Morgunblaðið - 18.11.1978, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1978
15
Lelkllst
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
LÍFSIIÁSKI.
Tryllir í tvoim þáttum eftir Ira
Lovin.
Þýðingt Tómas Zoöga.
Leikstjórni Gísli Halldórsson.
Loikmyndt Steinþór Sigurðs-
son.
Lýsingt Dani'ol Williamsson.
Frumsýninj; hjá Loikfélagi
Iíoykjavíkur 15. nóvember
1978.
í leikskrá er tekin upp vörn
fyrir þá tegund leikverka sem á
ensku nefnist thriller. en Tómas
Zoéga hefur nú gefið íslenska
nafnið tryllir. Víst er þörf fyrir
þess konar verk eins og annað
skemmtiefni. Og ekki hefur
sjónvarpið látið sitt eftir liggja
eða kvikmyndaframleiðendur.
En hvað er tryllir? Rithöfund-
urinn Sidney Bruhl í Lífsháska
lýsir honum þannig:
„Lífsháski — tryllir í tveim
þáttum. Eitt svið, fimm persón-
ur. Krassandi morð í fyrsta
þætti, óvæntir atburðir í öðrum
þætti. Kaldhæðinn og skemmti-
legur endir. Góð uppbygging,
fínn texti, fyndið á réttum
stöðum."
Sigríður Hagalín og Guðmund-
ur Pálsson.
Sidney Bruhl er kunnur og
vinsæll leikritahöfundur. Vin-
sældunum má hann ekki glata.
Nú ríður á að láta sér detta
eitthvað snjallt í hug sem yrði
kveikja að nýju verki. En andinn
er honum ekki hliðhollur. Ungur
nemandi hans í leikritagerð,
Clifford Anderson, kemur hon-
um til hjálpar. Þeir setja á svið
leikrit í raunveruleikanum,
þeas. skipuleggja morð. Smám
saman verður þeim ljóst að
morðið er reyndar heppilegt efni
í leikrit. Anderson hyggst verða
á undan Bruhl að nýta hug-
myndina að leikritinu Lífs-
háska, en sá gamli sér við
honum. Fleiri virðast hafa
áhuga á Lífsháska. Sjáandinn
Helga Ten Dorp og lögfræðing-
urinn Porter Milgrim eru í þeim
hópi. Hér er barist um um
peninga og frægð. Vettvangur
atburðanna er heimili Bruhl
hjónanna í Westport í Connecti-
cut.
Ira Levin er enginn viðvan-
ingur í leikritagerð og einnig
þekktur skáldsagnahöfundur.
Hann var tvítugur að aldri
þegar hann fékk Edgar Allan
Poe verðlaunin fyrir sögu sína A
Kiss before Dying (1954). Lífs-
háski er meitlað verk samið
handa þeim sem vilja æsandi
efni, spenning á borð við það
sem boðið er upp á í kvikmynd-
um. Verkið er að mörgu leyti
merkilegt fyrir þá innsýn sem
það gefur í heim rithöfundar á
Iljalti Rögnvaldsson, Ásdís Skúladóttir og Þorsteinn Gunnarsson.
Tryllast áhorf-
enaur í Idnó?
borð við Levin, en Bruhl er
fulltrúi hans. Aftur á móti er
það of farsakennt, einkum undir
lokin, til þess að það geti orðið
annað og meira en afþreying
eina kvöldstund.
Leikstjórn Gísla Halldórsson-
ar er með ágætum. Þó get ég
ekki varist þeim grun að hann
geri verkið of ærslafengið í
gömlum Iðnóstíl og á ég þá
einkum við túlkun Sigríðar
Hagalín á Helgu Ten Dorp.
Þorsteinn Gunnarsson náði
góðum tökum á hlutverki Sid-
neys Bruhl, leikur hans var í
senn þrróttmikill og sannfær-
andi.
Hlutverk Myru Bruhl, eigin-
konu rithöfundarins, var í hönd-
um Ásdísar Skúladóttur. Þetta
er vandasamt hlutverk. En
Ásdís var þeim vanda vaxin.
Hjalti Rögnvaldsson naut sín
í hlutverki Cliffords Anderson.
Þessi ákafi ungi maður boðar
ósigur hins gamalreynda rithöf-
undar sem er búinn að fá nóg af
starfi sínu.
Guðmundur Pálsson lék lög-
fræðinginn Porter Milgrim. Frá
höfundarins hendi er þetta
veigalítið hlutverk, en segja má
að Guðmundur hafi ráðið vel við
það, að minnsta kosti framan af.
Leikmyndin var fagmannlega
gerð af Steinþóri Sigurðssyni.
Lýsing Daníels Williamssonar
var eins og best verður á kosið.
Og þá er eftir að sjá hvernig
þetta leikrit sem Tómas Zoega
kallar trylli í vandaðri og
hressilegri þýðingu sinni á eftir
að orka á íslenska áhorfendur.
Verkið er samið handa lífs-
þreyttum Bandaríkjamönnum
og á eflaust erindi hingað líka.
Bamasaga
„Dvergurinn með rauðu
húfuna", eftir Ingólf Jóns-
son frá Prestsbakka, heitir
stutt saga fyrir yngstu
börnin sem er nýkomin út.
Þórir Sigurðsson mynd-
skreytti. Bókaútgáfan Fróði
gefur út.
HÁÞRÝSTI-
VÖKVAKERFI
SérhæfÓ þjónusta.
AÓstoÓum vió val
og uppsetningu
hvers konar
háþrýstibúnaóar.
ITURDLLA
Tannhjóladælur
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRFANTANIR-WÓNUSTA
Bókauppboðí
Klausturhólum
Klausturhólar, listmunauppboð
Guðmundar Axelssonar, efnir til
48. uppboðs fyrirtækisins í dag,
laugardag. Seldar verða bækur af
ýmsu tagi frá 18.—20. öld.
Uppboðsskrá, sem blaðinu hefur
borist, skiptist í flokka eftir efni:
Ymis rit, ljóð, gamlar tilskipanir,
blöð og tímarit, þjóðsögur og
sagnaþættir, trúmálarit, fornrita-
útgáfur, æviminningar og ævi-
skrár, saga lands og lýðs.
Á uppboðinu er mikið um
ættarskrár og æviminningar, þ.á
m. Ævisaga Bjarna Pálssonar
eftir Svein Pálsson, Leirá 1800,
Alþingismanntal Jóhanns
Kristjánssonar, Rvík 1906,
Strandamenn eftir sr. Jón Guðna-
son, Ættir Austfirðinga eftir
Einar Jónsson o.fl., Hver er
maðurinn? eftir Brynleif Tóbías-
son, Ævisaga Gissurar Þorvalds-
sonar, Rvík 1868, Ævisaga Péturs
biskups eftir Þorvald Thoroddsen,
Rvík 1908.
Alls verða seld á uppboðinu 150
númer, marggt af því bækur frá
þessari öld, sem fágætar eru
orðnar. Má þar m.a. nefna Nogle
bemærkninger om en Gruppe
algebraiske flader eftir dr. Olaf
Daníelsson (doktorsrit hans),
Heilög kirkja eftir Stefán frá
Hvítadal (frumútgáfa), Voga
Einars Benediktssonar, Kvæði
Stefáns Ólafssonar I—II, Fjölni
I—IX, ljósprent, Eir I—II, tímarit
um lækningar, Verðandi, Kaupmh.
1882, Gest Vestfirðing I—V árg.,
Tímarit Jóns Péturssonar I—IV,
Kh. 1869—1873, þjóðsögur og
munnmæli eftir Jón Þorkelsson,
Rvík 1899, Þættir úr Árnesþingi
I—II eftir Skúla Helgason, Ijós-
prentaðan Grallara frá Hólum
1594, Jómsvíkingasögu ok
Kytlínga, Kh. 1828, Lýðveldis-
hátiðina 1944, Alþingishátíðina
1930, Tyrkjaránið á íslandi 1627,
Rvík 1906-09, Annála 1400—1800
Bókmenntafélagsins, Alþingis-
bækur I—VI og Menn og menntir
I—IV eftir Pál Eggert Ólason,
Rvík 1919-1926.
Uppboðið hefst laugardag kl. 2
eftir hádegi.
I mMtmJí 1-_
LITIO PQrll
hefur
iítið sjónsvid
jWyil
Nú um helgina sýnum viö skápasamstæður á
sérstakri sýningu í verslun okkar, laugardag kl.
9—17 og sunnudag, kl. 14—18.
Komið og kynniö ykkur hina fjölmörgu mögu-
leika, sem samstæöurnar hafa fyrir heimili jafnt
sem vinnustað.
KRISTJfiO
SICGEIRSSOn Hf.
LAUGAVEG113, REYKJAVÍK, SÍMI 25870