Morgunblaðið - 05.11.1978, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.11.1978, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 1978 í í í ti z i j i t I Páfakjör hans mun ugglaust ekki hafa í för með sér beina breytingu á hinum sérstæðu sam- skiptum ríkis og kirkju í Póllandi. En hjá því mun ekki fara, að hin sálrænu áhrif verði mjög mikil. í Póllandi er Woytyla kardináli talinn helzti forvígismaður aukinna tilslakana gagnvart kirkj- unni. Krafa hans um að kirkjan fái greiðari aðgng að fjölmiðlum, sem hefði það einnig í'för með sér að pólska kirkjan mundi sniðganga ritskoðunina, var nýlega sett fram í opnu bréfi pólskra biskupa. Afstaða hans til fjölmiðla og trúarbragðakennslu í skólum er aðaldeiluefnið við ríkjandi aðstæð- ur í Póllandi. Á því eru mjög miklar líkur að þessi sjónarmið verði áfram tengd persónu Jóhannesar Páls páfa II og að þau muni hafa mikil áhrif á stjórnmál í Austur-Evrópu yfirleitt. Pólitísk áskorun Stjórnin hefur líka gagnrýnt nýja páfann fyrir að aðhyllast þá skoðun — sem verður stöðugt útbreiddari meðal kaþólskra Pólverja — að kirkjan eigi að láta félagsleg og efnahagsleg mál meira til sín taka og reyna að hafa meiri áhrif á þau. Á þetta er nánast litið sem pólitíska storkun við stjórnina og því hefur Woytyla kardináli lagt svo mikla áherzlu á frelsi til handa pólskum ritum. Ferill kardinálans skýrir afstöðu hans og skoðanir að miklu leytir Hann er verkamannssonur, var elztur systkina sinna og fékk betri menntun en þau. Sagt er að hann hafi verið verkamaður í stríðinu þegar hann var hálf- þrítugur. Þannig kynntist hann nánar lífi pólsku þjóðarinnar en flestir andlegir og pólitískir valda- menn í Póllandi hafa gert. Þrjátíu og átta ára að aldri varð hann yngsti biskup í sögu Póllands og 47 ára gamall varð hann yngsti kardinálinn. Hann er fulltrúi nýrrar kynslóðar og skilningur hans á þeim vandamálum, sem við er að stríða í heiminum, mun ugglaust setja svip sinn á páfadóm hans. Veruleikinn Að því er mig minnir síðan ég talaði við páfa er Jóhannes Páll II mjög pólitískur, en ekki er senni- legt að hann muni taka upp harðan andkommúnisma í stefnu Páfagarðs. Til þess hefur hann of mikla reynslu af lífinu í kommún- istísku samhengi og skilning á hinum hversdagslega veruleika valdsins. En hann hefur einnig reynslu af alþjóðamálum, kannski meiri en Páll páfi VI. Og táknrænt mikil- vægi þess að hann er fyrsti páfinn í 455 ár, sem er ekki ítalskur, fer ^kki framhjá veraldlegum vald- höfum í Austur-jCvrópu og heldur ekki sú staðreynd að hann kemur frá baráttuglöðu og þróttmiklu kaþólsku samfélagi sem hefur aðhyllst kaþólska trú í 1.012 ár. Hann er ekki mikið kunnur í heiminum yfirleitt, en víða er hann minnzt fyrir hjálpsemi. Þegar hann var í Bandaríkjunum 1976 hitti hann að máli fulltrúa pólskra útlaga í Washington og þeir bentu honum á þá ósk sína að fá eigin kirkju. ,Hann skrifaði því vini sínum, Baum kardinála í Washington, og bað hann um stuðning. Nú er Jóhannesarkirkja litla pólska safnaðarins orðin að veruleika. Daginn eftir páfakjörið var haldin messa í kirkjunni til heiðurs Karol Woytyla, hinum pólska páfa. (endir — stytt) Dómkirkjan í Kraká Þar sem Woytola var erkibiskup. Nýi pifinn ésamt fyrirrennara sínum, Páli VI, 1971. Kardinálarnir Wyzsynski og Woytola í Kraká 1975. • Takamáupp á hverja spólu 1000 sinnum. Mikil litgæöi Spólu- kostnaöur lítill 'my'tidsegulbancL VHS spectra video-vision 1 Eínkasjónvarpið þitt — gerír þig óháðan útsendingartíma sjónvarpsins Stillið Það, sem Þér viljið sjá Sjáiö Þegar yður hentar. Hjá okkur kostar tækiö aöeins kr. 767.920 Spólur C-60 mín C-120 mín C-180 mín Verö 13.575 19.980 24.980 Berið saman verð og gæði Skipholti 19, sími 29800 27 ár í fararbroddi Fyrstir til íslands með: sjónvörp, transistora, in-line myndlampa, system kalt 2, og nú VHS Nordmende myndsegulbandstæki á viðráöanlegu veröi. UMBOÐSMENN UM ALLT LAND

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.