Morgunblaðið - 18.11.1978, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1978
25
•99
„Aöflugskerfí.
flugvallarins
ekki í lagi
Stuttar fréttir í v-þýzkum
og sœnskum fjölmiölum
í FJÖLMIÐLUM í Svíþjóð og V-Þýzkalandi fer
ekki mikið fyrir fréttum af flugslysinu við
Neegambo-flugvöll á Sri Lanka. í Þýzkalandi er
almennt sagt frá slysinu á þann veg að mikið
óveður hafi verið er vélin fórst. Einnig hafa verið
á kreiki fréttir um að aðflugskerfi flugvallarins
hafi ekki verið í lagi og að flugvélar hafi átt í
erfiðleikum við lendingu þar að næturlagi.
í sænskum blöðum var t.d.
greint frá slysinu inni í miðjum
blöðum í Expressen og Afton-
bladet á fimmtudag og bæði
blöðin birta myndir af atburðin-
um. I gærmorgun skýrðu
Dagens Nyheter og Svenska
Dagbladet frá slysinu á svipað-
an hátt. Stuttar frásagnir voru
lesnar í útvarpi og sjónvarpi.
I stærri dagblöðum í V-Þýzka-
landi er greint frá slysinu, en
fréttir um það eru ekki á
forsíðum blaða þar í landi. í
Frankfurter Allgemeine Zeitung
er ítarleg grein með mynd og
þar segir að yfir 200 manns hafi
látizt er leiguflugvél í eigu
íslenzks flugfélags hafi farizt
skömmu fyrir miðnætti á mið-
vikudag í óveðri við lendingu á
Colombó. Stutt grein er um
slysið í Die Welt og sömuleiðis á
baksíðu Suddeutsche Zeitung.
BERLiNGSKi: T:TIDENDE (
iliB
í *-m*»**fi4tt**t
I)e offenUigt ausaílc
skalsamles liiakíion
'MO |»íÞ m»ho*. IIoj í (}»«!* <»
■■■
I muxmmti
'■ I II iil'M'IS
i ll lllil |<ib
Símamynd AP.
Danska blaðið Berlingske Tidende skýrði frá flugslysinu í Sri
Lanka á forsíðu í gær undir fyrirsögninnii „200 pílagrímar flugu
inn í dauðannS
Á forsíðu bandaríska stórblaðsins New York Times birtist ítarleg frétt um slysið á fimmtudag. Er
fréttin ein af stærstu fréttum blaðsins þennan dag.
99
99
Ég hefaldrei séð
neitt eins ömurlegt
FrásögnNew York Times af slysinu
„Frásagnir bandarískra blaða um flugslysið á Sri Lanka eru í meginatriðum lýsingar á því sem
gerðist,“ sagði starfsmaður á skrifstofu Loftleiða í New York er Morgunblaðið hafði samband við
skrifstofuna í gær.
„Blöðin taka sérlega fram að
þetta sé fjórða mesta flugslys
sögunnar og annað mesta flug-
slysið sem hefur orðið á Sri
Lanka,“ sagði hann enn fremur.
Hann sagði að ekki hefði orðið
vart við minnkandi eftirspurn
eftir ferðum með Flugleiðum eftir
flugslysið. „Hringingar til skrif-
stofunnar benda ekki til þess að
svo stöddu að hér verði um nokkra
breytingu að ræða hvað þetta
varðar," sagði hann.
í frásögn New York Times um
slysið segir frá samtali við Kumar
Nalathamby, kaupsýslumann í
Negombo, sem fór á slysstaðinn og
lýsti seinna því sem fyrir augu
hans bar í símtali.
„Þetta var hræðilegt, ég hef
aldrei séð neitt sem var eins
ömurlegt," sagði hann.
„Líkin lágu eins og hráviði út
um allt,“ sagði Nalathamby sem
skýrði frá því að Loftleiðaþotan
hefði fellt um koll um 20 kókos-
pálmatré þegar hún þeyttist til
jarðar og eldur kom upp í henni.
Hann sagði að annar vængur
flugvélarinnar hefði rekizt á
eldhús í húsi nokkru á kókosekr-
unni sem hún hrapaði á en engan
á jörðu niðri hefði sakað.
„Þetta var hræðilegt," sagði
hann og benti á að þetta væri
annað meiriháttar flugslysið á Sri
Lanka á fjórum árum þar sem
múhameðskir pilagrímar frá
Indónesíu hefðu átt hlut að máli
að því er segir í frásögn New York
Times af slysinu.
Blaðið bendir enn fremur á það
að að undanförnu hafi birzt í
blöðum í Colombo kvartanir frá
flugmönnum um lendingartæki
flugvallarins.
Tekið er fram í frásögn New
York Times að þetta er fyrsta
flugslys í 30 ára sögu félagsins.
Washington Post greindi frá
flugslysinu á fimmtudag og föstu-
dag og var forsíðumynd blaðsins á
föstudag frá slysstaðnum. Fréttir
af slysinu voru þó ekki ítarlegar
fyrst í stað og var gefið í skyn að
greint yrði áfram frá atburði
þessum eftir því sem fréttir yrðu
ljósari. Þá var sagt frá slysinu í
útvarpi og sjónvarpi og hafa
fréttir verið lesnar öðru hverju á
fimmtudag og föstudag.
Nokkur blaðanna fóru
rangtmeð staðreyndir
Affrcttaflutningi fjölmiðla íFrakklandi
FYRSTU fréttir í Frakklandi
af flugslysinu á Sri Lanka
komu í útvarpsstöðvum
snemma morguns á fimmtu-
dag. Síðan birtust fréttir í
99
200 pílagrímar
flugu inn í dauðann
Segir í fyrirsögn íBerlingske Tidende
99
— FLUGVÉLIN hrapaði um einum kflómeter áður en hún náði
flugbrautinni skömmu fyrir miðnætti á miðvikudag og plægði
400 metra leið á kókosakri, brotnaði í þrennt og eldur kviknaði í
henni. Þannig segir m.a. í frétt á forsfðu Berlingske Tidende í
gær og birtar eru tvær myndir af slysinu. Fyrirsögn
greinarinnar eri „200 pflagrímar flugu inn í dauðann“.
í Politiken er mun styttri og þess getið að flugfélagið hafi
frétt á 2. síðu og þar sagt frá því í mörg ár flogið með pílagríma
að flugvélin hafi verið í eigu til og frá Mekka. í Berlingske
íslenzka flugfélagsins Flugleiðir Tidende segir hins vegar að
flugvélin hafi verið í eigu
íslenzks leiguflugfélags.
Haft er eftir einum þeirra,
sem komust af, að flugturninn
hafi verið að stjórna vélinni til
lendingar er slysið varð, en
flugmanninum skjátlast um
vegalengdina að brautarendan-
um. Haft er eftir skoðunar-
manni, sem athugaði svæðið, að
skyldi
ótrúlegt sé að nokkur
komast af úr slysinu.
Ekstrablaðið birti strax á
fimmtudagsmorgun frétt um
slysið, en þar gætir nokkurrar
ónákvæmni og er m.a. talað um
slysið sem þriðja mesta flugslys
sögunnar. Ástæða ónákvæmn-
innar er trúlega sú að nákvæm-
ar fréttir lágu þá ekki fyrir.
síðdegisblöðunum. á forsíðu
France Soir. en einnig í La
Croix og í síðdegisútgáfu Le
Monde. Að sögn heimildar-
manns Morgunblaðsins í París
var stuðst við staðreyndir
málsins í þessum fréttflutn-
ingi. nema í Le Monde. Þar var
sagt að vélin hefði verið ætluð
200 farþegum og látið var að
því liggja að ofhleðsla hefði því
getað valdið slysinu.
Þessi fréttaflutningur er rak-
inn til fréttamanns ÁFP-frétta-
stofunnar í Colombo og kom
þetta einnig fram í frétt um
slysið í morgunblaðinu Le Matin
de Paris í gærmorgun. Frétta-
stofan hefur lofað að leiðrétta
þenna-n leiða misskilning við
alla aðila, sem fengu frétta-
skeytið og Le Monde hefur lofað
að birta leiðréttingu.
Á fimmtudagskvöldið voru
lesnar fréttir um slysið í tveim-
ur fönskum sjónvarsstöðvum og
birtar ljósmyndir af vettvangi.
Þá voru allítarlegar fréttir og að
því er bezt varð séð réttar
fréttir í dagblöðunum L’Aurore
og L’Humanite og í bandaríska
blaðinu International Herald
Tribune, sem gefið er út í París.