að hægt sé að
rúma þá nemendur er sækja eiga
skólann. Samt er þrísett og
stendur kennsla 4 daga vikunnar
til klukkan 7 að kvöldi.
Segja má að útgerð blómgist
hér, ef borið er saman við það sem
var fyrir nokkrum árum. Eru 5
bátar gerðir út héðan. Stunda 4
þeirra rækjuveiðar að vetrinum en
handfæri, hrefnuveiðar og annað
að sumrinu. Einn er gerður út á
fisk í flóanum allt árið. Fiskur er
saltaður hér, en sumu er landað á
Skagaströnd.
Þá er Kaupfélag Vestur-Hún-
vetninga um það bil að hefja hér
kjötvinnslu og mun vinnsla í
stöðinni sennilega hefjast í næstu
viku.
S.H.Þ.
CI.YSINCASIMINN ER:
22480
fimm bindi
gefin út að nýju í tilefni af áttræðis-
afmæli höfundar.
;í» f. '
I :
§> %
í ; i
i I
T * W l # m
* I '•* ’ iI *'] : ! '1 •*
* I *'V 1 'I
í tilefni af áttræöisafmæli Guðmundar G. Hi
bækur heita:
Ég veit ekki betur
Sjö voru sólir á lofti
limur liðinna daga
Hér er kominn hoffinn
Hrævareidar og himinljómi.
Þessar bækur komu út á tímabilinu 1951 — 1955 og seidust allar upp á skömmgm tíma.
Þessi bindi ævisögunnar segja frá bernsku og æsku höfundarins vestur í Arnarfirði og
Dýrafirði og námsárum hans, blaðamennsku o.fl. í Reykjavík fram um 1920. Að miklum hluta
eru þetta frásagnir af mönnum sem höf. sá til og kynntist og af atburðum sem urðu honum
minnisstæðir. Síðasta bindiö segir t.d. einkum frá kynnum Hagaiíns af skáldum og öðrum
menntamönnum á hans reki og síðar hafa margir hverjir komið mjög við ísfenzka sögu og
bókmenntir.
Eftir að þessi umræddu bindi eru komin út eru fáanleg 7 bindi af sjálfsævisögu Hagaiíns, því
að enn fást bækurnar Stóð ég úti í tunglsljósi.sem kom út 1974 og Ekki fæddur t gær sóm kom
út 1976.
Þau fimm bindi ævisögunnar sem nú koma út eru alis um 1300 bls. að stærö.
Gert er ráð fyrir aö sjálfsævisaga Guðmundar Hagalíns veröi samtals 9 bindi, þ.e. til viðbótar
við hinar umræddu bækur kemur Fílabeinshöllin, sem kom út 1959 og er ófáanleg, og það
bindi sem höfundur er nú að rita — það fjallar um isafjarðarár hans o.fl. — og kemur
væntanlega út á næsta ári.
Almenna bókafélagið
Austurstræti 16