Morgunblaðið - 18.11.1978, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 18.11.1978, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1978 37 HjörturL. Hannesson Akranesi—Minning í dag er jarðsunginn frá Akra- neskirkju Hjörtur Líndal Hannes- son. Hjörtur var fæddur 14. apríl árið 1899 að Kópareykjum í Reykholtsdal, sonur hjónanna Ágústu Sigríðar Magnúsdóttur og Hannesar Guðnasonar. Á meðan Hjörtur var barn að aldri, fluttpst foreldrar hans, Ágústa og Hannes, að Stóruþúfu í Miklaholtshreppi, en þar ólst Hjörtur upp í faðmi fjölskyldu og fagurrar sveitar. Börn Ágústu og Hannesar urðu þrjú, Hjörtur, sem í dag er kvaddur, Guðni, fæddur 1912, en hann lést 16. ágúst 1962, og Þórey, sem fædd er 1918. Hjörtur unni sveit sinni ávallt mikið. Það var því engin tilviljun að hann kaus að leiða brúði sína þangað árið 1922, en það ár gekk hann að eiga eftirlifandi konu sína, Sigríði Einarsdóttur frá Skáney í Reykholtsdal. Það urðu vissulega straumhvörf í lífi Hjartar giftingarárið hans 1922, því þá hóf hann einnig búskap að Stóruþúfu, en það ár brugðu þau búi foreldrar hans Ágústa og Hannes og fluttust til Akraness. Að Stóruþúfu bjuggu Hjörtur og Sigríður í tuttugu og fjögur ár. Á þessum tuttugu og fjórum árum stækkaði fjölskyldan og börnin í Stóruþúfu uröu átta. Það segir sig sjálft, að það hefur ekki verið neinn leikur að framfleyta svo stóru heimili, sem heimilið að m HADSTEN HOJSKOLE 8370 Hadsten milli Árósa og Randers 20 víkna vetrarnám- skeið okt.—febr. 18 vikna sumarnámskeið marz—júlí. Mörg valtög t.d. undirbúningur til umsóknar í lögreglu, hjúkrun, barnagæzlu og umönnun. At- vinnuskipti og atvinnuþekking o.fl. Einnig lestrar- og reiknings- námskeiö 45. valgreinar. Biöjið um skólaskýrslu. Forstander Erik Klausen, sími (06) 98 01 99. SKIPAUTGCRÐ RIKISINS m/s Hekla fer frá Reykjavík föstudaginn 24. þ.m. vestur um land til Akureyrar og tekur vörur á eftirtaldar hafnir: Patreksfjörð, (Tálknafjörö og Bíldudal um Patreksfjörð), Þingeyri, ísa- fjörð, (Flateyri, Súgandafjörð og Bolungarvík um ísafjörð), Siglufjörð, Akureyri og Norður- fjörð. Móttaka alla virka daga nema laugardag til 23. þ.m. Stóruþúfu var, en með eljusemi og dugnaði tókst það vel þó að búskaparhættir þess tíma væru aðrir en við þekkjum í dag. Þá var vélmenning ekki'komin til sögunn- ar til að létta bústörfin. Þó störf hjónanna í Stóruþúfu hafi á þessum tíma verið erfið, kreppa gengið yfir íslensku þjóðina og fátækt almúgafólks mikil, þá efa ég ekki, að á þessu tímabili áttu hjónin í Stóruþúfu sína hamingju- ríkustu daga. Þeirra hamingja og ríkidæmi voru fólgin í stóra og mannvænlega barnahópnum. Á búskaparárum sínum að Stóru- þúfu átti Hjörtur ávallt góða hesta, og naut hann þess að fara um fagrar sveitir Snæfellsness á gæðingum sínum. Þáttaskil urðu í lífi fjöl- skyldunnar frá Stóruþúfu árið 1946, en það ár fluttust þau til Akraness. Á þeim tíma snerust atvinnuhættir á Akranesi fyrst og fremst um sjó og sjósókn, og vinnslu sjávarafurða. Hjörtur sneri sér að þeim störfum og vann við þau á meðan heilsan entist. Skömmu eftir að móðurbróðir minn, Hjörtur, og Sigríður fluttust til Akraness byggðu þau húsið að Vesturgötu 109 ásamt foreldrum mínum, Árna B. Gíslasyni og Þóreyju Hannesdóttur. Á þessum árum var oft mannmargt og glatt á hjalla á Vesturgötu 109. Ekki skyggði það á gleðina að útsýni þaðan var mikið, og mátti þaðan sjá Snæfelisnesfjöllin sem eru því fólki sem þar bjó á þeim tíma svo mjög kær. Börn þeirra Hjartar og Sigríðar eru Magnes Signý, dáin 1970, hún var gift Gunnari Guðnasyni; Hannes, kvæntur Þorgerði Bergs- dóttur; Einar, kvæntur Oddbjörgu y y y yi y? *>? y:? m y:-, y? y> y? m y': m * HÓTEL BORG í fararbroddi í hálfa öld í hádeginu bjóöum viö upp á Hraöborðið sett mörgum smáréttum, heitum rétti, ávöxtum og ábæti, allt á einu verði. Einnig erum við með nýjan sérrétta- seðil með fjölbreyttum rétt- um. Það er þetta sem hinir vandlátu velja. Hraðbordið styttir matartímann og þú færö Þér aftur og aftur á diskinn. Síödegiskaffiö. Það er þægilegt aö líta við á Borginni og slappa af yfir kaffibolla í hjarta bæjarins. Kvöldverður framreiddur frá kl. 18. Leikhúsgestir, byrjið ánægjulega leikhúsferð meö kvöldverði af okkar glæsirétta matseðli. Framreiöum einnig hraðborð- iö vinsæla fyrir hópa. Um kvöldið Dansleikur Alþýðubandalagsins í Reykjavík, Flóatríóið leikur (ásamt Dísu). S: 11440 Hótel Borg S: 11440 Notalegt umhverfi. Ingimarsdóttur; Þorsteinn kvæntur Sigfríði Geirdal; Sigríður, gift Birni Sigurbjörnssyni; Þórey, gift Guðmundi Þorsteinssyni; Jón, ' kvæntur Brynrúnu Vilbergsdóttur, og Áslaug, gift Bjarna Árnasyni. Þegar börnin þeirra Hjartar og Sigríðar voru uppkomin og farin að heiman var íbúð þeirra á Vesturgötunni orðin of stór og seldu þau því hana og fluttust í lítið en hlýlegt hús að Kirkjubraut 50 á Akranesi. I því litla húsi er nú mikið tóm þegar Hjörtur er farinn. Eins og að framan segir var Hjörtur Líndal Hannesson fæddur að yori. Það má segja að það vor hafi fylgt honum öll hans æviár. Hjörtur var einn af vormönnum Islands. Hjörtur lifði það að sjá vorið koma yfir íslensku þjóðina og búskaparhætti breytast frá því sem þeir höfðu verið um aldir áður, og í það horf sem við þekkjum í daag. Mesta gæfa í lífi Hjartar var hans góða eiginkona sem var honum svo sterk stoð í gegnum lífið. Sigríður er einstök dugnaðar- kona, sem alltaf er glöð og viðmótshlý, og hefur alltaf átt eitthvað til að miðla öðrum og rétta þeim hjálparhönd sem þurft hafa. Sigga mín, við vottum þér og börnum þínum samúð oþkar. Eðvarð L. Árnason. Leidrétting- ar þörf á launum fyrir ákvædisvinnu EFTIRFARANDI ályktun var samþvkkt á þingi Sambands byggingarmanna um síðustu helgii „8. þing S.B.M. vekur athygli á að á undanförnum árum hefur reikningstala ákvæðisvinnu lækkað um 25—30%, miðað við viðmiðunar- taxta. Einnig bendir þingið á að veruleg skerðing hefur átt sér stað á álagsliðum á öðrum la-unakerfum á undanförnum árum og nemur sú skerðing allt að 60%. Þingið álítur að hér sé leiðrétt- ingar þörf og tryggja beri í næstu kjarasamningum, að mælingatölur ákvæðisvinnu fái sömu hækkun og viðmiðunartaxtarnir. Þá felur 8. þing S.B.M. fram- kvæmdastjórn sambandsins, að leita eftir því við viðsemjendur sína, að hlé það, sem væntanlega verður nú á beinum kaupdeilum, verði notað til þess að leggja allt kapp á að ljúka samningu ýmissra kjara- ákvæða, sem ekki vannst tími til við gerð síðustu kjarasamninga, þegar fyrsti sameiginlegi kjarasamningur S.B.M. var gerður.“ GAMLA BIO Sími 11475 frumsýnir VETRARBÖRN Ný dönsk kvikmynd meö ísl. texta gerö verðlaunaskáldsögu DEA TRIER MÖRCH. Leikstjóri: Astrid Henning-Jensen. Sýnd kl. 6 og 9. eftir Happdrætti Sjálfstæðisflokksins Dregið í kvöld Afgreiðslan í Sjálfstæðishúsinu, Háaleitisbraut 1, er opin í dag til kl. 22.00. Sími 82900. Greiðsla sótt heim ef óskað er.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.