Morgunblaðið - 05.11.1978, Side 32

Morgunblaðið - 05.11.1978, Side 32
% Lífið barn hefur Jlí* lítið sjónsvid Mæta ekki til kennslu á morgun VERKFALL stundakcnnara við Iláskóia íslands kemur til fram- kvæmda í fyrramáiið, mánudags- morgun. Annað kvöld hafa stundakennarar síðan boðað til almenns félagsfundar, þar sem afstaða verður tekin til tilboðs sem fjármáiaráðuncytið hefur lajít fram. Að sögn Kristjáns Linnets, eins talsmanna stundakennara, fara stundakennarar einkum fram á atvinnutrygf;in(íu og stjórnunar- álag til jafns við fastráðna kenn- ara. Stefnt sé að því að tryggja hag stundakennara, sem flestir hafi það sem aðalstarf að kenna stundakennslu við Háskólann, en án þeirra réttinda sem fastráðnir starfsmenn hafi. Kristján vildi ekki tjá sig efnislega um tilboð ráðuneytisins, en sagði, að ef það yrði samþykkt yrði verkfallinu aflétt samstundis, og stundakennarar myndu mæta til vinnu sinnar daginn eftir. Ef það verður hins vegar fellt mun verkfallið standa í eina viku, eins og boðað hefur verið. Aðrar aðgerðir hafa ekki verið ákveðnar. Útflutning- ur á blóði BLÓÐBANKINN hefur nú síð- ustu árin flutt út blóð og er gert ráð fyrir að tekjur bankans af þessum óvenjulega útflutningi nemi milli 3—4 milljónum króna en stefnt er að því að verja fjármunum sem með þessu móti fást til að bæta rannsóknaaðstöðu og aðra aðstöðu innan baiikans. Að því er Ólafur Jensson, forstöðumaður Blóðbankans, tjáði Mbl. var fyrir 3—4 árum, að bankinn hóf að vinna plasma eða blóðvökva úr því blóði sem orðið er eldra en svo að nota megi það til beinna blóðgjafa. Plasminn er seldur til rann- sóknastöðvar í Svíþjóð, sem brýtur plasmann upp í hluta og eru eggjahvítuefnin síðan seld til lækninga. Kvað Ólafur blóðskipti af þessu tagi vera orðin mjög algeng um allan heim. Vilji til að leysa vanda Þórshafnar - segir sjávarúlvegsráðlierra „ÞAÐ er fullur vilji til að leysa vandræði Þórshafnarbúa og að því er nú unnið á vegum sjávarút- vegsráðuneyíisins, félagsmála- ráðuneytisins og Framkvæmda- stofnunar,“ sagði Kjartan Jó- hannsson sjávarútvegsráðherra í samtali við Mbl. í gær. Kjartan sagði að hann teldi að koma þyrfti grundvelli undir langtímarekstur Þórshafnarbúa í sjávarútvegi og þyrfti í því sambandi að kanna hvernig útgerð hentaði þar bezt. Þá sagði ráðherr- ann að rætt hefði verið um sölu á síldarverksmiðjunni á Þórshöfn, sem heimamenn vildu gjarnan selja. SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 1978 Verzlið í sérverzlun með litasjónvörp og hljómtæki. Skipholti 19, sími 29800 Féll niður í lest og beið bana MAÐURINN. sem slasaðist alvar- lega í vinnuslysi um borð í vöruflutningaskipinu Múlafossi í fyrradag. lézt á Borgarspítalan- um í gærmorgun af völdum meiðslanna sem hann hlaut. Ilann var 22 ára gamall. Ekki er unnt að birta nafn hans fyrr en eftir helgina að ósk lögreglunnar. Slysið varð um hálffimmleytið á föstudaginn. Múlafoss lá þá í Sundahöfn og unnu verkamenn við það að koma fyrir gámi á lestar- lúgu og var hinn látni einn þeirra. Hann ætlaði að fjarlægja tréborð, sem var á lúgunni og gekk við það nokkur skref aftur á bak en svo slysalega vildi til að hann féll aftur á bak ofan í næstu lest, sem var opin. Fallið var tæpir 5 metrar og hlaut maðurinn alvarlegan höfuðáverka. Maðurinn var strax fluttur á Borgarspítalann, þar sem gerð var á honum mikil höfuðað- gerð en ekki tókst að bjarga lífi hans. Kópavogskaupstaður: 200 mill- jóna gengis- tryggt lán KÓPAVOGSKAUPSTAÐUR hefur fengið 200 milljóna króna rekstrarlán hjá Búnaðarbanka Islands. Lánið. sem er gengis- tryggt miðað við Bandaríkjadoll- ar. er á 12% vöxtum og skal greiðast upp á tveimur og hálfu ári. Offramleiðslan í landbúnaðinum: Ostagerðartækin hafa ekki undan Smjörbirgðir hrannast upp IIORFUR eru á því að framleiðsla sauðfjárafurða hafi aukizt um 8% á þessu ári og framleiðsluaukn- ing mjólkurafurða sé 4—5%. í báðum greinum er framleiðslan meiri en eftirspurn á innanlands- markaði en umframframleiðsla mjólkurafurða er þó sýnu alvar legri en sauðfjárafurða, þar sem aðeins hefur tekizt að afla mark- aða erlendis fyrir li'tinn hluta þeirrar framleiðslu. Er það eink- um á sviði ostaframleiðslu en öll tæki til ostagerðar eru nú full- nýtt og hafa ekki undan svo að afgangurinn af mjólkurfram- Ieiðslunni fer til smjörgerðar, sem ekki hefur tekizt að finna markað fyrir og hrannast þvf birgðir upp. Talið er lfklegt að um áramót verði smjörbirgðir í landinu um 2000 tonn. Sú tegund ostaframleiðslunnar sem mestri velgengni hefur átt að fagna erlendis er Óðalsosturinn en hann er einkum fluttur til Banda- ríkjanna. Verðið, sem þar fæst fyrir hann, er um 50% af fram- leiðslukostnaðinum hér heima, en ekki er talið útilokað að fá mégi hærra verð fyrir ostinn vestan hafs með aukinni framleiðslu og þar af leiðandi stöðugra framboði, en gert er ráð fyrir að lítil vandkvæði séu á því að selja allan þann Óðalsost sem unnt er að framleiða hér á landi í Bandaríkj- unum. Óðalsostur er framleiddur á þremur stöðum á landinu — á Sauðárkróki, Húsavík og á Akur- eyri, og tæki ostabúanna þar til þessarar framleiðslu er nú nýtt til hins ítrasta. Til að koma fram- leiðslu Óðalsostsins fyrir Banda- ríkjmarkað í fullnægjandi horf þarf að fjárfesta í ostabúinu á Akureyri fyrir milli 600—700 milljónir króna, að því er Stein- grímur Hermannsson, landbún- aðarráðherra greindi frá er hann kynnti þær ráðstafanir, sem á döfinni eru í framleiðslumálum ! landbúnaðarins og byggðar eru á áliti svonefndrar 7-manna nefnd- ar. Ráðherra sagði, að menn yrðu að gæta sín á að ráðast í of mikla fjárfestingu á þessu sviði vegna þess að þá kynni fyrirtækið að eiga allt undir offramleiðslu á sama tíma og markaðsverð framleiðsl- unnar stæði ekki undir fram- leiðslukostnaði. Kvað ráðherra þetta dæmi um þann vanda sem við væri að etja í landbúnaðar- framleiðslunni. LÖGREGLÁN í Reykjavík tók 969 ökumenn vegna meintrar ölvunar við akstur fyrstu 10 mánuði ársins og er þetta veruleg aukning frá í fyrra, að sögn Óskars Ólasonar yfirlögreglu- þjóns. Upp á síðkastið hefur ástandið verið með állra versta móti og í októbermánuði einum voru t.d: teknir 122 ökumenn í Reykjavík Björgvin Sæmundsson, bæjar- stjóri í Kópavogi, sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi, að Búnaðarbankinn væri viðskipta- banki Kópavogskaupstaðar, og' að bankinn fengi síðan aftur lán hjá Seðlabankanum sem aflaði erlends lánsfjár. Björgvin sagði, að ástæður þess að þetta lán er nú tekið væru „ósköp einfaldar. Verðbólgan kem- ur líklega hvergi verr við en hjá sveitarfélögunum vegna þess, að þeirra tekjur eru yfirleitt miðaðar við verðlags- og kaupgjaldsþróun ársins á undan, útsvörin eru öll miðuð við tekjur fólksins einu ári á undan. Þegar verðbólgan er milli 40 og 50%, þá þýðir það, að útgjöldin hjá okkur í ár hafa hækkað um þetta. Útgjöldin eru miðuð við raunverulegt verðlag á hverjum tíma. Þetta er ekkert nýtt, en eftir því sem verðbólgan verður meiri, verður þetta erfið- ara.“ grunaðir um ölvun við akstur og þar af voru 30 ökumenn teknir um sömu helgina. Skiptingin er sú að í Reykjavík voru teknir 886 ökumenn fyrstu 10 mánuði ársins en vegaeftirlitsmenn úr Reykjavík tóku 83 ökumenn. Trúlega er heildartalan komin fast að 1000 þegar þessi frétt birtist. Nær ÍOOO öku- menn teknir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.