Morgunblaðið - 18.11.1978, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 18.11.1978, Blaðsíða 30
3 0 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1978 Steinþór Gestsson: „Kæruleysislega tek- ið á ríkisfjármálum,, Fjögurra milljarða greiðsluafgangur, sagði fjármálaráðherra Frumvarp að fjárlögum vekur jafnan alþjóðarathygli. Það speglar ástand efnahagsmála og ríkisfjármála hverju sinni — og er stefnumarkandi fyrir komandi fjárlagaár. Mbl. hefur gert grein fyrir fjárlagafrumvarpinu í ítarlegum fréttafrásögnum. Það birtj enn fremur í fyrradag efnisþræði úr framsögu fjármálaráðherra, Tómasar Árnasonar og ræðu Matthíasar Á. Mathiesen, sem fyrstur talaði af hálfu stjórnarandstöðunnar í umræðunni. Hér á eftir verða lauslega raktir nokkrir efnisþræðir úr ræðum annarra þingmanna — við fyrstu umræðu frumvarpsins. Rými blaðsins leyfir ekki annað en að stiklað sé á stóru í frásögninni. Reynt er þó að láta sjónarmið komast í aðalatriðum til skila. Ósamið um ymis atriði fjárlagafrumvarpsins I upphafi ræðu sinnar bar Lúðvík Jósepsson (Abl) af sér og Alþýðu- bandalaginu verðbólguþróun í tíð vinstri stjórnarinnar 1971—1974, er Matthías A. Mathiesen hafði feðrað honum. Sjálfur gæti þessi fv. fjár- málaráðherra ekki hlaupizt frá ábyrgð á efnahagsþróun áranna 1974—1978 — með því að rekja rætur hennar einvörðungu til eldri tíðar. Aðkoma nýrrar vinstri stjórn- ar nú var ekki svo beysin varðandi þennan þátt þjóömálanna. LJó sagði framkomið fjárlaga- frumvarp vera stjórnarfrumvarp — það væri enginn vafi —, en það væri hins vegar lagt fram með ýmsum fyrirvörum varðandi atriði, sem enn væri ósamið um milli stjórnarflokk- anna. Þar af leiddi að hann teldi rétt að gera nú þegar nokkrar almennar athugasemdir við frumvarpið. Alþýðubandalagið er andvígt 16% magnminnkun framkvæmda, sem frv. felur í sér. Það getur ekki fallist á framkvæmdasamdrátt umfram 10 til 12% — og þá á þann veg, að félagslegar framkvæmdir, s.s. verði staðið að verki, að hinn almenni borgari hafi trú á þeim aðgerðum, sem til verður gripið. SBj sagði Alþýðuflokkinn gjör- samlega andvígan þeirri stefnu í skatta- og landbúnaðarmálum, sem fram kæmi í fjárlagafrumvarpinu. Frv. gerði ráð fyrir 18 milljarða króna útgjöldum til niðurgreiðslu búvöruverðs og 5,3 milljörðum í útflutningsbætur á landbúnaðar- afurðir er til féllu umfram innan- landsneyzlu. Alþýðuflokkurinn sætt- ir sig ekki við þennan þátt fjárlaga- dæmisins, sagði hann. Stefna fjárlagafrumvarpsins í skattamálum er að gera tekjuskatt- inn enn virkari 1979 en 1978, gera hann að enn meiri láglaunaskatti, er næði til enn fleira láglaunafólks en áður. Þetta gæti Alþýðuflokkurinn ekki undirgengizt, nýkominn úr kosningum, þar sem gagnstæð stefna hefði verið boðuð. Skatttekjur ríkis- sjóðs fara, skv. þessu fjárlagafrum- varpi, í 38.2% af vergri þjóðarfram- leiðslu, sagði S.Bj., sem er hækkun frá því er var. Þingmenn Alþýðuflokksins munu ekki greiðá atkvæði með þessum þáttum fjárlagafrumvarpsins óbreyttum. Við höfum kunngjört fjármálaráðherra þessa afstöðu. Við munum beita okkur af fremsta megni til þess að fá þeim breytt í meðförum þingsins. Fyrirvarar og lausir endar Lárus Jónsson (S) sagði ótal fyrirvara og lausa enda einkenna þetta fjárlagafrumvarp, sem væri endemis óskapnaður. Margir liðir þess væru stórlega vanáætlaðir — eða beinlínis vantaði. Ræður þeirra Lúðvíks og Sighvats afhjúpa og djúpstæðan ágreining í ríkis- stjórnarflokkunum um ýmis höfuð- atriði efnahagsstefnunnar og fjár- lagafrumvarpsins. í raun væri spurning, hvort hægt væri að ræða frumvarp, sem lagt væri fram með þessum hætti, enda hefði Lúðvík Jósepsson kallað það „fyrstu skyndi- yfirferð" ríkisstjórnarinnar í ríkis- fjármálum. En þrátt fyrir allt yrði að líta á frumvarpið sem stjórnarfrumvarp, sem allir stjórn- arflokkarnir bæru jafna ábyrgð á. Lárus fór nokkrum orðum um fyrirvara og ágreiningsatriði stjórn- arflokkanna en vék síðan að tekju- hlið frv. Hann vitnaði til ath.s. í frv., þar sem segir: „Frumvarpið felur í sér auknar tckjur ríkissjóðs í formmi beinna skatta sem ckki leiða til sjálfkrafa hækkunar launa og verðlags." Hækkun á innheimt- um tekju- og eignasköttum, skv. frumvarpinu, næmi um sextán þúsund milljónum króna, 16 milljörðum. Ábent tilvitnun úr fjárlagafrumvarpinu segir beinlínis, að þessi skattaleið sé farin vegna þess, að hana fái launþegar ekki bætta gegnum vísitölu i kaupi. Þessir sömu flokkar „falsa vísitöl- una“ með því að nýta almannaskatta til niðurgreiðslu vöruverðs um 9—10%, þ.e. úr vösum almennings eru teknir fjármunir, 16 milljarðir króna, til þess að ná fram um 10% lækkun á vísitölubótum. Menn eru látnir greiða úr eigin vasa niður sitt eigið kaup. Og þetta heitir ekki „kauprán" í dag. Síðan vék L.J. að stórhækkun tekju- og eignaskatta, sem m.a. kæmi fram í því að ákvarða hækkun skattvísitölu aðeins 43%, þótt frv. gerði ráð fyrir rúmlega 50% hækkun launatekna milli ára. Með þessum skattvísitöluleik væri ætlunin að ná 3.700 milljónum króna, sem m.a. kæmi fram í skattlagningu á lægri tekjur. Þetta gengur þvert á stefnu sjálfstæðismanna í skattamálum, sem afnema vilja tekjuskatt á almennar launatekjur, halda honum einvörðungu á hátekjur. Þessa stefnu hafa Alþýðuflokksmenn og gert að sinni í orði, þó annað komi málaráðuneytinu næmi hækkun frá fjárlögum yfirstandandi árs til áætlunar fjárlagafrumvarps 68.1%. I utanríkisráðuneytinu 50.7%, í landbúnaðarráðúneytinu 82.3%, í sjávarútvegsráðuneytinu 87%, í heilbrigðisráðuneytinu 61.1%, í fjár- málaráðuneytinu 73.8%, í sam- gönguráðuneytinu 70.2%, iðnaðar- ráðuneytinu 63.7% og sjálfu við- skiptaráðuneytinu 78.8%. Meðaltals- hækkun frv. í heild er hins vegar 43.3%. Það væri svo eftir öðru er forsætisráðherra, með sína 116% hækkun, veittist að fjárveitinga- nefnd Alþingis í umræðu, vegna varnaðarorða um nýjar mannaráðn- jngar. Ónógar skýringar væru fram komnar um þessar verulegu hækkan- ir „aðhaldsfjárlaganna“ í sjálfum skrifstofum ráðherranna. Þá vék P.J. að rekstrarerfiðleikum Rafmagnsveitna ríkisins og sagði ranglátt og óviðunandi, að ýmsir félagslegir framkvæmdaþættir, sem í raun ætti að greiða úr sameiginleg- um sjóði, væru látnir koma fram í orkuverði til þeirra, er byggju við margfalt hærri raforkuverð en fólk á svæði Landsvirkjunar (höfuðborgar- svæðinu). Síðan ræddi hann byggðastefnu og byggðasjóð. Að lögum ætti ráðstöf- unarfé sjóðsins að vera 2% að niðurstöðutölum fjárlaga hverju sinni. Farið væri í kringum þetta ákvæði með því að láta byggjasjóð taka að láni og endurlána 1130 m.kr. vegna línuframkvæmda. Það er einkennileg „byggðastefna", sem lýsir sér í þessháttar kúnstum. Ekki Sagt frá fyrstu umræðu um fjárlagafrumvarp hafnargerð, vegaframkvæmdir, skólabyggingar o.þ.h., dragist ekki meira saman en aðrar. Samdráttur- inn gangi jafnt yfir alla fram- kvæmdaþætti rikisins. Þá gæti Alþýðubandalagið ekki fallist á lækkun niðurgreiðslna á vöruverði 1979 frá því sem yrði í desember 1978. Alþýðubandalagið væri og andvígt niðurfellingu á EFTA-toll- um (rúmur milljarður í frv.) — nema sambærilegur stuðningur kæmi á móti við íslenzkan samkeppnisiðnað. Þá væri bandalagið andvígt niður- fellingu skyldusparnaðar. Ef til lækkunar beinna skatta kæmi vildi flokkur sinn fremur lækkun sjúkra- tryggingargjalds, sem væri brúttó- skattur, en tekjuskatts (sem Alþýðu- fl. leggur höfuðáherzlu á). Þá sagði L.Jó. að ágreiningur væri milli stjórnarflokka um lánsfjáráætlun, um sparnað í rekstrarkerfi ríkisins og varðandi olíustyrk og jöfnun húshitunar og raforkuverðs. Eg trúi því að stjórnarflokkarnir nái að brúa þennan ágreining sagði L.Jó. Það er of snemmt fyrir stjórnarandstöðuna að fara að hlakka yfir ímynduðum stjórnarslit- um! Greiðum ekki atkvæði með tekjuskatts- og búvöruþætti Sighvatur Björgvinsson (A) minnti á, að verðbólgustig hefði verið hér milli 40 og 50% um 7 ára bil. Ekkert annað land á svipuðu menningarstigi hefði þurft að þola þvíumlíkt. Almennt væri það skoðun sérhæfðra manna, að verðbólga yfir 30% væri á mörkum óviðráðanlegs þjóðfélagsvanda. Alþýðuflokkurinn leggur megináherzlu á það markmið núverandi ríkisstjórnar að ná verð- bólgunni niður. Honum er ljóst að það gerist ekki án tímabundinna byrða á alla þjóðfélagsþegnana, og þetta gerist ekki nema þann veg Lúðvík Jósepsson útskýrir málin fyrir Eðvarð Sigurðssyni, hver svo sem þau eru og Sverrir Hermannsson situr við skriftir. fram í stjórnarfrumvarpi, sem þeir hljóta að bera ábyrgð á. Sjálfur hefur formaður þingflokks Alþýðuflokksins orðað þetta svo, „að tekjuskatturinn væri óréttlátur, hann mismuni fólki gróflega, bjóði upp á fjölmargar leiðir til löglegra undanbragða, verki sem fjötur á vinnuvilja... enda um að ræða hreinan launamannaskatt". Á árum síðustu ríkisstjórnar hafi hlutfall beinna skatta í skatttekjum lækkað úr 27% í 18% í samræmi við þessa stefnu. Nú er Alþýðuflokkurinn í ríkisstjórn og ber ábyrgð á fjárlaga- frumvarpi, er h hækkar hlutfall beinna skatta verulega á ný. Síðan ræddi L.J. í ítarlegu máli um framkvæmdaniðurskurð, rýrð fram- lög til fjárfestingarsjóða og ýmissa félagslegra hluta, en að þeir „félags- byggjumenn", er stjórnarliðar telja sig, skuli skera niður framlög til skólabygginga fyrir þroskaheft börn, til íþróttasjóðs, til byggingarsjóðs ríkisins, sýnir að gjörðir þeirra og orð fara ekki saman. Og þrátt fyrir allan þennan niðurskurð væri greiðsluhalli á frumvarpinu upp á 8 milljarða, ef grannt væri gáð. Hvern veg spara hinir nýju ráðherrar hið næsta sér? Pálmi Jónsson (S) sagði m.a. að fjármálaráðherra hefði margt vel sagt um hættuástand það, sem við blasti í efnahagsmáium, og nauðsyn marktækra viðbragða, ekki sízt til aðhalds í ríkisfjármálum. En hvern veg ætla ráðherrar að spara í ráðuneytum sínum, skv. framlögðu fjárlagafrumvarpi fyrir komandi ár? Þar eru kostnaðarhækkanir verulega hærri en nemur verðbólgustigi, ráðherrarnir með umtalsvert forskot á sprettinum fram yfir verðbólgu- drauginn. Mest er hækkunin í sjálfu forsætisráðuneytinu eða hvorki meira né minni en 116%. í mennta- síður í því að svokallaðir olíustyrkir, til jöfnunar á húshitunarkostnaði, séu ekki einu sinni látnir halda krónutölu, hvað þá verðgildi, í fjárlagafrumvarpinu. Ríkissjóðs- framlag til Vegasjóðs sé fellt niður. — Fleiri dæmi mætti til tína er sýndu annars konar byggðaviðhorf hjá Framsóknarfl. eftir að hann hætti samstarfi við Sjálfstæðisfl. Þá vakti P.J. athygli á því ósamræmi í afstöðu Alþýðufl.— manna, að Sighv. Björgvinsson mælti hart gegn skattastefnu þeirri er fram kæmi í bráðabirgðalögum og fjárlagafrumvarpi, en F'innur Torfi Stefánsson hefði sagt „allar þessar efnahagsaðgerðir mótaðar í anda kjarasáttmálans", sem heitið hafi verið í kosningabaráttunni. Að lokum vék P.J. að nauðsyn marktækra mótaðgerða gegn verð- bólgu og vanda efnahagslífsins. Þau viðbrögð þyrftu að koma fram með skýrara hætti í ríkisfjármálum en framkomið frumvarp bæri vott um. Þar á meðal með sparnaði í ríkis- rekstrinum. Fróðlegt verður að sjá, sagði hann, hvern veg andstæð sjónarmið stjórnarflokkanna mæt- ast við lokaafgreiðslu „stefnumark- andi“ fjárlaga fyrir komandi ár. Hvorki sameiginleg stefna né heildarstefna Ellert B. Schram (S) sagði m.a. að fjárlagafrumvarpið mótaði hvorkj heildarstefnu né sameiginlega stefnu í efnahags- eða ríkisfjármálum. Þetta væri hrikaleg staðreynd sem bæði frumvarpið og ummæli stjórn- arliða hér í dag staðfestu. Fjármála- ráðherra segði að frumvarpið fæli þrennt í sér: að dregið yrði úr sjálfvirkni verðbólgu, dregið yrði úr fjárfestingu i heild og að ríkisfjár- málin yrðu hemill á verðþenslu. Athugum þetta eilítið: 1. Gripið var til niðurgreiðslna, fjármagnaðra með aukinni skatt-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.