Morgunblaðið - 18.11.1978, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 18.11.1978, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1978 23 Tillögur FÍI um frestun tollalækkana og iðnþróunaraðgerðir: „Hagsmunir iðnaðarins verði haf ðir í huga við skráningu gengisins” — ranglega skráð gengi kostaði iðnaðinn 4 milljarða á s.l. ári í TILLÖGUM Félags íslenzkra iðnrekenda um frestun tollalækk- ana og mikilvægustu iðnþróunar- aðgerðir, sem lagðar voru fram á almennum félagsfundi í gær, segir m.a. um gengiskerfið, að aukin áherzla á útflutningsiðnað og afnám hafta og innflutnings- hindrana valdi því, að gengis- skráning sé nú mjög þýðingar- mikil fyrir iðnaðinn. Því verði við ákvörðun um skráningu gengisins hagsmunir iðnaðarins hafðir í huga, sem og sjávarútvegs. Ennfremur verði unnið að því hið bráðasta að gera nauðsynlegar leiðréttingar á starfsskilyrðum atvinnuveganna, og í því sambandi hafi bráða- birgðaathugun leitt í ljós að gengið sé ranglega skráð um sem nemur 5% iðnaðinum í óhag, vegna tilfærslna sjávarútveginum í hag. En á síðasta ári nam því beint tap iðnaðarins um 4 milljörðum króna. Þá segir að hér á landi ríki mikil tregða á að skrá gengið eftir raunverulegum kostnaði við að afla gjaldeyris. Þegar afkoman rýrnar í sjávarútvegi vegna afla- brests eða verðfalls á afurðum og leiðrétting á gengi er orðin nauðsynleg, er rík tilhneiging til að grípa til sérstakra tilfærslna til sjávarútvegsins, sem vonast er til að komi að sömu notum og gengisbreyting. Þessar tilfærslur birtast í mörgum myndum og má nefna að ekki er greiddur launa- skattur af tekjum sjómanna, sérstakar ívilnanir til handa sjávarútvegi í formi aðstöðugjalds, sérstök skattfríðindi sjómanna og greiðari aðgang að lánsfjármagni og á betri kjörum en stendur iðnaðinum til boða. í reynd komi þessar tilfærslur sjávarútveginum að engu haldi, en viðhaldi hins vegar niðurgreiðsl- um á innflutningsverði með rangri gengisskráningu. Það er því ráðist gegn sjúkdómseinkenninu en ekki sjúkdómnum sjálfum. Hliðin sem snýr að iðnaðinum er enn dekkri. Þessar aðgerðir gera það að verkum, að gengið er sífellt Frá lögreglunni: ranglega skráð, sem endurspeglast í lægri tekjum af útflutningi iðnaðarvara og lakari aðstöðu heimaiðnaðar, sem býr við harðn- andi samkeppni erlendis frá. Afleiðingin er því stöðugur mótbyr fyrir iðnaðinn. Hvað er til úrbóta? spyrja iðnrekendur. Brýn nauðsyn er að afnema þá mismunum, sem fram kemur við álagningu launaskatts. Launaskattur, sem nú er 3,5% er ekki lagður á tekjur sjómanna. Til að koma í veg fyrir mismunun atvinnuveganna, sem endurspegl- ast í óraunhæfri gengisskráningu, verður að láta launaskattinn ná til allra atvinnuvega eða að öðrum kosti fella hann niður. Launa- skattur sem næði til allra atvinnu- veganna og tryggði sömu tekjur til ríkissjóðs, þ.e. u.þ.b. 3%. Ennfremur segir að sjávarút- vegur og fiskvinnsla njóti sér- stakra ívilnana í lögum um álagningu aðstöðugjalda, þar sem útgerðinni sé nú aðeins gert að greiða einn þriðja hluta af því sem iðnaðinum er gert að greiða og fiskvinnslunni helming. Það sé því nauðsynlegt að breyta lögum um tekjustofna sveitarfélaga á þann veg, að atvinnuvegirnir greiði sama aðstöðugjald. Um sveiflujöfnun, sem að mati iðnrekenda er nauðsynleg, segir í tillögunum, að nærtækasta leiðin til að draga úr sveiflum í sjávarút- vegi og þá jafnframt þjóðarbúinu í heild, sé að beita verðjöfnunar- sjóðum sjávarútvegsins í samræmi við upprunalegan tilgang þeirra. Úr virkni verðjöfnunarsjóða sjávarútvegsins hafi verulega verið dregið á undanförnum árum og þeir jafnvel orðið tæki í höndum stjórnvalda til að fresta réttri skráningu gengisins. Við slíkar aðstæður hafi verið kynt undir verðbólgunni. Slíkt verði að fyrirbyggja og 'sé mjög áríðandi, að taka upp raunhæfa notkun þessara sjóða sjávarútvegi, iðnaði og öðrum atvinnugreinum og síðast en ekki síst öllum almenn- ingi til hagsbóta. Zontakonur hafa að undanförnu unnið að alls konar jólaskrauti og bakað smákökur á basar sinn á sunnudag, en einnig safnað munum á flóamarkað. Ljósm. Kristján. Basar og flóamarkaður til styrktar talmeinastöð Reykjavíkurdeild alþjóðafé- lagskaparins Zonta hefur um langt árabil unnið að málefn- um heyrnarskertra, m.a. með styrkjum til sérhæfingarnáms, tækjakaupum og almennum stuðningi við heyrnarskert fólk. Nú hefur félagskapurinn ákveðið að einbeita sér að því að styrkja væntanlega tal- meinastöð, sem lög hafa verið sett um. En talmeinastöð vant- ar mjög tilfinnanlega, þar sem hægt er að rannsaka talgalia. og fá leiðrétta slíka galla, einkum í börnum. áður en þeir ná að festast. Zontakonur eru að afla fjár til tækjakaupa í slíka talmeina- stöð. Og liður í því er flóamark- aður og jólabasar, sem efnt er til á Hallveigarstöðum á sunnudag- inn kl. 2. Þar eru á boðstólum alls konar notaðir munir og fatnaður á flóamarkaðinum. Og einnig margs konar jólamunir, sem Zontakonur hafa unnið, svo og smákökur. Jóla- og kökubasar Kvenfélag Karlakórs Reykja- víkur heldur sinn árlega jóla- og kökubasar að Hallveigarstöðum laugardaginn 18. nóv. kl. 2 e.h. Margt góðra muna til jóla- gjafa. „Samkeppnisaðstaða hús- gagnaiðnaðarins er til sérstakrar athugunar” — segir Svavar Gestsson viðskiptaráðherra Lýst eftir vitn- um að ákeyrslum Slysarannsóknadeild lögregl- unnar hefur bcðið Mbl. að lýsa eftir vitnum að cftirtöldum ákeyrslum. Laugard. 4. nóv. Ekið á bifreiðina R-58403, Volkswagen fólksb., þar sem hún stóð á Gullteigi á milli Hofteigs og Laugateigs, kl. 16.00—19.15. Bæði vinstri aurbretti dælduð og hliðár- spegill brotinn. Laugard. 11. nóv. Ekið á bifreiðina R-39669, Raunus fólksb., árg. '68, á bifreiða- stæði við Asparfell 6 eða við verslunina Kjöt og fisk við Selja- braut á tímabilinu kl. 17.00 þ. 10. nóv. — kl. 16.00 þ. 11. nóv. Hægra afturaurbretti dældað. Mánud. 13. nóv. Ekið á bifreiðina Y-8140, Peugeot station, á stæði við stöðumæli á móts við hús nr. 33 við Snorrabraut á tímabilinu kl. 23.30 kvöldið áður til kl. 15.00 þ. 13. nóv. Hægra framaurbretti og ljósker skemmt. Laugard. 11. nóv. Ekið á bifreiðina R-37307, Volkswagen fólksb., á bifreiða- stæði fyrir framan hús nr. 58 við Sörlaskjól á tímabilinu kl. 20.30 kvöldið áður til kl. 16.00 þ. 11. Afturhöggvari og vélarlok skemmt. Eftir ummerkjum á staðnum er talið að tjónavaldur sé af gerðinni Lancer, árgerð 1974. „Á VEGUM iðnaðarráðuneytisins er starfandi ákveðin samstarfs- nefnd um iðnþróun og mér er kunnugt að þar hefur verið rætt um vandamál húsgagnaiðnaðar ins í landinu og ennfremur er gert ráð fyrir því í samstarfsyfir- lýsingu stjórnarflokkanna að gerðar verði ráðstafanir til þess að styrkja samkeppnisaðstöðu íslenzks iðnaðar með sérstökum hætti og m.a. með frestunum tollalækkana, sem eiga að taka gildi frá næstu áramótum,“ sagði Svavar Gestsson viðskiptaráð- herra þegar Mbl. bar undir hann þá áskorun þings Sambands byggingamanna að hömlur yrðu settar á innflutning á hverskonar unnum trévörum. „Því miður hefur ríkisstjórnin ekki fallist á það að fresta þessum tollalækkunum," bætti Svavar við, „eins og við ráðherrar Alþýðu- bandalagsins lögðum til á fundi hennar í gær en. í staðinn er ætlunin að grípa til annarra aðgerða sem hafa ámóta áhrif á stöðu iðnaðarins í landinu gagn- vart erlendri samkeppni. Þar eru auðvitað mörg mál til skoðunar og ég vil ekki taka einstaka mál útúr en ég vil láta það koma fram af þessu tilefni að samkeppnisað- staða einstakra iðngreina er til sérstakrar athugunar. Ég á von á því að ríkisstjórnin ræði þetta nánar í næstu viku en ráðherra- fundur Fríverzlunarbandalagsins verður haldinn í Genf í næstu viku og þá vænti ég þess að ég geti skýrt frá meginatriðunum, sem við ætlum að grípa til, til þess að styrkja íslenzkan iðnað.“. Blaðamenn í mynda- getraun í sjónvarpi Nýr þáttur, sem ber heitið Myndgátan. hefur göngu sína í sjónvarpinu í kvöld kl. 21.00. Er um að ræða spurningaþátt sem Aðalfundur LÍÚ: Fagnar endurskoðun kaupgj aldsvísitölu FRUMVARPI um hækkun vaxta var harðlega mótmælt á fundi LÍÍl og í ályktun fundarins er bent á að vextir af rekstrarlánum til útgerðar hafi ríflega tvöfald- ast frá því um mitt ár 1977. Þá segir að veruleg hækkun fisk- verðs sé óhjákvæmileg um ára- mót. Fundurinn fagnar þeirri endurskoðun, sem nú fer fram á kaupgjaldsvisitölunni, sá hluti ályktana LÍÚfundarins, sem fjallar um þessi efni, fer hér á eftir' „Aðalfundur L.Í.Ú. mótmælir harðlega framkomnu frumvarpi um hækkun vaxta og bendir á, að vextir af rekstrarlánum til út- gerðar hafa ríflega tvöfaldast frá því um mitt ár 1977. Þá bendir fundurinn á, að frekari hækkun vaxta, samfara aukinni verðbindingu lána Fisk- veiðasjóðs, muni gera nýsmíðar skipa og breytingar og aðrar endurbætur á skipum fjárhagslega óframkvæmanlegar í framtíðinni. Aðalfundur L.I.Ú. fagnar þeirri endurskoðun, sem nú fer fram á kaupgjaldsvísitölunni og þeim skilningi, sem forystumenn verka- lýðshreyfingarinnar virðast hafa á verðbólguhvetjandi áhrifum hennar. Fundurinn vonar að sá árangur náist úr framangreindri endurskoðun, að mjög verulega dragi úr þeirri víxlhækkun launa og verðlags, sem framar öðru hafa orsakað verðbólguna á undanförn- um árum. Framangreindar upplýsingar um hinn geigvænlega hallarekstur flotans, sem óhjákvæmilega mun fara vaxandi vegna síhækkandi kostnaðar sýna fram á það, svo ekki verður um villst, að veruleg hækkun fiskverðs er óhjákvæmi- leg um n.k. áramót.“ blaðamenn í Reykjavík taka þátt í, og í kvöld leiða saman hesta sína blaðamenn Vísis og Alþýðu- blaðsins annars vegar og Morg- unblaðsins og Dagblaðsins hins vegar. Þættirnir verða á dagskrá sjónvarpsins næstu fimm laugar- dagskvöld. Myndgetraunin er með þeim hætti að sjónvarpsáhorfendur í heimahúsum geta verið jafn virkir þátttakendur og keppendur í sjónvarpssal. Getraunin höfðar fremur til sjónminnis og athyglis- gáfna en sérþekkingar. Leikurinn byggist upp á myndum. í fyrsta lagi er um að ræða almennar spurningar. í öðru lagi svokallaða myndgátu þar sem málshættir eru faldir í myndgátum. Loks er um að ræða svokallaðar samstæður, en þar ræður sjónminnið miklu um árangurinn. Vægi myndgátanna með málsháttunum er það mikið í stigakeppninni að ráðið getur úrslitum í keppni blaðanna. En sjón er sögu ríkari og leikreglur skýra sig bezt sjálfar þegar þátturinn er hafinn. Stjórnandi þáttanna er Egill Eðvarðsson, en þau Ásta R. Jóhannesdóttir og Þorgeir Ást- valdsson sjá um kynninguna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.