Morgunblaðið - 18.11.1978, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.11.1978, Blaðsíða 1
48 SIÐUR OG LESBOK 264. tbl. 65. árg. LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1978 Prentsmidja Morgunblaösins. Orsakir flugslyssins á Sri Lanka: Athyglin beinist að biluð- um tœkjum og höggvindi TALSMAÐUR stjórnarinnar á Sri Lanka, Samara- singhe, sagði í gær að 79 hefðu lifað af flugslysið við Katunyakeflugvöll á miðvikudag að því er segir í AP-frétt frá Colombo í gær. Er þá tala látinna lægri en áður hafði verið nefnt, eða 180. Samarasinghe sagði einnig á blaðamannafundi í dag að aðflugsljós við flugvöllinn hefðu verið óvirk, þegar flugvélin kom inn til lendingar. Hann gat þess ekki hvers vegna og um aðflugsgeislatæki sagði hann, að ekki væri betur vitað en að þau hefðu verið í lagi. Hann gat þess að skömmu fyrir slysið hefðu fjögur flugtök og lendingar átt sér stað á flugvellinum. Junius Jayewardene, forseti Sri Lanka, sem fyrirskipaði að fánar skyldu dregnir í hálfa stöng eftir flugslysið. Hann er fyrrverandi forsætisráðherra, leiðtogi staersta stjórnmálaflokksins og valdamesti maður Sri Lanka. Harðar deilur á þingi Sri Lanka: Morgunblaðið leitaði álits hjá sérfræðingum í flugmálum sem gjörþekkja aðstöðu alla á flugvellinum og töldu þeir líklegustu skýringuna þá að veðri, eins og þarna var, hefðu fylgt rafmagnstruflanir og tækin þá slegið út, en þau eru á nákvæmnisspennu og slá sig út, þegar spennan verður annað hvort of lág eða of há. Einnig mætti ráða það af þeim fréttum, sem borizt hafa, að aðflugsgeislinn hefði líka verið óvirkur. Virtist flugvélin hafa verið í eðlilegu aðflugi, þar til hún hefði skyndilega misst hæð og hrapað til jarðar vegna höggvinds sem lýst var í Morgunblaðinu í gær. Ríkisstjórnin gagnrýnd fgrir bilanir á tœkjum Colombo, 17. nóvember. Reuter. HARÐAR deilur risu á þingi Sri Lanka í dag þegar þingmenn stjórnarandstöðunnar kröfðust þess að stjórnin rannsakaði fréttir um bilun í tækjum á Colombo-flugvelli þegar DC-8 leiguflugvél Loftleiða fórst með 183 manns í flugslysinu á miðvikudag. Rimman fylgdi í kjölfar blaðamannafundar þar sem talsmaður stjórnarinnar sagði að Loftleiðaþotan hefði verið í of lítilli hæð þegar hún steypt- ist til jarðar á kókoshnetuekru í lendingu. Talsmaðurinn, G.P. Samarasinghe, starfsmaður landvarnaráðuneytisins, sagði á blaðamannafundinum að flugumferðarstjórar hefðu varað flugstjórann við því að hann flygi í of lítilli hæð en vélin hefði hrapað skömmu síðar. Samarasinghe sagði að mik- ilvægustu leiðsögutæki á flug- vellinum hefðu verið í góðu ásigkomulagi þegar slysið varð. En hann sagði að lend- ingarljósin hefðu verið í ólagi. „Skyggni var gott og fjórar aðrar flugvélar höfðu hafið sig til flugs og lent rétt á undan slysinu," sagði talsmaðurinn. Stjórnin á Sri Lanka skýrði frá því í dag að hún hefði skipað sérstaka nefnd til þess að rannsaka flugslysið. Uppnámið í þinginu varð þegar leiðtogi stjórnarandstöð- unnar, Appapillai Amirthalingham, sagði að nefndin ætti að athuga blaða- fréttir um að lendingartæki flugvallarins hefðu verið biluð þegar slysið varð. Annar þingmaður stjórnar- andstöðunnar, Halseem Ishak, tók undir þetta og hvatti rannsóknarnefndina til þess að rannsaka blaðafréttir um að tækin á flugvellinum hefðu verið ófullnægjandi og biluð. En ráðherrann Gamini Dissanayke veittist harkalega að þingmönnunum, kallaði þá „götusópara" og sakaði þá um að gera sér mat úr harmleikn- um í pólitísku skyni. Samband rofn- aði og eldhaf steig upp SAMARASHINGE sasði á blaða mannafundinum í gær. að flusí- vélin hefði komið inn til lending- ar um hálftólfleytið að kvöldi miðvikudags að staðartíma og að fiugturninn hefði fylgt henni í radar frá því hún var í 90 miina fjarlægð frá flugvellinum. Lendingarheimild hefði verið gefin með þeim fyrirmælum að halda 650 feta hæð að tveggja mílna fjarlægð frá flugvellinum. Starfsmenn flugturnsins hefðu siðan séð að flugvélin var komin of lágt og þá gefið flugstjóranum fyrirmæli um að hækka flugið, en þá hefði sambandið við vélina skyndilega rofnað og mennirnir í flugturninum séð stíga upp eld- haf sem gaf til kynna að vélin hefði hrapað til jarðar. Samara- shinge lagði áherzlu á að stjórn- völd á Sri Lanka hefðu ekki komizt að neinni niðurstöðu um orsakir slyssins. Magnús Norðdahl flugstjóri sagði í samtali við Mbl. í gær, að af þessari frásögn mætti ráða að starfsmenn flugturnsins hefðu fylgzt með flugvéiinni í ratsjá frá því hún var í 90 miina fjarlægð. Magnús sagðist ekki vita til þess að hæðarradar væri í þessum flugturni og því hefðu starfs- menn þar ekki getað fylgzt með hæð flugvélarinnar í ratsjá, heldur aðeins gefið flugstjóran- um stefnu og öryggishæð að tveggja mílna fjarlægðinni. Eftir það virtust þeir hafa séð með berum augum að flugvélin hefði misst of mikla hæð og aðvarað flugstjórann um það, en sam- bandið þá rofnað. Flugstjórinn hefur aftur á móti augsýnilega gert sér grein fyrir hættunni, þar sem hann gaf hreyflunum fullt afl rétt áður en slysið varð. „Þorpsbúar rœndu eigum farþega DC-8 þotunnar Margir látnir héldu á kóraninum ÞEGAR björgunarsveitir komu á vettvang eftir flugslysið á Colombo-flugvelli höfðu þorpsbúar af svæðinu rænt eigum fórnarlambanna, þar á meðal teppum, peningum, úrum og öðrum verðmætum að því er segir í frásögn Lundúnablaðsins The Times af slysinu í gær. „Margir farþeganna, sem voru látnir í sætum sínum, héldu á vasaútgáfum af Kóraninum og perlufestum," segir í frásögninni sem er frá frétta- ritara blaðsins í Colombo. „Slysið hefði orðið jafnvel ennþá meira ef flugvélin hefði rekizt á flugeldaverksmiðju rúmlega 50 metra frá slysstaðn- um,“ segir hann. Hann segir að þeir sem af lifðu eigi líf sitt því að þakka að flugvélin brotnaði í þrjá hluta áður en eldurinn læsti sig um hana. Enn fremur segir fréttaritari The Times að á undanförnum vikum hafi nokkrum flugvélum með múhameðska pílagríma verið beint til annarra flugvalla vegna skorts á eldsneyti í Colombo, en íslenzka flugvélin hafi fengið lendingarleyfi. „Flugvælin var beðin að bíða þangað til önnur flugvél væri farin af flugvellinum og síðan stöðvuðust öll fjarskipti ... Mikil rigning, þrumuveður og eldingar hömluðu björgunar- starfinu ...“ The Guardian var einnig með ítarlega frásögn af slysinu í gær en mjög svipaða þeirri sem birtist í The Times. Flugslysið vakti mikla athygli brezkra fjölmiðla.. Strax um morguninn var sagt frá því í útvarpsfréttum og um hádegis- bil voru birtar kvikmyndir í sjónvarpi, teknar skömmu eftir slysið. Evening Standard gerði frásögn af slysinu að stórri forsíðufrétt og Evening News var einnig með frásögn af því. Sama máli gegndi með morgun- blöðin í gær og þau birtu auk allítarlegra frásagna af slysinu ljósmyndir af slysstað og flug- vélarflakinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.