Morgunblaðið - 18.11.1978, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 18.11.1978, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1978 47 í$ leikur með tvo bandaríska leikmenn á móti F.C Barcelona STÍJDENTAR munu mæta tvíefldir til leiks á móti spænska liðinu F.C. Barceluna á miðvikudag. Banda- ríski leikmaðurinn í röðum stúdenta, Dirk Dunbar, er nú kominn til landsins á ný cn hann Handbolti I>að er lítið á seyði í handknatt- leiknum hérlendis um helgina. enginn leikur í 1. deild, enginn í 2. deild. Eftirfarandi leikir eiga þó að fara fram. Laugardagur> Njarvík 2. deild kvenna kl. 13.00, Njarvík — Þór VE. Njarvík 2. deild kvenna kl. 14.00 Grindavík — Fylkir. Varmá 1. deild kvenna kl. 14.00 Breiða- bllik — Þór AK. Varmá 3. deild karla kl. 15.00 UBK — Njarðvík. Akureyri 3. deild karla kl. 15.30 Dalvík — ÍA. Sunnudaguri Njarðvík 2. deild kvenna kl. 13.00 ÍBK — Þór Ve. Njarðvík 3. deild karla kl. 14.00 ÍBK — Afturelding. Skagamenn í maraþon ... Akurnesingar hafa nú ákveðið að hnekkja hinu nýsetta meti Keflvík- inga í maraþonknattspyrnu innan- húss. í dag klukkan 12.30 hefja tvö lið leik í hinum 20x40 metra stóra sal á Akranesi og verður spiluð knatt- spyrna þar til kraftarnir þverra. Eins og aðrir slíkir er leikur þessi fjáröflunarleikur og verður veðbanki og áheitasöfnun í fullum gangi meðan á leik stendur. meiddist iila í lcik eigi alls fyrir löngu. Fór hann til Michigan, þar sem læknar opnuðu á honum hnéð og í' ljós kom að liðböndin voru ekki slitin, eins og óttast var í fyrstu. Eigi að si'ður voru meiðslin slæm og þó að hann hyggist leika er það mál manna að hann sé nokkru fjarri sinum fyrri styrkleika. Þá mun bandaríski leikmaðurinn John Johnson sem leikið hefur með Fram leika með IS í Evrópukeppn- inni. Það vekur nokkra furðu að hægt sé að fá lánaðan leikmann aðeins til leikja í Evrópukeppni en svo er það engu að síður, og hefur FIBA, alþjóðasamband körfuknatt- leiksmanna, samþykkt hann í leik- inn. Johnson hefur æft með ÍS að undanförnu og mun styrkja lið þeirra mikið. Mbl. spjallaði við Johnson í gær og innti hann eftir því hvernig væri að fá tækifæri með IS á móti svo frægu liði. — Það er mér heiður að vera valinn í lið IS fyrir þessa leiki, sagði Johnson. — Þetta verður spennandi og skemmtilegt viðfangsefni. Þá verður stórkostlegt að fá tækifæri til að leika með Dunbar en ekki á móti honum. — Ég er sannfærður um að við náum góðum leik og velgjum þeim undir uggum. Allavega mun ég gera mitt besta, sagði John. Þjálfari ÍS, Birgir Örn Birgis, sagði að vissulega væru mótherjarn- ir sterkir, en engu að síður væru allir möguleikar fyrir hendi á að sigra þá. — Við munum reyna að koma þeim á óvart og taka skyndisóknir, og leika opinn leik, vera frakkir í sókninni. — Við æfum nú tvisvar á dag og munum leggja okkur alla fram að standast þeim snúning. Dirk Dunbar sagði að þrátt fyrir meiðsli sín væri hann í ágætri æfingu og það væri sér tilhlökkunar- efni að mæta þessum atvinnumönn- um. Það verður okkur ómetanlegur styrkur að fá Johnson til liðs við okkur. — Samvinna okkar á æfing- um að undanförnu hefur verið stórkostleg, hann fellur inní liðið eins og flís við rass. Ég vona bara að við fáum góðan stuðning frá áhorf- endum, þeir geta hjálpað okkur mikið. Dómarar í leik ÍS og F.C. Barcelona verða frá Englandi og Skotlandi. Eftirlitsmaður á leiknum af hálfu FIBA verður Bogi Þor- steinsson. Óhætt- er að hvetja alla körfuknattleiksunnendur til að sjá leik ÍS og Barcelona á miðvikudag, því að lið Barcelona er eitt það besta í allri Evrópu. - ÞR. Blak um helgina NOKKRIR leikir fara fram í íslandsmótinu í blaki um helgina, réttara sagt á laugardaginn. Þeir erui Laugarvatn 1. deild karla kl. 13.00 Mímir — Laugdælir. Vest- mannaeyjar1. deild karla kl. 16.00 Þróttur — ÍS. Vestmannaeyjar 2. deild karla kl. 17.30 ÍBV - UBK. Laugar 1. deild kvenna kl. 17.00 Völsungur — ÍMA. Glerárskóli 2. deild karla kl. 13.00 KA — ÍMA. Leiknir á hraðferð niður í 3. deildina Ármann vann Leikni mcð 29 mörkum gegn 15 þegar liðin ma-ttust í' 2. deild íslandsmótsins í handknattleik í gærkvöldi. Var þetta 3. leikurinn í riið, þar sem mótherjar Leiknis eru komnir út í það að reyna að skora 30 mörk. Það er engin spurning hvar sigurinn hafnar, en ef mörkin verða 30 þá lítur það skemmtileg- ar út. KA og KR tókst að skora 30 mörk, en Armenningar náðu því ekki, mest vegna bráðlætis í síðustu sóknarlotunni, en þá létu þeir verja hjá sér 3 skot í röð, skot úr slæmum færum. Það er varla nokkur vafi, að vörn Leiknis hefði gaiopnast cf Ár menningar hefðu verið þolinmóð- ir. Staðan í hálfleik var 11 — 7. Eins og venjulega, höfðu Leikn- ismenn í fullu tréi við mótherja sína fyrstu 10 mínúturnar. Þannig var staðan 2—2 eftir 10 mínútna leik. En þá skoruðu Ármenningar 3 mörk í röð og hélst sá munur að mestu til hálfleiks, að víu var hann þá orðinn 4 mörk. Frestanir SVEITAGLÍMU íslands, sem fram átti að fara að Laugum þessa helgi, verður frestað um eina viku sökum ófærðar. Þá varð einnig að fresta leik KR og Þórs í 1. deild kvenna í hand- knattleik. Leika átti í Höllinni, en ekki reyndist flugfært frá Akureyri. Friðrik skoraði 12 mörk gegn Leikni. Leikmenn virtust hressir í byrj- un síðari hálfleiks, en þá tókst þeim að skora eigi færri en 2 mörk í röð. Þá þótti Ármenningum nóg komið og skoruðu því næst 9 mörk gegn 2 og náðu yfirburðastöðu. Þá gripu Leiknismenn til þess ráðs að taka tvo Ármenninga, þá Björn Jóhannesson og Friðrik Jóhanns- son, úr umferð, með þeim árangri að Leiknir skoraði enn 2 mörk í röð. Síðan sprakk blaðran, lokin voru ein allsherjar leikleysa, sóknarlotur sem stóðu að meðal- tali í um 10 sek, hraðaupphlaup og mörk hjá Ármenningum, 29 tals- ins þegar upp var staðið. Mikið bar á Friðrik Jóhannssyni í liði EÁrmanns, enda skoraði hann 12 mörk, ekkert úr vítaköst- um. Einnig voru Óskar Ásmunds- son og Björn Jóhannesson sterkir. Hafliði Pétursson var nú með Leikni að nýju, en er nokkru fjarri fyrri styrkleika. Nafni hans Krist- insson var einna skárstur Leiknis- manna, en það verður að segjast eins og er, að eins og sakir standa á þetta lið lítið erindi í annarri deild, svo langt er það að baki jafnvel lakari liðum deildarinnar. Það eina sem spurt er um fyrir- fram um leiki Leiknis er hve stórt ætli þeir tapi nú. Og annað hvert lið skorar 30 mörk. Mörk Ármanns: Friðrik Jóhannsson 12, Björn Jóhannesson 7 (2 víti), Óskar Ásmundsson 4, Jón Ágústsson og Einar Þórhalls- son 2 hvor, Grétar Árnason og Haukur Haraldsson eitt hvor. Mörk Leiknis: Guðmundur Kristinsson 5, Hafliði Kristinsson 4 (1 víti), Hafliði Kristinsson 3, Örn Guðmundsson, Jón Ólafsson og Diðrik Ólafsson eitt hver. — Kg- I I ] • Bjarni Gunnar Sveinsson (t.v.) er hæstur vexti leikmanna IS. Á A honum mun mikið mæða í fráköstum í leiknum á miðvikudag. ^ 1 ! Docherty enn í klandri FRÉTTIR frá Englandi í fyrradag skýrðu frá því, að einn litríkasti framkvæmdastjóri ensku knatt- spyrnunnar, Tommy Docherty, hefði verið settur frá störfum sínum hjá Derby, til bráðabirgða a.m.k. Að undanförnu hefur Docherty verið í málaferlum við einn af fyrrverandi leikmönnum sínum, Willy Morgan, leikmann með Bolton, vegna meiðyrða þess síðarnefnda í fjölmiðlum. Fyrir rétti mun Docherty hafa farið með heil reiðinnar ósköp af lygum og hann hefur viður- kennt það. Hann á því ekki einungis yfir höfði sér að borga háar sektir fyrir ljúgvitni, heldur einnig hugsanlega að verða settur frá störfum hjá félagi sínu, Derby County. Hann hefur verið settur í viku bann hjá æðsta ráðinu hjá Derby, meðan það fjallar um hvort reka beri kappann eður ei. Docherty hefur löngum verið talinn snjall framkvæmdastjóri en hann hefur að sama skapi löngum verið talinn málglaður í meira lagi. Síðasta félag kappans var Manchester Utd. og þar gerði hann góða hluti. En svo fór hann að húa hjá eiginkonu nuddarans og það þótti ósæmilegt. Hann var rekinn. Nú er ekki fráleitt, að enn eitt hneykslismálið kosti hann atvinnuna. Eitt má þó bóka og það er að ef Derby lætur hann fara, verður hann ekki atvinnulaus lengi, til þess er maðurinn allt of góður stjóri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.