Morgunblaðið - 18.11.1978, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 18.11.1978, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1978 Jón Þ. Árnason: Lífríki og lifshættir „Við austanmenn lítum á Vesturlönd, sérstaklega Bandaríkin, sem blindan risa. Vesturlönd gera sér ekki Ijóst — eða vilja ekki horfast í augu við staðreyndina — hvað felst í viðbúnaði Sovétríkjanna eða hver markmið Sovétríkjanna eru, og afhverju baráttuaðferðir þeirra ráðast. “ ___ — PaulGoma. Sáttahyggjan lagði hornsteininn> Rússneski andófsmaðurinn Wladimir Bukovskij hefir iýst vistarveru sinni undir sósfalisma. Hún var þrjú skref að lengd, tvö skref að breidd, járnrimlar fyrir glugga, ekkert salerni, engin þvottaskál, aðeins gægjugat á hurðinni og fellilúga til að rétta matarskammt inn um. Bukovskij var rúm tfu ár f þrælkunarbúðum, fangelsum og geðveikrahælum. Fjölhyggjaboð- ar feigð réttarríkisins Offjölgun í tilraunakrukku Öllum gerla- og sýklafræðingum er sú staðreynd kunn frá upphafi námsferils síns, að sé gerlum eða sýklum í tilraunakrukku gefin nægjanleg næring og séð fyrir súrefni, mun þessum örsmæð- arverum fjölga með sprengihraða. Fjöldi þeirra tvöfaldast á nálægt 20 mínútna fresti, unz mergð hans er orðin klessa, sýnileg með berum augum. Þegar þannig er komið, tekur að draga úr fjölguninni, örverurnar deyja úr eigin úrgangi. I miðri þvögunni hafa dauðir og deyjandi gerlar og sýklar þjappast í hnapp; yngri og lífseigari tegund- arsystkini hafa svipt þá næringu og súrefni. Síðan lýkur fjölgun- inni, fækkun tekur við og endar niður við núll, nema því aðeins að úrgangurinn hafi verið tæmdur úr krukkunni jafnóðum. Þetta er samlíkingardæmi, sem lífverndarmenn grípa gjarnan til, þegar þeir skýra núverandi stöðu mannkynsins á jörðinni með hlið- sjón af mannfjölgunar- og meng- unarvandamálum þess. Einnig mannkyninu fjölgar með sprengi- hraða, þrátt fyrir að fleiri deyi en fæðist, og eiturefnaafurðir hinnar ofsalega tæknimögnuðu fram- leiðslu þess hremmir dagvaxandi fjölda fórnarlamba. Eitrun og spilling lofts, láðs og lagar eru ekki eingöngu hörmuleg- ar afleiðingar tæknilegra fram- leiðsluframfara. Ógnirnar hefjast upp í annað veldi vegna hinnar óvenjulega öru fjölgunar jarðar- búa. Þær virðast helzt líkjast eins konar afturkastsviðleitni náttúru- ríkisins til þess að offjölgun keyri ekki úr öllu hófi fram og ná þannig aftur valdi á þróun, sem því er vanþóknanleg og það getur ekki liðið. Ef hér er ekki kæruleysislega farið að forsendum og því dregnar rangar ályktanir, stendur hin óhjákvæmilega heljarrefsing fyrir dyrum. Þrátt fyrir að voldugar og sterkar trúar- og stjórnmálahreyf- ingar hafi ótæpileag hamrað á þeim staðhæfingum um aldir, að „maðurinn er kóróna sköpunar- verksins" og „maðurinn er æðsta skepna jarðarinnar" — reyndar fer þeim ekki ómerku mönnum fjölgandi, sem telja hann mestu skepnu jarðarinnar — verður þeirri staðreynd ekki hnikað, að hann er síður en svo sjálfstæðari andspænis náttúrulögmálunum en aðrar lífríkistegundir. Þar af leiðir, að samályktanir eiga fullan rétt á sér að vissu marki. Á grundvelli þekkingar, er vísindunum er kunn af rannsókn- um á dýraríkinu, telja náttúru- fræðingar að mannkynsins hljóti að bíða fækkun um % úr hámarks- fjölda. Álit sitt styðja þeir dæm- um um ofurfjölganir, sem þar hafa endurtekið sig í sífellu með þvílíkum ósköpum, og telja afar ósennilegt, að mannkynið verði eina undantekningin. En getur annars hugsazt, að manneskjunni lánist að fresta uppkvaðningu örlagadóms síns til muna sakir máttarafls vísinda- og tæknitaka sinna? Eða mun hrap hennar aðeins verða þeim mun hraðara og dýpra, því hærra sem himinflug hennar verður. Þetta eru spurningar, sem tím- inn einn getur svarað með óyggj- andi hætti. Liðinn tími og fengin reynsla hafa þó þegar gefið gagnlega lærdóma, er varhugavert gæti orðið að láta um eyru þjóta eins og hverja aðra flokksyfirlýs- ingu. Vandamálin smáu og stóru Fjarri fer, að ég hafi löngun til að lítilsvirða nokkra heiðarlega manneskju með þeirri sanngjörnu tilætlunarsemi, að alit hugsandi fólk játi vafningalaust, að stymp- ingar út af tímakaupi og kaffitíma verkafólks eða sölusorgir átöppun- ariðnaðar í litlu og skrítilegu lýðveldi, séu fremur lágkollsleg umhugsunarefni í samanburði við vandamál, sem að framan eru reifuð. Hin fyrrnefndu koma strax við persónuleg kaun tiltölulega fárra, hin síðarnefndu bitna á öllum, misjafnlega hart og fljótt. Sameiginlegt er með flís og bjálka, að þeim er enn yfirleitt ekki sinnt eftir annarri reglu en að „svo skal böl bæta að bíði annað meira." Sá er hins vegar eðlismunur á, að peningaþrasið vex og dafnar með auknum afskiptum stjórnvalda, og ættu eiginlega að vera virðulegum yfirvöldum bæði ósamboðin og ógeðfelld eins og líka var þær aldir, þegar ríkisstjórnir gegndu skyldum sínum, en framtíðarverk- efnin verða því torleystari, þeim mun tómlátari, sem forystulið þjóða og ríkja reynist. Þetta sannar, að afskipti og afskipta- leysi eiga sér bæði sinn stað og sinn tíma eins og allt annað í tilverunni. Nálega einu afskiptin, sem réttarríkið ætti — nei, er skyldugt til að hafa af peningaóværð eiginhagsmunaseggja, sem er ólæknandi, er sú að þvinga ribb- alda til undirgefni við gildandi lög og lögmætar ákvarðanir stjórn- valda, er væru t.d. nauðsynlegar til þess að hindra að bramlið hefði hin allraminnstu áhrif á heilsu- gæzlu og sjúkrahúsarekstur, ör- yggismál og umferðarþjónustu, mennta-, lista- og íþróttastarfsemi o.fl. af svipuðu tagi. Og bókstaf- lega allt tómlæti, öll vanræksla réttarríkisins og yfirvalda þess varðandi varðveizlu og vegsemd náttúruríkisins ætti að vera víta- verð, jafnvel refsiverð. Sannarlega eru þetta engar smápantanir. Til þess að unnt yrði að sinna þeim með sóma, þarf fjölmargt að breytast, m.a.s. gjörbreytast. Það verður þegar af þeirri staðreynd einni sér ljóst, að aldrei hefir verið neitt hjáverk að koma lífs- og sambúðarháttum Paul Gomai Miklu valdi fylgir mikil ábyrgð. þjóðfélagsþegnanna í hnökralaust horf. Af ásköpuðum óreiðu- og sérdrægnishneigðum einstaklings- ins leiðir, að „hið fullkomna þjóðfélag" er og mun ævinlega verða draumarugl. Hitt er á hinn bóginn annað mál, að ef áherzla yrði lögð á, að hinir ábyrgustu og fórnfúsustu fengju sem víðtækast athafnasvigrúm til að beita hæfi- leikum sínum, ætti ekki að þurfa að teljast nein tálsýn að gera sér vel bærilegt þjóðfélag í hugarlund. En lögagað þjóðfélag, að ógleymd- um siðmenningarlegum samskipt- um jarðarbúa allra, eru frumskil- yrði þess, að heilbrigt, þroskað líf eigi framtíð. Ohugnaöurí frjóum jarövegi Ástand og horfur á síðasta þriðjungi 20. aldar geta naumast gefið nema ákaflega fátæklega rökstyðjanlegar vonir um sigur raunsýnna lífsviðhorfa, ef frá er talið, að hagvaxtarvíman er smátt og smátt að renna af Vesturlanda- mönnum þótt seint sé, e.t.v. of seint. T.d um limlestingar siðaðra þjóðfélaga má nefna daglegar fregnir, sem fyrir löngu eru hættar að teljast tiltökumál, um hroðaleg glæpaverk hvaðanæfa að, linnulausan undirróður og hryðju- verk GULAG-agenta í frjálsræðis- ríkjunum og stöðugt undanhald löggjafa, löggæzlu og dómsvalda á Vesturlöndum gagnvart vinstriöfl- um. Þegar við lesum eða heyrum frásagnir af ómennum, sem ráðast inn á heimili og svala fýsnum sínum á varnarlausum börnum, unglingum, gamalmennum og jafnvel mál- og heyrnarlausum konum, valda grandalausum veg- farendum meiðslum eða fjörtjóni, ræna og rupla jafnt um hábjarta daga sem niðdimmar nætur, o.s.frv., þá er ekki hægt að lá neinum þó að spurt sé: Var þetta bara skröksaga, sem mér var sögð, að nútímamaðurinn væri steinald- Illindi vegna tímakaups og kaf f itíma Vesturlönd svíf a segl- umþöndum til vinstri Fornar dyggðir í banni armanninum að öllu leyti fremri að eðli og innræti? Og við, sem þykjumst hugsa, erum beinlínis skyldug til þess að spyrja okkur sjálf og svara, hversu langt slíkt geti gengið og hvað okkur er leyfilegt að sýna ófremd- inni mikla sáttahyggju. Ennþá sárara er þó, að horfa upp á, að þrælstjórnarríkjunum skuli hald- ast uppi átölulaust að fangelsa, pynta og myrða fjölda fólks sér til yndisauka einvörðungu og í háð- ungarskyni við alla gildandi al- þjóðasamninga, sem stjórnvöld þeirra hafa staðfest hátíðlega, og bæta síðan gráu ofan á svart, oftast af lygaástríðu einni saman, með því að bera öðrum á brýn að gera slíkt hið sama. En það eru ekki aðeins svona fréttir, sem blöð og tímarit eru sprengfull af dags daglega, er valda vaxandi áhyggjum. Miklu algengari, en þó ekki jafn viður- styggileg, eru misferli og afbrot, er komast ekki á prent eða teljast ekki fréttnæm íengur. Þ.á m. eru búðahnupl og ýmsar aðrar auðg- unarkúnstir, röskun heimilisfriðar og tillitsleysi og yfirgangur í umferðinni, sem að meira eða minna leyti er liðið með bros á vör og varla talið annað en brek. Mörgum finnst svo furðu gegn, að ófögnuðurinn eigi sér víðast hvar málhressa formælendur. Bókaútgefendur rusla frá sér heimspekilegum doðröntum, þar sem rembzt er við að réttlæta og rökstyðja vinstriverknaði, og út- varp notar barnatíma sína óspart til að innræta ungum og óspilltum hlustendum sínum, að ekkert sé ljótt við að stela smáræði frá ríka kaupmanninum vonda og verka- lýðsfj andsamlega. Það eru þess vegna engin einsdæmi, að ástundunarsamir og uppkomnir áheyrendur barnatíma útvarpskomma, sem hafa gert vonda kaupmanninum fjárafla- heimsókn, verið staðnir að verki og færðir fyrir dómsvöld, beri hinn sósíalska barnalærdóm sinn, „eign er þjófnaður", fyrir sig, og afbrot þeirra séu þess vegna ekki annað en „réttlát eignajöfnun". Vinstra- fólk fagnar góðum árangri og fjölhyggjufólk færir fram sín sérstæðu rök gegn því að réttar- ríkinu beri að refsa sekum, „því að“, segir það, „refsingar bæta engan." En hefir vitanlega aldrei gefið gaum að þeirri staðreynd, að betrun er aðeins eitt af fimm meginmarkmiðum refsinga (næst á eftir hefnd, bótaheimtu, varn- aðarvíti og endurtekningarhindr- un).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.